Morgunblaðið - 26.05.1987, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. MAÍ 1987
3
Skagafjörður:
Bóndi skýtur
með haglabyssu á
brúkunarhross
nágranna síns
Hrossið aflífað samkvæmt úrskurði dýralæknis
Hofsósi.
SÁ fáheyrði atburður átti sér stað
fyrir helgina að bóndi í Skaga-
firði fékk upphringingu frá
nágranna sínum og var tilkynnt
að hann ætti særða meri á vegin-
um á milli bæjanna. Nágranninn
sagði að merin væri særð eftir
sig og að hann hefði skotið á
hana með haglabyssu. Bóndinn
fór þegar að huga að merinni og
fann neðan túns við nágrannabæ-
inn. Hengdi merin haus og var
mjög dauf. Við skoðun kom í Ijós
að sár var á miðjun hálsi upp
undir makka, um 8 sm í þvermál.
Að sögn eiganda merarinnar er
ljóst að skotið hefur verið af stuttu
færi, því höglin voru aðeins á fyrr-
greindu takmarkaða svæði. A móti
skotsárinu mátti finna fyrir höglum
undir húðinni, en ekkert hafði farið
alla leið í gegn um háls merarinnar.
Dýralæknir úrskurðaði að hrossinu
yrði að lóga, en það hafði verið reið-
hross sonar bóndans í nokkur ár, frá
því drengurinn var fjögurra ára að
aldri. Að sögn Björns Mikaelssonar
yfirlögregluþjóns á Sauárkróki hefur
þessi atburður verið tilkynntur til
lögreglunnar, en að svo stöddu vildi
hann ekki láta hafa neitt frekar eft-
ir sér um málið.
Ofeigur
Kannaður markaður fyrir
lambakjöt í Bandarflgunum
MARKAÐSNEFND Iandbúnaðar-
ins hefur ráðið bandarískt fyrir-
tæki til að gera könnun á
markaðsaðstæðum fyrir íslenskt
lambakjöt i Bandarikjunum og
mögulegum aðferðum við mark-
aðssetningu. Fyrstu upplýsingar
eru farnar að koma að vestan,
en könnuninni á að Ijúka í fyrir
byijun september. Þá verða tekn-
ar ákvarðanir um framhaldið.
Markaðsnefndin hefur tekið upp
samvinnu við Útflutningsráð íslands
um athugun á útflutningmálum. Er
þessi frumathugun á Bandaríkja-
markaði þáttur í því verki. Fulltrúi
frá Landssamtökum sauðfjárbænda
er markaðsnefnd nú til ráðuneytis
þegar fjallað er um lambakjötsút-
flutning.
□ í B !i
■yy ý -
: r^'r' ý.
• Jy Jy \Ji .1
jy .. >: -^1
Samkvæmt tillögu arkitektanna Guðrúnar Jónsdóttur og Knúts Jeppesen, verður byggt yfir brun-
inn við Bjarnaborg um leið og hann verður lagfærður.
Borgarráð:
Byggt yfir brunninn
við Bjarnaborg
Borgarráð hefur samþykkt tillögu Þórðar Þ.
Þorbjarnarsonar borgarverkfræðings um að
gert verði við brunninn við Bjarnarborg og
byggt yfir hann.
Kostnaður við framkvæmdina er áætlaður um
1,5 milljón króna og er verkið þegar hafið. Brunn-
inn byggði Bjarni Jónsson skömmu eftir að húsið
var byggt árið 1902 og sagði Ragnheiður Þórarins-
dóttir borgarminjavörður að það hafi verið gert
vegna þess að of langt þótti í Móakotslind sem
var aðal vatnsbólið í hverfinu.
„Þetta er eini opni brunnurinn í miðbænum sem
er aðgengilegur,“ sagði Ragnheiður. Brunnurinn
er meðal annars merkilegur fyrir þær sakir að
þegar taugaveikifaraldur kom upp í Skuggahverfi
árið 1906 gátu læknar rakið hvaðan sýkingin barst
því íbúarnir 100 í Bjarnaborg, sem notuðu brunn-
inn sýktust ekki. Hann var notaður í nokkur ár
eða þar til vatnsveitan tók við um 1910.
ELDHUSUNDRIB
FRAAEG
Margra tœkja maki
á makalausu verði!
KM 21 fráAEG er sannkallað eldhúsundur enda er
fjölhœfnin undraverð.
Bara að nefna það, KM 21 gerir það: Hrœrir, þeytir,
hnoðar, rífur, hakkar, blandar, hristir, brytjar, sker...
Eldhúsundrið frá AEG er margra tækja maki en á
makalausu verði, aðeins kr. 6.903.-
Vestur-þýsk gæoi a pessu verói, - engin spurning!
AEG
ALVEG
EINSTOK
GÆDI
A E G heimilistœki
því þú hleypir ekki hverju sem er í húsverkin!
BRÆÐURNIR
ORMSSON HF
Lágmúla 9, sími: 38820