Morgunblaðið - 26.02.1987, Blaðsíða 65
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. FEBRÚAR 1987
65
IBM-SKÁKMÓTIÐ
Einsdæmi að keppandi
sé með fullt hús vinn-
inga á svo sterku móti
ÞAÐ FÆR ekkert stöðvað sig-
urgöngu Englendingsins Nigels
Short á IBM-skákmótinu á hót-
el Loftleiðum. í 6. umferðinni,
sem tefld var í gser, varð Hol-
lendingurinn Jan Timman fyrir
barðinu á honum og varð að
gefast upp í 39. leik. Short hef-
ur því fullt hús vinninga eða 6
eftir sex umferðir og segja
menn að það sé einsdæmi í
skáksögunni að skákmaður sé
með fullt hús vinninga á jafn
sterku skákmóti, þegar mót er
rúmlega hálfnað. Short hefur
tvo vinninga umfram næstu
menn, sem eru þeir Kortsnoj
og Timman með 4 vinninga.
Menn áttu tæpast orð til þess
að lýsa taflmennsku Shorts og og
upphrópanir, eins og „þetta er
með ólíkindum", „hann er óstöðv-
andi“, „hvað er maðurinn að gera
að tefla á svona lélegu skákmóti"
mátti heyra á göngum Loftleiða-
hótelsins. í öllu falli voru menn
sammála um það að koma unn-
ustu Shorts til Islands hefði ekki
haft slæm áhrif á taflmennsku
hans.
íslensku keppendunum gekk
erfíðlega í gær. Helgi tapaði með
hvítu fyrir Agdestein í 25 leikjum
og þótti hann tefla með afbrigðum
illa, „lagði höfuðið á höggstokkinn
og Simen lét öxina falla“ eins og
einn áhorfenda orðaði það. Skák
Margeirs og Portisch fór í bið og
tapaði Margeir skákinni þegar
hún var tefld áfram. Jóhann og
Jón L. sömdu fljótlega um jafn-
tefli í innbyrðis viðureign sinni.
Kortsnoj brá ekki út af venj-
unni og innbyrti sinn fasta vinning
gegn Polugaevsky. Hann hefur
þvílíkt tak á Polugaevsky að það
má heita undantekning að hann
vinni hann ekki. Ljubojevic og Tal
sömdu jafntefli eftir hörkuskák,
þar sem sá fyrmefndi reyndi allt
hvað hann gat til þess að ná vinn-
ingi, en kom fyrir lítið.
Short er í efsta sæti eins og
fyrr sagði með 6 vinninga. í 2.-3.
sæti eru Timman og Kortsnoj með
4 vinninga og það er til marks
um hörkuna í taflmennskunni að
báðir hafa þeir tapað tveimur
skákum og unnið Qórar og gert
ekkert jafntefli, enda hafa áhorf-
endur Q'ölmennt á mótið og nánast
fullt hús í hverri umferð. Tal er í
4. sæti með 3,5 vinninga og aðrir
með minna. Jón L. er efstur ís-
lendinganna með 2,5 vinninga.
HJ
Short vinnur enn
Bxe6 og vinnur skiptamun.) 30,
Hbel - b6 31. Dh5 - Dd7 32
f4 - Re4.
Skák
Bragi Kristjánsson
Short er hreint óstöðvandi og í
gærkvöldi lagði hann sinn helsta
keppinaut Timman að velli. Byijun-
in var frönsk vöm og Short þótti
tefla byijunina ónákvæmt. Kannski
ekki að furða því hin grískættaða
vinkona hans kom til landsins á
sama tíma og horfði dolfallin á
meistarann unga. Timman jafnaði
taflið auðveldlega en þegar hann
hugðist ná til sín fmmkvæðinu opn-
aði hann taflið á röngum tíma og
Short náði undirtökunum. Frum-
kvæðið bætti hann með hveijum
leik og vann örugglega í 39 leikjum.
Hvítt: Nigel Short.
Svart: Jan Timman.
Frönsk vöm.
1. e4 — e6 2. d4 — d5 3. Rc3
— Bb4 4. e5 — c5 5. a3 — Bxc3+
6. bxc3 - Re7 7. Rf3 - Da5 8.
Dd2 - Bd7 9. Hbl - Bc6 10. Bd3
- Rd7 11. 0-0 - c4 12. Be2 -
h6 13. h4 - 0-0-0 14. Bdl.
(Eftir skákir spunnust miklar
umræður um þessa stöðu meðal
meistaranna. Tal og Ljubojevic
héldu því fram að svartur ætti betri
stöðu á meðan Short taldi stöðuna
í jafnvægi.)
14. — f5? (Timman opnar taflið
of fljótt. Betra var að undirbúa
framrásina með 14. — Hdf8 ásamt
Rb8, Bd7, Rc6 í áframhaldinu. Nú
beinir Short skeytum manna sinna
að e6-peðinu og nær frumkvæðinu.)
15. exf6 — Rxf6 16. Del — Re4
17. Hb4 - Hhf8 18. Re5 - Dc7
19. Bg4! - Hf6 20. f3 - Rd6 21.
Bh3 - Bd7
(Hótunin var 22. Rg4 og e6-peðið
fellur.) 22. Hf2 - Rc6 23. Hbl -
Rf7 24. Rxd7 - Dxd7 25. Bf4!
(Kemur biskupnum í ákjósanlega
aðstöðu því biskupinn er auðvitað
friðhelgur vegna leppnunar drottn-
ingarinnar.) 25. — g5 26. He2! —
He8 27. Bh2 - gxh4 28. Dxh4 -
Rg5 29. Bg4 - Dg7
(Hvítur hótaði nú illþyrmilega 30.
f4 - Rh7 31. Dxf6 - Rxf6 32.
33. Hxe4! (Einfalt og sterkt!) dxe4
34. d5 - Rd8 35. De5 - Hf5
(Örvænting, en hvíta staðan er
gjörunnin.) 36. dxe6! — Dd2 37.
Dxe4 - Hd5 38. e7+ - Kc7 39.
f5+ og svartur gafst upp því stór-
fellt liðstap er framundan.
IBM Super Ch**» Tournament, Reykjav ík i?0 VKS hf
Nr Nafn Land 1 2 3 4 5 6 7 Q 9 10 11 12 Vinn RÖS
ISD JL Q '4 JL '4 2'4 7-0
ISD . Q 0 0 0 JL '4 12
ENG L I 1 1 1 6 1
1 1 0 4 2-4
HUN ’4 1 JL 1 1 0 4 2-4
ISD 0 0 JL 0 1 2 9-11
URS 1 ‘4 '4 0 '4 3 6
URS ‘4 1 ‘4 '4 ‘4 •4 3’4 5
NOR 0 0 •4 ‘4 '4 1 2'4 7-8
JUG 0 0 0 1 ‘4 ‘4 2 9-11
SWZ 1 0 1 1 0 1 J 4 2-4
12 Helai Olafsson ISD ‘4 ’4 0 *4 *4 0 !U 2 9-11
,, , V'^, !
Morgunblaðið/Þorkell
Þessir gamalkunnu skákáhugamenn, sem þarna spá i stöðuna fyrir frainan sjónvarpið, setja svip
sinn á alþjóðleg skákmót sem haldin era á íslandi. á umferðir IBM-skákmótsins Fremstur stendur
Guðmundur Aralaugsson yfirdómari mótsins, við hlið hans stendur Ólafur Helgason, síðan Helgi
Sæmundsson og loks Ásgeir Friðjónsson.
Ekkert fær stöðvað sigurgöngu Shorts:
Stuðningsmenn Stefáns Valgeirssonar:
Biðja framsóknar-
menn að íhuga úr-
sögn úr flokknum
STUÐNINGSMENN Stefáns Valgeirssonar hafa ritað þeim fram-
sóknarmönnum í Norðurlandskjördæmi eystra bréf, sem skoraðu á
Stefán Valgeirsson á sinum tíma að fara út í sérframboð, þar sem
þeir biðja þessa framsóknarmenn að íhuga úrsögn úr Framsóknar-
flokknum. Nafn Stefáns er ritað undir bréfið, ásamt nöfnum
stuðningsmanna hans.
„Nokkuð margir af listanum, sem
tóku sig saman og rituðu þetta bréf,
settu mitt nafn undir þetta bréf,"
sagði Stefán, „sem var ritað út af
því hvemig haldið var á málum í
sambandi við synjun um að við
fengjum að bjóða fram undir lista-
bókstöfunum BB. Þá var því haldið
fram, að ef við fæmm fram undir
öðmm listabókstaf, þá væmm við
þar með famir úr flokknum. í hita
leiksins orða þeir það þannig, að
þeir biðja menn að íhuga úrsögn
úr Framsóknarflokknum. Menn
geta auðvitað skilið það á ýmsan
veg. Ég til dæmis, ætla ekki að
segja mig úr mínu félagi."
Stefán kvaðst skilja þá menn,
sem rituðu þetta bréf, eftir það sem
á undan væri gengið. Hann var
spurður hvort það væri sent út með
hans undirskrift, að honum for-
spurðum: „Þetta er bara prentað.
Þeir sögðu mér að þeir myndu
skrifa bréf, en ég áttaði mig ekkert
á því að þeir myndu setja mitt nafn
þama undir. Ég kom þama hvergi
nálægt. Hins vegar var lesið eitt-
hvað upp úr bréfínu fyrir mig, fyrir
nokkm síðan og ég gerði ekki at-
hugasemdir. Ég geri ráð fyrir því ^
að þetta hafi verið svona orðað, en g
þá hef ég bara ekki tekið eftir því.“
Stefán var spurður hvort hann
væri þá ósáttur við þetta bréf: „Ja,
ósáttur. Þeir setja þama mitt nafn
undir, og ég geri þá ekki að ómerk-
ingum af því. Hins vegar þykir mér
þetta leiðinlegt og ætlaðist ekki til
þess.“
Ingvar Gíslason fyrsti þingmaður
Norðurlandskjördæmis eystra
gegnir formennsku í þingflokki
Framsóknarflokksins í ijarveru Páls
Péturssonar. Hann var spurður
hvort þingflokkurinn myndi í kjölfar
þessarar bréfritunar taka til endur-
skoðunar afstöðu sína til vem
Stefáns í þingflokknum: „Ég veit
ekki til þess að það sé nein breyting
á afstöðu okkar í þingflokknum, til
vem Stefáns í þingflokknum, enda
er mér alveg ókunnugt um þetta
bréf,“ sagði Ingvar, „hins vegar
mun ég auðvitað, sem góður fram-
sóknarmaður og fyrsti þingmaður
Norðurlands eystra harma það mjög
ef að slíkt bréf er á kreiki."
Hægt að hlusta á
7 útvarpsstöðvar
SJÖ útvarpsstöðvar starfa á
Stór-Reykjavíkursvæðinu f dag.
Hafa ekki svo margir deilt með
sér ljósvakanum áður. Nýjasta
stöðin byijar útsendingar f
Menntaskólanum f Kópavogi á
hádegi.
Ríkisútvarpið starfrækir nú
þijár rásir, eitt og tvö auk svæðis-
útvarps í Reykjavík og á Akureyri.
Auk þess geta hlustendur valið á
milli Bylgjunnar, Kristilegu út-
varpstöðvarinnar Alfa og Utrásar
sem framhaldsskólanemar reka. í
hópinn bætist nú tímabundið stöð
MK sem starfar á Tyllidögum
skólans þessa vikuna. Hún sendir
út á FM-bylgju 94,3 Mhz.
Kjörskrárstofnar fyrír Alþmgískosningarnar tilbúnir:
Nýir kjósendur til Alþing-
is verða um 26.000 í vor
Alls verða 171.400 manns á kjörskrá
UM tuttugu og sex þúsund manns kjósa í fyrsta sinn til Alþingis í vor
samkvæmt útreikningum Hagstofunnar en þá bætast sex nýir árgang-
ar við frá síðustu kosningum. Alls hafa 171.400 manns rétt á að kjósa
tíl Alþingis 25. aprfl næstkomandi, sem er fjölgun um rúm 20 þúsund,
eða 14% frá síðustu Alþingiskosningum, og fjölgun um tæplega 1400
frá sveitarstjórnarkoaningunum 1986. Mest verður fjölgunin í Reykjan-
eskjördæmi eða 18%.
A kjörskrárstofnum þeim sem
Hagstofan hefur látið sveitarstjóm-
um í té svo þær geti samið kjörskrár,
eru 171.811 menn, þar af 87.425
karlar og 87.386 konur. Þar eru
skráðir allir þeir sem fæddir eru
1969 og fyrr, eiga íslenskan ríkis-
borgararétt eða hafa átt það á
síðustu fjórum árum. Endanleg tala
manna á kjörskrá er síðan áætluð
nokkru lægri, þar sem þeir sem verða
18 ára eftir kjördag og þeir sem
deyja fyrir kjördag, verða frátaldir í
endanlegu tölunum sem eru samtals
áætlaðar 171.400.
Kosningaaldurinn var lækkaður
úr 20 árum í 18 ár, með breytingu
á kosningalögum árið 1984 og því
bætast sex árgangar í tölu kjósenda
til Alþingis í ár. í apríllok gerir Hag-
stofan ráð fyrir að fjöldi þeirra, sem
er á aldrinum 18-23 ára verði 26.000
sem er 15.3% kjósenda. Kosninga-
réttur hefur einnig verið lýmkaður
með því að lögræðissvipting og flekk-
að mannorð varðar ekki missi .
kosningaréttar, og ekki heldur lög-
heimilisflutningur til útlanda á
síðustu Qórum árum.
Samkvæmt áætlun um endanleg-
an Qölda kjósenda á kjörskrá fjölgar
kjósendum fyrir þessar kosningar frá
síðustu kosningum um 20.400
manns, eða 14%. Flestir kjósendur
eru í Reykjavík, eða 67.400 og hefur
þeim fjölgað um 14%. Á Reykjanesi
hafa 39.200 kosningarétt og er það
fjölgun um 18% frá síðstu kosning-
um, á Vesturlandi geta 10.100 kosið
sem er fjölgun um 9%, 6800 hafa
kosningarétt á Vestfjörðun sem er ^
6% flölgun. Á Norðurlandi vestra
hafa 7300 kosningarétt, sem er 9%
fjölgun, á Norðurlandi eystra geta
17.900 kosið sem er fjölgun um 11%.
Kjósendur á Austurlandi verða 9000
sem er 12% fjölgun og kjósendur á
Suðurlandi verða 13.600 sem er 11%
fjölgun.