Morgunblaðið - 26.05.1987, Síða 24

Morgunblaðið - 26.05.1987, Síða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. MAÍ 1987 DANS- OG LEIKSMIÐJAN Fyrsta sýning Kramhússins veröur „Ódysseifur" laugardaginn 30. maf kl. 21.00 og sunnudaginn 31. maí kl. 21.00 Flytjandi: Marfa Lexa ws>& PANTfx, STH5ai'7860 15103 09 1.—6. JÚNÍ: Marfa Lexa, látbragðsleikari frá DECROUX í París. 1. námskeið: Látbragðsleikur, raddbeiting og spuni með texta og hreyfingu. 1.-16. JÚNÍ: Adrianne Hawkins, dansari og listrænn ráðunautur IMPULS DANCE COMPANY í Boston. 2. námskeið: Jassdans og nútímadans. 9,—14. JÚNÍ: Anna Haynes, dansari og dansahöfundur frá Bretlandi. Hún hefur m.a. Masters gráðu frá ZABAN ART OF MOVEMENT. 3. námskeið: Dansspuni byggður á hugmyndum Rudolf Zaban. 1S.-22. JÚNÍ: Charles Zenthold, tangókennari frá Sviss. 4. námskeið: Argentínskur tangó. 22.-30. JÚNÍ: Susi Villaverde, látbragðsleikari frá Spáni. 5. námskeið: Látbragðsleikur með áherslu á trúða- og götuleikhúslist svo og japanska látbragðslist. 20.-30. JÚNÍ: Nanette Nelms, dansari frá JUBILATIONS DANCECOMPANY í New York. 6. námskeið: Nútímadans fyrir framhaldsnemendur með sýningu í huga í námskeiðslok. dansari og dansahöfundur frá Sviss. nútímadans. NÝ VIÐBÓT! 5.—20. JÚLÍ: Francois Zehmann, 7. námsKeið: Jassdans og Nú sem endranær mun Kramhúsið halda uppi merki framfara og framúrstefnu í dans- og leiklist. Það verður heitt í kolunum í Kramhúsinu í júní! Sjö erlendir listamenn koma til liðs við okkur og halda námskeið og sýningar. Listunnendur, áhugafólk um dans- og leiklist: Notið tækifærið og sækið námskeið og sýningar þessara athyglisverðu listamanna - ykkar vegna! Tom Cruise á réttri leið Kvikmyndir Amaldur Indriðason Á réttri leið (All the Right Mo- ves). Sýnd i Bíóhúsinu. Stjörnu- gjöf: ☆ Bandarísk: Leikstjóri: Michael Chapman. Aðalhlutverk: Tom Cruise, Craig T. Nelson og Lea Thompson. Það þarf ekki nema að líta á nöfn aðalleikararanna í þessari amerísku unglingamynd til að gruna hvað í vændum er. Cruise er að sjáfsögðu sæti aðalgæinn, Craig T. Nelson er hatrammur and- stæðingur hans og Lea Thompson er skotin í honum. Aðrir skipta engu verulegu máli. A réttri leið (All the Right Mo- ves), sem sýnd er i Bíóhúsinu, er mynd sem Cruise lék í áður en hann fór að umgangast stórstjömur eins og Paul Newman og Dustin Hoffman en það getur hver maður séð að titill myndarinnar er mjög viðeigandi með tilliti til þess sem framtíð Cruise bar í skauti sér. Síðan myndin var gerð er efnilegi unglingaleikarinn orðinn að stór- stjömu sjálfur. Annars er ekkert sérstakt við þessa mynd nema kannski hrapal- lega einföld lýsing á lífi ungling- anna. Myndin gerist í stáliðnaðarbæ þar sem engin framtíð er fyrir ung- mennin nema stritið í stálvemnum. Kynjamismunur unglinganna er eins skýr og hann er skrítinn án þess að honum sé endilega rétt lýst: fátæku strákamir rembast í amerískum fótbolta til að fá há- skólastyrk á meðan fátæku stelp- umar rembast við hið alameríska klappstýruhopp til að komast ekki neitt. í menntaskólanum hanga þær Á réttri leið: Tom Cruise. utan í sætu strákunum eins og úlp- ur og franskir kossar koma í staðinn fyrir einfalt „sjáumst" í lok frímínútanna. En það em margar góðar fót- boltasenur í myndinni. Craig T. Nelson, sem er svona fótboltaþjálf- ari sem bendir á þann sem gerði mistökin í leiknum og segir „það var þér að kenna að við töpuðum", þarf auðvitað að koma í veg fyrir frama Cmise í fótboltanum og þar með gera út um háleitar vonir hans um að koma sér burtu frá stál- krummaskuðinu. En Cruise er uppreisnarmaður með góðan málstað ólíkt James heitnum Dean og óskaplega ljúfur, hreinskiptinn piltur og þjálfi sér það um síðir og bráðnar og líður heil- miklu betur á eftir. Nelson er miskunnarlaus þjálfí og Lea Thompson reynir að koma svolitlum kvenréttindasjónarmiðum að í karlaveröldinni en með litlum ár- angri. Aðdáendur Cruise verða ekki sviknir á þessari mynd en hún er varla mikið spennandi fyrir t.d. aðdáendaklúbb Marcel Proust.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.