Morgunblaðið - 14.03.1987, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 14.03.1987, Blaðsíða 33
32 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. MARZ 1987 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. MARZ 1987 33 Útgefandi onMitfrft Árvakur, Reykjavík Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Aðstoðarritstjóri Björn Bjarnason. Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Fréttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aöalstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Kringlan 1, sími 83033. Áskriftargjald 500 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 50 kr. eintakið. Eldhúsdagur á Alþingi Hinar almennu stjómmálaum- ræður á Alþingi í fyrrakvöld, á eldhúsdeginum svonefnda, leiddu í ljós meginlínur og helstu ágreiningsefni í baráttunni fyrir þingkosningamar, sem verða eftir fímm vikur. Þar kom ekkert nýtt fram, sem styrkir málefnastöðu stjómarandstöðunnar. Þar kom heldur ekki fram neitt einstakt mál, sem líklegt er að verði hita- efni i kosningabaráttunni, eins og svo oft hefur gerst. Astæða er til að ætla, að umræðumar á Alþingi séu vísbending um það sem koma skal, þótt að sjálfsögðu sé ekkert hægt að staðhæfa um það. En gangi þetta eftir, hafa stjómarflokkamir, og þó einkum Sjálfstæðisflokkurinn, hagstæð- ari málefnastöðu en dæmi em um frá því á viðreisnarárunum. Ýmislegt í ádeilum foringja stjómarandstöðunnar í umræðun- um í fyrrakvöld hefur við rök að styðjast. Ótal úrlausnarefni blasa við, sem næsta ríkisstjóm þarf að taka fostum tökum og núver- andi ríkisstjóm hefur engan veginn getað sinnt sem skyldi. Þar ber byggðamálin líklega hæst en þau em órofa tengd umdeildu stjómkerfí í landbúnaði og sjávar- útvegi. Af öðmm málum, sem verða erfíð viðureignar, má nefna íjárlagahalla ríkissjóðs, opinbera þjónustu og húsnæðiskerfíð. En það kom berlega í ljós í umræðun- um, að stjómarandstaðan hefur ekki um það skýrari hugmyndir en ríkisstjómin, hvaða leiðir em árangursríkastar. Það sem þyngra vegur er þó hitt, að það er ekki hægt að treysta stjóm- arandstöðuflokkunum til að fylgja í megindráttum hinni gæfulegu stjómarstefnu, sem gerbreytt hefur veigamiklum þáttum í þjóðlífínu til hins betra. Það er vitaskuld rétt, að góðæri í formi mikils sjávarafla, lækkaðs olíu- verðs og hagstæðra skilyrða á erlendum mörkuðum er ekki af- rek ríkisstjómarinnar. En það er ekki sama, hvemig bmgðist er við góðæri, hvemig það er notað, og þar skilur í grundvallaratriðum á milli þess, sem við höfum orðið vitni að á kjörtímabilinu, og verka fyrrverandi vinstri stjóma. Það er auðvelt að glutra niður góðær- inu og um það höfum við mörg dæmi á undanfömum áratugum. Vinstri menn em sérfræðingar á því sviði. Talsmenn stjómarandstöðunn- ar em skiljanlega í vandræðum vegna þess, hve ríkisstjóminni hefur orðið ágengt og hve al- mennra vinsælda hún virðist njóta. Þeir nefna það gjaman, og þar á meðal í umræðunum á Al- þingi í fyrrakvöld, að stjómin hafí fengið ávinninga í kjaramál- um, skattamálum og ýmsum félagsmálum öðmm að „gjöf“ frá verkalýðshreyfíngunni. Hún hafí með öðmm orðum ekkert þurft að hafa fyrir hlutunum. Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðis- flokksins, kom auga á kjama málsins, þegar hann spurði í umræðunum, hvers vegna Svavar Gestsson og félagar hans hefðu ekki fengið slíka „gjöf‘, þegar þeir sátu að völdum. Ástæðan er einfaldlega sú, að flokkar sem hafa stéttabaráttu að leiðarljósi geta ekki beitt sér fyrir stéttas- amvinnu, þjóðarsátt. Atkvæði greitt stéttabaráttuflokkum er atkvæði greitt sundurlyndi og upplausn. í því sambandi ber að hafa í huga, að aldrei hefur sam- staða íslensku þjóðarinnar verið jafn nauðsynleg og nú á tímum, þegar bylting í samgöngum og fjarskiptum knýr okkur til að slá skjaldborg um menningu okkar, þjóðemi og tungu. Sigur Vöku Af úrslitum kosninga til Stúd- entaráðs Háskóla íslands hefur oft mátt ráða, hvaða hug- myndastrauma ber hæst meðal ungs fólks og jafnvel, hvers vænta má um afstöðu ungra kjósenda í almennum kosningum. I því ljósi er hinn mikli sigur Vöku, félags lýðræðissinnaðra stúdenta, í Stúdentaráðskosningunum á fímmtudaginn einkar ánægjuleg- ur. Vökumenn settu það á oddinn, að Stúdentaráð ætti að vera vett- vangur hagsmunabaráttu stúd- enta en ekki almennrar stjómmálabaráttu vinstri aflanna. Stjómmálaleiðtogar úr Alþýðu- bandalaginu, Alþýðuflokknum og Kvennalistanum hvöttu stúdenta til að greiða Félagi vinstri manna atkvæði, en þau afskipti báru ekki meiri árangur en svo, að félagið tapaði einum fulltrúa í Stúdentaráði. Stúdentar vilja fá að vera í friði fyrir stjómmála- mönnum úti í bæ og sýndu það eftirminnilega í kosningunum. Vaka fékk í kosningunum 40,9% greiddra atkvæða, sem er hæsta hlutfall, er félagið hefur hlotið í hálfrar aldar sögu sinni. Það er örugglega rétt, sem Eyjólf- ur Sveinsson, formaður Vöku, sagði í Morgunblaðinu í gær, að þetta er árangur öílugrar hags- munabaráttu og skynsamlegs málfutnings. Félagið hefur unnið sigur, sem það verðskuldar. Kvöldstund hjá Sakharov-hj ónimum í Moskvu Eftir Björn Bjarnason Hvað ertu að fara, þegar þú segir í frásögn þinni um heimsóknina til Sakharov-hjónanna, að þú hafir gengið heiman frá þeim „út í Moskvu-kuldann, með þá vissu að það væri ekki tilviljun að jafn auðvelt væri og raun bar vitni að heimsækja þennan einstakling og þessa einstaklinga sem gátu látið allt sovéska Kerf ið nötra fyrir aðeins fáeinum mánuðum með því að láta leyniboð berast frá Gorkí“? Þannig hef ég verið spurður eftir heimkomuna frá Moskvu og í spurningunni er vísað til niðurlagsorða á forsíðu Morgunblaðsins þriðjudaginn 3. mars síðastliðinn. Kvöldið áður hafði ég átt þess kost að sitja rúman klukkutima heima hjá Andrei Sakharov og konu hans, Yelenu Bonner, ásamt Robert Evans, forstöðumanni Reuters-f r éttastofunnar í Moskvu og Árna Þórði Jónssyni, fréttamanni á Bylgjunni. Við Arni Þórður vorum í höfuðborg Sovétríkjanna til að segja frá ferðalagi islensku forsætisráðherrahjónanna. Aðdragandinn að Moskvuferðinni var skammur. Það var ekki nema vika frá því að ákvörðun var tekin um það á Morgunblaðinu, að ég færi, þar til ég lagði af stað. Á þessari viku velti ég því fyrir mér, hveija ég ætti að reyna að hitta í Sovétríkjun- um. Dvölin stæði frá því síðdegis á laugardegi 28. febrúar þar til skömmu eftir hádegi þriðjudaginn 3. mars. Steingrímur Hermannsson og fylgdarlið hans kæmi á sunnudags- kvöldi og færi aftur síðdegis á þriðju- degi; mánudagurinn yrði sá dagur, sem mest yrði um að vera. Fulltrúar andstöðunnar Þegar hugurinn leitaði til einstakl- inga í Moskvu, minntist ég strax Sakharov-hjónanna. Þeim var sleppt úr útlegðinni í Gorkí 23. desember síðastliðinn og búa nú í sinni gömlu íbúð í Moskvu. Þau hafa verið tákn þeirra einstaklinga, sem hafa boðið sovéska kerfínu byrginn. Dr. Andrei Sakharov, sem er 65 ára, er eðlisfræðingur sem hlotið hef- ur friðarverðlaun Nóbels. Hann hefur verið kallaður faðir sovésku vetnis- sprengjunnar. Á sjötta og sjöunda áratugnum var hann í hópi fremstu vísindamanna Sovétríkjanna. Sak- harov var hins vegar sviptur öllum opinberum störfum 1967, eftir að hafa gagnrýnt opinbera stjómkerfíð. Þegar hann fékk friðarverðlaun Nób- els 1975, starfrækti hann ásamt konu sinni, Yelenu, einskonar ráðgjafar- stofu á heimili þeirra í Moskvu — þangað gátu þeir leitað ókeypis að- stoðar, sem áttu í útistöðum við yfírvöld. Skömmu eftir innrás Sovét- manna í Afganistan, eða í ársbyrjun 1980, var Sakharov handtekinn og fluttur í útlegð til borgarinnar Gorkí. Hann gat áfram haft samband við samstarfsmenn sína úr hópi vísinda- manna fyrir milligöngu Yelenu, sem hafði leyfí til að ferðast til Moskvu. Hún var hins vegar tekin föst í maí 1984 og sökuð um að „ófrægja sov- éska þjóðskipulagið". Yelena er 64 ára og hjartveik. Sakharov vildi að hún fengi lækningu á Vesturlöndum og háði harða baráttu fyrir því meðal annars með hungurverkföllum í Gorkí, eins og lýst er með átakanleg- um orðum hans sjálfs, er birtust í greinum hér í Morgunblaðinu 16. og 23. febrúar 1986. Tókst Sakharov að smygla bréfum frá Gorkí, eftir að kona hans hafði fengið leyfí til að fara vestur fyrir tjald. Hún fékk far- arleyfi 2. desember 1985 skömmu eftir fund Ronalds Reagan og Mik- hails Gorbachev í Genf. Yelena sneri aftur frá Vesturlöndum síðastliðið sumar og var síðan í Gorkí hjá manni sínum þar til þau voru bæði fijáls úr útlegðinni. Bömum Yelenu og móður hefur verið heimilað að setjast að á Vesturlöndum. Sakharov hefur ekki fengið að fara úr landi, eftir að hann hóf baráttu gegn sovésku ein- ræði. Hin opinbera skýring er að sovésk yfirvöld óttist, að hann skýri frá hemaðarleyndarmálum um gerð sovésku vetnissprengjunnar. Heimsóknin skipulög'ð Á meðan Sakharov-hjónin vom í Gorkí var íbúð þeirra í húsinu 48B við Chkalova-stræti í Moskvu auð og innsigluð, lögregla stóð vörð um hana, sími var tekinn úr sambandi og númerið afhent byggingafyrir- tæki. Nú em þau sem sé komin aftur í þessa gömlu íbúð sína, Sakharov hefur setið „friðarþing" í Kreml og þau hafa talað við fuiltrúa vestrænna fjölmiðla á heimili sínu. Mér fannst því sjálfsagt að kanna það, hvort ekki væri unnt að heimsækja þau, á meðan ég yrði í Moskvu. Fyrir milligöngu fólks,.sem veitti mér mikla hjálp, komst ég í fyrsta lagi að því, að þau yrðu ekki í Moskvu laugardaginn, sem ég kæmi þangað. Þau vildu fá að vera í friði fyrir ágengni annarra á sunnudögum, síðdegis virka daga milli 3 og 5 vildu þau fá næði til að hvílast og á þriðju- dögum færi Sakharov í Vísindaaka- demíuna, þar sem hann er enn félagi. Það virtist því ekki ætla að verða auðvelt að ná því takmarki mínu að hitta Sakharov-hjónin. Undir kvöld- mat á mánudeginum 2. mars hafði ég þó símasamband við þann, sem þekkti til þeirra. Hann sagði, að þau yrðu heima um kvöldið og myndu taka á móti mér. Eg spurði, hvort ferðafélagi minn, Ámi Þórður, gæti ekki flotið með. Ekkert var því til fyrirstöðu. Þetta símtal fór fram á ensku úr fréttamiðstöð sovéska ut- anríkisráðuneytisins í Moskvu um klukkan sjö á mánudagskvöldið. Leitað til APN Raunar hafði ég sagt fulltrúa APN á íslandi, þegar ég spurði hann, hvort hann gæti aðstoðað mig við að ná sambandi við sovéska embættismenn í Moskvu, að ég ætlaði að reyna að hitta Sakharov. „Það verður þú að gera sjálfur í Moskvu," var svarið. Rétt er að geta þess, að tilraunir APN-mannsins báru engan árangur. Að vísu sagðist hann hafa fengið tíma hjá Gennady Gerasimov, talsmanni utanríkisráðuneytisins, klukkan fjög- ur síðdegis þennan mánudag, 2. mars, en það stóðst ekki, þegar á reyndi. Og í síma APN-Novosti í Moskvu, sem mér var sagt að hringja í, virtist enginn kannast við beiðni um viðtöl fyrir blaðamann frá fs- landi. „Jú“, sögðu þeir, þegar ég nefndi Gerasimov snemma á mánu- dagsmorguninn: „Ef þú átt að hitta hann klukkan §ögur áttu tíma hjá honum." Blaðafulltrúi utanríkisráðu- neytisins, sem sinnti okkur íslensku fréttamönnunum, sem fylgdum for- sætisráðherra, spurði hins vegar: „Hver segir, að þú eigir pantaðan tíma hjá Gerasimov?" Þeir hjá APN, sagði ég. Það hnussaði í honum og síðar sagði hann mér, að Gerasimov yrði hjá fyrsta aðstoðar-utanríkisráð- herranum klukkan fjögur að ræða um brottflutning meðaldrægra eld- flauga frá Evrópu. Hann hefði engan tíma til að hitta mig. Haldið til Sakharovs Við lukum við að senda fréttimar um viðtöl Steingrims heim og biðum þess síðan í anddyri fréttamiðstöðvar- innar, að Robert Evans frá Reuter, sem ætlaði að aðstoða okkur og túlka, kæmi og sækti okkur. Klukkan var orðin rúmlega hálf níu um kvöldið þegar hann kom. Við ókum sem leið lá eftir innri hringveginum í Moskvu, en við þann hluta hans sem heitir Chkalova-stræti búa Sakharov-hjón- in. Mér var hugsað til kvikmyndarinn- ar um Sakharov, sem til er hér á myndbandaleigum, en þar leikur Jas- on Robards Nóbelsverðlaunahafann. Þar eru atriði, sem eiga að vera tek- in á heimili þeirra hjóna. Skyldi þetta vera eitthvað líkt því? Yrði eitthvað gert til að meina okkur inngöngu? Bob Evans lagði ekki hvíta Golfín- um sínum beint fyrir framan húsið, heldur í hliðargötu skammt frá þeim dyrum á blokkinni, þar sem gengið er upp til Sakharov-hjónanna. Hann sagðist oft hafa lagt bílnum þarna fyrr á árum, þegar hann var fréttarit- ari Reuters í Moskvu og heimsótti hjónin. Þá hefði iðulega verið skorið gat á dekkin, á meðan hann dvaldist hjá þeim, eða unnið annað tjón á bílnum. Ung hjón með hund voru á gangi fyrir utan húsið. Þau virtust einfald- lega vera að viðra húsdýrið í um 20 gráðu frostinu. Á gangstéttinni lá brotin vodka-flaska, sem einhver hafði misst og innihaldið myndaði taum, sem við stigum yfír. Mér var hugsað til biðraðanna við vodka- búðimar og þess, sem eigandinn hlyti að hafa lagt á sig fyrir flöskuna, áður en hún datt í stéttina. Þama var eins og annars staðar leðja, sam- bland af leir og því sem borið er á stræti og torg í snjó og frosti. Við tókum í þungar útidymar á númer 48B og gengum inn í stiga- gang. Brún, lítil lyfta blasti við, gerð hennar og litur stönguðust á við föl- grænan, fomfálegan ganginn; hún kom ekki, var kannski biluð. Upp stigann á undan okkur gekk gamall maður. Við fómm upp á næsta stiga- pall; þar var önnur lyfta. Hún var gangfær og við tókum hana upp á sjöttu hæð. Fundum réttu dymar, hringdum og Yelena Bonner kom til dyra. Gamli maðurinn, sem var á leið- inni upp stigann, kom á eftir okkur Yelena Bonner og Andrei Sakharov í íbúð sinni í Moskvu kvöldið 2. mars síðastliðinn ásamt með blaðamanni Morgunblaðsins. Myndinatók Árni Þórður Jónsson, fréttamaður á útvarpsstöðinni Bylgjunni. inn. Yelena kallaði í Sakharov, sem sneri sér að gamla manninum. Hún benti á blauta leðjuna á skónum okk- ar; við fórum úr þeim, áður en við gengum inn í litla stofuna. Boðið til stofu Gangurinn var þröngur og þar ægði mörgu saman. Bækur vom sett- ar, þar sem þær komust. Bréf frá bami með teikningum og texta á ensku hékk við spegilinn; líklega frá bamabami í Ameríku, hugsaði ég. Svart tjald var fyrir glugganum og því var troðið í homin á sólbekknum til að veijast kuldanum. Það var kveikt á sjónvarpinu, sem stóð í homi stofunnar við gluggann. Þvert út í stofuna við gluggann var legubekk- ur. Yelena bauð okkur sæti. Við Ámi Þórður settumst á bekk í hominu fjærst sjónvarpinu, Bob á stól and- spænis okkur en Yelena í sjónvarps- stólinn sinn næst bekknum við gluggann og hjá kringlóttu litlu borði. Við vegginn andspænis henni var lítið skrifborð. Bókahillur og myndir þöktu veggina. Bækumar voru auð- vitað flestar rússneskar en þó mátti sjá enska titla eins Gorky Park og Papillion. Yelena sagði, að það væri margt fólk, sem leitaði til þeirra. Það vildi fá margvíslega aðstoð bæði fyrir sjálft sig eða til bjargar öðmm. Einn- ig vildu ýmsir ræða um fræði og vísindi við Sakharov. Nágrannamir kvörtuðu ekki síst undan því, hve mikil óþrif væm vegna þessa fólks í stigaganginum. Hún yrði líklega að fara að þrífa hann ein. Hún kveið því greinilega og auðvelt var að álykta af útliti hennar, að hún hefði enga heilsu til þess. Yelena virtist þreytt og svolítið mædd. Hún gaf til kynna, að það hefði verið meira næði til að hugsa og vinna í Gorkí. Ótrúlegt hugar- jafnvægi Sakharov hafði nú kvatt gamla manninn, sem fylgdi okkur inn. Þetta var í þriðja sinn, sem hann heimsótti þau. Hann taldi sig hafa gert merki- lega vísindalega uppgötvun og vildi fá álit Sakharovs. Þetta sagði Sak- harov um leið og hann heilsaði okkur afsakandi með hlýju handtaki og mildu brosi. Hann er dálítið hokinn en ber sig vel. Honum hefur verið lýst á þann veg, að hann þoli einsemd betur en flestir aðrir. Hann búi yfír ótrúlegu hugaijafnvægi. Það gleðji hann mest að fá te með eplasneið út í og ekki bragði hann áfengi eða noti tóbak. Hann settist í stólinn við hliðina á mér. Við fundum strax þá ró, sem stafaði af honum. Hann sat lengst með vísifíngur undir kinn. Eins og til að undirstrika innra þrek sitt og hugarstyrk sagði hann, að það gæti beinlínis verið hættulegt fyrir suma að verða of uppteknir af vísindalegum uppfínningum. Bob Evans kynnti okkur og lýsti erindi okkar til Moskvu. Ég þakkaði fyrir tækifærið til að hitta þau. Og spurði hvort ég mætti ekki segja frá heimsókninni. Þau tóku því vel en sögðust ekki vilja veita neitt viðtal. Yelena talar og skilur ensku vel en Sakharov verr. Þau ræddu við Bob Evans á rússnesku og hann túlkaði fyrir okkur. Það var spjallað um heima og geima. Þau sögðu álit sitt á því, sem sýnt var í sjónvarpsfréttun- um, eins og fólk gerir gjaman þegar fylgst er með því, sem birtist á skján- um og gestir koma. Meðal annars sást þar einhver karl í Washington, sem hefur ekki viljað annað en vatn að því er sagt var síðan í september og fastað fyrir utan Hvíta húsið til að mótmæla kjamorkuvopnum Bandaríkjanna. Sakharov sagði, að þetta gæti ekki verið rétt. Það gæti enginn verið í hungurverkfalli svona lengi og virst jafn hress og þessi karl. Baráttunni haldið áfram Talið barst að þeim 14 mönnum, sem Sakharov mæltist til við Gorbachev að fengju frelsi, þegar honum var sjálfum sleppt úr útlegð- inni. Sagt er að Gorbachev hafí hringt til Sakharovs í Gorkí 16. desember sl. og tilkynnt honum um frelsi þeirra hjóna. í símtalinu nefndi Sakharov nöfn 14 einstaklinga og bað leið- togann að náða þá, það yrði honum sjálfum mjög til framdráttar í lands- stjóminni og yki traust almennings á honum. Þegar við nefndum þessa fjórtán, afhentu þau Bob lista yfír pólitíska fanga, sem þau sögðust ekkert vita um. Á hinn bóginn hefðu þau heyrt það þá um daginn, að einn af mönnunum 14, Genrikh Altunyan, hefði farið í hungurverkfall, ótíma- bundið. Hann var handtekinn 1969. Viku eftir að þetta gerðist, eða mánu- daginn 9. mars, tilkynnti Sakharov, að Altunyan hefði hringt í sig frá heimaborg sinni Kharkov fyrr um daginn og sagst hafa verið sleppt þá nokkrum klukkustundum áður eins og sjá mátti á forsíðu Morgunblaðsins á þriðjudaginn. Ég vitnaði til þeirra orða Steingríms Hermannssonar við mig þá fyrr um daginn, að Gorbachev hefði sagt sér, að hinir merkilegustu atburðir kynnu að gerast í Sovétríkj- unum á næstunni að því er varðar ferðafrelsi. Frelsið ætti jafnvel eftir að verða meira en í Bandaríkjunum. Þetta þótti þeim einkennilega að orði kveðið. Hingað til hefðu sovéskir ráðamenn oftast státað af því að frelsið væri meira hjá sér en annars staðar; í þessum orðum fælist í fyrsta lagi viðurkenning á hinu gagnstæða og í öðru lagi fyrirheit um eitthvað, sem fáir gætu ímyndað sér hvað væri. Afvopnunarmál Það vakti sérstaka athygli, þegar Sakharov sótti „finðarþingið" í Kreml að hann klappaði Gorbachev lof í lófa. Sakharov hefur Iátið í ljós trú á því, að sovéski leiðtoginn sé einlægur í ræðum sínum um breytta tíma í Sov- étríkjunum, þótt hann viti ekki frekar en aðrir, hvað verður. Sakharov lét þau orð falla, að sér þætti gott, að Gorbachev setti geimvamaáætlunina ekki lengur fyrir sig, þegar hann ræddi um brottflutning meðaldrægra eldflauga frá Evrópu. Sagðist Sak- harov hafa hreyft því á „friðarþing- inu“, að það ætti ekki að tengja þetta tvennt. Fyrir þetta sjónarmið hefði hann verið skammaður af sovéskum vísindamönnum. Nú væri þetta að gerast: Vesturlönd yrðu að bregðast við með skynsamlegum hætti og síðan yrðu Sovétmenn að fækka lang- drægum eldflaugum. Ég gaf þeim eintak af bók Guð- mundar Magnússonar, blaðamanns á Morgunblaðinu, um leiðtogafundinn í Reykjavík. Þau flettu henni bæði og þótti augsýnilega forvitnilegt að skoða myndimar; Yelena lýsti ánægju sinni sérstaklega. Sakharov spurði á hvaða tungu bókin væri rituð og við skýrðum fyrir honum stöðu íslensk- unnar meðal norrænna mála. Það kom mér- á óvart, að hann skyldi spyija um þetta og ekki gefa neitt til kynna, að hann þekkti eitthvað til íslands eða íslendinga; hefur hann þó verið myndaður í desember 1983 í íslenskri lopapeysu og nýlega feng- ið íslenska ullarvettlinga að gjöf frá Ólafí Ragnari Grímssyni á göngum Kremlar. Um bókmenntir Það er greinilega kært með þeim hjónum. Þau tókust ástúðlega í hend- ur, þegar umræðumar bámst að ólíkum bókmennta- og listasmekk þeirra. Yelena Bonner hefur nýlega gefið út bók, Alone together, sem mætti kalla Tvö ein saman á íslensku, og hefur hún fengist hér í Bókaversl- un Sigfúsar Eymundssonar. Hún sagði, að margt af því sem skrifað væri um Sovétríkin og lífíð þar ætti ekki að kenna við bókmenntir; það vekti áhuga af því að þar væri lýst átakanlegum þáttum úr lífí þjóðar- innar. Þetta ætti til að mynda við um skáldsögur Alexanders Solzhen- itsyn, á hinn bóginn væri Gulag- eyjaklasinn hans mikið og merkilegt verk vegna heimildargildis þess. Hún virtist ekki hrifín af kvikmyndinni Iðrun, sem sýnd er í Sovétríkjunum um þessar mundir og er skilin sem uppgjör við Stalín. Frekar ætti að kenna hana við hefnd en iðmn. Það væri í sjálfu sér merkilegt að fá að sjá fólk í leit að ástvinum við fanga- búðir, sjálf hefði hún orðið að bíða í biðröðum við fangelsi á Stalínstím- anum í leit að föður sínum. Hún bætti því við, að hún væri orðin svo gömul, að hún gæti sagt það, sem hún vildi. Hún þyrfti ekki að taka mið af listasmekk annarra. Yelena vélritar allt fyrir þau hjón. Sonur hennar, sem heimsótti þau nýlega til Moskvu, færði þeim IBM-einkatölvu til að auðvelda þeim ritvinnslu. Sakharov sagðist ekki mundu læra á hana og Yelena væri ekki enn byijuð á því, svo að þau notast enn við gömlu ritvélina. Laus undan oki í Morgunblaðsgreinunum fyrir ári var sagt frá því, að Sakharov hefði tilkynnt Mikhail Gorbachev það, að hann sætti sig við, að hann kynni aldrei að fá að fara frá Sovétríkjun- um, þar sem hann hefði haft aðgang að sérlega mikilvægum hemaðarleg- um leynigögnum, sem gætu haft gildi enn í dag. Og þá var sagt frá því, að til að létta undir með Yelenu hefði hann boðið Gorbachev að hætta öllum opinberum afskiptum (nema auðvitað í alveg sérstökum undantekningartil- vikum) og helga sig þess í stað vísindastörfum. Eftir að hafa setið á heimili Sakharovs í rúma klukku- stund tel ég mjög ólíklegt, að hann sé bundinn af einhveiju slíku loforði um það sem hann segir eða gerir. Hitt á eftir að koma í ijós, hvort hann fær að fara úr landi. Kveðjustund Um það bil sem kvikmynd virtist vera að byija í sjónvarpinu, fannst okkur tími kominn til þess að þakka fyrir okkur og kveðja. Þau höfðu ekki boðið okkur neitt nema návist sína. Það var líka það eina, sem við vildum. Ferðinni til Moskvu var borg- ið. Hvemig gat mig órað fyrir því, þegar ég sat og þýddi Sakharov- greinamar í Morgunblaðið fyrir rúmu ári og fylltist hiyllingi yfir þeim ósköpum, sem hann mátti þola fyrir jafn sjálfsagðan hlut og þann að koma konu sinni undir læknishendur, að ég ætti eftir að sitja í stofu þeirra hjóna? Ekki síst þess vegna þótti mér þetta allt næsta ótrúlegt og óraun- vemlegt, en þó var það staðreynd eins og ljósmyndin sýnir, sem Ámi Þórður tók með myndavélinni minni. Við kvöddumst með orðunum Auf wiedersehen. Það vom margir lásar á útidyra- hurðinni á íbúð þeirra og hún var hulin með dúk til að halda kuldanum úti og hlýjunni inni. Sakharov hjálp- aði okkur með lásana og við gengum út í kuldann. Enginn beið okkar fyr- ir utan húsið og enginn hafði skorið gat á bíldekkin. Við fómm heim á hótei; það var hringt frá Morgun- blaðinu upp úr hálf ellefu eins og um hafði verið rætt og aftur þremur kortemm síðar, þegar ég hafði fest fyrstu frásögnina á blað og gat lesið hana fyrir. Þetta var ekki tilviljun. Það hefði verið unnt að koma í veg fyrir, að við næðum fundi Sakharovs, þrátt fyrir vilja hans eða okkar sjálfra. Yfirvöldin hefðu hreinlega getað grip- ið í taumana. Þau gerðu það ekki. Vilja þau að Sakharov sé einskonar tálbeita, eða er frelsi hans staðfesting á því, að ástandið hafi breyst til hins betra? Sjálfur hefur Sakharov sagt um ástandið í Sovétríkjunum: „Hlut- lægt séð er eitthvað raunvemlegt að gerast. Hve langt verður farið er er- fítt að segja, en ég hef komist að þeirri niðurstöðu að ástandið hefur breyst." Um þetta má ræða lengi án þess að komast að ótvíræðri niður- stöðu. Fyrir mig var þessi kvöldstund óvenjulega merkileg persónuleg reynsla. Ég hef ekki enn áttað mig á gildi hennar til fulls.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.