Morgunblaðið - 26.05.1987, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 26.05.1987, Blaðsíða 1
96 SIÐUR B STOFNAÐ 1913 117. tbl. 75. árg. ÞRIÐJUDAGUR 26. MAÍ 1987 Prentsmiðja Morgunblaðsins Reuter Mörg þúsund Rúmenar voru kvaddir til að veifa fánum og fagna Mikhail Gorbachev Sovétleiðtoga og Nicolae Ceausescu forseta Rúmeniu þegar þeir óku í opnum bíl frá flugvellinum inn i miðborg Búkarest í gær. Afvopnunarmál: Samkomulag eykur nauðsyn j afnvægis Rætt um hef ðbundinn vígbúnað í Brussel Brussel, Reuter. Víirnarmálaráðherrar aðild- arríkja Atlantshafsbandalagsins sögðu í gær að fækkun kjarnorku- vopna hefði í för með sér að mikilvægara yrði að koma á jafn- vægi milli NATO og Varsjár- bandalagsins í hefðbundnum vígbúnaði. Ráðherrar tólf Atlantshafsbanda- lagsríkja héldu í gær undirbúnings- viðræður undir fund varnaáætlana- nefndar, sem hefst í dag. Islendingar senda fulltrúa á þennan fund. Caspar Weinberger, vamarmála- ráðherra Bandaríkjanna, sagði í gær að NATO myndi ráða yfir öflugum kjamorkuvömum um borð í sprengjuflugvélum, kafbátum' og skipum og væri því fráleitt að tala um kjamorkuvopnalausa Evrópu, þótt samkomulag tækist um að fjar- lægja meðaldrægar flaugar. Að Vestur-Þjóðveijum frátöldum eru aðildarríki NATO því fylgjandi að samþykkt verði bann við skamm- drægum flaugum til að semja megi um meðaldrægar flaugar. Pundur varnaáætlananefndar sigl- ir í kjölfar fundar kjarnorkuáætlana- nefndar með varnarmálaráðherrum NATO í Stavanger. V estur-Þýskaland: Vilja semja við mann- Gorbachev í ræðu í Búkarest: Aukin samskipti geta bætt tengsl þjóðanna Búkarest, Rúmeníu, Reuter. MIKHAIL Gorbachev, leiðtogi Sovétríkjanna, kom í gær til Rúmeníu og hóf viðræður við Nikolae Ceaucescu forseta. Sagði Gorbachev i ræðu í kvöld- verðarboði að Rúmenar hefðu ekki verið nógu leiðitamir Sov- étríkjunum og bætti við að aukin tengsl gætu bætt samskipti ríkjanna. Rúmenar hafa farið sínar eigin leiðir og hefur það komið greinilega í ljós síðan Gorbachev hóf endurbótaher- ferð sína. Hennar hefur lítið gætt i Búkarest. Ceausescu sagði í ræðu sinni að vissir þættir efnahagslífsins þyrftu endurbóta við. Hann sagði að Rúm- enar fylgdust af áhuga með endurbótastefnu Gorbachevs og óskaði honum velfarnaðar. Átta vestrænum blaðamönnum, sem fylgjast ætluðu með heimsókn Gorbachevs, var vísað úr landi í gær. Fréttaritarar í Búkarest sögðu að þetta hefði verið gert vegna frétta og greina, sem blaðamennirn- ir átta hefðu skrifað um Rúmeníu. Gorbachev ræddi við Ceausescu, sem hefur verið við völd í Rúmeníu síðan 1965 og hefur oft og tíðum vakið úlfaþyt í Moskvu með því að fara eigin leiðir í utanríkismálum. Gorbachev reynir nú að koma á opnari fjölmiðlun og breytingum í efnahagsmálum í Sovétríkjunum, en Ceausescu hefur lagt áherslu á algert vald kommúnistaflokksins yfir menningarmálum og fjölmiðl- um og miðstýring í efnahagsmálum er hvergi jafn mikil í Austur-Evr- ópu. Ekki var mikið fjallað um heim- sókn Gorbachevs áður en hann kom til Rúmeníu. Á forsíðu málgagns stjómarinnar, Romania Libera, var yfirlit yfir lífshlaup Gorbachevs, en á baksíðu var greint frá útgáfu verka Ceausescus á grísku í löngu máli. Rúmenska sjónvarpið sagði að Gorbachev og Ceausescu hefðu heitið að bæta samskipti ríkjanna. Sagði að gagnkvæmur skilningur hefði ríkt milli leiðtoganna. Stjórn- arerindrekar í Búkarest lásu úr fréttinni að þeir hefðu ekki verið sammála um öll atriði, en þeim hefði tekist að forðast alvarlegan ágreining. Rúmenar eru skuldum hlaðnir og hefur Ceausescu fyrirskipað miklar aðhaldsaðgerðir. Lítið er flutt inn í landið og ríkir þar oft skortur á nauðsynjavörum. Gorbachev heldur á morgun til Austur-Berlínar til að sitja fundi V arsj árbandalagsins. HANS-Jiirgen Wischnewski, sér- legnr sendimaður vestur-þýsku ríkisstjórnarinnar, hefur komið tilboði yfirvalda á framfæri við mannræningja í Líbanon, sem halda tveimur Vestur-Þjóðveijum í gislingu. Að sögn ónefndra stjómarerind- reka í Bonn hafa yfirvöld í Vestur- Þýskalandi boðist til að hafna kröfu Bandaríkjastjómar um að hryðju- verkamaðurinn Mohamed Ali Hamadei verði framseldur þangað. Heimildarmenn í röðum mannræn- ingja sögðu að gert væri ráð fyrir að dæmt yrði í máli Hamadeis og bróður hans í Vestur-Þýskalandi og myndu þeir fá að fara úr landi eftir að hafa afplánað stutta dóma. I staðinn krefst vestur-þýska ríkis- stjómin þess að Þjóðveijunum tveimur verði sleppt. Kosningar á Grænlandi Kaupmannahöfn, frá Niels Jorgen Bruiun, GRÆNLENDINGAR ganga í dag að kjörborðinu og verður nú kosið fjórða sinni til lands- þingsins frá því að Grænlend- ingar fengu heimastjórn árið 1979. 37 þúsund manns eru á kjörskrá og hafa gögn verið flutt á kjörstaði á hundasleðum og í þyrlum. Tveir flokkar störfuðu saman í heimastjórn Grænlands, Siumut og Inuit Ataqatgitiis. í mars slitn- aði upp úr stjómarsamstarfinu vegna deilna um breytingar á rat- siárstöð Bandaríkjamanna í Thule. Sovétmenn halda fram að breytingar, sem verið er að gera á stöðinni, bijóti í bága við gagn- fréttaritara Morgunblaðsins. eldfiauga-sáttmálann frá 1972. Jonathan Motzfeld, formaður Siumut, sem leiddi heimastjóm- ina, sagði að Bandaríkjamenn hefðu fullvissað sig um að breyt- ingarnar væru í samræmi við alþjóðlegar samþykktir og Sovét- mönnum stafaði því ekki hætta af Grænlendingum. Aqaluk Lynge, leiðtogi Inuit, var ekki ánægður með skýringar Motzfelds og vildi að skipuð yrði nefnd til að fylgjast grannt með framkvæmdum í ratsjárstöðinni. Ósk Lynges var hafnað og hætti hann stuðningi við stjórnina. Sjá „Einkarekstur fyrirtækja eitt helsta kosningamálið“ á síðu 38. Andstæðingar úr kosningabaráttunni á Grænlandi: Jonathan Motzfeld, formaður jafnaðarmannaflokksins Siumut, og Otto Steenholt, formaður vinstri flokksins Atassut.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.