Morgunblaðið - 05.02.1987, Síða 58
58 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. FEBRÚAR 1987
Heimsmeistarakeppnin á skíðum í Crans-Montana:
Zurbriggen
vann gull á
afmælisdaginn
Crans-Montana, frá Önnu Bjarnadóttur, fréttarttara Morgunblaðalna.
„GULLVERÐLAUNIN í dag eru
eins góö afmælisgjöf og nokkur
getur óskað sór,“ sagói Sviss-
lendingurinn Pirmin Zurbriggen
eftir að hann vann stórsvig karla
á heimsmeistaramótinu f alpa-
greinum f Crans-Montana f gær.
Hann var annar á eftir landa
sfnum Joel Gaspoz f fyrri umferð
keppninnar og hefði hlotið sfn
þriðju silfurverðlaun á heims-
meistaramótinu ef Gaspoz hefði
ekki fatast alveg undir lok braut-
arinnar og dottið þremur hliðum
fyrir ofan markið f seinni umferð.
Zurbriggen þótti leitt Gaspoz
vegna að hann hefði dottið. „Fall
hans sýnir hversu skammt er á
milli heppni og óheppni í íþrótt-
um,“ sagði heimsmeistarinn
margfaldi.
Austurríkismaðurinn Marc Gir-
ardelli, sem kepir fyrir Lúxemborg,
varð annar í keppninni og ítalinn
Alberto Tomba þriðji. Zurbriggen
hafði tímann 2:32,38 eftir báðar
umferðirnar, Girardelli 2:32,45 og
Tomba 2:33,13. Þetta eru fyrstu
verðlaun ítala í Crans-Montana.
„Eg var hæstánægður með að
hljóta fjórða sætið á meðan ég
fylgdist með Gaspoz niður braut-
ina,“ sagði Tomba á blaðamanna-
fundi eftir keppnina. „Mér þykir
leiðinlegt hans vegna að hann datt
en er himinlifandi mín vegna að
hafa unnið bronsverðlaunin fyrir
Ítalíu."
Brautin var snarbrött, glerhörð
og keppendum kom saman um að
hún hafi verið erfið. „Brautin er
mjög erfið en ég gerði engin mis-
tök,“ sagði Gaspoz eftir fyrri
umferðina. „Keppnin við Zurbrigg-
en verður hörð en ég kvíði ekki
seinni umferðinni."
Girardelii sagði að hann hefði
átt í nokkrum erfiðleikum og gert
nokkur mistök í báðum umferðum.
„En ef maður leggur sig allan fram
þá tekst þetta,“ sagði heimsmeist-
arinn í alpatvíkeppninni. Þetta voru
hans þriðju verðlaun í Crans-
Montana og hann sagði að þau
gleddu sig mest. „Ég las einhvers
staðar að verð á gulli værí að falla
en silfur færi hækkandi," sagði
hann hlæjandi.
Girardelli sagðist ekki eiga von
á verðlaunum í svigkeppninni sem
verður haldin á sunnudag. Aust-
urríkismenn vonast til að standa
sig vel þá en þeim hefur gengið
illa fram til þessa. „Þegar liðið
stendur ekki saman þá er ekki von
á góðu,“ sagði einn tækniþjálfari
Sfmamynd/Rautsr
• Pirmln Zurbriggen hált upp á 24 ára afmæli sitt í gær mað þvf
að vinna önnur gullverðlaun sín á HM f Crans-Montana. Hann hafði
þvf rfka ástæðu til að fagna.
liðsins. Gaspoz fær einnig nýtt
tækifæri á sunnudag. Hann er
sterkasti maður Svisslendinga í
svigi. Hann bar sig vel eftir áfallið
í gær og sagðist vonast til að
bæta fyrir það með því að hljóta
verðlaun í svigkeppninni.
Zurbriggen hélt upp á 24 ára
afmælið í litlum fjölskyldu- og vina-
hópi í gærkvöldi. Stærri veisla
verður haldin þegar hann snýr
heim af heimsmeistaramótinu á
sunnudag með tvenn silfur- og
tvenn gullverðlaun í farangrinum.
Sfmamynd/AP
• Danfel Hilmarsson frá Dalvfk hafnaði f 48. sæti f stórsvigskeppninni í gær. Hár er hann í brautinni
sem var mjög erfið.
1X2 •o o « Xi c 3 ? o 5 > Q Ttmlnn c £ ! a Dagur O £ «0 1 « É c « 1 m Sunday Mlrror Sunday People News of the World Sunday Express Sunday Telegraph SAMTALS
1 X 2
Aston Villa — QPR X 1 X 1 1 1 1 1 1 2 2 X 7 3 2
Charlton — Man. Utd. 2 2 2 2 X 2 2 2 2 2 2 X 0 2 10
Chelsea — Sheff. Wed. X X 1 1 2 X X 1 X 1 1 1 6 S 1
Leicester — Wimbledon 1 1 X X X 1 1 1 1 X X 1 7 5 0
Newcastle — Luton 1 1 2 1 1 1 2 2 X X 2 2 S 2 5
Brlghton — Sunderland 1 X 1 X 1 1 1 1 X 1 1 1 9 3 0
Derby — Birmingham 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 12 0 0
Hull — Oldham 2 2 2 X X 2 2 X X X 2 X 0 6 6
Ipswich — Portsmouth 1 X 1 2 1 X 2 1 1 X X 1 6 4 2
Reading — Plymouth X 1 X 2 1 2 2 2 X X 2 2 2 4 6
Sheffield Utd. — Leeds 1 1 1 X 2 X 1 1 2 1 1 1 8 2 2
Stoke — Crystal Palace 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 X 1 11 1 0
„Brautin var
rosalega erf ið“
- sagði Daníel sem hafnaði
í 48. sæti í stórsvigi
Crans-Montana, frá Önnu Bjarnadóttur, fróttaritara Morgunbiadsins.
DANÍEL HILMARSSON varð
númer 48 af 66 keppendum og
fékk tímann 2:49,62 mfn. f stór-
svigi karla á heimsmeistaramót-
inu í alpagreinum í Crans-Mont-
ana í gær. Honum urðu á mistök
í upphafi fyrri umferðar og tapaði
tíma á þvf en gekk vei f seinni
umferð. „Ég var nokkuð spenntur
fyrir keppnina og það munaði litlu
að ég færi út úr í fyrri umferð.
Ég er mjög óánægður með hana.
Seinni umferðin gekk betur og
ég get verið ánægður með hana,“
sagði Danfel.
96 þátttakendur tóku þátt í fyrri
umferðinni en 80 hinni seinni.
Daníel startaði númer 69. Hann
hlaut tímann 1:27,06 í fyrri umferð
og varð 58. í röðinni. í seinni um-
ferð hlaut hann tímann 1:22,56 og
var samtals rúmum 7 sekúndum á
Knattspyrna:
Ekki misst
úr leik
167 ár
EINS og margoft hefur komið
fram fá stuðningsmenn aðkomu-
liða ekki að horfa á leiki liða sinna
á heimavelli Luton. En engin regla
er án undantekninga og um helg-
ina fékk einn stuðningsmaður
QPR að horfa á leik sinna manna
gegn Luton á útivelli.
Viðkomandi skrifaði John
Moore, framkvæmdastjóra Luton,
sagðist ekki hafa misst af leik með
QPR í 67 ár og fór fram 'a að fá
miða á leikinn gegn Luton. Moore
kannaði feril mannsins, fann ekk-
ert athugavert og bauð honum tvo
miða, sem maðurinn þáði að sjálf-
sögðu með þökkum.
eftir heimsmeistaranum Pirmin
Zurbriggen. „Ég hafði heppnina
ekki með mér,“ sagði Daníel.
„Brautin var rosalega erfiö, grjót-
hörð og snarbrött. Eg er aðallega
feginn að ég komst niður."
Daníel mun keppa í svigi á
sunnudag. „Ég er búinn að skoða
brekkuna og hún er snarbrött og
svakaleg. En ég reyni að æfa mig
næstu daga. Ég ætla að láta vaða
í sviginu, ég nenni ekki aö verða
aftur númer 48," sagði Daníel.
Heimsmeistaramótinu lýkur á
sunnudag. Daníel mun halda heim
í næstu viku eftir sex vikna útivist.
„Mér skilst að það sé alltaf 10
stiga hiti á íslandi og allur snjór
að fara heima á Dalvík. En ég reyni
að halda mér í æfingu í vetur og
þjálfa fyrir landsmótið,“ sagði eini
íslenski þátttakandinn í heims-
meistaramótinu í alpagreinum.
Aðalfundur
AÐALFUNDUR Knattspyrnu-
þjálfarafélags íslands verður
haldinn í kvöld í íþróttamið-
stöðinni í Laugardal og hefst
klukkan 20.30.
Idag
EINN leikur er í úrvalsdeild-
inni í körfuknattleik í kvöld.
ÍBK tekur á móti Haukum og
hefst leikurinn klukkan 20.
UMFG og ÍS leika í 1. deild
karla og Haukar leika við ÍR-
inga í 1. deild kvenna og
hefjast báðir þessir leikir
klukkan 20.