Morgunblaðið - 05.03.1987, Side 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. MARZ 1987
Blönduós:
Fyrsti togar-
inn kemur til
lega blómakörfu og heillaóskir í
þessu tilefni. I hófi sem sem
haldið var á hótelinu um kvöldið
færði Pálmi Jónsson alþingis-
maður heimamönnum þær frétt-
Siglt var með gesti út á Húnaflóann og má áætla að á fimmta hundrað manns hafi farið með togaranum
í þessa ferð.
ir að í tillögum að nýrri
hafnaráætlun væri áætlað að
veita 90 milljónum króna til
hafnarframkvæmda á Blönduósi
fram til ársins 1990. Þessar
fréttir þingmannsins fengu góð-
ar undirtektir heimamanna en
það hefur lengi verið mikið hags-
munamál Blönduósinga að fá
örugga höfn fyrir útgerðina og
virðist það takmark vera innan
seilingar. 28. febrúar verður
lengi í minnum hafður meðal
Blönduósinga. Það var almennur
einhugur meðal bæjarbúa og
bjartsýni og með tilkomu þessa
togara er stigið stórt skref til
að sporna við fólksfækkuninni á
landsbyggðinni.
— Jón Sig.
Mikill mannfjöldi var samankominn á bryggjunni til að fagna komu hins nýja rækjutogara Blönduós-
inga, Nökkva HU 15.
heimahafnar
Blönduósi.
ÞAÐ VAR mikill mannfjöldi samankominn á bryggjunni á
Blönduósi klukkan 11 laugardagsmorguninn 28. febrúar til
að fagna hinum nýja rækjutogara Blönduósinga, Nökkva
HU 15. Hilmar Kristjánsson, oddviti Blönduósshrepps flutti
ávarp á bryggjunni og bauð velkomið skip og áhafnarmeð-
limi og flutti árnaðaróskir. Þessi dagur var einn samfelldur
hátíðardagur á Blönduósi.
Gestum var boðið að skoða
skipið og eftir hádegið var siglt
með gesti út á Húnaflóann og
má áætla að eitthvað á fimmta
hundrað manns hafi farið með
togaranum í þessa ferð. Öllum
var boðið í síðdegiskaffi í félags-
heimilinu og var gestum boðið
upp á 6 metra langa marsípan-
tertu og mun þetta lengsta terta
sem bökuð hefur verið í Húna-
þingi og átti Brauðgerðin Krútt
á Blönduósi allan heiðurinn af
þessari tertu. Um kvöldið var
öllum boðið í dansleik í félags-
heimilinu.
Margir gestir voru við þessi
tímamót, m.a. fulltrúar slipp-
stöðvarinnar á Akureyri og þeir
þingmenn kjördæmisins sem
ekki voru á Norðurlandaráðs-
þingi. Útgerðarfélaginu bárust
margar gjafir í tilefni dagsins
og m.a. færðu nágrannar okkur
frá Skagaströnd útgerðinni fal-
Salix kojurnar frá Viðju eru sterkar,
stílhreinar og rúma jafnt unga sem aldna.
Hentugar í barnaherbergið eða sumarbústaðinn
KOJUR A TILBOÐSVERÐI
Verð aðeins Kr. 9.900,-
20% ðtborgun, 12 mánaða greiðslukjör.
O2 erslmi"ni
Þar sem
góðu kaupin
gerast
Smiðjuvegi 2 Kópavogi
SÍmi 44444
Morgunblaðið/J6n Sig.
Lárus Guðmundsson og Sveinn Ingólfsson fulltrúar Skagstrendinga
færðu útgerðinni blómakörfu.
ÚTSALA
Karlmannaföt kr. 4.495,-
Stakir jakkar kr. 3.995,-
Terelynebuxur kr. 850,- 995,- 1.095,- og 1.395,-
Gallabuxur kr. 750,- og 795,-
Riffl. flauelsbuxur kr. 695,-
o.m.fi. ódýrt Andrés
Útsalan framlengist skólavörðustIg 22, sImi 18250.