Morgunblaðið - 26.05.1987, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. MAÍ 1987
7
Lögreglumenn semja
um 26% launahækkun
Samningnum fylgir bókun, sem takmarkar vopnaburð lögreglumanna
LANDSSAMBAND lögreglu-
manna undirritaði á föstudag
kjarasamning, sem felur í sér
um 26% hækkun launa á tveim-
ur árum. Samningurinn er
afturvirkur frá 1. febrúar í ár
og gildir til áramóta 1988/89.
„Eg sé hvorki ástæðu til þess
að hlæja né gráta yfir þessum
samningi. Hann er ekki slæm-
ur og ekki góður heldur, en
þetta er það sem við töldum
að hægt væri að ná að þessu
sinni,“ sagði Einar Bjarnason,
formaður Landssambands lög-
reglumanna, i samtali við
Morgunblaðið.
Einar sagði að um 14% hækk-
un kæmi strax á laun í upphafi
samningstímans og síðan væri
um sömu áfangahækkanir að
ræða og hjá öðrum félögum opin-
berra starfsmanna, þar með talin
launaflokkshækkun, sem kæmi á
tímabilinu frá 1. apríl í ár til
næstu áramóta. Frá 1. febrúar
verða laun byijanda í lögreglunni
30.600 krónur á mánuði og laun
lögreglumanns, sem hefur gengið
í gegnum lögregluskólann og er
með ársstarfsreynslu, um 37 þús-
und. Samsvarandi laun 1. júní
eru tæp 32 þúsund fyrir nýliða
og tæp 39 þúsund fyrir þann sem
hefur gengið í gegnum lögreglu-
skólann.
Þá var einnig gengið frá eldri
bókun, sem fylgir samningnum
og fjallar um skyldu lögreglu-
manna til vopnaburðar. Einar
sagði að lögreglumenn hefðu lagt
áherslu á að takmarka þá skyldu
til hins ítrasta. Það hefði fengist
fram með samkomulagi allra að-
ila. „Við teljum að við njótum
meiri takmarkana í þessum efn-
um en nokkuð annað lögreglulið
í heiminum og að með þessu hafi
vopnaburður lögreglumanna ver-
ið takmarkaður eins mikið og
mögulegt er,“ sagði Einar.
[zzzzzmxrzzx
SKOTMARKIÐ
(The Hit). Fyrrum uppljóstrari
glæpamáls hefur verið i felum
í 10ár. Tveir náungar komast
á snoðir um hvar hann heldur
sig og hyggja á hefndir. Með
aðalhlutverkið ferJohn Hurt.
Mlðvlkudagur
21:20| UST-
mtmmá RÆNINOIARNIR
(Treasure Hunt). ítalskur
spennumyndaflokkur. Mis-
íeppnaður listamaður skýtur að
nálverki eftir Raphael í listasafni
íFlórens.
Mundu, það þazf
tvo til...
Hér eru tvö góð efni frá Hörpu til
málunar á járn.
HÖRPU OLÍUMENJA
Olíumenju skal bera á allt veðrað
járn. Hún er góður ryðvarnargrunnur
og mikilvægur undirbúningur undir
málningu.
HÖRPU ÞAKVARI
Þakvari er frábær málning á þök og
annað járn utanhúss. Þakvari hefur
mjög mikið veðrunar- og þensluþol
og lágan gljáa.
Þakvari er einstaklega léttur og
auðveldur í notkun, hvort sem
notuð er rúlla eða pensill.
SAMSPIL SEM SKILAR ÁRANGRI
Skúlagötu 42, 125 Reykjavík
Pósthólf 5056, S (91) 1 15 47.
HARPA gefur Ííflnu lit!
22:2
Flmmtudagur
ADSTOOAR-
MADURINN
(The Dresser). Leikari, sem
nokkuð er kominn til ára sinna,
erá ferð með leikhús sitt. Fylgst
er með margslungnu sambandi
hans við aðstoðarmann sinn.
A uglýsingasími
Stöðvar 2 er 67 30 30
Lykllinn fsard
þúhjá
Heimilistsakjum
iþ
Heimilistæki hf
S:62 12 15