Morgunblaðið - 05.03.1987, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. MARZ 1987
47
„Pétur minn, hún Adda systir dó
í nótt.“
Það var móðir mín sem tilkynnti
mér þannig andlát Ásdísar Péturs-
dóttur, „Oddu frænku". Símtal
þetta kom eins og þruma úr
heiðskíru lofti, mitt innan um hvers-
dagsleg símtöl erilsams morguns.
Þrátt fyrir að lengi hafí verið
vitað að hverju dró og að Öddu var
hvíldin kærkomin eftir svo langa
og erfiða baráttu, setti mig hljóðan.
Minningar úr æsku streymdu fram
úr hugskotinu. Adda frænka hafði
leikið mjög stórt og veigamikið hlut-
verk í æskuskeiði okkar systkin-
anna. Hún var frænkan sem bjó í
næstu götu sem ávallt var hægt
að leita til. Aldrei gleymast þær
stundir sem ég átti á heimili þeirra
Öddu og Ólafs á Víðimel 63 þegar
ég fékk að gista þar næturlangt,
jafnt þegar foreldrar mínir þurftu
af einhveijum ástæðum að „koma
mér fyrir“ og eitjs þegar ég sjálfur
óskaði eftir að fá að leika „prins“
hjá Öddu og Ólafi.
Skærastar eru þó minningarnar
frá Álftavatni, en þar er mest
paradís barna sem fullorðinna. í
landi Ólafs og Öddu reistu foreldrar
mínir sumarbústað árið 1943 og var
samgangur. mikill milli fjölskyldn-
anna. Þar var Adda frænka ávailt
hrókur alls fagnaðar sem annars
staðar. Hún lék við okkur krakk-
ana, spaugaði og gantaðist eins og
henni var einni lagið. Adda var
drottningin í skóginum og Ólafur
konungurinn, það fór aldrei á milli
mála hjá neinum sem til þekktu.
Adda var blíð kona og góðlynd.
Hún mátti aldrei neitt bágt vita svo
að hún ekki kæmi til hjálpar. Ekki
brugðust þau Ólafur mér og áttum
við saman eitt leyndarmál. Þau
réttu mér hjálparhönd eitt sinn þeg-
ar illa stóð á og tímabundna aðstoð
þurfti við að koma fyrsta þakinu
yfír unga fjölskyldu. „Hún frænka
mín sagði að ég ætti að hjálpa þér,“
sagði Olafur þá. Hún hjálpaði þeim
sem voru hjálparþurfi og huggaði
þá sem áttu bágt.
En Adda var líka léttlunduð.
Kímnigáfa hennar var einstök og
hún hafði sérstaka ieikhæfíleika
sem hún greip til þegar hún vildi
skapa létt andrúmsloft í kringum
sig, og aldrei brugðust þeir hæfi-
leikar henni við slíkar aðstæður.
Glettnin í augum hennar gleymist
ekki þeim sem hafa séð.
Með Öddu er genginn mikill per-
sónuleiki sem margir sakna. Ég og
fjölskylda mín biðjum Guð að
styrkja þig, Ólafur, og fjölskyldu
þína á þessari stundu og framvegis.
Pétur Björnsson
í dag er Adda móðursystir mín
og vinkona borin til grafar. Minn-
ingamar um góða, skemmtilega og
gjafmilda frænku hrannast upp í
huga manns.
Fyrstu minningamar em um öll
góðu og skemmtilegu sumrin í
sveitinni við Álftavatnið bjarta. En
þar eyddum við löngum summm á
stríðsámnum í bústaðnum hennar
Öddu. Við vomm tvær systumar
komnar í heiminn á þrem ámm, en
Adda átti tvö böm, þau Stellu og
Reyni, og vomm við fjögur eins og
systkini. Adda tók okkur systmnum
eins og eigin bömum og gerði
reyndar alla tíð. Seinna átti pabbi
eftir að byggja sumarbústað
skammt frá bústað Öddu og Ólafs.
Þannig vildi Adda hafa það,
mamma átti að byggja bústað, þær
systurnar höfðu mikinn styrk hvor
af annarri enda vom þær einar með
okkur krakkana heilu sumrin, eigin-
mennirnir komu um helgar.
Adda var góð kona og sérstak-
lega skemmtileg, þessvegna held
ég að við krakkarnir höfum hænst
að henni. Hún átti það til að spretta
upp og byija að hlaupa og þá kom-
um við öll í halarófu á eftir henni,
skrækjandi af hrifningu. Hún hafði
mikla leikhæfíleika og hafði gaman
af að segja sögur, sérstaklegag þó
af ferðum sínum til útlanda en
þangað þurfti hún oft að fara út
af veikindum sínum sem seinna
áttu eftir að ágerast.
Gjafmildari konu hefí ég aldrei
kynnst. Þegar Adda kom heim frá
útlöndum hringdi hún í mömmu og
bað hana að senda okkur krakkana
til sín, hún hafði keypt „eitthvað
smávegis" handa okkur. Þá var
heldur betur hátíð í bæ. En aldrei
minnist ég þess að það hafi verið
óþægilegt að taka við gjöfunum frá
henni, hún gaf fyrst og fremst fyr-
ir sjálfa sig, ætlaðist ekki til
þakklætis.
Árin liðu í sveitinni, við stækkuð-
um og urðum fleiri systkinin en
Adda var jafn hrifín af og áhuga-
söm um allan hópinn. Mig langar
til að þakka fyrir hve góð hún og
Ólafur voru Helgu systur systur
minni, en hún dvaldi um tíma á
Víðimelnum á heimili þeirra er hún
var í framhaldsskóla.
Ég mun alltaf minnast Öddu með
hlýju og þakklæti og ég mun fyrst
og fremst minnast hennar þar sem
hún sat eins og drottning við kross-
saum í sveitinni í fallegu stofunni
sinni með málverk af henni yfir
stólnum þar sem hún sat. Það var
í gamla daga þegar hún var frísk
og þannig vil ég varðveita minning-
una.
Blessuð sé minning Ásdísar Pét-
ursdóttur.
Sigríður Björnsdóttir
t
Faðir okkar,
STEFNIR RUNÓLFSSON,
múrarameistari,
lést á dvalarheimilinu Jaðri, Ólafsvík aðfaranótt 4. mars.
Börnin.
t
Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
HELGA GÍSLADÓTTIR,
Víðivöllum 2,
Selfossi,
verður jarðsungin frá Selfosskirkju laugardaginn 7. mars kl. 13.30.
Erlendur Sigurjónsson,
Gísli Erlendsson, Jónína Hjartardóttir,
Jóhannes Erlendsson, Auðbjörg Einarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Maðurinn minn,
SIGURFINNUR JAKOBSSON
frá Hurðarbaki,
Róttarholtsvegi 3,
Reykjavfk,
sem lést 21. febrúar verður jarðaður frá Blönduóskirkju laugardag-
inn 7. mars kl. 14.00.
F.h. fjölskyldunnar,
Björg Erlendsdóttir.
Þuríður Benedikts-
dóttir — Kveðjuorð
Fædd 20.júní 1906
Dáin 31. janúar 1987
Síðasta dag janúarmánaðar
hringdi Guðmundur Halldór, sonur
Þuríðar, til að segja okkur, að móð-
ir sín hefði látizt þá um morguninn
í Borgarspítalanum. Það var okkur
harmafregn að vita, að við sæjum
aldrei bjarta brosið hennar framar,
né nytum yndislegra samveru-
stunda með henni. En á hinn bóginn
glöddumst við yfir að nú hefði hún
hitt ástvin sinn og eiginmann, sem
svo fljótt var hrifinn frá henni í
blóma lífsins.
Þuríður var ættuð úr Hvamms-
sveit, dóttir Benedikts Halldórsson-
ar bónda á Leysingjastöðum þar í
sveit og konu hans Sigríðar Helga-
dóttur. Snemma reyndi Þuríður
mótlæti, því þegar hún var aðeins
4 ára gömul deyr faðir hennar. Ung
giftist hún Karli Guðmundssyni
lækni, ættuðum frá Grund í
Hnappadal, sonur Guðmundar
Benjamínssonar bónda þar og konu
hans Ásdísar Þórðardóttur. Höfðu
þau hjón áður farið til Vesturheims
og fæddist Karl í Winnipeg.
Karl útskrifaðist læknir frá Há-
skóla íslands 1931, en ári síðar
gengu þau Þuríður í hjónaband.
Hann var samstúdent föður míns
og vinur. Fljótlega eftir embættis-
prófið varð ungi læknirinn stað-
gengill héraðslæknanna í
Borgarneshéraði 1931—32 og
Borgarfjarðarhéraði sumarið 1932,
en um haustið í október sama ár
fór hann til framhaldsnáms til Dan-
merkur, í Viborg og til Kaup-
mannahafnar við Ríkisspítalann og
fleiri staði.
Á þessum krepputímum bæði hér
á landi og annars staðar voru utan-
landsferðir ekki eins auðveldar og
seinna varð. Því var það, að Þuríð-
ur fór ekki utan með manni sínum,
heldur dvaldi hjá móður sinni, sem
þá var gift öðru sinni Kristjáni Jóns-
syni, og voru þau hjón þá búsett á
Oðinsgötunni hér í borg, og í skjóli
þeirra hjóna, svo og móðurbróður
Þuríðar, Helga Helgasonar, og konu
hans, sem búsett voru í sama húsi,
fæddist sonur þeirra og einkabarn,
Guðmundur Halldór.
Vorið 1933 sneri Karl til íslands
og fluttust þau hjón vestur, þar sem
Karl gerist frá maíbyijun sama ár
aðstoðarlæknir héraðslæknisins í
Þingeyrarhéraði til desember 1937,
er hann er skipaður héraðslæknir
Dalamanna frá 1. janúar 1938 með
aðsetri í Búðardal.
Við ijölskyldunni virtist framtíðin
nú blasa björt og fögur, en það fór
á annan veg. Á þessum árum veikt-
ist Karl, sem seinna leiddi til þess,
að hann varð að segja af sér emb-
ætti vegna vanheilsu vorið 1942 og
rúmlega tveimur árum seinna eða
29. ágúst 1944 lézt hann í Landspít-
alanum langt fyrir aldur fram. í
veikindum Karls bjuggu þau hjón á
Flókagötu 33 hjá Olafi H. Jóns-
syni, forstjóra Alliance, sem einnig
var samstúdent og vinur Karls og
föður míns, og konu hans, Sigþrúði
Guðjónsdóttur, og reyndust þau
heiðursjón, sem nú eru bæði látin,
Þuríði sérstaklega vel.
Þuríður stóð nú ein uppi með
ungan son. En hún lét hvergi bug-
ast. Um árabil vann hún í Skóverzl-
un Lárusar G. Lúðvíkssonar. Fyrir
eldri Reykvíkingum þarf ekki að
lýsa þeirri búð, hve glæsileg hún
var og vörumar vandaðar. Og hve
afgreiðslan var einstaklega ljúf-
mannleg og skipti þar ekki máli,
hvort fullorðnir áttu í hlut eða börn
og gamalmenni.
Með miklum dugnaði réðst Þuríð-
ur í íbúðarkaup í Eskihlíð, er fram
liðu stundir. Sonurinn fór í Verzlun-
arskóla íslands, var m.a. hnefa-
leikameistari skólans, áður en sú
grein var bönnuð hér. Lauk hann
prófi úr þeim skóla, svo og úr Stýri-
mannaskólanum, svo sem hugur
lians stóð til. Hann hefur um ára-
bil verið til sjósogernú 1. stýrimað-
ur hjá Eimskip.
Þuríður skipti nokkrum sinnum
um íbúðir og naut þar sonar síns
við skiptin, þar sem hann var alltaf
sá trausti, prúði og duglegi sonur,
sem hún gat treyst á. Var mjög
kært með þeim mæðginum. Guð-
mundur Halldór er kvæntur Þóru
Kjartansdóttur, dóttur Kjartans
Ingimarssonar og konu hans Unnar
Árnadóttur, sem nú er látin. Eiga
þau hjón 4 börn og 3 barnaböm.
Hvar sem Þuríður bjó átti hún
íjarskalega fallegt heimili. Hver
hlutur var valinn af smekkvísi og
nærfærni og ekki voru veitingar
síðri. Húsráðandi falieg og fín og
listakokkur í mat og framreiðslu
og mjög vel heima í ólíkum um-
ræðuefnum. Hvers konar handa-
vinna og útsaumur lék henni í
höndum og mörg falleg peysan
flaug af pijónum fram, að því er
virtist fyrirhafnarlaust.
Þuríður var sérstaklega heil-
steyptur og hress persónuleiki og
heilsugóð allt til síðastliðins árs, að
vanheilsu gætti og olli því, að hún
þurfti að fara á spítala, þaðan sem
hún átti ekki afturkvæmt.
Ég og fjölskylda mín þökkum
Þuríði allar ánægjustundir og
trygga vináttu í öll þessi ár. Við
vitum, að vel hefur verið tekið á
móti henni og geymum bjarta minn-
ingu hennar í huga okkar. Guð
varðveiti hana og blessi.
Elín K. Thorarensen
+ | SIEMENS
Útför EINARS JÓNSSONAR,
læknamiðils, fór fram á Einarsstöðum 1. mars sl. Þökkum þá virðing og vinarhugi er umvafiö hafa okkur við fráfall elskaðs föður og eiginmanns. Guð blessi ykkur öll. HSliK—M (J^) (|^ j I®
Olga Marta, Erla Ingileif og dætur.
t Útför eiginkonu minnar, EYÞÓRU ÞÓRÐARDÓTTUR, Aragerði 12, Vogum, verður gerð frá Ríkissal Votta Jehóva, Sogavegi 71, Reykjavík, föstudaginn 6. mars kl. 14.00. Jarösett verður í Gufuneskirkjugarði. f
Siwamat580þvotta- vélin frá Siemens
Halldór Ágústsson. fyrir vandlátt fóik
+ Útför móður minnar, tengdamóöur og ömmu, JÓHÖNNU GUÐMUNDSDÓTTUR, fyrrv. starfsmanns Sundhallar Reykjavíkur, Bergþórugötu 55, 4 4 4 lÁfangaþeytivinding fyrir allan þvott. líka ull. Mesti vindu- hraði: 1100 sn./mín. ► Sparnaðarkerfi þegar þvegið eríhálffylltri vél. ISkyndiþvottakerfi fyrir íþrótta- föt, gestahandklæði og annað sem lítið er búið að nota. ► Hagkvæmnihnappur til að minnka hita og lengja þvotta- tíma: Sparar rafmagn. ► Hægt er að fá þurrkara með sama útliti til að setja ofan á vélina. ►Allar leiðbeiningar á íslensku. V/a SIEMENS eru gæði, ending >g fallegt útllt ávallt sett á tddinn. Smith og Norland Nóatúni 4, s. 28300.
verður gerð frá Fríkirkjunni á morgun, 6. mars, kl. 10.30. Erla Benediktsdóttir Bedinger, George M. Bedinger, Benedikt Jónsson. 4 4
Lokað Vegna útfarar Ásdísar Pétursdóttur verður skrifstofan lokuð í dag. Hæstaréttarlögmenn Ólafur Þorgrímsson, Kjartan Reynir Ólafsson. 1 A c c