Morgunblaðið - 26.02.1987, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 26.02.1987, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. FEBRÚAR 1987 Fj órir kjömir heiðurs- doktorar við Háskólann FJÓRUM frœðimðnnum á sviði islenskra fræða verður veitt heiðursdoktorsnafnbót í heim- spekideild Háskóla íslands á háskólahátið næstkomandi laug- ardag. Fræðimennimir eru Hermann Pálsson, prófessor við háskólann í Edinborg, Oskar Bandle, prófessor við háskólann í Ziirich, Peter Foote, prófessor emeritus frá University College í London og Theodore And- ersson, prófessor við Stanford- háskóla í Kalifomíu. Tillaga heimspekideildar um að veita þess- um fræðimönnum heiðursdoktors- nafnbót var samþykkt á fundi háskólaráðs í desember síðastliðn- um og fer athöfnin fram í Há- skólabíói á laugardag kl. 14. Hermann Pálsson er fæddur 26. maí 1921. Hann lauk cand. mag. prófi frá Háskóla íslands 1947 og doktorsprófi ( bókmenntum frá Edinborgarháskóla 1980 fyrir verk- ið Studies in early icelandic history and literature. Hermann stundaði framhaldsnám í Dyflinni 1948-1950, en gerðist síðan kenn- ari við háskólann í Edinborg, þar sem hann hefur verið prófessor hin síðari ár. Eftir hann liggja ijölmörg rit og má sem dæmi nefna Söngvar frá Suðureyjum (1955), íslensk mannanöfn, síðari útgáfa: Nafna- bókin, Siðfræði Hrafnkels sögu og Uppruni Njálu og hugmyndir. Her- mann skpulagði og stjómaði fyrsta alþjóðlega fomsagnaþinginu í Edin- borg 1971, en sfðan hafa sík þing verið haldin á þriggja ára fresti í ýmsum löndum. Þá var hann árið 1982 kjörinn fyrsti forseti hins ný- stofnaða alþjóðlega fomsagnafé- lags (The Intemational Saga Gjöld á gæslu- völlum hækka Borgarráð hefur samþykkt hækkun á gjaldi fyrir barna- gæslu á gæsluleikvöllum borgar- innar. Frá 1. mars að telja verður hvert einstakt gjald 20 krónur og frá sama tima verður 25 miða kort selt á 450 krónur. Úthlutað úr Kirltju- byggingarsjóði BORGARRÁÐ hefur samþykkt að úthluta 6.5 miUjónum króan úr Kirkjubyggingarsjóði Reykjavíkur á þessu ári. Sex kirkjur fá úthlutun úr sjóðn- um. Árbæjarprestakall, Breiðholts- préstakall, Fella- og Hólaprestakall og Seljaprstakall fá 1.3 milljónir hvert. Ásprestakall og Langholts- prestakall fá 650 þúsund hvort. Society). Oskar Bandle er fæddur 11. jan- úar 1926. Hann hefur í mörg ár verið prófessor í norrænum málum við tvo háskóla, í Zúrich og Basel. Hann talar öll norræn mál og mun hafa kennt þau öll í náskólum sínum, nema e.t.v. færeysku. Flest aðalverk hans flalla um íslensk fræði, s.s. Die Sprache der Guð- brandsbiblfa og Haustiertermino- logie im Norwegischen, Islándisch- en und Faröischen. Um norræn málvísindi fjallar ritið Die Glieder- ung des Nordgermanischen, en það var fyrsta ritið í röð vísindarita sem Oskar Bandle hleypti af stokkunum og hefur stýrt síðan með samverka- mönnum sínum. Peter Foote er fæddur 26. maí 1924. Hann lauk mastersprófi frá University College of London 1951 og stundaði sfðan nám við Háskóla íslands 1953-1954. Að loknu emb- ættisprófi 1951 varð hann „lectur- er“ í fomíslensku við University College, síðan „reader" og loks pró- fessor frá 1963-1983. Peter Foote hefur ritað margt um íslensk fi-æði. Má þar nefna ritin The Pseudo- Turpin Chronicle in Iceland, On the Saga of the Faroe Islanders og The Viking Achievement, sem hann skrifaði ásamt David M. Wilson. Hann var ritari Viking Society for Northem Reasearch frá 1956-1982 og var kjörinn heiðursdoktor Upp- salaháskóla 1972. Theodore M. Andersson er pró- fessor í germönskum fræðum við Stanford-háskóla í Kalifomíu. Af helstu verkum hans má nefna The problems of Icelandic saga origins, The Icelandic family saga og The legend of Brynhild. Hann er einn ritstjóra að uppflettiriti um miðaldir og miðaldamenningu (Dictionary og the middle Ages), þar sem hann ritstýrir greinum um íslensk efni og skrifar margar þeirra sjálfur. Af riti þessu eru nú komin út sex bindi. Theodore M. Andersson getur ekki verið viðstaddur athöfnina í Háskólabfói á laugardag. Þeir Hermann, Oskar og Peter taka til máls á umræðufundi um stöðu og stefnu norrænna fræða, sem verður annað kvöld, föstudags- kvöld, kl. 17.15 í stofu 101 í Odda. Öllum er heimill aðgangur að fund- inum. Sjúkrasamlag Reykajvíkur: Nýr for- stjóri ráðinn ÞORVALDUR Lárusson hrl. hef- ur verið ráðinn forstjóri Sjúkra- samlags Reykjavíkur og tekur hann við störfum 1. mars næst- komandi. Að sögn Margrétar Einarsdóttur formanns stjómar Sjúkrasamlags- ins var samstaða í stjóminni um ráðningu Þorvaldar. Tveir aðrir umsækjendur voru um starfíð, sem óska nafnleyndar. ÞEGAR HÚN MARGRET BORGARSDOTTIR LEITRÐI TIL OKKAR FYRST, ÁRIÐ 1976, ÁTTI HÚN NÁKVÆMLEGA 26.090 KRÓNUR. í DAG HAFA KRÓNURNAR 96 FALDAST Haraldur frændi hennar sagðist vera viss um að hún Margrét væri rugluð. Sannleikurinn er hins vegar sá að Margrét var óvenjulega heilbrigð kona. Hún gerði sér grein fyrir því að ráðgjafar Fjárfestingarfélagsins voru menn, sem hún gæti treyst. Sjálf sagðist hún ekki vera fjármálaspekingur. Sérfræðingar Fjárfestingar- félagsins ráðlögðu Margréti ávallt að kaupa verðbréf sem gáfu góðan arð. Að sjálfsögðu ráðlögðu þeir henni að kaupa KJARA- BREFIN þegar þau voru gefin út. Það væri lang einfaldast. „Þá þarft þú engar áhyggjur að hafa af peningunum þín- um, Margrét mín. Kjarabréfin eru örugg og við sjáum til þess að alltaf standi á bak við þau sérfræðilegt val á traustum verðbréfum,11 sögðu þeir. Eins og svo oft áður höfðu sérfræðingar Fjárfesting- arfélagsins rétt fyrir sér. Um síðastliðin áramót átti Margrét 65 ára afmæli. Þá átti hún 2.500.000 krónur í TEKJUBRÉFUM. Af þeim fær hún ríkuleg mánaðarlaun heimsend ársfjórðungslega. Og hver skyldi hafa ráðlagt henni Margréti að skipta Kjarabréfunum sínum yfir í Tekjubréf? Ekki var það Haraldur frændi. Ne-e-ei. Hann situr enn við sinn keip. Auðvitað var það sérfræðingur hennar hjá Fjárfestingarfélaginu, nú sem fyrr, sem ráðlagði henni það. <ú> TIL UMHUGSUNAR: 1. Aí hverju sögðu sérfræð- ingamir að Kjarabréfin væru örugg? 2. Hvers vegna skipti Margrét yfir í Tekjubréf, þegar hún var komin á eftirlaunaaldur? 3. Hvemig getur venjulegt fólk, sem ekki telur sig vera fjármálaspekinga, ávaxtað fé sitt í tryggum verðbréfum? Sendið rétt svör til Fjárfestingarfélagsins, Hafnarstræti 7, Reykjavík, merkt Haraldur frændi. Besta svarið í viku hverri, allan þennan mánuð, fær eintak af bókinni góðu, FJÁRMÁLIN ÞÍN, íverðlaun. FJARFESTINGARFEIAGIÐ Hafnarstræti 7-101 Rvík. S 28566. Gunnar Óskarsson einn af ráögjöfum Fjárfestingarfélagsins
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.