Morgunblaðið - 26.02.1987, Side 25

Morgunblaðið - 26.02.1987, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. FEBRÚAR 1987 25 Verðlagsráð: Leignbílar of margir og þjónustan óhagkvæm Afstaðan byggist á misskilningi á að- stæðum í stéttinni, segir formaður Frama VERÐLAGSRÁÐ hefur samþykkt 7,5% hækkun á töxtum leigubifreiða og sendibifreiða, eins og fram kom í blaðinu í gær. Bandalag íslenskra leigubifreiðastjóra óskaði eftir að verðleggja þjónustu leigubifreiða í samræmi við nýjan taxtagrunn, sem gerður hefur verið, og þýtt hefði 18% hækkun á núgildandi töxtum. Þvi hafnaði verðlagsráð, meðal annars vegna þess að það taldi að leigubílar væru of margir og að þessi þjónusta væri rekin á óhagkvæman hátt. Georg Ólafsson verðlagsstjóri sagði að nýi taxtagrunnurinn sýndi þörf á 18% hækkun taxtanna mið- að við núverandi skipulag. Við umræður um þetta erindi í verð- lagsráði hefði skipulag þjón- ustunnar komið til umræðu, eins og stundum áður. Verðlagsráðs- menn teldu að leigubflar væru allt of margir á höfuðborgarsvæðinu, og hefði þeim flölgað á undanföm- um árum, en menn teldu að með fækkun bflanna og betri nýtingu þeirra allan sólarhringinn mætti jafnvel lækka taxtana. Verðlags- ráð teldi að þetta gengi ekki lengur og að ekki væri hægt að velta þessum vandamálum út í verðlag- ið. Því hefði verið samþykkt samhljóða í ráðinu að hækka gamla taxtagrunninn i samræmi við verðlagsþróun að undanfömu, en taka ekki afstöðu til nýja gmnnsins. Einnig hefðu verið uppi raddir um að gefa leigubifreiða- taxtana ftjálsa, en forsendan fyrir því væri að afnumdar yrðu allar reglur sem takmörkuðu ftjálsan aðgang að atvinnugreininni. Ingólfur Ingólfsson formaður Frama, stéttarfélags leigubifreiða- stjóra, sagði að Bandalag íslenskra leigubifreiðastjóra hefði unnið að endurskoðun taxtagrunnsins i ná- inni samvinnu við Verðlagsstofn- un. Niðurstaða þeirrar vinnu hefði orðið sú að þörf væri á 18% hækk- un núgildandi taxta. „Um af- greiðslu verðlagsráðs get ég ekki annað sagt en að hún hlýtur að vera byggð á misskilningi á að- stæðum í stéttinni. Við munum að sjálfsögðu reyna að eyða þeim misskilningi," sagði Ingólfur, og vildi ekki tjá sig að öðra leyti um afgreiðslu verðlagsráðs á erindi leigubifreiðastjóra. Ingólfur sagði að skoðanir verð- lagsráðsmanna um að leigubflar væra of margir á höfuðborgar- svæðinu féllu að skoðunum leigu- bifreiðastjóra. Nú væra um 636 leigubflar á höfuðborgarsvæðinu og hefði Qölgað sl. tvö ár, en hægt væri að færa rök að því að þeim þyrfti að fækka um meira en 100. Þessu réðu leigubflstjórar hins veg- ar ekki, sérstök nefnd á vegum samgönguráðherra úthlutaði leigu- Lflaleyfum. Af þessu leiddi síðan að nýting bflanna væri minni en æskilegt væri. Mikil ásókn er hjá mönnum að fá leigubifreiðaleyfí. Aðspurður um hvort þetta benti ekki til þess að menn sæu möguleika á sæmilegri afkomu, sagði Ingólfur: „Þetta segir ekki neitt um hvað menn hafa á tímann og það er viður- kennt að útilokað er að lifa á 8 Fróóleikur og skemmtun fyrirháa semlága! tíma vinnu á dag. Hins vegar hafa menn möguleika á að vinna sér inn tekjur með mikilli vinnu. Menn sækja í þessa vinnu af öðram ástæðum, svo sem því að geta unnið sjálfstætt." Við 7,5% hækkun taxtanna hækkar startgjaldið úr 120 krón- um f 130, klukkustund í bið úr 514,30 í 552 krónur, kflómetri í dagvinnu úr 16,60 í 17,86 krónur og í næturvinnu úr 25 kr. í 26,84. Sem dæmi má nefna að fargjald úr miðbæ upp í Breiðholt, miðað við 7 km, hækkar úr 240 kr. í 255. Niður meö hita- kostnaðinn OFNHITASTILIAR = HEÐINN = VÉLAVERZLUN-SIMI: 24260 LAGER-SÉRPANTANIR-ÞJÓNUSTA Tölvunámskeið fyrir fullorðna Fjölbreytt, vandað og skemmti- legt byijendanámskeið fyrir fólk á öllum aldri. Dagskrá ★ Grundvallaratriði við notkun tölva. ★ Forritunarmálið BASIC, æfingar. ★ Ritvinnsla með tölvu, æfingar. ★ Notkun töflureikna, æfingar. ★ Notkun gagnasafnskerfa, æfingar. ★ Umræður og fyrirspurnir. Tími: 3., 5., ÍO. og 12. mars kl. 20—23. Innritun í simum 687590 og 686790 Q ,© !?M Tölvu f ræðslan BORGARTÚNI 28, REYKJAVÍK ínan frá ICEWEAR er nýkomin íslensk hönnun! íslensk framleiðsla! 3163 vefð: «r. 2,040,' «r. 1.760,- TTÍTO60' POSTSENDUM

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.