Morgunblaðið - 26.05.1987, Síða 41
T’onr TA«>* ÍIP CTTTr\/CTTTT 'TfJrT /ITH A TfTT^T T^CT/VTfT
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. MAÍ 1987
ni
41
Keuter
Blindur og einn síns liðs
yfirAtlantshafið
Jim Dickson vonast til að verða fyrsti blindi maðurinn til að sigla
yfir Atlantshafið einn síns liðs. Ætlar hann að sigla frá Bandaríkjun-
um til Englands og leggja upp í ferðina 29. júní nk. Siglingatækin
eru þannig úr garði gerð, að þau geta „talað“, sagt til um stefnuna
og annað, sem nauðsynlegt er að vita.
Fijieyjar:
Uppreisnar-
mönnum gefn-
ar upp sakir
Suva, Fý'ieyjum. London. Reuter.
LANDSTJÓRI Fijieyja, Penaia Ganilau, gaf í gær Sitiveni Ra-
buka, ofursta og öðrum uppreisnarmönnum upp sakir fyrir þátt
þeirra í að bylta nýkjörinni ríkisstjórn landsins 14. maí sl. Stuðn-
ingsmenn stjórnarinnar eru sagðir undirbúa friðsamleg mótmæli.
Lögregla og her gerðu vopnale- eyja hélt áfram fundi sínum í gær
it í gær og gerðu upptæk öll vopn
er þeir fundu, en spenna fer nú
vaxandi á eyjunum. Fyrsti fundur
hins nýskipaða ráðgjafahóps Gani-
lau landstjóra, er stjóma á landinu
þar til nýjar þingkosningar fara
fram, hélt sinn fyrsta fund í gær
og sat landstjórinn í forsæti. Hann
hefur skipað Kamisese Mara, fyrr-
um forsætisráðherra, að fara með
utanríkismál og Rabuka að fara
með öryggismál. Bavadra, fyrrum
forsætisráðherra, er tilnefndur var
í ráðgjafahópinn, sagði í gær í
Suva, höfuðborg Fiji, að hann
myndi ekki taka þátt í störfum
hans. Stuðningsmenn Bavadra
ætla að loka fyrirtækjum sínum í
dag og mótmæla þannig valdatöku
hersins. Bavadra sagði við frétta-
mann Reuterfréttastofunnar að
hann hygðist sækja fund Suður-
Kyrrahafsráðsins, sem halda á um
næstu helgi í Apia á Vestur-
Samoa.
Höfðingjaráð frumbyggja Fiji-
og fór hann fram fyrir luktum
dyrum. Sagt er að rætt hafí verið
um nauðsjmlegar breytingar á
stjórnarskrá eyjanna og uppkast
að bréfi til Elisabetar Bretadrottn-
ingar, þar sem skýrt yrði hvers
vegna byltingin var nauðsynleg.
Aðstoðarutanríkisráðherra
Breta, Young barónessa, sagði í
London í gær ósennilegt að breska
ríkisstjómin myndi grípa til við-
skiptaþvingana gegn Fijieyjum.
Hún staðfesti að stjóminni hefði
borist bréf frá Rajiv Gandhi, for-
sætisráðherra Indlands, vegna
Fijieyja. Young vildi ekki segja
hvers efnis það væri, en kvað rétt
að minnst væri á efnahagsaðgerð-
ir í bréfinu. Eins og kunnugt er
beinast aðgerðir byltingarstjórnar-
innar á Fijieyjum að því að tryggja
völd frumbyggja eyjanna og koma
í veg fyrir að menn af indverskum
ættum nái meirihluta aðstöðu í
ríkisstjóm.
Sameinuðu furstadæmin:
Úlfaldaeigandi sektaður
vegna umferðarslyss
Sharjah. Reuter.
EIGANDA tveggja úlfalda, sem
hlupu inn á akveg og ollu dauða-
slysi, var gert að greiða 19.000
dollara (rúml. 730.000 ísl. kr.) í
sekt samkvæmt dómsúrskurði,
sem gekk í berhögg við alda-
gamlar hefðir.
Það hefur löngum tíðkast í Sam-
einuðu furstadæmunum, að eigandi
dýrs, sem drepst af völdum öku-
tækja, hefur átt vísar bætur frá
ökumanninum.
En í þetta sinn var eigandi dýr-
anna handtekinn og sektaður, að
því er sagði í blaðinu al-Khaleej.
Að sögn blaðsins lést ökumaður-
inn, Abdullah Saeed Salem, sam-
stundis, þegar bíll hans rakst á
úlfaldana á hraðbrautinni. Bróðir
hans, sem var farþegi í bílnum, slas-
aðist nokkuð og bíllinn skemmdist
mikið. Úlfaldarnir lifðu af.
Kína:
Eldar í norðri en vatnavextir í suðri
Peking, Reuter.
NOKKUÐ rigndi i fyrradag í
Norður-Kína þar sem mestu
skógareldar i mannaminnum
hafa geisað í tæpar þijár vikur
og varð það til að hefta aðeins
framrás eldsins. Nú er hann hins
vegar kominn að miklu, ósnertu
og upprunalegu skógarflæmi og
er voðinn vís ef í þvi kviknar.
Rigningin á sunnudag var mjög
lítil en samt næg til að deyfa eldinn
aðeins og gafst þá slökkviliðsmönn-
um ráðrúm til að slökkva alla elda
á vestursvæðinu. Annars staðar
geisa þeir enn og eru nú komnir inn
í Innri-Mongólíu, í aðeins eins km
fjarlægð frá mjög víðáttumiklu og
upprunalegu skógarsvæði, sem
aldrei hefur verið nytjað. Þar standa
trén þétt og engir vegir þannig að
nái eldamir þessum skógi verður
ekkert við ráðið.
í Suður-Kína, í Guangdon-hér-
aði, eru það flóð og vatnavextir,
sem hijá mannfólkið. Gífurlegt úr-
helli hefur valið skemmdum á
ökrum og engjum og eyðilagt
20.000 hús. Hafa 360.000 manns
verið flutt á brott.
Engin ein dýna er rétt fyrir alla.
Óskir um verð og gerð eru margbreytilegar eftir efnum og ástæðum.
En þar komum við inn í málið og hönnum þá einu réttu fyrir hvern og einn
-fyriröll hugsanleg rúm og aðstæður.
Og það er mesti misskilningur að slik persónuleg þjónusta sé dýrari.
Verðið fer eftir gerðinni og gerðirnar eru margar- já allt niður í ótrúlega ódýrar.
Rétt dýna
í bílhýsið
PETUR SNÆLAND HF
SKEIFAN 8
SlMI 68 55 88
REYKJAVÍK
it
lE
HRIN6DU
in skuldfaerðá_______
greiðslukortareikninq
SÍMINN ER
691140 691141