Morgunblaðið - 05.02.1987, Blaðsíða 49
MORGUNBI4PIÐ, FIMMTUDAGUR 5. FEBRÚAR 1987
49
J ATVARÐUR
kominn
á
sillu?
Reuter
Kjólarnlr voru hver öórum glœsilegrl, svo sem sjá má.
Yngsti sonur Bretadrottningar
Játvarður prins, hefur nú feng-
ið viðfangsefni; en sem kunnugt er
hætti hann þjónustu í Landgöngu-
liði hennar hátignar í síðasta
Játvaröur prins
í búnlngi úr elnhverju
leikrltl Shakespeares.
mánuði. Þótti það mikil hneisa þar
sem að karlmenn í konungsíjöl-
skyldunni hafa ávallt gegnt her-
þjónustu — nær undantekningar-
laust við góðan orðstír. Segja
kunnugir að sérstaklega hafi þó
faðir hans, Filippus, og bróðir,
Andrés, orðið æfir vegna þessarar
uppgjafar prinsins unga og vændu
þeir hann um geðleysi. Er einnig
haft fyrir satt að gamli maðurinn
hafi sagt honum að þetta hefði verið
næstsíðasta tækifæri hans til þess
að fínna sér sillu í lífinu — hér eft-
ir myndi hann ekki byija á einu,
sem hann lyki ekki við.
Vettvangurinn, sem hinn 22 ára
gamli prins hefur valið sér, er
Æskulýðsleikhúsið á Bretlandi
(National Youth Theatre), en hann
verður héðan í frá vemdari þess.
Að sögn framkvæmdastjóra Æsku-
lýðsleikhússins, Bryan Forbes, mun
prinsinn þegar hefjast handa innan
veggja leikhússins.
Leikhúslífíð er Játvarði ekki með
öllu ókunnugt, því að hann tók iðu-
lega þátt í starfí áhugaleikhúss
skólasveina í Cambridge, meðan
hann var þar við nám.
Játvarður mun ekki þiggja nein
laun, sem vemdari leikhússins, en
að sögn Forbes mun hann samt sem
áður fylgjast grannt með öllum
rekstri þess og verður hann hafður
með í ráðum, bæði hvað varðar
langtímaákvarðanir og starfrækslu
dag frá degi. Sagðist Forbes vonast
til þess að prinsinn myndi einnig
fylgjast með uppsetningu leikverka
og koma á æfíngar.
Að vísu hafa talsmenn Bucking-
ham-hallar dregið úr mikilvægi
starfans og sagt að honum fylgi
litlar skyldur, aðrar en þær að nafn
prinsins er leikhúsinu léð.
— Ég skil ekki hvað pabbi á við. Hann spyr hvort skonnortan
sé farin.