Morgunblaðið - 12.05.1987, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. MAI 1987
3
P5
INNLENT
Grófu tvo vél-
sleða úr fönn
mánuði síðar
Ljósmynd/Kjartan Blöndal
Miklum snjó hafði kyngt niður og sleðarnir voru á bólakafi. Greiðlega gekk þó að grafa þá úr fönninni og snjóbíllinn var síðan notaður til
að draga þá upp.
SJÖ menn úr Hjálparsveit skáta
í Reykjavík lögðu upp á sunnu-
dag til að sækja tvo vélsleða að
Fjallkirkju, austast í Langjökli.
Sleðarnir urðu eftir þegar tíu
hjálparsveitarmenn lentu í erfið-
leikum þar fyrir mánuði.
Eins og sagt var frá á sínum tíma
lentu hjálparsveitarmennirnir í
erfiðleikum þegar tveir vélsleðar
fóru fram af hengju í nánd við skál-
ann Kirkjuból í Fjallkirkju. Enginn
slasaðist og voru sleðamir gang-
færir. þeir voru þó skildir eftir og
síðan hafa hjálparsveitarmennimir
beðið færis að sækja þá. „Við lögð-
um af stað frá Reykjavík um kl. 6
á sunnudagsmorgun og héldum inn
á Lyngdalsheiði," sagði Kjartan
Blöndal, einn leiðangursmanna.
„Þar var sæmilegt veður og eftir
fimm tíma ferð í viðbót á snjóbíl
komum við að Fjallkirkju. Þar var
stafalogn og heiðskírt, en það kom
okkur mjög á óvart hve miklum
snjó hafði kyngt þar niður þennan
mánuð sem liðinn var. Við hófum
þegar leit að sleðunum og tókst að
finna þá með aðstoð svokallaðs
snjóflóðasendis. Slíkt tæki var á
sleðunum og það gaf enn frá sér
hljóðmerki mánuði síðar, svo við
gátum miðað það út með okkar
tækjum. Það sparaði okkur mikla
vinnu að geta gengið beint að þeim
stað sem sleðana var að finna.“
Eftir að sleðamir voru fundnir
tók við mikill mokstur, því þeir vom
undir tveggja til þriggja metra snjó-
lagi. Moksturinn sóttist hins vegar
vel og greiðlega gekk að draga sleð-
ana upp. „Við lögðum af stað til
byggða um kl. 18 og náðum niður
á Lyngdalsheiði um miðnættið,"
sagði Kjartan. „Við vorum komnir
til Reykjavíkur með sleðana um
klukkan hálf tvö aðfaranótt mánu-
dagsins."
Morgunblaðið/Ámi Sæber?
Sjö félagar úr Hjálparsveit skáta í Reykjavík héldu á fjöll á sunnudag til að freista þess að sækja tvo
vélsleða, sem þeir urðu að skitfa eftir við Fjallkirkju fyrir mánuði síðan. Hér sjást sjömenningamir við
snjóbílinn sem þeir notuðu til fararinnar.
FRANSKAR VÖRUR
Austurslræti ^2