Morgunblaðið - 26.05.1987, Page 13
(J#f i i »* n6 fHfriJbjrftJf4i <íh fcttriA itítAitHtttiiJr
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. MAÍ 1987
Morgunblaðið/Emilía
Anna Concetta Fugaro við mynd sína „Minningar".
um tilurð umritunarinnar og er hún
ekki talin vera unnin af Mozart, þó
sérfræðingar séu sammála um að
þessi jrerð hennar sé „ekta Moz-
art“. I raun er hér um að ræða þá
tegund samleiksverka, þar sem fiðl-
an var að mestu undirleikshljóð-
færið og var leikur Selmu
Guðmundsdóttur á köflum fallega
útfærður. Samleikur þeirra mark-
aðist nokkuð af æskuþrungnu óþoli
einleikarans, þó brygði fyrir gull-
slegnum tónhendingum af og til.
Annað verkið var svo h-moll-
partitan eftir Bach og þar geislaði
víða á í leik Sigrúnar, þó hún væri
nokkuð of kappsfull og ætlaði sér
ekki af, eins og heyra mátti í
presto-kaflanum og einnig í Sara-
böndunni, sem hefði mátt vera ívið
Sigrún Eðvaldsdóttir,
fiðluleikari.
Ungir norræn-
ir einleikarar
Ténlist
Jón Ásgeirsson
Sigrún Eðvaldsdóttir fiðluleikari
og Selma Guðmundsdóttir píanó-
leikari komu fram á síðustu tónleik-
unum sem haldnir hafa verið að
tilhlutan Norræna hússins undir
nafninu Ungir norrænir einleikarar.
Sigrún Eðvaldsdóttir er ein af efni-
legustu fiðlurum, sem komið hafa
fram hér á landi og á þessum tón-
leikum sýndi hún mikila framför.
Það er ekki nema eðlilegt að enn
vanti hana þá íhugun sem aðeins
fæst þegar galsafengin æskugleðin
hefur verið fulllifuð og hugleiðingar
um ýmis lífsgátufyrirbæri taka að
sækja á hugann. Hvað sem því líður
er Sigrún feikna góður fiðluleikari
og vel við þau mörk, sem skilja að
góða tónlistarmenn og snillinga.
Tónleikarnir hófust á fiðlusónötu
í B-dúr eftir meistara Mozart. Són-
atan er í raun píanósónata K.570,
en síðasta fiðlusónatan sern' Mozart
gerði er K.547 og tilgreind „fyrir
byrjanda". Þessi gerðin á K.570 er
gefin út 1796, fimm árum eftir
dauða tónskáldsins. Ekkert er vitað
hægari og eftirmáli hennar, Do-
uble-kaflinn, sömuleiðis. Slíkt hefði
skapað sterkari andstæður, sem
hefðu svo blómstrað í Bourrée-
kaflanum og eftirmála hans. Þó að
óþolinmæði þess sem mikið liggur
á hjarta og ætlar að klífa þrítugan
hamarinn í einu stökki, einkenndi
nokkuð leik Sigrúnar, ætti það ekki
að vetjast fyrir neinum, að hér er
á ferðinni efni í mikinn listamann.
Es-dúr-sónatan er sú þriðja af
ópus 12, en þessar fyrstu fiðlu-
sónötur Beethovens eru tileinkaðir
Salieri. Þrátt fyrir að nokkuð vant-
aði á íhugun, var leikur Sigrúnar
mjög vel útfærður, einkum í hæga
þættinum, en þar gat að heyra
ýmislegt sérlega fallegt í túlkun.
Fyrsti kaflinn á að vera iðandi af
fjöri og þar átti píanóleikarinn
nokkur erfið augnablik þó leikur
hennar væri ágætlega útfærður að
öðru leyti. Tónleikunum lauk svo
með Sarasate-fantasíunni yfir
nokkur lög úr Carmen og hafði
Efrem Zimbalist bætt ýmsu við
þessa gerð. Þarna fór Sigrún oft-
lega á kostum, bæði hvað snertir
glæsilega tækni og fallegan leik,
þó nokkuð vildi hún „geisast yfir
grundir" og leika t.d. niðurlag
verksins nærri því of hratt.
Hver er sekur o g
hver saklaus?
Erlendar baekur
Jóhanna Kristjónsdóttir
John Bingham: My name is Mic-
hael Sibley
Útg.Penguin 1986.
Æðilangt síðan þessi bók kom
út í fyrsta skipti, nánar tiltekið
1952. Hún er fyrir löngu orðin
klassisk og kemur út öðru hveiju,
nú síðast hjáPenguin fyrir nokkrum
mánuðum. Ég hef ekki lesið hana
fyrr.
Hér segir frá Michael Sibley,
eins og titillinn gefur til kynna.
Sibley elst upp í hálfgerðu reiði-
leysi, hefur í heimavistarskólanum
samskipti við John Prosset og það
líta' flestir á þá sem vini. En sann-
leikurinn er raunar sá, að Prosset
hæðir Michael og niðurlægir og
vekur hjá honum reiði og gremju,
sem pilturinn á allar stundir síðan
erfitt með að fyrirgefa. Michael fer
í blaðamennsku, fyrst við lítið
þorpsblað og síðar er hann færður
til Lundúna. Honum miðar ágæt-
lega og hefur ekki yfir neinu
sérstöku að kvarta. Þó er hann
ekki beinlínis ánægður. En ekki
beinlínis óánægður heldur. Heima
í þorpinu hafði hann komizt í kynni
við Cynthiu, en var aldrei nógu dús
við tilfinningar sínar til hennar.
Eftir að hann flytur til London end-
urnýjar hann kynni sín við stúlkuna
Kate.
John Prosset hefur aldrei horfið
á braut. Hann virðist hafa ein-
hveija þörf fyrir að hafa samband
við Sibley. Þótt svo sem ekki verði
séð að þeir hafi neitt að gefa hvor
öðrum.
Prosset deyr skyndilega og það
er eitthvað grunsamlegt við dauða
hans. Það kemur fljótlega í ljós að
hann hefur verið myrtur. Og er þá
ekki eðlilegt að grunsemdir falli á
Sibley? Vegna þess, að hann hafði
heimsótt hann daginn sem hann dó.
Vegna þeirrar andúðar sem hann
bar í bijósti frá fornu fari, er alls
ekki óhugsandi að hann hafi drepið
Prosset. Og það bætist við, að Pros-
set hafði reynt að ná valdi yfir
Kate. Og sannanirnar hrannast upp
og Sibley verður ekki bara tvísaga
og þrísaga; það sem upp úr honum
kemur virðist í eyrum lögreglu-
mannanna óttalegt rugl. Það liggur
við borð, að Sibley sé farið að
gruna, að hann hafi framið ódæðið.
John Bingham nær meistaratök-
um á efninu, þegar hann fjallar um
sektina og tilfinningar, sem geta
vakið með okkur meiriháttar vafa
um okkur sjálf. Vegna þess að sekt-
arkennd má vekja með okkur þótt
við höfum ekki aðhafzt það sem
varð. En kannski langaði okkur til
að gera það. Og getum velt fyrir
okkur, hvhort undirmeðvitundin
hafi reynzt sterkari og við höfum
því, þegar allt kemur til alls,
kannski látið verða af verkinu. Sag-
an vakti mikla athygli á sínum tíma
og þótti höfundur sýna mikinn
skilning á viðfangsefninu og gera
því afbragðs góð skil. Bókin stendur
enn fyrir sínu. Og vel það.
Sýndur föstudags- og laugardagskvöld.
Ath! Allra síðasta sýningarhelgi.
☆ ☆
@00SE0HEQíSa00E3Q0
Mætum öll hress með bros á vör og þá er stutt í hláturinn!
Hin þrælgóða hljómsveit SANTOS og söngkonan Guðrún Gunnarsdóttir leika fyrir
dansi. Rifjaðar verða upp nokkrar helstu dægurlagaperlur í gegnum tíðina.
Án gríns: Læknir á staðnum fyrir þá sem fá alvarlegt hláturskast.
Þríréttaður veislukvöldverður sem engan svíkur.
Athugið að panta borð tímanlega hjá veitingastjóra í símum 23333 og 23335.
Tekið er á móti borðapöntunum alla virka daga frá kl. 10.00-18.00 og á laug-
ardögum eftir kl. 14.00
ÞÓRSKABARETT — GALSI, GLENS OG GRÍN í MAÍ
Gestum utan af landi er bent á Þórskabarettreisur Flugleiða.
Þriðji kafli Þórskabarettsins sívinsæla verður
í maí-mánuði, en þá má búast við að gestir
þurfi að þenja hláturtaugarnar til hins ítrasta.
Spaugstofugrínistarnir Karl Ágúst Úlfsson,
Siggi Sigurjóns og gríntenórinn Örn Árnason
mæta galvaskirtil leiks ásamt Ómari Ragn-
arssyni og Hauki Heiðar Ingólfssyni.
19S6NS
☆ ☆ ☆
☆ ☆ ☆
ÞÓRSKABARETTIMAI-MANUÐI
Grínlandsliðið í miklum ham!