Morgunblaðið - 26.05.1987, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÖJUDÁGUR' 26. MÁÍ 198'?
23
Hallgrímskirkja:
Kirkjulístahát-
íð á vígsluári
(Morgunblaðið/Ámi Sæberg)
Forsvarsmenn Mótettukórs og Listvinafélags Hallgrímskirkju, Þór Jakobsson, Trausti Þ Sverrisson,
Séra Ragnar Fjalar Lárusson, Herra Sigurbjörn Einarsson, Hörður Áskelsson og Sigriður Jóhannsdóttir
Vestmannaeyjar:
Tilraunaboranir í nýja
hraunið í næstu viku
Hugmyndir um að framleiða varma með sorpbrennslu
KIRKJULISTAHÁTÍÐ verður
haldin í Hallgrímskirkju dagana
6-13 júní næstkomandi. Er þetta
í fyrsta skipti sem hátíðin er
haldin, en að sögn Harðar
Áskelssonar, organista kirkjunn-
ar, er stefnt að því að halda slika
hátíð annaðhvert ár í framtíð-
inni.
Tildrögin að hátíðinni kvað hann
vera stóraukna möguleika til lista-
starfsemi í kjölfar vígslu kirkjunnar
og ákveðinn vilji forráðamanna
Hallgrímskirkju til að nýta þá í
þágu listarinnar. Aðaláherslan hef-
ur verið lögð á kirkjutónlist, en
myndlist og leiklist eiga líka þátt í
hátíðinni. Haldnir verða níu tónleik-
ar, fimm aðaltónlejkar og fernir
hádegistónleikar. í forkirkjunni
verður sýning á málverkum eftir
Snorra Svein Friðriksson og leik-
húsið í kirkjunni verður með sér-
staka aukasýningu á leikritinu um
Kaj Munk. Helgihaldið verður með
ijölbreyttu sniði, enda tengist hátí-
ðin einni af aðal hátíðum kirkjunn-
ar, hvítasunnunni.
Af tónlistaratriðunum er flutn-
ingur Jesúspassíunnar eftir þýska
tónskáldið Oskar Gottlieb Blarr
umfangsmestur, en þar verða um
200 flytjendur, sex einsöngvarar,
kór Neanderkirkjunnar í D“usseld-
orf, skólakór Kársness, málmblás-
arar úr lúðrasveitinni Svanurinn og
Sinfóníuhljómsveit íslands fullskip-
uð. Einsöngvaramir koma frá
Þýskalandi, nema þeir Viðar Gunn-
arsson, bassi, sem fer með hlutverk
ÍSTAK hf. hefur gert samning
um að reisa bifreiðageymslu
fyrir stórmarkað í Þórshöfn í
Færeyjum. Heildarkostnaður
við verkið er um 25 milljónir
danskra króna eða tæplega 144
milljónir íslenskar.
Páll Siguijónsson framkvæmda-
'stjóri ístaks sagði að verkið væri
eingöngu unnið af íslendingum og
eru um þrjátíu íslenskir vekamenn
Krists og Magnús Þ Baldvinsson,
bassi, sem syngur hlutverk æðsta-
prestsins.
Mótettukór Hallgrímskirkju
verður með tvenna tónleika og þau
Manuela Wiesler, flautuleikari og
Bjöm Steinar Sólbergsson, orgel-
leikari, verða hvort um sig með
einleikstónleika. Meðan á hátíðinni
stendur verða í kirkjunni daglegir
hádgistónleikar, þar sem koma
fram þau Ásgeir Steingrímsson,
trompetleikari, Marteinn H Frið-
riksson, orgelleikari, Inga Rós
Ingólfsdóttir, sellóleikari, Hörður
Áskelsson, orgelleikari, Ann Toril
Lindstad, orgelleikari og Hljómskál-
akvintettinn.
Á hvítasunnudag syngja Neand-
erkórinn og Mótettukór Hallgríms-
kirkju saman í hátíðaguðsþjónustu.
Auk þess koma kór og hljóðfæra-
leikarar frá D“usseldorf fram í
guðsþjónustu á annan í hvítasunnu.
Mótettukórinn verður með
tvenna tónleika með tveimur ólíkum
efnisskrám meðan á hátíðinni
stendur. Annars vegar em það hin-
ir árlegu vortónleikar með blandaðri
efnisskrá tónverka án undirleiks,
meðal annars verður vígslumótetta
eftir Gunnar Reyni Sveinsson fmm-
flutt. Hins vegar Bach—tónleikar
með tveimur mótettum fyrir tvo
kóra og einsöngskantötu, með und-
irleik kammersveitar. Einsöngvari
verður Margrét Bóasdóttir. Með
þeim tónleikum lýkur hátíðinni, sem
Listvinafélag Hallgrímskirkju og
Mótettukór sjá um.
í Færeyjum á vegum fyrirtækisins.
Unnið er í fjórar vikur í senn með
með viku hléum hér heima en verk-
inu á að ljúka á 6 mánuðum.
ístak hefur haft verkefni í Fær-
eyjum undanfarin þijú ár og er
verið að ljúka steypuframkvæmd-
um við sorpeyðingarstöð í Þórs-
höfn, sem hefur verið aðal
verkefnið til þessa.
TILRAUNABORANIR í hraunið
við Eldfell í Vestmannaeyjum
hefjast væntanlega í næstu viku
á vegum nefndar sem fyrrum
iðnaðarráðherra skipaði til að
kanna leiðir til orkuöflunar fyrir
Vestmannaeyjakaupstað. Jarð-
boranir hf. eru að undirbúa
flutning jarðborsins Dofra sem
verið hefur i notkun í Hvalfirði
til Vestmannaeyja. Kostnaður er
áætlaður rúmar 4 milljónir króna
og er að mestu leyti greiddur af
iðnaðarráðuneyti en Fjarhitun
Vestmannaeyja ber einnig ein-
hvern kostnað af verkinu.
Albert Guðmundsson fyrrum
iðnaðarráðherra skipaði þessa
nefnd í lok síðasta árs, og skilaði
hún niðurstöðum sínum nýlega.
Niðurstöðurnar voru þær helstar
að álitlegasti orkuöflunarkosturinn
væri áframhaldandi nýting hraun-
hitans í nokkur ár með breyttri
vinnsluaðferð: að dæla vatni eða sjó
úr hrauninu og nýta það með
varmaskiptum. Þannig er gert ráð
fyrir að úr borholun í hraunið fáist
90-100° heitt vatn til að byija með
og dæling vatns úr hrauninu anni
þá allri orkuþörf FJAVE um 60
gígavattstundum á ári. Þegar vatn-
ið fer að kólna er gert ráð fyrir að
settur verði upp varmaskiptir og
varmadæla í dælustöð FJÁVE til
aukinnar nýtinar á vatninu en jafn-
framt verði settur upp rafskauta-
ketill sem framleiði æ meiri hluta
af orkuþörf Vestmannaeyja þar til
hann að lokum sér algerlega um
orkuframleiðsluna. Gert er ráð fyrir
að þessi þróun taki 15-20 ár.
Þessar niðurstöður byggja á for-
sendum sem eru óvissar eins og
stendur og ein af þeim forsendum
er sú að hægt sé að afla heits vatns
af botni hraunsins með borunum
og því eru tilraunaboranirnar fyrir-
hugaðar nú. Einnig hefur verð á
afgangsorku frá Landsvirkjun mikil
áhrif á hagkvæmni þessa og því
leggur nefndin til að þegar verði
hafnar viðræður við Landsvirkjun
og Rafmagnsveitur ríkisins um sölu
og afhendingu afgangsorku í Vest-
mannaeyjum.
Guðmundur Pálmason jarðeðlis-
fræðingur og einn nefndarmann-
anna sagði við Morgunblaðið að ef
þessar forsendur reyndust réttar
væri þetta langhagkvæmasti kostur
FJAVE því viðbótarkostnaður væri
tiltölulega lítill. Guðmundur sagði
þó að vel gætu verið ófyrirséðir
erfiðleikar við að bora í hraunið sem
væri um 800-1000° heitt á vissu
dýptarbili en slíkt ætti ekki að vera
óyfirstíganlegt ef rétt er að staðið.
Nefndin bendir á fleiri möguleika
til orkuöflunar ef þessi reynist ekki
raunhæfur. Lagt er til að könnuð
verði hagkvæmni þess að raforka
og varmi fyrir Vestmannaeyjakaup-
stað verði framleidd í sambyggðu
orkuveri í Vestmannaeyjum. Þá er
lagt til að FJAVE taki upp viðræð-
ur við fiskiðnaðarfyrirtæki í
Vestmannaeyjum um athugun á
hagkvæmni á nýtingu afgangs-
varma. Að lokum leggur nefndin
til að kannað verði hugsanlegt form
á samstarfi bæjarsjóðs Vestmanna-
eyja og FJAVE um byggingu og
rekstur sorpbrennsluvers þar sem
varminn yrði nýttur inn á kerfi
FJAVE. Jafnframt verði gerð úttekt
á magni og gerð brennanlegs sorps
í Vestmannaeyjum og möguleikum
þess að flytja sorp úr landi til
brennslu í Eyjum.
Nefndin var skipuð Guðmundi
Pálmasyni, Eiríki Bogasyni, Sig-
mund Jóhannssyni, Sveinbirni
Björnssyni, Wilhelm V. Steindórs-
syni og Erni Helgasyni.
Borgin kaupir lóð
í Hafnarstræti
Istak hf. reisir bifreiða-
geymslu í Færeyjum
BORGARRÁÐ hefur samþykkt
að kaupa lóðina við Hafnar-
stræti 21, þar sem verslunin
Zimsen er til húsa. Lóðin er
1328 fermetrar að stærð og er
í eigu Olíuverslunar íslands hf.
Kaupverðið er 30 milljónir
króna sem greiðist á 15 árum.
Samkvæmt nýjum skipulagstil-
lögum í miðbænum er gert ráð
fyrir að á mótum Hafnarstrætis
og Tryggvagötu verði miðstöð
Strætisvagna Reykjavíkur, Kópa-
vogs og Hafnarfjarðar, en aðstaða
þeirra er nú við Lækjartorg og í
Lækjargötu. Fyrirhugað er að
miðstöðin verði undir glerþaki í
tengslum við göngugötur í Hafn-
arstræti og Austurstræti. Þorvald-
ur S. Þorvaldsson forstöðumaður
borgarskipulagsins, sagði að með
þessum breytingum færðist um-
ferðarþunginn úr Tryggvagötu og
Hafnarstræti, yfir á fyrirhugaða
Geirsgötu, sem verður meðfram
hafnarbakkanum í gömlu höfn-
inni.
NÝTT MIÐBÆJARSKIPULAG
Breytt fyrirkomulag gatna. Við breytinguna
tengist Skúlagata nýrri götu, Geirsgötu.
Lækjargata og Hverfisgata tengjast gatna-
mótum Skúlagötu og Geirsgötu. Hafnar-
stræti og Tryggvagata lokast í austur-