Morgunblaðið - 26.02.1987, Síða 33

Morgunblaðið - 26.02.1987, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. FEBRÚAR 1987 33 Skipulegar varn- ir gegn alnæmi Moskvu, AP. SOVÉTSTJÓRNEN hefur gert áætlun um varnir gegn út- breiðslu alnæmis. Almenningi mun gefast kostur á að hringja í sérfræðinga og fá upplýsingar um sjúkdóminn og einkenni hans. Þá munu læknar einnig skoða þá sem þess óska, að sðgn emb- ættismanns í sovéska heilbrigðis- málaráðuneytinu. Sovéskir embættismenn telja að útlendingar komi einkum til með að breiða alnæmi út t Sovétríkjun- um. Starfsmaður í heilbrigðismála- ráðuneytinu sagði í gær að menn hefðu einkum áhyggjur af því að Afríkubúar bæru með sér veiruna sem veldur sjúkdómnum og benti á að hvergi hefðu greinst fleiri tilfelli en í Afríku. Gennady Gerasimov, talsmaður sovéska utanríkisráðu- neytisins, skýrði frá því fyrir skömmu að 20 tilfelli sjúkdómsins hefðu greinst f Sovétrílq'unum og að enginn hinna sýktu væri Sovét- borgari. Vatnsskort- ur í Havana Miami, AP. Fréttir frá Miami herma að vatnsskortur sé yfirvofandi á Kúbu. Kúbönsk útvarpsstöð sagði að það væri um ofneyslu væri að ræða. I útsendingunni frá Reloj út- varpsstöðinni sagði að í janúar hefðu aðeins verið 21 milljón rúm- metra vatns til neyslu í stað þeirra 36 milljóna sem borgin þarfnaðist. Utvarpsstöðin kenndi ekki aðeins heimilisneyslu um heldur sjúkra- húsum og öðrum stofnunum. Víetnam: Fetað í fótspor kapitalistanna Bangkok, AP. YFIRVÖLD í Víetnam hafa gefið út nýjar reglugerðir er miða að þvi að hvetja til nýjunga i efna- hagslifinu og framleiðslu á neysluvarningi, að sögn hinnar opinberu fréttastofu landsins. Aðgerðir þessar virðast vera í samræmi við tilraunir hins nýja aðalritara víetnamska kommúnista- flokksins, Nguyen Van Linh, til að hleypa nýju lífi í efnahag landsins með því að draga úr afskiptum ríkisins og fylgja fordæmi kapital- ista að ýmsu leyti. Þeir sem finna upp hluti sem hægt verður að selja á góðu verði munu t.d. fá 15-20% af söluhagnaðinum. Útvarpsfréttir frá Hanoi herma að yfirvöld þar í borg vonist til þess, að á næstunni muni atvinna aukast þar sem fjölskyldum verði leyft að reka fyrirtæki og stuðning- ur veittur til að brydda upp á nýjungum. Gorbachev í góðu álití hjá Frökkum París, Reuter. KÖNNUN fransks fyrirtækis leiddi í ljós að tilraunir Gorb- achevs til að gefa aðra og betri mynd af sjálfum sér og landinu mælast vel fyrir í Frakklandi. í könnuninni kemur fram að 59 prósent Frakka hafa gott álit á Gorbachev en það er þremur prósentum hærra en Reagan fékk. Aðspurðir um það “hvor hefði vinninginn" kváðust 65 prósent telja það vera Gorbachev en 20 prósent sögðu það vera Reagan. Þegar spurt var um hvor leið- toginn væri til meiri sóma fyrir þjóð sína kváðust 54 prósent teija það vera Gorbachev en 34 prósent sögðu það vera Reagan. Könnun þessi var gerð af fyrir- tæki sem ber nafnið IPSOS og munu nánari niðurstöður úr henni verða birtar í dag í vikublaðinu VSD. Enskir knatt- spymuáhorfend- ur með óspektir Madríd, AP. SEX Englendingar á aldrinum 17-28 ára voru dæmdir í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi auk sekta í Burgos á Spáni á þriðjudag. Fimm þeirra voru dæmdir fyrir að valda skemmdum á diskóteki, en sá sjötti fyrir að eyðileggja girð- ingu. Atvikið átti sér stað kvöldið fyrir landsleik milli Englendinga og Spánverja, þegar breskir knatt- spymuáhugamenn voru á leið á leikinn. Róm: Dýrgripum fyrir 15,5 milj. stolið Rámaborg, AP. VERÐMÆTU safni silfureft- irlíkinga, hluta þeirra frá tímum Rómaveldis, var stolið frá Róm- verska menningarsafninu i Róm nýlega, að þvi er italskir fjölmiðl- ar skýrðu frá á þriðjudag. Silfurhlutimir, sem eru 89 að tölu, em metnir á um 500 milljónir líra (um 15.5 millj. ísl. kr.) og segja yfirmenn safnsins að nánast ómögulegt sé að gera nýjar eftirlík- ingar þar sem frumgerðimar séu margar glataðar eða á erlendum söfnum. Þjófamir virðast hafa kunnað vel til verka og þekkt til á safninu, því þeir fóm aðeins inn í herbergi sem ekki vom í sambandi við þjófavam- arkerfið, notuðu lykla til að opna glerskápana og skildu ekki eftir nein fíngraför. Á tæpum tveimur ámm hafa fimm þjófnaðir af svip- uðu tagi verið framdir í Rómaborg. Reuter. Viðræður hafnar SHIMON Peres, utanríkisráðherra ísraels, kom til Egyptalands í gær, tíl viðræðna við egypska ráðamenn. Esmat Abdel-Meguid, utanrikisráðherra (t.v.) tók á móti Peres og ræddust þeir við óform- lega á herflugvelli þeim er flugvél Peresar lenti á. ísraelski utanríkisráðherrann mun hitta Hosni Mubarak, forseta, að máli í dag. Láttu ekki rugla þig Vertu þinn eigin dagskrárstjóri Ef þú vilt sjá góðar myndir þegar þér hentar er myndbandið ómetanlegur kostur. Þessar tvær gæðamyndir frá CBS/FOX eru komnar á allar góðar myndbandaleigur. Leigðu því eintak á myndbandaleigunni þinni, því það er langt þangað til að þú átt þess kost að sjá þessar myndir ruglaðar eða afruglaðar á skjánum. Tvær hörkuspennandi og sérlega skemmtilegar myndir. með þeim Micha- el Douglas, Kathleen Turner og Danny De Vito. , s\eVta6,a\"' S\^X ^ se^ wv m9^ eV-Vti^íTa°Joai' Vxe\d°r "a6sW sldnorhf CBS/FOX myndbönd fyrir alla. Nýbýlavegi 4, Kópavogi, sími 46680.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.