Morgunblaðið - 26.02.1987, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 26.02.1987, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FTMMTUDAGUR 26. FEBRÚAR 1987 Utanríkisráðherra í Brussel: Gagnrýndi harðlega tillögur um skattlagningu loðnulýsis MATTHÍAS Á. Mathiesen ut- anríkisráðherra, sem staddur er í Brussel, fundar í dag með sendi- herrum íslands lyá ríkjum Evrópubandalagsins um það með hvaða hœtti betur megi undirbúa þau mál sem síðar koma til um- fjöllunar hjá bandalaginu og varða íslenska hagsmuni. Þá átti hann í gær fund með Leo Tinde- mans, utanrikisráðherra Belgiu, sem er formaður ráðherranefnd- ar Evrópubandalagsins og ræddi sérstaklega við hann um tillögur framkvæmdastjórnar bandalags- ins um skatt á lýsi og feiti, sem er íslenskum útflutningsaðilum mikið áhyggjuefni. Mikill hluti útflutnings á loðnulýsi frá ís- landi er til Evrópubandalagsríkj- anna. „Ég gerði Tindemans grein fyrir áhyggjum okkar í þessum efnum, tiar sem allur útflutningur lýsis frá slandi er til Evrópubandalagsins, beint eða óbeint," sagði utanríkis- ráðherra í samtali við Morgunblaðið í gær. Hann sagði að hann, ásamt Einari Benediktssyni, sendiherra íslands hjá Evrópubandalaginu, og Þórhalli Ásgeirssjmi, ráðuneytis- stjóra viðskiptaráðuneytsins, hefði gagnrýnt þessar tillögur harðlega á fundinum með Tindemans. Morgunbladið/Einar Falur reglur um að námsmenn fengju ekki lán til að stunda það nám er- lendis, sem hægt væri að stunda heima, vegna þess hversu margir námsmenn hefðu farið til Banda- ríkjanna og Bretlands þar sem skólagjöld væru jafnhá framfærelu ef ekki hærri. Steingrímur Her- mannsson forsætisráðherra sagði á fundi með námsmönnum í París á laugardag, að hann væri ósammála hugmyndum Sverris um að leggja vexti á námslán og einnig væri hann andvígur því að námsmenn fengju ekki lán til að iæra þær greinar erlendis sem hægt væri að leggja stund á á íslandi. Sverrir, sem nú er staddur á Norðurlandaráðsþingi f Helsinki, „Tindemans gerði okkur grein fyrir þeim sjónarmiðum sem éru að baki þessum tillöguflutningi fram- kvæmdastjómarinnar, en hann sagði okkur jafnframt að um þessi mál væri ágreiningur innan Evrópu- bandalagsins. Hann sagði að nú væri verið að fjalla um þessar hug- Matthías fundaði með Carrington MATTHÍAS Á. Mathiesen ut- anrikisráðherra átti í gær fund með Carrington lávarði, fram- kvæmdastjóra Atlantshafs- bandalagsins i Brussel. Matthias sagði i samtali við Morgunblaðið í gærkveldi að viðræður hans og Carringtons hefðu snúist um undirbúning og skipulag fyrir væntanlegan fund utanríkisráð- herra Atlantshafsbandalagsins sem haldinn verður i júnímánuði hér heima á íslandi. „Við Carrington ræddum um skipulag og undirbúning ráðherra- fundar Atlantshafsbandalagsins, “ sagði Matthías, „og ég gerði honum grein fyrir því hvemig undirbúning- ur þess máls stæði og svaraði spumingum hans varðandi fram- kvæmd á því.“ myndir, en þær em liður i því að reyna að tryggja betri fjárhag Evr- ópubandalagsins," sagði Matthías. Matthías sagði að Tindemans hefði sagt að um þetta mál yrði fjallað á fundi foreætisráðherra Evrópu- bandalagsríkjanna í lok júnf, en hann hefði jafnframt tekið fram að fram til þess tfma gætu orðið breyt- ingar á þessum hugmyndum. „Tindemans vék að því að fjöl- margir aðilar hefðu lýst andstöðu sinni við ofangreindar tillögur og gagnrýnt þær harðlega. Hann sagð- ist mjög vel skilja sjónarmið íslend- inga, sem flytja nú um 54% af útflutningsvörum sínum til Evrópu- bandalagsríkja," sagði Matthías. Matthías sagði að engin niður- staða hefði fengist á þessum fundi, enda hefði ekki verið búist við því. Það væri hins vegar tvímælalaust íslendingum í hag að koma sjónar- miðum sínum á framfæri með þessum hætti. Matthías kvaðst jafn- framt hafa gert Tindemans grein fyrir því að á fundi sínum í dag, með Willy DeClerq, sem fer með utanríkis- og viðskiptamál fram- kvæmdastjómar Evrópubandalags- ins, hygðist hann koma á framfæri gagnrýni íslendinga á þessar tillög- ur. Auk þess mun Matthías hitta sendiherra íslands hjá Evrópu- bandalagsrfkjunum á fundi í dag, þannig að sendiherramir hafí að- stöðu til þess að koma samskonar gagniýni á framfæri hver hjá sfnu ríki. Morgunblaðið/Kr.Ben. Pökkun ufsaflaka í Grindavík. Vestur-Þýzkaland: 10% hækkun á söltuðum ufsaflökum SÖLUSAMBAND íslenzkra fisk- framleiðenda hefur gengið frá aamningum við fiskkaupendur í Þýzkalandi um sölu á 1.500 lest- um af söltuðum ufsafiökum af framleiðslu yfírstandandi vertíð- ar. Verðhækkun frá samningi siðasta árs er um 10% í þýzkum mörkum talið, en allt síðasta ár voru fluttar tíl Þýzkalands rúm- ar 3.000 lestir af söltuðum ufsaflökum. Hlutdeild íslendinga í markaðn- um fyrir söltuð ufsaflök í Þýzka- landi hefur farið vaxandi sfðustu ár. Árið 1986 vom fluttar þangað rúmlega 3.000 lestir, 1.959 árið áður en lægst varð markaðshlut- deild okkar árið 1982, er við fluttum til Þýzkalands 640 lestir af þessari afurð. Kröfur Sambands byggingarmanna að mati VSÍ: Allt að 40% umfram desembersamninga LEIKIJR A ÞAKI Sverrir Hermannsson: Lán beri þannig vexti að menn sæki ekki um óþarfa lán Helsinki, frá Karli Blöndal, blaðamanni Morgunblaðaina. AÐ SÖGN Sverris Hermannssonar menntamálaráðherra er tilgang- urinn með því að setja vexti á námslán sá að námsmenn taki ekki hærri lán en þeir þurfi á að halda. Sverrir segir að settar hafí verið sagði að enginn vafí Iéki á því, að menn hefðu nýtt sér ófullkomnar reglur Lánasjóðs fslenskra náms- manna til hömlulausrar lántöku. Hann kvaðst vilja breyta sjóðnum þannig að hann væri öllúm opinn, en lán bæm aftur á móti þannig vexti að menn sæktu ekki um hærra lán en þeir þyrftu. Hann sagði að nú væri málum þannig komið að lánasjóðurinn stundaði njósnir um sumarvinnu námsmanna til að draga síðan af lánum til þeirra ef þeir hefðu haft of miklar telqur. „Ég veit að Steingrímur er sam- mála mér um þetta, en hann má gala eins og hann vill í ejTu náms- manna rétt fyrir kosningar," sagði Sverrir Hermannsson. KRÖFUR Sambands byggingar- manna f samningum við viðsemj- endur sfna, Meistarafélag byggingarmanna, eru um að ákvæðisvinna hækki verulega og að timakaup hækki um allt að 40% umfram það sem felst f samningum ASI og VSÍ frá þvf f desember, samkvæmt upplýs- ingum sem Morgunblaðið fékk þjá Vinnuveitendasambandi ís- lands f gær. Grétar Þorsteinsson, formaður Trésmiðafélags Reykjavíkur, en félagið hefur boðað verkfall frá og með 11. mars, segir að meginkrafa fé- lagsins sé að taxtakaup verði fært að greiddu kaupi, eins og ákvæði séu um f samningi félags- ins frá þvf fyrir ári og þannig verði viðurkennd f verki þau laun sem raunverulega séu greidd fyrir trésmfðavinnu. Pálmi Kristinsson, framkvæmda- stjóri Verktakasambands íslands, sagði f samtali við Morgunblaðið, að verkfallið, ef til þess kemur, muni koma niður á byggingarfram- kvæmdum á öllu Reykjavíkurevæð- inu. Reyndar séu fleiri félög trésmiða með verkfallsheimild í höndunum og önnur séu að und- irbúa að afla sér heimilda og því reikni hann með að byggingariðn- aðurinn verði meira og minna lamaður seinnipartinn f mare. Hann sagði það athyglisvert að TFR væri fyrst félaga byggingariðnaðar- manna til þess að boða verkfall, þar sem félög á landsbyggðinni hefðu gert það að aðalatriði f sinni samn- ingsgerð að ná fram svipuðum kjörum og gerðust á félagssvæði TFR. „Meginkrafa okkar er að taxtar verði færðir að greiddu kaupi, eins og við sömdum um í febrúar fyrir ári, þar sem segir að það eigi að gerast eigi síðar en við næstu kjara- samninga. Við viljum ljúka þeim samningi sem við gerðum fyrir ári,“ sagði Grétar Þoreteinsson, formað- ur TFR, í samtali við Morgunblaðið. „Við erum einfaldlega að fara fram á að fá samning um það kaup sem er greitt fyrir trésmíðávinnu og það eru dæmi um mun hærra kaup en við gerum kröfu um að verði viðurkennt í samningi. Við erum í þeirri sérkennilegu stöðu að almennt er greitt kaup, sem er jafn hátt eða hærra en það sem við gerum kröfu um. Menn geta þannig leikið sér með prósentur, en við gerum ekki kröfu um annað en að fá það inn í samning, sem félagar f Meistarasambandi íslands hafa fallist á að greiða. Það sem skortir á er að fá þessi laun staðfest í samn- ingi,“ sagiði Grétar. Grétar sagði að samkvæmt kjarakönnun Kjararannsóknar- nefndar, sem báðir aðilar hefðu þó ýmislegt við að athuga, væru laun trésmiða á félagssvæði TFR 270-80 krónur á tímann reiknað til verðlags í dag, en könnunin var gerð í apríl á síðasta ári. Þessi laun væru trú- lega hærri nú, en þau jafngiltu þó 46-47 þúsund króna mánaðariaun- um. Hann sagði að könnunin hefði ekki náð til ákvæðisvinnunnar, þannig að hún væri utan þessara talna. Hæstiréttur: Staðfesti dóm um 3 ára fangelsi fyrir nauðgun HÆSTIRÉTTUR staðf esti í gær dóm Sakadóms Reykjavíkur um þriggja ára fangelsi yfír manni um þrítugt, Jóhanni Kristni Þór Jónssyni, sem var fundinn sekur um að hafa nauðgað konu síðastliðið haust. Um miðjan dag í byijun október á síðasta ári var konu um fimmtugt nauðgað í kirkjugarðinum við Suður- götu. Jóhann Kristinn Þór var handtekinn daginn eftir og hinn fyrsta desember var hann dæmdur í þriggja ára fangelsi og gert að greiða 250 þúsund krónur f skaða- bætur, auk þess sem hann skyldi greiða allan sakarkostnað. Hann áfrýjaði dóminum til Hæstaréttar og af hálfu ákæruvaldsins var áftýjað til þyngingar. Hæstiréttur hefur nú komist að þeirri niðuretöðu að dómur Saka- dóms eigi að vera óraskaður og var Jóhanni gert að greiða allan áfiýjun- arkostnað sakarinnar. Gæsluvarð- haldsvist hans frá 1. desember dregst frá refsingunni. Dóminn kváðu upp hæstaréttar- dómaramir Magnús Thoroddsen, Guðmundur Jónsson og Halldór Þor- bjömsson og prófessoramir Amljót- ur Bjömsson og Gaukur Jörundsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.