Morgunblaðið - 12.05.1987, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. MAI 1987
49
Að afstöðnum al-
þingískosningum
eftirÁrna
Helgason
Alþingiskosningamar eru af-
staönar. Þetta eru erfiðustu kosn-
ingar sem ég man eftir. Landsfundi
er lokið. Ein hallelúja samkoma að
baki. Ég leyfði mér að spytja for-
manninn nokkurra spuminga.
Auðvitað svarað út í hött. Hvað
varðar almennan flokksmann um
hvemig hagur þjóðar og almenn-
ings er á hvetjum tíma? Hvemig
gat ég leyft mér að ávarpa fund-
inn, koma með hjáróma rödd?
Hvemig voga mér að kyngja ekki
eins og aðrir sem svo telja sér trú
um að þeir geri þjóðinni gagn með
því að fylgja öllu blindandi? Átti ég
því skilið önnur svör?
Þetta stangast á við vísikorta-
fijálshyggjugróðasjónarmiðin sem
em í sókn. Eins og sáð er kemur
uppskeran.
Auðvitað tók ég þátt í að gera
kosningu forystunnar sem mesta.
Ég var einn þeirra sem stuðlaði að
' „rússneskri kosningu“. Hélt ánægð-
ur heim í kosningabaráttuna fullviss
stórra sigra. Við höfðum hafið und-
irbúning. En þá eins og í sálminum
segir: „Þá dundu yfir stormar og
hretviðrin hörð — og haglél og eld-
ingar geisuðu um jörð.“
Hvað hafði eiginlega komið fyrir?
Jú einn af ráðherrum landsins hafði
fyrir mörgum mánuðum drýgt að
manni skyldist ógurlegan glæp.
Blaðran sprakk þegar hann var í
útlöndum í erindum lands og þjóð-
ar. Heiðarleg blaðamennska
Helgarpóstsins var áttavitinn. Það
mátti engin bið verða. Flokksforyst-
an full réttlætis og vandlætingar lét
tafarlaust til skarar skríða. Þing-
menn stöðvaðir, allt stórskotalið
flokksins í viðbragðsstöðu. Og
pressan fékk sitt. Fjölmiðlar tútn-
uðu út. Og svo við heimkomu
ráðherra var ekki boðanna beðið
og menn bjuggust við hálfum
heimsendi á hverri stundu. Fram-
haldið þekkja menn svo. Hvað hafði
eiginlega skeð? Jú, það sem kom
út til landsmanna var að ráðherra
hefði orðið það á, að fyrirtæki hans
hefði fengið athugasemd frá skatt-
yfirvöldum þess efnis að inn í
skattframtal þess vantaði fjárupp-
hæð og spurst fyrir um hvort rétt
væri. Fylgdi fréttinni að ráðherra
hefði viðurkennt mistökin, því hann
bar ábyrgð á fyrirtækinu, og bætt
fyrir svo sem venja er. Var nú nema
von að heiðarleg flokksforysta yrði
skelfd? Hvílíkt og annað eins. Þetta
varð að taka tafarlaust til bæna.
Engin miskunn hjá Magnúsi. For-
maðurinn eldvígður í þeim samtök-
um sem miða allt sitt við að halda
kaupi hins vinnandi manns í skefj-
um, vissi að hér var mikið í húfi.
Afbrotamaður, sem um langan
tíma hafði stundað þá iðju að greiða
götu þess minnimáttar í þjóðfélag-
inu, hafði auk þess aflað flokknum
mikils liðsauka, og beitt sér fyrir
byggingu stofnana flokksins, hann
átti ekki lengur heima í trúnaði
flokksins sem Jón Þorláksson og
góðir menn stofnuðu og duglegir
og framsýnir menn stýrðu. Þetta
gat ekki gengið. Ráðherra varð að
víkja úr embætti. Betur séð seint
en aldrei. Þingflokkur kallaður
saman. Ráðherra sá engan veg
annan en afhenda lyklana. Og auð-
vitað samþykkti þingflokkurinn
þetta. Vissi að það er ekki gaman
að hafa vinsælan mann á hælunum
á sér þegar um metorð er barist.
Og svo var samþykkt að ráðherra
hefði sagt sjálfviljugur af sér og
þetta áttu flokksmenn að innbyrða.
Samþykkt að flokkurinn gæti ekki
sóma síns vegna haft svona brotleg-
an mann meðal hinna útvöldu. Hann
gæti að vísu haft forystu á lista
flokksins í Reykjavík meðan kosn-
ingar færu fram því það skerti ekki
svo réttlætiskenndina. En eitt fór
ekki á milli mála að ráðherra gæti
hann ekki orðið aftur, í það minnsta
Arni Helgason
ekki í fylgd flokkseigenda. Og amen
eftir efninu.
Svo fór eins og fór. Borgara-
flokkurinn af stað. Valhallarliðið
skilur ekkert í heimsku fólksins að
verðlauna þennan misindismann og
flokk með yfir 16 þúsund atkvæðum
og 7 þingsætum. Hvílík regin
skömm? Af kosningum loknum
kemur þingflokkur okkar saman og
samþykkir að forystan hafi gert
rétt á öllum sviðum og hún sé allt-
af á réttri leið. Skrif stuðnings-
manna hafi í blöðunum verið í takt
við guðsótta og góða siði. Svöna
einfalt er þetta.
Mér hefir oft verið láð það að
geta ekki í mínum flokki þagað
yfir því sem mér finnst miður fara.
Láð að hafa skoðun og þora að
fylgja henni fram, láð að taka ekki
öllu með þegjandi þögninni, standa
fast á fylgd t.d. þegar ríkisstjóm
Gunnars Thoroddsen starfaði. Þetta
er talin synd af þeim sem gretta
sig framan í sólarljósið. Meðan við
áttum foringja kom þetta ekki svo
mikið til vandræða, en hrokinn kom
síðar og erfiðleikar í sambúð
margra sjónarmiða sem hnefinn
átti að lækna. í þessu andrúmslofti
eigum við að heyja baráttuna. Er
nema von að þungt sé undir fæti.
Það er rétt að geta þess að þeg-
ar Borgaraflokkurinn bauð fram
um allt land á nokkrum klukku-
stundum var mér boðið baráttusæti
hér í Vesturlandskjördæmi. Ég var
fljótur til svars, sagði að við sjálf-
stæðismenn hefðum hér dugandi
og góða frambjóðendur og þeim
hefði ég lofað fylgd. Þá var sagt:
Við skiljum þín loforð og drengskap
og metum þau. Síðan ekki á þetta
minnst. Ég veitti því mínum gamla
flokki brautargengi á erfiðum bar-
áttutíma, og lagði til mitt lið. Já,
ég studdi, treysti og lagði lið. En
þakklætið er ekki alltaf á réttri
vog. Enda það sem minnstu máli
skiptir. En maður er reynslunni
ríkari. En kosningamar eru af-
staðnar.
Ég teldi nú eðlilegt eftir það sem
á undan er gengið að flokksforystan
færi í endurhæfingu. Væri ekki úr
vegi að hún gengi í kirkju og tæki
þar undir með prestunum og söfn-
uði. Væri alveg tilvalið að syngja
hinn fagra sálm Péturs Þórarins-
sonan I bljúgri bæn og þökk til
þín. Miðversið mætti svo syngja
með meiri áherslu:
% reika oft á rangri leið.
sú rétta virðist aldrei greið.
Ég geri margt sem miður fer
og man svo sjaldan eftir þér.
Höfundur er fyrrverandi póst- og
símstöðvarstjóri í Stykkishólmi.
FIAT UNO stendur óumdeilanlega tramar
öðrum bílum í sama stærðarflokki - sannur braut-
ryðjandi sem sýnir að nútíma hönnun eru lítil tak-
mörk sett.
Hann er lítill að utan, en stór að innan og býður
upp á rými og þægindi sem nútímafólk kann að
meta.
Þegar tekið er tillit til útlits, aksturseiginleika,
þæginda, hagkvæmni, öryggis, notagildis og síðast
en ekki síst hversu mikið fæst fyrir peningana,
kemur í Ijós að FIAT UNO er einfaldlega einstakur.
FIAT UNO 60S : 339.000 kr. FIAT UNO TURBO : 523.000 kr.
FIAT UNO 45 :283.000 kr.
FIATUN0 45S : 312.000 kr.
F // A T
FIAT UMBOÐIÐ
SKEIFUNNI 8 108 REYKJAVÍK S: 91-68 88 50
Askriftarsíminn er 83033