Morgunblaðið - 26.02.1987, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. FEBRÚAR 1987
31
3S.ÞING NORÐURLANDARÁÐS
Tillagan um norrænan kvikmyndasjóð samþykkt
Helsinki, frá Karii Blöndal blaðamanni Morgunblaðsins.
TILLAGA um að stofna samnorrænan kvikmyndasjóð var sam-
þykkt með 63 atkvæðum á þingi Norðurlandaráðs í Helsinki í
gær. Sjóði þessum er ætlað að styrkja gerð kvikmynda, sjónvarps-
þátta og myndbanda.
Eiður Guðnason, formaður
menningarmálanefndar Norður-
landaráðs, er höfundur tillögunn-
ar og skrifuðu allir í íslensku
sendinefndinni undir hana. í til-
lögunni segir að samstarf á sviði
fjölmiðlunar muni á komandi
árum skipa stóran sess í norrænu
menningarsamstarfí. Þar er sérs-
taklega vísað til samstarfs um
sjónvarpsútsendingar sem ganga
undir nafninu Tele-X. Segir enn-
fremur að sjóðurinn skuli vera
viðbót við þá styrki sem veittir
eru til kvikmyndagerðar á Norð-
urlöndum nú þegar.
Tillagan um kvikmyndasjóðinn
fer nú fyrir ráðherranefnd Norð-
urlandaráðs og þar verður ákveðið
hvemig fjármagna skuli sjóðinn.
Eiður gat í ræðu sinni í gær hug-
myndar um að hluti af hagnaði
Norræna fjárfestingarbankans
yrði látinn renna til sjóðsins og á
þremur árum hefði hann eigið
flármagn til umráða að upphæð
150 milljónir sænskra króna. Að
sögn Eiðs getur umfjöllun ráð-
herranefndarinnar tekið sinn
tíma. Aftur á móti væri víst að
fyrirspum yrði lögð fram á næsta
þingi Norðurlandaráðs ef málið
skyldi dragast. Áætlun um norr-
ænt sjónvarpssamstarf hefur
verið til umræðu á þinginu. Áætl-
unin hefur verið kennd við Tele-
ex-gervihnött sem áætlað er að
skjóta upp. Þessi áætlun er fram-
hald af Nordsat-áætluninni sem
átti að vera þannig að allir gætu
séð sjónvarpsdagskrár allra. Að
sögn Eiðs Guðnasonar er Tele-X
af sænskum uppmna en hnöttur-
inn er ætlaður til ýmissa annarra
samskipta og verður skotið upp
með Ariane-flauginni. Norðmenn
og Finnar tóku næstir undir þetta
samstarf sem í upphafi átti að
vera þannig að sent yrði út á
tveimur rásum. Á annarri rásinni
yrði sent út fréttaefni og íþróttir
en á hinni skemmtiþættir og
menningarefni.
Norðurlönd samþykktu þessa
áætlun og íslendingar með fyrir-
vöram. Málið er þannig vaxið, að
ekki er hægt að sjónvarpa til ís-
lands um Tele-X og þyrfti því að
gera sérstakar ráðstafanir til þess
að íslendingar gætu verið með.
Samþykkt var að Norðurlönd
skyldu greiða kostnað af þessu
sameiginlega verkefni og ættu
íslendingar að greiða 1% sam-
kvæmt reglum Norðurlandaráðs.
Nú hafa þessi mál aftur á móti
tekið nýja stefnu og hægri flokk-
amir lögðu til á fundi menningar-
málanefndar á þriðjudag, að ekki
yrði sent út á tveimur rásum held-
ur fjóram í Tele-X. Eiður sagði
að í skýrslu frá útvarpsstjóram í
Svíþjóð, sem reyndar væri ekki
komin fyrir almenningssjónir,
segði að unnt væri að hafa fjórar
rásir. Að sögn Eiðs setti þetta
strik í reikninginn. Nú væri í lausu
lofti hversu dýrt þetta verkefni
yrði og tengsl íslendinga við það
Lentz sagði í stuttri ræðu að
íslenska útvarpið hefði til langs
tíma neitað samtökum homma og
lesbía um að veita upplýsingar
um starfsemi sina og kaupa aug-
lýsingatíma til kynningar. Eiður
Guðnason svaraði Lentz og sagði
að ummæli hennar um að homm-
ar og lesbíur mættu ekki veita
upplýsingar um fundi sína og
starfsemi væra rangar. Hommar
og lesbíur gætu komið upplýsing-
um til skila eftir hentisemi. Aftur
á móti hefðu menn verið á móti
notkun vissra orða í þessu sam-
bandi. Lentz tók þá aftur til orða
og sagði að í íslenska útvarpinu
væra óljós. Eiður sagði að ekki
væri víst hvaða efni yrði sent út
á fjóram rásum en til greina kæmi
að hvert Norðurlandanná fjög-
urra, Danmörk, Svíþjóð, Noregur
og Finnland, hefði sína rás. Málið
verður tekið fyrir á fundi menn-
hefði verið ákveðið að nota hið
niðurlægjandi orð kynvillingur í
stað þess að nota þau orð sem
hommar og lesbíur vildu nota,
nefnilega hommar og lesbíur.
„Ég vil undirstrika að Inga
Lentz hefur rangar upplýsingar
undir höndum. Það hefíir aldrei
verið til umræðu að nota orðið sem
hún nefndi. Hommar og lesbíur
hafa samtök sem nefndast Sam-
tökin 78 og í útvarpinu hefur
ekki komið til greina annað en
að nota það hugtak og allir vita
jú hvað það þýðir," svaraði Eiður
Guðnason þá.
Lentz steig þá enn einu sinni i
ingarmálanefndar í maí og sagði
Eiður að ákveða þyrfti hversu
margar rásirnar yrðu fyrir miðjan
júlf af tæknilegum ástæðum. Ekki
væri langt þar til senda ætti gervi-
hnöttinn á loft og ljóst þyrfti að
vera hvemig hann ætti að vera
búinn. Að sögn Eiðs hafa ráð-
herranefnd og menningarmála-
nefnd umboð til að afgreiða málið
í vor.
ræðustól og lýsti yfír ánægju sinni
með þessa deilu. „Ég lít á þetta
sem upphafið á þvi að bundinn
verði endir á það misrétti sem
hommar og lesbíur era undirseld,
aðallega á íslandi og í Finnlandi
en einnig á öðram Norðurlönd-
um,“ sagði hún.
Auk þess kom fram f máli Lentz
að í Finnlandi væri bannað að
upplýsa um kynlíf milli fólks af
sama kjmi. Að hennar sögn hefur
þetta oft verið túlkað sem svo,
að allar upplýsingar af hinu góða
um ástir homma og lesbia væra
gegn lögum. Hún gagnrýndi einn-
ig að á Islandi væra sambönd 16
og 17 ára gamalla homma og les-
bía við eldri homma og lesbíur
bönnuð. Svo sagði hún að slikar
takmarkanir væra ekki á kynlifi
þeirra sem hneigðust til hins kyns-
ins.
Deilt var um réttindi
homma og lesbía á íslandi
INGA Lentz, sem er í sænska flokknum „Venstre Partiet Komm-
unistarna", bar í gær fram fyrirspum á þingi Norðurlandaráðs
um það hvenær íslendingar og Finnar ætluðu að afnema lög sem
koma í veg fyrir að hommar og lesbfur pjóti fullra réttinda.
EB:
Minnkandi
hagvöxtur
Briissel, AP.
FRAMKVÆMDANEFND
Evrópubandalagsins (EB)
greindi í gær frá því að hag-
vöxtur EB-ríkjanna yrði að
öllum líkindum minni, en
spáð hafði verið sl. haust.
Aðalástæðan væri gengisfall
dollarans sem hefði þau áhrif að
viða væri óhagstætt að kaupa evr-
ópskar vörar. Því væri meiri þörf á
því nú en nokkra sinni fyrr að
EB-löndin fylgdu samræmdri efna-
hagsstefnu og ryddu úr vegi
hindranum í viðskiptum landanna
innbyrðis.
Nú er spáð 2,3% hagvexti í stað
2,8% samkvæmt fyrri spá. Meðaltal
landanna 12 var á síðasta ári 2,5%.
Atvinnuleysi er talið verða að með-
altali 11,8% og verðbólgaum 3,2%.
Gengi
gjaldmiðla
London, AP.
BANDARÍKJADOLLAR lækkaði
í gær gagnvart flestum helztu
gjaldmiðlum heims nema brezka
pundinu og kanadíska dollarn-
um. Verð á gulli hækkaði.
Sfðdegis í gær kostaði pundið
1,5390 dollara (1,5400), en annars
var gengi dollarans á þann veg, að
fyrir hann fengust 1,8280 vestur-
þýzk mörk (1,8395), 1,5375 sviss-
neskir frankar (1,5565), 6,0775
franskir frankar (6,1345), 2,0620
hollenzk gyllini (2,0825), 1.297,50
ítalskar lírar (1.311,25), 1,3300
kanadískir dollarar (1,32975) og
153,55 jen (153,79).
Gullverð lækkaði og var 405,70
dollarar únsan (401,90).
BJöm Kristjánsson heildversl.
Tudor rafgeymar hf.
Fasteignamarkaðurinn
Úlfarsfell v/Hagamel
Sól hf.
Festl hf.
Reykjalundur
Versl. Mosraf
Tannlæknast. Þórarlns Jónss.
Bflaverkst.
Gunnars Slgurgíslasonar
Hjólbarðastöðin sf.
Bfllinn sf.
Armur hf.
Bifrverkstæði N.K. Svane.
Háberg hf.
Rafgeymaverksm. Pólar hf.
Veltir hf.
Gunnar Asgeirsson hf.
Einar Farestveit & co. hf.
Sfldarráttir sf.
Kjötmiðstöðin
Afurðasala Sambandsins
Ós hf. steypuverksmiðja
Beyki sf. trósmfðastofa
Brunabótafólag fsiands
Stefánsblóm
Asbjörn Ólafsson hf.
Hljómbær
SÍBS
Versl. Brynja
Elding Trading Company hf.
Lögreglustjóraembœttið f Rvfk
Búnaðarbanki fslands
Pfaff hf
Álfmingar
fsól hf.
Búsáhöld og gjafavörur
G0ÐI^_
Lionessuklúbburinn Eir,Reykjavík