Morgunblaðið - 14.03.1987, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. MARZ 1987
31
Mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna:
• •
Oryggissveitir í Chile
misbjóða borgurunum
Genf, AP.
Mannréttindanefnd Samein-
uðu þjóðanna samþykkti á
fimmtudag einróma ályktun, þar
sem lýst er þungum áhyggjum
af ástandi mannréttindamála í
Chile.
í ályktuninni segir að öryggis-
sveitir stjómarinnar hafi ekki enn
látið af „morðum, mannránum og
pyntingum" og misbjóði borgurun-
um með ýmsum öðrum hætti.
Fulltrúi Mexíkó bar upp ályktun-
ina og meðflytjendur voru fulltrúar
12 vestrænna og óháðra ríkja. í
ályktuninni sagði að stjómin í Chile
hefði viðurkennt að ástandið væri
óviðunandi og úrbóta væri þörf.
Sagði að ný lög, sem heimila starf-
semi stjómmálaflokka, væm í
grundvallaratriðum ófullnægjandi
þar sem hvergi væri að finna neitt
í þeim um kosningafrelsi. Augusto
Kaupmannahöfn:
88 milljónir
d kr arður af
flughöfninni
Kaupmannahöfn. Frá Nils Jörgen Bruun,
fréttaritara Morgunblaðsins.
ÁGÓÐI af Kaupmannahafnar-
flugvelli varð 88 miHjónir
danskra króna (rúmar 500 millj.
isl. kr.) á árinu 1986. Stafar það
bæði af hækkun flugvallargjalda
1. janúar það ár og fjölgun flug-
taka og lendinga.
Innanlandsflug jókst um 13%,
leiguflug um 7% og almennt utan-
landsflug um 4%.
Pinochet forseti undirritaði lögin í
fyrradag.
Fulltrúar Bretlands og Banda-
ríkjanna létu í ljós athugasemdir
við orðalag ályktunarinnar og
sögðu hana ekki gallalausa. í henni
Líbanon:
BYLTINGARHREYFING rétt-
lætis hótaði á fimmtudag að taka
franskan gisl af lfíi innan
tveggja sólarhringa ef franska
stjórnin gæti ekki tekið öll
tvímæli af stefnu sinni gagnvart
frönskum gislum i Líbanon og
hemaðaraðstoð við íraka.
Hótunin var rituð arabísku letri
og barst í þriggja síðna bréfi á skrif-
stofu vestrænnar fréttastofu í
vesturhluta Beirút ásamt mynd af
Jean-Louis Normandin, 35 ára
gömlum ljósameistara frönsku sjón-
varpsstöðvarinnar Antenne-2.
Þetta er fyrsta yfírlýsingin frá
mannræningjum í Líbanon síðan
Sýrlendingar sendu sjö þúsund og
fimm hundruð hermenn og hundrað
skriðdreka inn í Vestur-Beirút til
að stilla til friðar í þeim hluta borg-
arinnar, sem múhameðstrúarmenn
byggja.
I yfirlýsingunni er þess krafíst
af Jacques Chirac, forsætisráðherra
væri t.d. hvorki vikið að jákvæðum
aðgerðum af stjómarinnar hálfu né
hryðjuverkamönnum, sem barizt
hefðu gegn stjóminni. Af þeim sök-
um væri ályktunin vant á myllu
þeirra.
Frakklands, að hannskýri innan 48
klukkustunda yfírlýsingu, sem
Francois Mitterrand forseti gaf út
um gíslamál og _ áframhaldandi
vopnasendingar til Iraka. „Ef skýr-
ing verður ekki gefín út innan þess
tíma verður Normandin leiddur fyr-
ir rétt og tekinn af lífi.“ Talið er
að öfgafullir sítar skipi byltingar-
hreyfíngu réttlætis og þeir styðji
írana.
Mitterrand ræddi á þriðjudag um
sex franska gísla, sem í haldi em
í Líbanon, og sagði að hann myndi
íhuga að náða Anis Naccache, sem
dæmdur var til lífstíðarfangelsis í
Frakklandi fyrir tilraun til að myrða
Shahpour Bakhtiar, fyrrum forsæt-
isráðherra írans. En forsetinn bætti
við að hann myndi ekki samþykkja
náðun nema allir gíslamir yrðu látn-
ir lausir og það hefði ekki gerst.
Mitterrand sagði að Frakkar
myndu halda áfram að láta íraka
hafa vopn, en það hefði ekki í för
með sér að þeir væra óvinir Irana.
Hótun um að taka
franskan gísl af lífi
Sjómanna verkfall
Sao Paulo, Reuter.
HERMENN með alvæpni halda uppi röð og reglu í helstu höfnum
Brazilíu, en sjómenn þar hafa verið í verkfalli í hálfan mánuð. Lítið
miðar í samkomulagsátt, en í gær náðu tvö lítil skipafélög í Brazilíu
samningum við sjómenn, er vinna hjá þeim, buðu þeim 120% kaup-
hækkun. Verkalýðsleiðtogar segja að yfírgnæfandi meirihluti hinna
40.000 sjómanna í landinu séu enn í verkfalli. Vinnuveitendur hafa
boðið 80% kauphækkun sem sjómenn hafa hafnað og segja að frek-
ar muni þeir grípa til hópuppsagna, en semja um slíkt.
Starfsfólk í olíuiðnaði hafði í gærkvöldi ekki enn tekið ákvörðun
um hvort það færi í allsherjarverkfall, en hermenn era á verði í öll-
um helstu olíuhreinsunar- og vinnslustöðvum.
Reuter.
CÍTROÉN AXEL
TILBÚINN í AKSTURINN A AÐEINS KR. 259.500, - *
Globus?
Lágmúla 5, sími 681555
Umboöið á Akureyri:
Gunnar Jóhannsson, sími 96-25684
"Meö ryðvörn, skráningu og fullum bensíntanki.