Morgunblaðið - 05.03.1987, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 05.03.1987, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. MARZ 1987 33 Greinargerð Árna Johnsen um lyfjakostnað á Islandi: Unnt að spara um 700 milljónir króna með skynsamlegri stýringu Ámi Johnsen alþingismaður lagði fram eftirfarandi greinargerð i gær er kynnt var frumvarp fjögurra al- þingismanna um afnám einokunar- sölu á lyfjum. Fullyrða má að enginn rekstur á íslandi borgi sig eins vel og lyf]a- sala. íslendingar munu kaupa lyf fyrir 1.800 milljónir króna a.m.k. á þessu ári, en með skynsamlegri stýr- ingu og afnámi einokunar í sölu lyfja á að vera unnt að spara 600-700 milljónir króna, þar af stærstan hluta sem ríkissjóður greiðir nú beint af skattpeningum. Margir sem gerst þekkja í lyfjamálum telja að unnt sé að spara verulega hærri upphæð, allt að 50% af núverandi lyfjakostn- aði. Enginn raunhæfur möguleiki er til þess að ná lyfjaverðinu niður nema að einokunin í lyfjasölu verði afnum- in. Núgildandi kerfi er byggt á því að á sínum tíma var fjöldi lyfjafræð- inga takmarkaður og þá voru lyfin framleidd í apótekum. Það er liðin tíð. Innan við 1% af lyfjum er nú unnið í apótekum, aðallega hósta- saftir, allt hitt kemur tilbúið í lyfja- búðina. Apótekin kaupa nú inn í stórum skömmtum að öllu jöfnu og umpakka gjarnan í smærri einingar til þess að ná upp álagningu. Harðasta sölu- mennska í heiminum Á undanfömum árum hefur net lyfjasölunnar verið að þéttast. Fyrir nokkrum árum má segja að helming- ur lyfsala á landinu hafi verið aðilar að lyfjainnflutnings- og lyfjafram- leiðslufyrirtækjum, en nú eru þeir nær allir aðilar að þessum fyrirtækj- um og náðist það markmið hinna ýmsu lyfjafyrirtækja að ná öllum undir þennan hatt með afslætti á lyf og ýmsu fleira. Lyfsalar og lyfja- fræðingar ráða ferðinni í þessum málum í einu og öllu, þeir eru inn- flytjendur lyfja, framleiðendur, heildsalar, smásalar og ráða útsölu- verðinu þar sem 4 lyfjafræðingar eru í 5 manna nefnd sem ákveður verð á lyfjum, lyfjaverðlagsnefnd. Að auki ráða þessir aðilar innkaupsverðinu að hluta, því það er samningsatriði og harðasta sölumennska í heiminum í dag er ekki í vopnum, heldur lyfja- sölu. Innlend lyfjafyrirtæki hafa lagt kapp á að framleiða dýr sérlyf í sam- keppni við innfutt lyf en jafnframt leggjast innlend lyfjaframleiðslufyr- irtæki á erlendu fyrirtækin og hóta þeim að fara að framleiða þeirra lyf nema að þau fái umboð fyrir þau. Nærri lætur að verð lyfja hækki um 140% í það minnsta frá innflutn- ingsverði og þar til neytandinn fær lyfíð afhent og er söluskatturinn undanskilinn. Ef innflutningsverð er 100 krónur má reikna með 10% umboðslaunum, 19% álagningu frá heildsala til apótekara. Álagningin á erlendu sérlyfín er um 75% og þá er þetta lyf komið upp í 227 krónur, en síðan bætist 10 króna afgreiðslu- gjald á hvert lyf. Á móti má ætla að álagning á innlendu lyfín þegar allt er tekið til sé um 80% Verðskráin er hernaðarleyndarmál Þegar lyijanefnd hefur samþykkt skráningu lyfs, verðleggur lyfjaverð- lagsnefnd lyfíð. Dæmi um möndlið í þessum málum er t.d. að þegar fram- leiddar voru hérlendis valíumtöflur sem kostuðu brot af innflutta lyfinu tók enginn lyfsali innlendu fram- leiðsluna til sölu vegna þess að álagningin var svo lág, þeir höfðu ekkert út úr sölunni. Til stóð að flytja inn pencillintöflur frá Finnlandi fyrir aðeins einn þriðja af verðinu annars staðar frá, en þá tók lyfja- nefnd þá afstöðu að það væri engin ástæða til þess að flytja þetta lyf inn, því það væri til sams konar lyf í landi. Verðskrá lyfjaheildsala byggist á Dansk legemedel statistik, en þessi verðskrá er hemaðarleyndarmál og ekki einu sinni landlæknir fær að sjá þessa skrá. Unnt er að fá heildarupp- lýsingar úr skránni, en þær skipta engu máli ef unnt á að vera að draga ályktanir af henni. Öll lyfjafyrirtækin eru eins konar ferðaskrifstofur fyrir lækna og aðra sem sinna lyfjadreifingu. Ferðir sem boðið er upp á heita fundaferðir til þess að kynna sér lyf, en hér er að sjálfsögðu um að ræða sposlur til manna fyrir dreifingu lyfja. Gigtar- lyf, hjartalyf og magalyf eru meðal dýrustu lyfjanna og árið 1985 voru seld hjartalyf fyrir um 200 millj. kr., geðlyf fyrir um 200 millj. kr., sýklalyf fyrir um 200 millj. kr. og sárasjúkdómalyf fyrir um 200 millj. kr. Hryggurinn af fjármagninu í lyfjasölunni er því í þessum lyfjum. Lyfjaframleiðendur í þessum lyfja- flokkum leggja mikla áherzlu á alls kyns boðsferðir til kynningar og væri fróðlegt að skoða samhengi á útskrift þessara lyfja og boðsferða lækna og annarra. Engin stýring er á því hérlendis sem skiptir máli að velja ódýrari lyf fremur en dýr, þótt þau hafi sömu möguleika til þess að gagnast sjúkl- ingum. Það geta verið 10 tegundir lyfja sem gera sama gagn en ef til vill getur verið matsatriði að einhver tvö af tíu henti sjúklingum betur. Verðmunurinn getur verið mörg hundruð prósent. Ef lyfjaframleið- andi ætlar að lækka lyf verður hann að sækja um leyfi til lyijaverðlags- nefndar. Læknir getur haldið því fram að eitt lyf henti betur en annað, en sann- anlega er oft um sams konar lyf að ræða og þá ætti að vera hægt að stýra þessum hlutum betur án þess að læknirin geti sagt að verið sé að ganga á möguleika sjúklingsins til þess að ná bata. Lyf fást með 45-90 daga greiðslu- fresti, vaxtalaust frá afskipunardegi erlendis. Ein af forsendunum fyrir hárri verðlagningu hérlendis er sú kenning að menn segjast liggja með miklar birgðir, en í óeðlilegri stjómun á lyfjalager er ljóst að erlendi fram- leiðandinn greiðir 70-80% af lagem- um. Apótekarinn kaupir út í reikning hjá heildsala og hefur 2% stað- greiðsluafslátt ef hann greiðir fyrir 10. næsta mánaðar, en greiðir án vaxta ef hann gerir upp fyrir 21. næsta mánaðar. Lyfsalar geta skilað öllum lyfjum sér að kostnaðarlausu ef þau seljast ekki fyrir tilskilinn tíma. Lyfsalar leigja húsnæði fyrir lækna Það hefur færzt í vöxt að lyfsalar byggi eða kaupi húsnæði við apótek sín og skapi aðstöðu fyrir læknastof- ur sem oft em setnar læknum sem skrifa út hátt hlutfall lyfjaávísana, en þessar lyfjaávísanir renna síðan inn í lyfjaverzlun leigusalans. í Reykjavík em mörg hundmð læknar en aðeins 8 þeirra skrifa út helming allra lyfjaávísana í borginni. Á Reykjanesi utanverðu em um 20 læknar, en einn þeirra skrifar út helming lyfseðlanna og t.d. má nefna „EF menn telja að unnt sé að lækka verð á lyfjum með því að fjölga útsölustöðum um meira en helming, þá er það hagfræði sem ég skil ekki,“ sagði Stefán Sigur- karlsson, formaður Apótckara- félags Islands er hann var spurður álits á þingsályktunartil- lögu um að gefa frjálsa sölu á lyfjum. Stefán kvaðst hvorki hafa séð tillöguna né greinar- að í Ámessýslu em 40 læknar en einn þeirra skrifar út helming lyf- seðlanna. Það er ugglaust engin tilviljun að launaskrá lyfjafræðinga er á hæstu nótum launa í hópi háskólamanna. Gmndvöllur lyfjaverslana byggist aðeins á lyfjasölu, það er sölu gegn lyfjaávísunum, en ekki er tekið tillit til handkaupslyfja, hjúkmnarvöm, snyrtivöm og margra fleiri vömteg- unda sem tíðkast í apótekum, en álitið er að þessir þættir geti numið allt að 50% verslunarinnar. Álagning og verðgmndvöllur miðast einnig við einhvem tiltekinn stað á landinu sem erfiðast er að reka slíka þjónustu, en allir aðrir hafa þar af leiðandi þeim mun meiri gróða. Á sl. ári vom skrifaðar út um 1,7 millj. lyfjaávísana en það er nærri helmingi örari tjáskiptatíðni milli lækna og sjúklinga en eðlilegt er talið, því eðlilegt er talið að menn hafí samband við lækni um 4 sinnum á ári að meðaltali. Ljóst er að ótæpi- leg lyfjaútskrift er vemlegt vanda- mál á Islandi og kann þar að koma einnig til mikil fjölgun lækna. Meðal- verð á afgreiddu lyfi í nóv. sl. var 1.070 kr. Enginn þröskuldur er til staðar ef lyfseðlum lækna myndi t.d. fjölga um helming á einu ári, allt rynni í gegnum Tryggingastofnunina þar sem hver einasti skattgreiðandi á landinu miðað við 121 þúsund vinnufæra menn, gTeiðir á þessu ári 10 þúsund krónur að meðaltali af sínum gjöldum í lyf. íslendingar em með flesta lækna á íbúa miðað við Norðurlönd eða 2,5 á hverja þúsund íbúa. Það er eftirtektarvert að Islend- ingar nota mikið af sýklalyfjum. 20 af hveijum 1.000 nota þau lyf dag- lega, en það er helmingi hærra hlutfall en hjá öðmm þjóðum. íslend- ingar nota mest af sýkla- og súlfa- lyfjum í Evrópu ásamt Frökkum. Á undanfömum 10 ámm hefur land- læknir gert átak í að minnka útskrift á svefnlyfjum og róandi lyfjum og miðað við að 100 af hveijum 1.000 íbúum notuðu slík lyf daglega 1976 er sú tala komin niður í 60 af 1.000 í dag. Erlendir lyfseðlar eða ávísanir em 2-3 sinnum dýrari en innlend lyf, en Tryggingastofnun telur að 2A af lyf- seðlum séu fyrir erlend lyf. Láta mun nærri að Tryggingastofnun greiði 75% af lyfjakostnaðinum, en sjúkl- ingurinn 25% að meðaltali. Það er óheyrilega hátt hlutfall að 10 þús. kr. af gjöldum hvers vinnufærs manns í landinu skuli fara í lyf, sér- staklega með tilliti til þess að mjög stór hluti landsmanna notar ekki lyf nema að mjög takmörkuðu leyti. Hver borgari greiðir 330 kr. fýrir erlend lyf, nema aldraðir sem greiða 120 kr., en meginreglan er að skatt- peningamir greiði mismuninn. Fyrir innlendu lyfin greiða menn 200 kr. og aldraðir 80 kr. Vegna lágs greiðsluhlutfalls þeirra sem lyf þurfa að nota hefur ekki komið til þrýsting- ur á aðgerðir í þessum efnum þótt þama sé einfaldlega um skattpen- inga að ræða, en þessar staðreyndir vekja spumingar um það hvort hlut- fall erlendra sérlyfja sé ekki of hátt, gerð Árna Johnsen, en aðspurður um nokkur atriði hennar sagði hann að þar væri víða að finna rangfærslur, dylgjur og atvinnu- róg. Stefán sagði að smásöluálagning á lyfjum hér á landi væri 68% , í Danmörku 67% og í Finnlandi 64%. Heildsöluálagningin væri 18% og verðlagning á lyfjum hér á landi hvort hægt sé að vinna lyfin innan- lands, hvers vegna ekki sé gerður greinarmunur á dýmm lyfjum og ódýrum, hvort læknar gefí sér nægan tíma til að tala við sjúklinga, hvort ekki sé tímabært að koma á fót fag- legri yfírstjóm í þessum málum sem byggist jöfnum höndum á hagfræði og lyíjafræði. Það er hægt að spara hundruð milljóna króna með því að hafa stjóm á verðmyndun í lyfjasölu og taka þann þátt úr höndum lyfja- fræðinga og þetta á jafnframt við um flesta þætti í heilsugæsluþjón- ustu landsmanna. Landlækni meinaður aðgangnr að upplýsingum 99% af upplýsingum um lyf koma frá apótekumm og sölumönnum, 1% frá landlækni vegna þess að hann hefur ekki fjárhagsleg skilyrði til þess að sinna þessari stjórnun af fullum krafti. Lyfjamál em við- kvæmt mál, því enginn notar lyf nema af illri nauðsyn, en mesta gróðastía á íslandi á ekki að vera í skjóli sjúkdóma og það er því fylli- lega tímabært að skera þetta kerfi upp með stóraðgerð. Ragnhildur Helgadóttir heilbrigðisráðherra skipaði sl. haust nefnd til þess að gera úttekt á ýmsum þáttum heil- brigðisþjónustunnar og m.a. lyfja- kostnaði, en hyggilegt væri að setja hóp reyndra viðskiptamanna og við- skiptafræðinga í lyijakostnaðinum og stokka spilin upp jafnhliða af- námi einokunar í lyfjasölu. Auk þess er mikilvægt að stórauka í Háskóla íslands kennslu í meðferð lyfja. Reikna má með að í dreifbýli þurfí um það bil 2.500 manns að vera á bak við fullkomið apótek til þess að það borgi sig, þannig að það má fjölga útsölustöðum ljrfja vemlega í landinu án þess að það komi niður á þjónustu. Miðað við árin 1974 og 1984 hefur lyfjakostn- aður í Reykjavík hækkað um 102,5%, 79,6% í kaupstöðum og 103,2% í sýslum, en á sömu ámm hefur lækniskostnaður sjúkrasam- laga á íbúa lækkað í Reykjavík um 14,4%, 32,2% í kaupstöðum, en kostnaðurinn hefur hækkað um 43,2% í sýslum, sem m.a. virðist koma til vegna mikillar hreyfingar á læknum í sýslum. Þetta segir sína sögu um fmmskóg lyfjasölunnar. 1.050 milljónir em áætlaðar af skattpeningum þessa árs í lyf, 350 millj. kr. má ætla hlut neytenda, sjúkrahúsin munu kaupa lyf fyrir nær 300 millj. kr. og lyf án lyf- seðla má ætla áð seljist fyrir nær 100 millj. kr. samkvæmt áætlun embættismanna. Með því að tæta þessi mál upp sig skipuleggja eins og hjá mönnum er unnt að spara 600-700 millj. kr. og stórlækka lyfjakostnað á hvern landsmann án þess að skerða heilbrigðisþjónustu. Slíkt er gróðabrallið í sölu lyfja að ekki einu sinni landlæknir fær að vita hvað er söluhæsta lyf landsins. 4. marz 1987, Arni Johnsen. væri í samræmi við hefðir í Norður- Evrópu. Hann kvaðst því ekki skilja þá útreikninga Árna Johnsen sem gerðu ráð fyrir 140% álagningu frá framleiðanda til neytanda. Varðandi þær fullyrðingar í greinargerð Áma um að tilhneiging væri hjá lyfseðlum um að kaupa inn dýrari lyf vegna hærri álagningar sagði Stefán að læknar tækju ákvörðun um hvað lyf skuli gefíð hveiju sinni. „Ef þama er verið að gefa í skyn einhvers konar leyni- makk á milli lækna og lyfsala þá verð ég að líta á það sem atvinnu- Óskar Ólason Klúbbarnir Ör- uggur akstur: Óskar Óla- son for- maður í Reykjavík ÓSKAR Ólason, fyrrum yfir- lögregluþjónn, var kjörinn formaður Reykjavíkurdeildar ■ klúbbanna Öruggur akstur, á fjölmennum fundi sem haldinn var á þriðjudagskvöld. „Eg á erfitt með að slíta mig frá umferðarmálunum. Hugurinn er enn við þetta og ég hrekk allt- af við ef ég heyri sírenuvæl," sagði Óskar, en hann lét af fyrra starfí fyrir aldurs sakir um síðustu áramót. „Þá tel ég mig þekkja starf klúbbanna vel éftir langt starf í lögreglunni. Klúbb- amir starfa víða um land og eru nú 35 talsins, en fyrsti klúbburinn var stofnaður árið 1955 á ísafirði. Þeir hafa látið gott af sér leiða í umferðarmálum en enn er mikið starf óunnið. Nú eru klúbbarnir sameinaðir í landssamtök sem eiga örugglega eftir að láta enn frekar að sér kveða í umferðar- málum,“ sagði Óskar. Auk Óskars voru kjömir í stjóm Reykjavíkurdeildarinnar þeir Guttormur Þormar, fyrmm yfirverkfræðingur hjá Reykjavík- urborg og Gísli Bjömsson, deild- arstjóri hjá lögreglunni. Nær öll loðna í hrognatöku NÚ ER loðnan nær eingöngu veidd til hrognatöku enda hrognafylling mikil í þeirri göngu, sem veiðist úr út. af Garð- skaga. Auk þeirra skipa, sem áður er getið, tilkynntu eftirtalin um afla á þriðjudag: Sigurður RE 1.050, Víkurberg GK 400, Guðmundur VE 880, Erling KE 600 og Börkur NK 1.050. Síðdegis á miðvikudag höfðu þijú skip tilkynnt um afla. Keflvík- ingur KE var með 450 lestir, Þórshamar GK 560 og Guðrún Þor- kelsdóttir SU 700. róg sem beinist gegn þessum stéttum“, sagði Stefán. Varðandi þær fullyrðingar að verðskrá á lyfjum sé hemaðarleynd- armál og að landlækni sé meinaður aðgangur að upplýsingum um sölu á lyfjum sagði Stefán m.a.: „Það ríkir prentfrelsi í okkar heimshluta og ef menn geta ekki fengið keypt- ar þær bækur sem prentaðar eru þá kann ég enga skýringu á því. Eg átta mig ekki á hvers vegna landlæknir nær ekki í þessa bók. Hver er með þessa bók? Mér er þetta alveg hulið." „Hagfræði sem ég skil ekki“ - segir Stefán Sigurkarlsson, for maður Apótekaraf élags íslands

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.