Morgunblaðið - 26.02.1987, Blaðsíða 68

Morgunblaðið - 26.02.1987, Blaðsíða 68
STERKTKDRT VZterkurog k J hagkvæmur augiýsingamiöill! JlfofgllllMjlfrffe FIMMTUDAGUR 26. FEBRÚAR 1987 VERÐ í LAUSASÖLU 50 KR. •-T- Frysting á loðnu- hrogn- umhafin Grindavík. „ÉG ætla að reyna hrognafryst- ingu núna til að prófa tækin eftir breytingar," sagði Willard Óia- son skipstjóri á Grindvíkingi GK, í gærkvöldi. „Við köstuðum út af Reykjanesi í gærkvöldi á loðnu sem reyndist hafa um 22% hrognafyllingu svo það er ekki eftir neinu að bíða. Kökkurinn var svo mikill við bátinn að mér datt í hug að setja dæluna beint í sjóinn og dæla," sagði Will- ard. Kr. Ben Samnorræn- ar skjálfta- mælingar á Suðurlandi FRAMKVÆMDIR HALFNAÐARIHELGUVÍK FRAMKVÆMDIR við olíuhöfn- ina í Helguvík eru nú hálfnað- ar. Búið er að gera mikið gijótnám fyrir ofan höfnina og hlaða brimvarnargarð sem er 150 metra langur. Þótt þessar framkvæmdir virðist smáar séðar úr lofti má sem dæmi nefna að hver „hnullungur" í varaargarðinum vegur 2-7 smálestir. Þar sem nú eru allt að 30 metra djúpar gryfjur var áður fast berg, þverhnípt í sjó fram. I vamargarðinn hefur þegar farið ein milljón tonna af efni, en hann á eftir að lengja um 200 metra áður en yfir lýkur. Floti vörubila, sem hver vegfur allt að 35 tonnum, er notaður við að aka gijóti í flutninga- prammann sem sést í höfninni og í birgðageymsluraar, sem eru gijótflákamir fyrir ofan gryfjurnar efst á myndinni. Byijað er að vinna við að steypa ker í viðlegukant hafn- arinnar. Fer sú vinna fram í höfninni í Straumsvik. Áætlað er að öllu verkinu ljúki i des- ember 1988. Verktakasam- steypan Núpur vinnur verkið. Helsinki, frá Karli BlöndaJ, blaðamanni Morgunblaðsins. EIÐUR Guðnason mælti i gær fyrir tillögu um að hefja sam- norrænar jarðskjálftamælingar á Suðurlandsundirlendi og var hún samþykkt með 52 atkvæðum. Eiður sagði að rannsóknirnar ættu að miða að því að draga úr hættunni sem fylgdi jarðskjálftum. Hann sagði að þessar áætluðu rann- sóknir væru í raun hluti af evrópsku samstarfí um skjálftarannsóknir. Evrópuráðið hefði bent á fímm jarð- skjálftasvæði sem bæri að rannsaka sérstaklega og Suðurlandsundir- lendið væri eitt þeirra. Ráðgert er að vísindamenn á Norðurlöndum vinni saman að þess- um rannsóknum. Eiður sagði í ræðu sinni að menningamefndin tæki sérstaklega fram að rannsóknimar kæmu öllum Norðurlöndum til góða þótt þær væru vitaskuld sérstak- lega mikilvægar fyrir íslendinga. Til dæmis gætu rannsóknimar auð- veldað að hanna kerfí til að greina skjálfta og einnig varðandi sam- skipti og byggingatækni. mmm Short með fullt hús EKKERT lát er á sigurgöngu Nigels Short á IBM-skákmót- inu. í gærkvöldi lagði hann Jan Timman á sannfærandi hátt. Á blaðsíðum 64 og 65 eru skákskýring, úrslit og við- tal við Short. Ríkið hafnar öllum tilboðum í graskögglaverksmiðjurnar: Ovíst hvort fram- leiðsla hefst í vor STJÓRNVÖLD hafa hafnað öllum þeim tilboðum sem bárust í gras- kögglaverksmiðjur rikisins á dögunum. Jafnframt hefur tilboðs- gjöfum verið boðið upp á að gera betri tilboð fyrir 10. mars. Búast má við að stærstu ríkisverksmiðjumar verði lokaðar í sumar og að litil graskögglaframleiðsla verði á vegum ríkisins, vegna mikilla graskögglabirgða. Ríkið auglýsti þijár grasköggla- verksmiðjur, Fóðuriðjuna í Ólafsdal, Stórólfsvallabúið við Hvolsvöll og graskögglaverksmiðjuna í Flatey, til sölu í lok síðasta árs og fékk 9 Tæknigarður stofn- aður við Háskólann Framlag Reykjavíkurborgar verður 50 millj. á tveimur árum REYKJAVÍKURBORG, Háskóli íslands, Félag islenskra iðnrekenda og forsvarsmenn í atvinnulífinu, hafa ákveðið að sameinast um stofu- un Tæknigarðs við háskólann. í fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar ,er gert ráð fyrir 25 milljóna króna framlagi frá borginni á þessu ári. Háskólinn mun seinna endurgreiða framlag borgarinnar, væntan- lega með kaupleigusamningi, að sögn Davíðs Oddssonar borgarstjóra. „Borgin er þama að fara inn á nýja braut," sagði Davíð „Við lítum þannig á að Reykjavík sé að veru- legu leyti háskólabær og að við eigum að stuðla að því að háskólinn og rannsóknarstarfsemi sem getur komið atvinnulífí í borginni til góða fái að njóta sín. Vegna þeirrar klemmu sem háskólinn er í núna þá var það hugmynd borgarinnar að leggja fram á tveimur árum 50 milljónir króna á núvirði til þess að svo megi verða." Hugmyndin er að byggt verði við Raunvísindastofnun Háskólans, þriggja hæða hús, sem hýsi Tækni- garðinn á tveimur hæðum. „Þangað eiga að geta leitað ný fyrirtæki, sem þurfa að nýta sér sérstaklega þá tækniþekkingu sem háskólinn býr yfír til að koma sér af stað,“ sagði Davíð. Samningar um samstarfið eru á lokastigi og standa vonir til að hægt verði að hefja byggingar- framkvæmdir í vor. landinu er ekki hægt að segja til um það nú hvort verksmiðjurnar verða settar í gang í vor,“ sagði Sigurður. tilboð og nokkrar fyrirspumir til viðbótar. í gær var öllum tilboðun- um hafnað, en verksmiðjumar áfram hafðar til sölu og viðkom- andi aðilum boðið til viðræðna, ef þeir óskuðu. Sigurður Þórðarson, skrifstofustjóri flármálaráðuneytis- ins, sagði að tilboðunum hefði verið hafnað vegna þess að þau væm of lág og/eða vegna óviðunandi greiðsluboða eða trygginga. Miklar birgðir af graskögglum era nú til í landinu. í vor, við upp- haf næsta framleiðslutímabils, er útlit fyrir að heils árs birgðir verði til hjá verksmiðjunum, einkum stærri verksmiðjunum, sem era verksmiðjumar í Flatey og Stórólfs- vallabúið, auk Fóðurs og fræ-verk- smiðjunnar í Gunnarsholti, sem einnig er í eigu ríkisins, en hefur ekki verið til sölu. Aðspurður um hvort framleitt yrði í verksmiðjunum í sumar, sagði Sigurður að á síðasta ári hefði ver- ið tekin ákvörðun um sölu verk- smiðjanna og þar með að ríkið hætti graskögglaframleiðslu að mestu. „Þar sem ekki hefur tekist að selja verksmiðjumar og miklar birgðir era til af graskögglum í Jarðboranir: Lægra verð með sam- keppni um verkefni SAMKEPPNI um jarðboranir hefur lækkað verð þeirra, að sögn forráðamanna Isbors hf. sem tók til starfa síðasta haust. Jarðboranir hf. sem eru í eigu ríkisins og Reykjavíkur- borgar voru fram að þeim tíma eini aðilinn sem bauð slíka þjónustu. Friðfínnur K. Daníelsson framkvæmdastjóri ísbors segir verð hafa lækkað og að nú sé í fyrsta skipti möguleiki á út- boðum í slík verk. Fjármálastjóri Jarðborana, Bent Einarsson, tel- ur að formbreyting hafi orðið á skipulagningu borverka, en verð- lækkun sé ekki umtalsverð. Sjá nánar á bls. 37.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.