Morgunblaðið - 26.05.1987, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 26.05.1987, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. MAÍ 1987 17 Nýútskrifaði tónsmiðir, Guðni Ágústsson, Guðrún Ingimundardóttir, Ásgeir Guðjónsson, Helgi Péturs- son og Tryggvi M Bald- - vinsson Stefni næst að einleikaraprófi HELGI Pétursson, er fæddur og uppalinn á Húsaví. Þar hóf hann nám í orgelleik við tónlistarskóla staðar- ins, aðeins tíu ára að aidri. Hann lauk þaðan 4. stigi í orgelleik og hélt síðan suður til Reykjavíkur. „Hér hélt ég áfram í orgelnámi hjá Martin Hunger, dó- morganista. Ég innritaðist einnig í tónmenntakenn- aradeild Tónlistarskólans og lauk námi þaðan 1983. Þá um haustið byijaði ég í tónsmíðadeildinni. Einleik- araprófi í orgelleik stefni ég á að ljúka eftir eitt ár.“ Hvað með frekari framtíðarplön? Ég stefni að því að fara í framhaldsnám eftir einleikara- prófið, en í sumar ætla ég að leysa Martin Hunger af í Dómkirkjunni í einn mánuð. Síðan fer ég til Húsavíkur og kenni þar næsta vetur. Einleikaraprófið er mjög sjálf- stætt nám. Það byggist upp á því að maður geti sett saman efnisskrá, æft hana sjálfur og flutt. Næsta vetur kem ég til dæmis með að koma suður einu sinni í mánuði til að fara í tíma hjá Martin, en æfi fyrir norðan.“ Er lokaverkefni þitt fyrir orgel? „Nei, það er prelódía og kórar fyrir sinfóníuhljóm- sveit. En það er í samræmi við organhefðina. í verkinu er ég að vinna úr því sem ég þekki úr kirkjutónlistinni og hef mætur á, en ég hef unnið töluvert sem kirkjuorgan- isti. Forspilið í verkinu er hugsað út frá orgelprelúdíum eftir Baeh og sálmurinn er settur saman úr mörgum þekktum sálmastefjum, bæði hlutum úr sálmum og heilum sálmum, sem ég útfæri á minn eigin hátt fyrir hljómsveit- jna. Ég reyni á þennan hátt að búa til einn storan salm úr öllum þessum þekktu stefjum." Kynntist tón- smíðum íKópavogi GUÐNI Ágústsson fæddist og ólst upp í Reykjavík. Tónlistarferill hans hófst í Tónlistarskólanum i Kópa- vogi þegar hann var 13 ára er hann byrjaði í pianónámi hjá Guðmundi Jónssyni, píanóleikara. „Þar hef ég verið þar til fyrir einu ári,“ segir Guðni. „Ég lauk 8. stigi frá Tónlistarskólanum i Kópavogi, jafn- framt þvi sem ég stundaði nám við tónsmíðadeild Tónlistarskólans í Reykjavík frá haustinu 1983. Reyndar byijuðu kynni mín af tónsmíðanámi í Kópa- vogi. Það var undir handleiðslu Karólínu Eiríksdóttur og var kallað „tónföndur." Hvernig eru stigin hugsuð í hljóðfæranámi? „Það er gefin út námsskrá fyrir hvert hljóðfæri, sem á að vera samræmd í öllum tónlistarskólum í landinu. Þar er raðað niður verkum sem kennarar og skólastjórar hafa valið, eftir því hversu erfíð þau eru. Þessu er þó ekki fylgt mjög strangt eftir. Þú þarft ekki endilega að taka þau verk sem eru skráð, heldur svipuð, þau eru aðallega til viðmiðunar. “ Hefurðu hug á framhaldsnámi? Já, það hef ég. Næstu árin ætla ég þó að nota til að komast niður á jörðina. Nánasta framtíð er mjög óráðin. Ég er að vinna í hljóðfæraversluninni Rín og hef gert það með náminu. Ég veit ekki hvort ég held því áfram.“ Hvað geturðu sagt mér um lokaverkefni þitt? „Það heitir „Spor“ og er fyrir sinfóníuhljómsveit. Það er einn kafli, ein óijúfanleg heild. Ég var fyrst og fremst að leita að einhveiju sem mér fannst fallegt. I því er einn rauður þráður sem gegur í gegnum allt verkið, spor- ið, og það er mjög veikt. I þessu verki lít ég á hljómsveit- ina sem eitt hljóðfæri og reyni að ná út því sem mér finnst fallegast og best og reyni að vera ég sjálfur. Það var alveg stórkostlegt að fá Sinfóníuhljómsveit íslands, undir stjórn Arthurs Weisberg, til að flytja þetta á útskriftartónleikunum og Það er ómetanlegt fyrir okk- ur að fá atvinnumenn til að flytja skólaverkefni. Ég fæ annað tækifæri til að heyra verkið flutt, því það hefur verið valið til flutnings á tónlistarhátíð ungs fólks frá Norðurlöndum, hér í Reykjavík í haust. Það er í annað skipti sem ég tek þátt í tónlistarhátíð UNM. Fyrra skiptið var árið 1982, á meðan ég var hjá Ka- rólínu. Það var einleiksverk og ég flutti það sjálfur." Framtíðin óráðin GYLFI Garðarsson er þijátíu og eins árs, fæddur og uppalinn i Ytri—Njarðvík. Eiginlegt tónlistarnám hóf hann í Tónlistarskóla Njarðvíkur árið 1976. Þar lærði hann á klassískan gitar og lauk 5. stigi frá skólanum. Eftir það var hann í tvö ár við gítarnám hjá Josep Fung i Tónskóla Sigursveins og lauk þar 6. stigi. Jafnframt þvi lagði hann stund á hljómfræði við Tónlistarskólanum í Reykjavik. „Ég byijaði síðan í tónfræða— og tónsmíðadeild Tónlistar- skólans haustið 1983,“ segir Gylfi. „Þar er píanónám skyldugrein fyrir þá sem ekki hafa lokið 5. stigi í því hljóðfæri áður og hefur píanóið því tekið sæti gítarsins að sinni.“ Hver eru svo framtíðarplönin? „Ég get í rauninni'engu svarað um þau. Það er allt óráðið. Ég byija á því að selja íslendingasögurnar núna. Að öðru leiti hugsa ég bara um einn mánuð í einu, í bili. Hinsvegar stefni ég að áframhaldandi námi. Hvað geturðu sagt mér um lokaverkefni þitt í tónsmíð- um? „Það heitir „Tvær miðjur,“ og er hljó msveitarverk með nokkurn vegin sömu hljóðfæraskipan og íslenska hljómsveitin sáluga hafði, en slagverk hefur leiðandi hlut- verk. Sjálfur lit ég fyrst og fremst á það sem skólaverk. Þetta er, fyrir mér, dæmigert lokaverkefni, þar sem maður reynir að beita því sem maður hefur verið að læra og reynir að gera það músíkalskt."
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.