Morgunblaðið - 26.05.1987, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 26.05.1987, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. MAI 1987 Johnny Logan krýnir fegurðar- drottningu Islands ÍRSKI söngvarinn Johnny Log- an, sem sigraði i Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva ný- verið, verður heiðursgestur á úrslitakvöldinu um titilinn Feg- urðardrottning íslands 1987, sem haldið verður í veitingahúsinu Broadway 8. júní næstkomandi. Gert er ráð fyrir að heiðurs- gesturinn muni krýna fegurðar- drottninguna að fenginni niðurstöðu dómnefndar um mið- nætti þetta kvöld. Johnny Logan nýtur nú mikilla vinsælda í Evrópu eftir sigurinn í söngvakeppninni og hefur sigurlag hans verið í efstu sætum vinsælda- lista víðast hvar í Evrópu síðan. Hann vinnur nú að gerð breiðplötu í Englandi, þar sem stjarna hans hefur risið að undanförnu og jafn- framt hefur hann verið eftirsóttur til tónleikahalds nú síðustu vikur. Var það einkum fyrir persónulegan kunningsskap hans og Björgvins Halldórssonar, fulltrúa í Broadway, sem tókst að fá hann hingað til lands með svo skömmum fyrirvara. Logan kemur ekki með sjö manna hljómsveit sína að þessu sinni, en að sögn Björgvins Halldórssonar hafa viðræður verið í gangi um að Johnny Logan og hljómsveit hans komi hingað til lands síðar í júní og haldi þá tónleika á Broadway. Fegurðardrottningar íslands og Reykjavíkur verða krýndar við há- tíðlega athöfn á áðumefndu Galakvöldi í Broadway og auk Johnny Logan verður tískufrömuð- írski söngvarinn Johnny Logan verður heiðursgestur á úrslita- kvöldinu í Broadway þar sem Fegurðardrottning íslands 1987 verður krýnd. urinn Gunnar Larsen sérstakur gestur við athöfnina og mun þar stjóma tískusýningu, sem verður sett sérstaklega á svið af þessu til- efni. VEÐURHORFUR í DAG, 26.05.87: YFIRLIT á hádegi í gaer: Fyrir austan land er 1033 millibara hæð. Við suðausturströnd Grænlands ersmálægð sem þokast norður. SPÁ: Hæg breytileg eða austlæg átt. Víða léttskýjað inn til lands- ins en sums staðar þokuloft við ströndina, einkum norðantil. Hiti á bilinu 12 til 18 stig nema í þokunni, þar veröur mun svalara. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: MIÐVIKUDAGUR og FIMMTUDAGUR: Hægviöri, víðast bjart veður og hiti á bilinu 10 til 16 stig. Sums staðar verður þó þoka við ströndina og mun svalara. ) gráður á Celsíus Skúrir Él Þoka Þokumóða Súld Mistur Skafrenningur Þrumuveður TAKN: Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað Alskýjað y, Norðan, 4 vindstig: *' Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vlndstig. / / / / / / / Rigning / / / * / * / * / * Slydda / * / * * * * * * * Snjókoma * * * 10 > 10 V y •> 5 5 oo K VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma Akureyri hiti 11 veóur þokaígr. Reykjavík 17 léttskýjað Bergen 15 léttskýjað Helsinki 11 skýjað Jan Mayen 1 þokaígr. Kaupmannah. 10 lóttskýjað Narssarssuaq 2 skýjað Nuuk -1 snjókoma Osló 21 heiðskírt Stokkhólmur 17 heiðskirt Þórshöfn 8 skýjað Algarve 21 skýjað Amsterdam 20 hálfskýjað Aþena 22 léttskýjað Barcelona 20 mistur Berlín 15 léttskýjað Chicago 14 þokumóða Feneyjar 22 heiðskírt Frankfurt 20 léttskýjað Hamborg 14 helðsklrt Las Palmas 23 skýjað London 13 mistur LosAngeles 13 léttskýjað Lúxemborg 19 léttskýjað Madríd 25 skýjað Malaga 20 mistur Mallorca 23 skýjað Miami 25 léttskýjað Montreal 13 skýjað NewYork 11 alskýjað París 22 hálfskýjað Róm 21 léttskýjað Vín 19 skýjað Washíngton 18 þokumóða Wlnnipeg 12 skýjað Stórkaupmenn óska eftir auka- fundi í verðlagsráði Vilja hreinsa sig af ásökunum um töku umboðslauna erlendis FÉLAG íslenskra stórkaup- manna hefur óskað eftir að lialdinn verði aukafundur í verð- lagsráði til að ræða niðurstöður könnunar Verðlagsstofnunar á verðmyndun á nokkrum vöru- flokkum í Reykjavík og Bergen. Félagið telur að í könnuninni sé veist að innflytjendum með yfir- lýsingum um töku umboðslauna sem hafi áhrif til óeðlilegrar hækkunar vöruverðs. í bréfí FÍS til formanns verð- lagsráðs segir að félagið hafi haft samband við alla helstu innflytjend- ur rafmagnsheimilistækja og hafí þeir allir lýst því yfir að þeir taki ekki umboðslaun erlendis. Af orða- lagi fréttatilkynningar Verðlags- stofnunar megi hinsvegar álykta að hér sé um að ræða reglu en ekki undantekningu. „Hér er því um grófa aðdróttun að ræða, og hefur henni verið hampað í fjölmiðl- um,“ segir í bréfinu. Farið er fram á að málið verið rætt á aukafundi verðlagsráðs, þar sem fulltrúum félagsins verði gefinn kostur á að mæta, og þess krafist af verðlags- stjóra að hann leggi fram gögn máli sínu til stuðnings. „Okkur þykir leitt að þetta atriði skuli verða til að draga athygli frá aðalatriði málsins, sem er innkaups- verð erlendrar vöru,“ sagði Árni Reynisson framkvæmdastjóri Fé- lags íslenskra stórkaupmanna. „En það má ekki dragast deginum leng- ur að hreinsa menn af þeim áburði um óskynsamlega viðskiptahætti sem hér hefur átt sér stað. Við bíðum nú eftir nánari upplýsingum frá Verðlagsstofnun um könnunina sjálfa, svo að við getum dregið af henni lærdóm og metið hvort hún hefur meira gildi en að vekja at- hygli á þýðingarmiklum þætti verðlagsmála,“ sagði Árni. Húsnæðisstofnun ríkisins: Ekkert athugavert við lánafyrir- greiðslu Fjár- festingarfélagsins HÚSNÆÐISSTOFNUN ríkisins telur ekki ástæðu til aðgerða vegna lánafyrirgreiðslu Fjár- festingarfélagsins enda sé hér um að ræða svipaða lánafyrir- greiðslu og bankar og sparisjóðir hafa veitt út á lánsloforð Hús- næðisstofnunar. Sigurður E. Guðmundsson, framkvæmda- stjóri Húsnæðisstofnunar ríkis- ins, sagði í samtali við Morgunblaðið i gær, að hann hefði rætt við Pétur Kristinsson, forstöðumann verðbréfamarkað- ar Fjárfestingarfélagsins, og að loknum þeim viðræðum teldi hann ekki ástæðu til frekari af- skipta af málinu enda ekkert athugavert við lánafyrirgreiðslu af þessu tagi. „Það er mikill misskilningur ef menn halda að lánsloforð Hús- næðisstofnunar gangi kaupum og sölum fyrir milligöngu okkar," sagði Pétur Kristinsson í samtali við Morgunblaðið í gær. „Það sem um er að ræða er að við veitum lán með sölu skuldabréfa út á væntan- leg húsnæðislán. Þetta er nákvæm- lega það sama og bankar gera nema að við treystum okkur til að veita lán út á alla upphæðina,“ sagði Pétur. Aðspurður um vaxtakostnað og afföll vegna þessara viðskipta sagði Pétur að meta þyrfti hvert tilfelli fyrir sig, en sem dæmi mætti nefna, að ef um væri að ræða lán þar sem fyrri hluti væri greiddur eftir hálft ár og seinni hluti eftir eitt ár væru afföllin um 10%. „Við verðum að reikna með 14 til 16% raunvöxtum í vaxtakostnað. í bönkum geta menn hugsanlega fengið lán með 7 til 8% vöxtum þannig að við erum að tala þarna um 6 til 8% hærri raunvexti en hjá bönkunum, en á móti kemur að bankar eru tregir til að lána svo háa upphæð, sem nemur húsnæðislánunum, sem við hins vegar bjóðum og í því liggur munurinn,“ sagði Pétur. Utvegsbankinn í Vestmannaeyjum: Staða útíbús- sljóra auglýst ÚTIBÚSSSTJÓRI Útvegsbank- ans I Vestmannaeyjum, Vilhjálm- ur Bjarnason, mun ekki halda áfram þvi starfi nú eftir að hluta- félag hefur tekið við rekstri bankans. Ollum útibússtjórum bankans var boðin endurráðning við rekstrarbreytinguna og þáðu þeir allir nema Vilhjálmur það boð. Staða útibússtjóra Útvegsbank- ans í Vestmannaeyjum verður auglýst laus til umsóknar en fram að þeim tíma mun Jóhannes Tómas- son gegna störfum útibússtjóra. Vilhjálmur mun þó starfa þar áfram einhvem tíma.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.