Morgunblaðið - 26.05.1987, Qupperneq 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. MAÍ 1987
íslendingar og
tölvubyltingin
fltegtiiiltfftfetíÞ
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Aöstoöarritstjóri
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
Árvakur, Reykjavík
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Bjarnason.
Þorbjörn Guömundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar:
Aöalstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Kringlan 1, sími 83033.
Áskriftargjald 550 kr. á mánuöi innanlands. i iausasölu 50 kr. eintakiö.
Ekki samið
um varnir og öryggi
Umræðurnar um stjórnar-
myndun hafa til þessa einkum
snúist um efnahags-, launa- og
félagsmál. Eftir fund fulltrúa Sjálf-
stæðisflokks, Kvennalista og
Alþýðuflokks á laugardag kom
hins vegar fram, að þar hefðu
varnar- og öryggismál borið á
góma. Mátti jafnvel skilja orð Frið-
riks Sophussonar, varaformanns
Sjálfstæðisflokksins, um þennan
málaflokk á þann veg, að til þess
að ná samkomulagi yrðu bæði
Sjálfstæðisflokkur og Kvennalisti
að slá af stefnu sinni.
Ef tekið er mið af kosningabar-
áttu Kvennalistans kemur það í
sjálfu sér á óvart, að þær skuli
gera varnar- og öryggismál að
úrslitaatriði varðandi aðild að ríkis-
stjóm. Fyrir kosningar reyndu
talsmenn samtakanna að vefja við-
horf sín til þessa viðkvæma
málaflokks inn í slíkar skrautum-
búðir, að helst enginn kæmi auga
á innihaldið. Þegar umbúðimar em
teknar utan af kemur í ljós bull-
andi ágreiningur við þá, sem vilja
óbreytta stefnu í vamar- og örygg-
ismálum.
Það er fráleitt fyrir Sjálfstæðis-
flokkinn að ganga til stjómar-
myndunar, ef hann þarf að sveigja
af leið í utanríkismálum. Þótt lesa
megi margt út úr úrslitum kosn-
inganna er ógerlegt að halda því
fram með nokkrum rökum, að
háttvirtir kjósendur hafi verið að
biðja um nýja stefnu í öryggis- og
vamarmálum.
Kvennalistinn efndi til langra
funda í vikunni eftir kosningar.
Þar var ætlunin að draga fram þau
málefni, sem setja skyldi á oddinn
í viðræðum við aðra flokka. í könn-
unarviðræðunum, sem voru að-
dragandi þess, að Þorsteinn
Pálsson boðaði flokkana þrjá til
formlegra viðræðna, sýnist ekkert
hafa komið fram í öryggis- og
vamarmálum, sem yrði fleygur á
milli flokkanna. Það væri í hróp-
legri andstöðu við grundvallarsjón-
armið Sjálfstæðisflokksins að
ganga til viðræðna við flokka um
frávik frá stefnu flokksins í örygg-
is- og vamarmálum. Ef fulltrúar
Kvennalistans setja þessi mál fyrir
sig, eftir að formlegar viðræður
eru komnar á skrið, er ekki unnt
að jafna því við annað en hrygg-
brot.
í mörgu tilliti er ástæða til að
setja spurningarmerki við Kvenna-
listann, þegar einstök og sérgreind
málefni ber á góma. Kvennalista-
konur hafa einkum viljað skapa sér
þá ímynd, að þær bæm hag þeirra,
sem minna mega sín, fyrir bijósti.
Sjálfstæðismenn og alþýðuflokks-
menn hafa ljáð máls á viðræðum
við þær um að þessum hugmyndum
þeirra verði hmndið í framkvæmd.
Sérfræðingar hafa setið við að
reikna út, hvað tillögumar kosta.
Eigi varnarmálin að verða að eins-
konar skiptimynt í þessum viðræð-
um hljóta sjálfstæðismenn að
hugsa sinn gang og endurmeta
stöðuna. Sagan sýnir, að Sjálf-
stæðisflokkurinn hefur ekki einu
sinni þurft að vera í ríkisstjórn til
að veita viðnám gegn varnarleysis-
stefnu vinstri flokka. Því síður
þarf hann að fara í ríkisstjóm upp
á önnur býti en þau, að viðmælend-
ur hans lýsi yfír stuðningi við
óbreytta stefnu í utanríkis- og
vamarmálum.
Urgangur
ogum-
hverfis-
vernd
*
Adögunum vakti það vemlega
athygli um heim allan, þegar
stjórnendur sorppramma, sem
lagði upp frá New York, gátu
hvergi komist að landi til að losna
við farm sinn. í nágrannalöndum
okkar í Evrópu vex þeim fiskur
um hrygg, sem leggja áherslu á
verndun umhverfis. Smituð af hin-
um alþjóðlegu umræðum beinist
athygli okkar mjög að Atlantshafi
og nágrannalöndum, þegar um-
hverfísvernd ber á góma. í sjálfu
sér er góðra gjalda vert að gera
kröfur til annarra í þessu efni. Hér
eins og endranær mundi þó marg-
ur vandi lagast, ef menn og þjóðir
ræktuðu garðinn sinn með sóma.
Frá því hefur verið skýrt, að
síðastliðinn fimmtudag hætti
Sindra-stál að taka við brotajámi
nema frá þeim, sem samið hafa
um slíka þjónustu við fyrirtækið.
Síðan 1950 hefur Sindra-stál
stundað endurvinnslu af þessu
tagi, en telur sér ekki lengur fært
að standa undir þessari starfsemi
óstutt. Asgeir Einarsson, fram-
kvæmdastjóri Sindra-stáls, segir
að ekki hafi tekist samvinna milli
fyrirtækisins og Samtaka sveitar-
félaga um hreinsun landsins og
endurvinnslu.
Morgunblaðið ætlar ekki að taka
afstöðu til viðræðna Sindra-stáls
og sveitarstjómamanna. Hitt er
ljóst, að hér á landi eins og annars
staðar þarf að standa skipulega
að því að hirða úrgang, brotajám
eins og annað, nýta það sem nýti-
legt er og velja hinu hæfilegan
stað. Gerðar eru vaxandi kröfur
til opinberra aðila í þessu efni.
Geti þeir nýtt krafta einstaklinga
til að vinna verkið fyrir sig skilar
það áreiðanlega bestum árangri.
eftir Ellert Ólafsson
„íslendingar em fremstir allra
þjóða í notkun einkatölva." Þessi
fullyrðing virðist fáránleg við fyrstu
sýn. Hvernig getur fámenn fiski-
mannaþjóð við ysta haf skákað
háþróuðum iðnríkjum eins og
Bandaríkjamönnum og Japönum á
þessu sviði? Svarið við þessari
spurningu er ekki einfalt, frekar
en að skýra í fáum orðum frá því
hvers vegna grísk menning og
vísindi sem lýstu heiminum í tvö
þúsund ár urðu til á tiltölulega
stuttum tíma. Venjuleg rökfræðileg
þrætulist eða hagfræðilegir talna-
leikir sem nú em í tísku duga
skammt til að skýra þetta fyrir-
brigði frekar en annað sem snýr
að mannskepnunni.
Heljarstökkið inn
í nútímann
Eftir stutta hveitibrauðsdaga í
landi elds og ísa, þar sem skógur
óx milli fjalls og fjöm, tóku við
margar dimmar aldir hungurs, eld-
gosa, hafíss og drepsptta fyrir
landnema þessa lands. I ofanálag
bættist við erlend áþján og kúgun.
Teiknaðar myndir og frásagnir er-
lendra ferðamanna sem gistu þetta
land fyrr á öldum sýna ljóslega
hvemig hin vægðarlausa lífsbarátta
mótaði fólkið. En ferðamenn sáu
einnig óvenjulegt líkamsþrek og
baráttuvilja sem einkenndi þetta
dulúðlega fólk. En svo fer að rofa
til á himni tímans, menn eins og
Jón Vídalín, Skúli Magnússon og
Jón Sigurðsson marka brautina til
framfara og frelsis. A þessari öld
kemur svo stóra framfarastökkið.
Þjóðin skríður úr moldarkofunum
inn í vélvæddan nútímann fullan
af tækjum og tólum þar sem raf-
eindatæki og kjarnorkuver eru
hversdagsleg fyrirbrigði. Fyrir
þessa heijuðu þjóð var þetta heljar-
stökk eins hversdagslegt og
áreynslulaust eins og að gömul flík
hefði verið lögð til hliðar og ný tek-
in í staðinn.
Þjóð Snorra, Jónasar
og Laxness
Frá fornu fari hafa íslendingar
dundað við skáldskap sér til gam-
ans og upplyftingar og þótt vel
liðtækir við slíka iðju. Skömmu eft-
ir landnám Islands þurftu Noregs-
konungar að sækja hirðskáld sín til
íslands og enginn skilur hvers
vegna skáldskapurinn dafnaði svo
vel á íslandi en visnaði og kulnaði
í gamla heimalandinu. Kalt veður-
far og klæðaskortur kom ekki í veg
fyrir að fornsögurnar, frumlegustu
skáldverk Norðurlanda voru stung-
in á íslensk skinn. í kulda og myrkri
miðaldanna hefur lestur þessara
bóka vafalaust átt stóran þátt í því
að þjóðin fraus ekki í hel í andlegum
skilningi. Fyrir þjóð sem hefur
skemmt sér við kveðskap frá alda
öðli er tölvutækni og hvers kyns
leikaraskapur með tölvur kærkomin
tilbreyting frá ferskeytlunni og ólíkt
auðveldari viðfangs en sléttubönd
og aðrir dýrir bragarhættir.
Einn er sá hæfileiki sem einkenn-
ir þessa afskekktu eyþjóð í miklum
mæli en það er forvitni, nýjunga-
gimi og lifandi áhugi á framförum
og nýjungum sem eiga sér stað hjá
öðmm þjóðum. Þessi forvitni og
gleðin af að klífa nýja tinda er það
afl sem hvetur einstaklinga til dáða
í atvinnulífi og vísindum.
Islenska tölvuundrið
Á íslandi eru til fleiri tölvur á
íbúa en í öðrum löndum. Þetta gild-
ir sérstaklega um þær tölvur sem
skipta mestu máli í dag,
þ.e.a.s. IBM-PC og eftirlíkingar af
henni og Apple Macintosh. Miklu
mikilvægara er þó að þekking al-
mennings og færni í að nota þessi
tæki eru í algjörum sérflokki hér á
landi. Á stuttum tíma hafa risið
íjölmörg tölvufyrirtæki sem hanna
hugbúnað og veita fyrirtækjum
þjónustu og ráðgjöf á tölvusviðinu.
Innan þessara fyrirtækja er mikið
af frábærlega færum tölvumönnum
og sum þessara fyrirtækja hafa
þegar hafið útflutning á hugbúnaði.
I samkeppni er smáforskot ómet-
Ellert Ólafsson
„I samkeppni er smá-
forskot ómetanlega
dýrmætt. Það forskot
sem Islendingar hafa á
þessu sviði býður upp á
stórkostlega mögnleika
til arðvænlegs útf lutn-
ings á íslensku hugviti
ef rétt er á málum hald-
ið.“
anlega dýrmætt. Það forskot sem
Islendingar hafa á þessu sviði býður
upp á stórkostlega möguleika til
arðvænlegs útflutnings á íslensku
hugviti ef rétt er á málum haldið.
Sennilega er hvergi meiri gróska í
atvinnuvegum hér á landi en ein-
mitt á tölvusviðinu, t.d. má nefna
að heildarvelta hjá Tölvufræðslunni
verður sennilega 20 sinnum meiri
árið 1987 en hún var á fyrsta starfs-
árinu, 1984.
Eftirfarandi þættir virðast hafa
haft mikil áhrif á þá framúrstefnu
sem hér á sér stað.