Morgunblaðið - 05.03.1987, Page 59
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. MARZ 1987
59
Sturla og
Tómas skoruðu
26 stig hvor
STURLA Örlygsson og Tómas
Holton voru í aðalhlutverkum hjá
Val sem bar sigurorð af Haukum
í gærkvöldi í jöfnum og skemmti-
legum leik. Báðir skoruðu þeir
26 stig og áttu stærstan þátt í
því að Valsmenn náðu að vinna
upp forskot Hauka í síðari hálf-
leiknum.
Blóma-
leikur
KOLBRÚN Leifsdóttir lék sinn tvö
hundraðasta leik með ÍS í körfu-
bolta í gærkvöldi og fékk að
sjálfsögðu blómvönd fyrir leikinn
gegn IR, sem Stúdínur unnu
48:27.
Leikmenn beggja liða virtust
eiga í nokkrum erfiðleikum með
að hitta í körfuna á fyrstu mínútum
en eftir þær batnaði hittnin til
muna. Það voru Valsmenn sem
leiddu naumlega lengst af fyrri
hálfleiks en Henning Henningsson
hélt Haukum þó alltaf við efnið
með górði hittni. í síðari hluta hálf-
leiksins fór Pálmar Sigurðsson í
gang og þá var ekki að sökum að
spyrja - Haukar náðu yfirhöndinni.
Sturla Örlygsson var atkvæða-
mikill fyrir Val í síðari hálfleiknum
og bilið á milli liðanna minnkaði,
Valsmenn náðu síðan yfirhöndinni
eftir slæman kafla Hauka þar sem
ekkert gekk, og héldu henni til
loka.
Sem fyrr sagði áttu þeir Tómas
og Sturla góðan dag með Val og
þá var Leifur atkvæðamikill í frá-
köstunum.
Henning og Pálmar áttu góðan
leik á köflum en duttu niður í með-
almennskuna þess á milli. Leik-
menn Hauka virtust vera allt of
ragir við að gefa boltann á Ingimar
sem oft var óvaldaður undir körf-
unni og þá kom það mikið niður á
liðinu hve fáum varnarfráköst það
náði.
Kristbjörn Albertsson og Sig-
urður Valgeirsson dæmdu lengst
af ágætlega en gerðu nokkrar
slæmar skyssur í síðari hálfleik.
FE
Leikurinn
í tölum
íþróttahús Seljaskólans 4. mars 1987.
Urvalsdeildin i körfu.
Valur-Haukar 93:85 (44:47)
14:14, 21:16, 29:24, 38:27, 38:38,
42:47, 44:47, 46:52, 54:54, 67:58,
74:61, 85:68, 85:72, 93:85.
STIG VALS: Sturla Örlygsson 26,
Tómas Holton 26, Leifur Gústafsson
14, Torfi Magnússon 8, Björn Zoega
8, Páll Arnar 7, Einar Ólafsson 4.
STIG HAUKA: Pálmar Sigurðsson 25,
Henning Henningsson 24, ívar Ás-
grímsson 13, Ingimar Jónsson 8, Bogi
Hjálmtýrsson 6, Ólafur Rafnsson 5,
Tryggvi Jónsson 4.
Símamynd Reuter
Létt hjá Gladbach
Mönchengladbach átti ekki í erfiðleikum með Guimares frá Portúgal
í Evrópukeppni félagsliða í gærkvöldi. Þjóðverjarnir unnu 3:0 og skor-
uðu Criens og Krauss, en það þriðja var sjálfsmark hjá Heitor. Á
myndinni er Uwe Rahn í lausu lofti eftir að hafa verið felldur af leik-
manni portúgalska liðsins.
Morgunblaöiö/RAX
• Lárentsínus Helgi Agústsson, besti maður leiksins, skellir hér í gólf stúdenta með miklum tilþrifum.
Þróttarar leika við
Fram í úrslitum
ÞRÓTTUR mun leika til úrslita við
Fram í íslandsmótinu í blaki en i'
gær unnu þeir lið ÍS í sfðari leik
liðanna með þremur hrinum gegn
engri.
Þróttarar fóru hreinlega á kost-
um í fyrstu hrinunni og unnu hana
15:7 eftir að þeir komust í 11:1.
Blikar og
Víkingur
leika aftur
ÍS leikur til úrslita í íslandsmóti
kvenna í blaki að þessu sinni en
UBK og Víkingur verða að leika
þriðja leikinn.
ÍS vann Þrótt í gær 3:1 eins og
í fyrri leiknum en Víkingur tapaði
fyrir UBK þannig að liðin verða að
leika aftur um réttinn til að leika
til úrslita við ÍS.
Úrslitin í leik Víkings og UBK
urðu 11:15, 15:12, 6:15 og 7:15.
Tæpt hjá
Dundee
Frá Bob Hennessy á Englandi.
KEVIN Gallacher skoraði fyrir
Dundee United á 2. mínútu gegn
Barcelona í gærkvöldi í Evrópu-
keppni félagsliða og það reyndist
eina mark leiksins. Tæpara gat
það ekki verið og nægir varla til
að komast áfram.
Skotarnir léku mjög vel og féllu
dýru mennirnir alveg í skuggann.
„Peningasóun" sungu áhorfendur
og beindu orðum sínum að Hug-
hes og Lineker, sem fengu aldrei
frið. Reyndar misnotaði sá síðar-
nefndi mjög gott marktækifæri.
Bestur hjá Barcelona var Carr-
asco, en hann var bókaður í
leiknum og verður í banni í seinni
viðureigninni, sem ferfram á Spáni
eftir hálfan mánuð. Paul Sturrock
var bestur hjá Dundee United.
Móttaka stúdenta var léleg en hjá
Þrótti var allt annað uppi á ten-
ingnum. Móttaka þeirra var mjög
góð.
í næstu hrinu brá fyrir nýlegri
hlið hjá Þrótti. Þeir tóku marga
bolta upp eftir að hafa skellt í há-
vörn ÍS og var Jón Árnason þar
fremstur í flokki. Stúdentar komust
í 11:7 en þá komst Jón í uppgjöf
og fékk þrjú stig og virtist það
gefa Þrótti aukinn kraft og þeir
unnu 15:12.
Þriðja hrinan var sú furðuleg-
asta. Þróttur komst í 11:4 á
nokkrum mínútum en síðan fór
allt í baklás hjá þeim og stúdentar
söxuðu á forskotið og náðu að
minnka það í 13:14. Friðbert
Traustason fékk mörg stig með
erfiðum uppgjöfum á þessum
kafla. Eftir að Þróttur hafði fengið
níu tækifæri til að Ijúka hrinunni
tókst þeim það loksins, eftir 34
mínútur, og unnu þeir síðustu hrin-
una 16:14.
Bestur hjá Þrótti var Lárentsín-
uns Helgi Ágústsson. Hann var
frábær í móttökunni og mjög sterk-
ur í sókninni. Furðulegt að hann
skuli ekki valinn í landsliðið, og þó
ef til vill ekki furðulegt því lands-
liðsþjálfarinn hefur lítið fylgst með
leikjum bestu liðanna í vetur.
Aörir í Þrótti sem voru góðir
voru Jón Árnason og Sveinn B.
Hreinsson. Hjá ÍS voru Páll Svans-
son og Þorvarður Sigfússon sterkir
í sókninni og mesta furða hvað
Friðbert Traustason náði að spila
upp slöku framspili félaga sinna.
-sus
EVRÓPUÚRSLIT
Evrópukeppni meistaraliða
Bayern Miinchen (V-Þýskalandi)- Anderlecht(Belgíu) ................ 5:0
Rummenigge (15.), Pflúgler (28.), Höness (69. og 87.), Wohlfarth (90.).
Áhorfendur: 16.000
Rauða Stjarnan (Júgoslavlu) - Real Madrid (Spánl) ................. 4:2
Djurovski (7.), Djurovic (12.), Cvetkovic (39.), Jankovic (84.)
Sanchez (66. og 87.mín.). Áhorfendur: 95.000
Porto (Portúgal) - Bröndby (Danmörku) ............................. 1;0
Madjer (71.). Áhorfendur:70.000
Besiktas (Tyrklandi) - Dynamo Kiev(Sovótrikjunum) ............ frestaö
Evrópukeppni bikarhafa
Bordeaux (Frakklandi) - Torpedo (Sovétrikjunum) ................... 1:0
Fargeon (65.) Áhorfendur:40.000
Zaragoza (Spáni) - Vitosha (Búlgariu) ............................. 2:0
Elvira (56.), Carcia-Cortes (77.). Áhorfendur: 14.000
Malmö (Sviþjóð) - Ajax (Hollandi) ............................ frestaö
Lokomotiv (A-Þýskalandi) - Sion (Sviss) ........................... 2:0
Olaf Marschall (87.), Hans Richter (90.). Áhorfendur: 21.000.
Evrópukeppni félagsliða
Dundee Utd. (Skotlandi) - Barcelona (Spáni) ....................... 1:0
Gallacheer (2.). Áhorfendur: 22.500
Gladbach (V-Þýskalandi)- Guimaraes (Portúgal) ..................... 3:0
Criens (7.), Krauss (40.), Heitor (66.) sjálfsmark. Áhorfendur: 19.000
Gautaborg (Svíþjóö)-Inter Milan (Itaiiu) .......................... 0:0
Áhorfendur: 43.000.
Tórínó (Ítaliu)-Tyról (Austurriki) ................................ 0:0
Áhorfendur:40.000