Morgunblaðið - 26.02.1987, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. FEBRÚAR 1987
7
MEÐAL EFNIS
í KVÖLD
20:00 OPIN LÍNA
Einn fréttamanna Stöðvar 2
fjallarum ágreiningsmál
liðandi stundar og svarar
spurningum áhorfenda í 15
mínútur ísíma 673888.
ANNAÐKVÖLD
Nú fá börn og unglingarsinn
eigin fréttatima. Umsjónar-
maður er Sverrir Guðjónsson.
ff
oP &1<J1
K
yjO
Auglýsingasími
Stöðvar2er67 30 30
Lykillnn f»rð
þúhjá
Heimlllstœkjum
Heimilistæki hf
S:62 12 15
Vika hársins:
Hárþvottaefni geta verið skaðleg
V'IKA hársins sem nú stendur yfir er haldin að tilhlutan Sambands
hárgreiðslu og hárskerameistara. Tilgangurinn er að vekja athygli
á hversu stór þáttur umhirða hársins er í lífi þess.
Að sögn Guðrúnar Magnúsdóttur
hárgreiðslumeistara er mikilvægt
að hárþvottaefnið hafi hæfilegt
sýrustig allt eftir hárgerð hvers og
eins. „Það er okkar fagmannanna
að ráðleggja viðskiptavinunum
hvaða þvottaefni hentar," sagði
Guðrún. „Sumir eru með perman-
ent, aðrir með litað hár eða strípur,
sem oft geta valdið miklu vanda-
máli. Þá kemur fyrir að búið er að
klippa og leggja hár viðskiptarvin-
arins eftir því sem við á, en hann
fer síðan og kaupir vitlaust þvotta-
efni og þvær allt úr.“
Margir þvo sér allt að 360 sinnum
um hárið á ári en innan við 20%
notenda leita ráða hjá hársnyrti-
fólki, segir í frétt frá Sambandi
hárgreiðslu og hárskerameistara.
Þar kemur einnig ffarn að röng
notkun hárþvottaefna getur orðið
skaðleg ekki aðeins fyrir hárið held-
ur einnig húðina. Hárið er dautt
eftir að það kemur úr húðinni og
tekur engum breytingum vegna
innvortis áhrifa. Þess vegna er mik-
ilvægt að þau efni sem notuð eru
á hárið auki endingu þess og bæti
útlit. Hársnyrtifólk hefur á undanf-
ömum árum sótt námskeið hér á
landi um meðferð á þeim efnum sem
geta bætt hárið og hvemig eigi að
viðhalda góðu ástandi þess.
Þann 1. mars næstkomandi fer
fram íslandsmeistarakeppni í hár-
skurði og hárgreiðslu á Broadway.
Fjórir meistarar og sveinar í hár-
skurði taka þátt í keppninni ástamt
fimm nemum og níu meistara og
sveinar í hárgreiðslu auk sextán
nema. Dómarar í hárskurði verða
Kj Van De Tonnekreek frá Hollandi
og Siegfrid Ebenhoch frá Þýska-
landi. Dómarar í hárgreiðslu verða
Van Der Burg frá Hollandi, Christo-
per Man frá Englandi og Annelí
Palmgren frá Svíþjóð.
ÚRVALS
FILNUR
Kvnninaarverð
,, Dreifing;
TOLVUSPIL HF.
sími: 68-72-70