Morgunblaðið - 26.02.1987, Síða 56
56
MORGUNBLAÐH), FIMMTUDAGUR 26. FEBRÚAR 1987
Útvarpsstjóri í
nýja skrifstofu
Uþessar mundir eru starfsmenn
Rfkisútvarpsins að undirbúa
flutninga í nýja útvarpshúsið í
Efstaleiti. Reyndar voru starfsmenn
Rásar tvö búnir að hreiðr um sig
þar, en rásin starfaði í Efstaleiti frá
upphafi.
Fyrstur starfsmanna í Skúlagö-
tunni til þess að hreyfa sig um set
var útvarpsstjóri sjálfur, Markús
Öm Antonsson. Var að nógu að
hyggja, eins og geta má nærri um.
Ljósm. Þorgerður Ásmundardóttir
Þorvaldur Halldórsson, sem veg og vanda hafði af tónleikunum.
Gospel-tónleikar
íþágu
biblíuskóla
Markús Öm i-*, ' ——
Hinn 18. febrúar voru haldnir
miklir gospel-tónleikar í veit-
ingahúsinu Broadway, en það var
félagsskapurinn Ungt fólk með
hlutverk, sem stóð fyrir þeim. Til-
gangurinn var að safna fé til
byggingar biblíuskóla, sem samtök-
in eru að byggja á Eyjólfsstöðum
á Fljótsdal.
Ungt fólk með hlutverk er sjálfs-
eignarstofnun innan þjóðkirkjunn-
ar, sem ræktar heimatrúboðið og
hvetur og þjálfar fólk til kristilegs
starfs. Til þess er starfræktar tvær
starfsmiðstöðvar — önnur í
Reykjavík, en hin á Eyjólfsstöðum.
Skóflustungan var tekin árið
1979 og er byggingin, sem er úr
timbri, nú fokheld. Bíður hún þess
nú að verða tilbúin að innan og
mun m.a. koma manna vinnuflokk-
ur bandarískra ungmenna koma
hingað í sumar til þess að aðstoða
við bygginguna. Til þess að fjár-
Hér er Markús Öm kominn í nýju skrifstofuna, en umhverfis hann eru nokkrir starfsmenn Ríkisút-
varpsins. Frá vinstri eru: Hörður Vilhjálmsson, Pétur Guðfinnson, Guðrún Eyberg, Dóra Ingvadóttir,
Guðbjörg Jónsdóttir, Alma Guðmundsdóttir og Stefán Helgason.
fullu tungli. Veislan fór þó hið
besta fram eins og við var að
búast, en hún var haldin í Kvos-
inni.
Upphaflega var það Ragnar
Tómasson, hdl., sem stofnaði fyr-
irtækið og í byijun var hann í
einu herbergi á sama stað og
núverandi skrifstofur. Fyrirtækið
stækkaði ört, en húsnæðið var af
Fimmtudaginn 12. febrúar
síðastliðinn átti Fasteigna-
þjónustan hf. 20 ára afmæli.
Fyrirtækið er hið stærsta sinnar
tegundar á íslandi og þótti ástæða
til þess að fagna afrnælinu.
Til þess að fagnaðurinn félli
betur saman við helgina var sú
áhætta tekin að halda upp á af-
mælið föstudaginn 13. — undir
skomum skammti. Má nefna að
þegar Ragnar réði til sín einkarit-
ara, þurftu þau að deila herberg-
inu. Þurfti stúlkan fara fram á
gang, ef viðskiptavinimir vildu
ræða trúnaðarmál. Núna eru
starfsmennimir orðnir sjö og allir
með einkaskrifstofur.
Að sögn Þorsteins Steingríms-
sonar, núverandi eiganda fyrir-
tækisins, hefur vöxtur þess
byggst á því að vera ávallt í farar-
broddi þegar nýjungar era
annnars vegar. T.d. hóf fyrirtækið
að auglýsa verð fasteigna og gaf
út fjölritaða söluskrá mánaðar-
lega, þar til að fyrirtækið var
tölvuvætt, en síðan er hægt að
fá leiðrétta söluskrá hvenær sem
er. Þá hefur fyrirtækið starfað á
æ breiðari grandvelli, t.a.m. með
því að starfrækja fyrirtækjasölu
og leigumiðlun atvinnuhúsnæðis,
enda hefur sérstök áhersla verið
lögð á sölu atvinnuhúsnæðis og
stærri eigna. Þá hefur fyrirtækið
boðið viðskiptavinum sínum
eignamat, ókeypis og án nokkurra
skuldbindinga. Að sögn Þorsteins
hefur það haft þær afleiðingar að
fólk fer út í fasteignaviðskipti af
meira öryggi og raunsæi, en það
hefði annars gert.
Hér gefur að líta nokkrar
myndir frá afmælishófínu.
Morgunblaðið/Sig.Sigm.
Hér gefur að líta nokkra núverandi starfsmenn fyrirtækisíns, en
þeir eru Guðrún Þorsteinsdóttir, Lovísa Kristjánsdóttir, Guð-
mundur Jónsson, Þorsteinn Steingrímsson, Jón Daði Ólafsson og
Halldór Guðjónsson.
Meðal gesta voru þau Eygló Siguijónsdóttir, Ami Jóhannsson,
stórsöngvari og byggingameistari frá Ásmundarstöðum, og Gunn-
ar Jóhannsson.
Hér eru þær Anna Þorgrímsdóttir, sem er eiginkona Þorsteins,
Ingibjörg Erlendsdóttir, Hrafnhildur Hrafnkelsdóttir og Guðrún
Þorsteinsdóttir.
ffclk í
fréttum