Morgunblaðið - 26.05.1987, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. MAÍ 1987
43
Tölvukennsla i Oddeyrarskóla.
1. Einkaskólar. Tölvuskólar
hafa verið reknir hér á landi frá
1978, en þá stofnaði Reynir Huga-
son, verkfræðingur, fyrsta tölvu-
skólann hér á landi. Aðrir skólar
sem hafa rekið blómlega starfsemi
eru Tölvuskóli Stjórnunarfélags Is-
lands, Tölvuskólinn Framsýn,
Tölvufræðslan og Tölvuskóli Gísla
J. Johnsen. Skólar þessir hafa kennt
grundvallaratriði við notkun einka-
tölva, forritun og notkun á algeng-
um hugbúnaðarkerfum.
Gróskumikið starf einkaskólanna
hér á landi á sér enga hliðstæðu
erlendis. Um 25.000 manns hafa
sótt þessi námskeið og þáttur þess-
ara skóla í hinum stórstígu fram-
förum á tölvusviðinu er ómetanleg-
ur.
2. Mikið framboð af tölvum
og hugbúnaði. Mikil samkeppni í
sölu tölva og hugbúnaðar hefur
haft jákvæð áhrif, aukið gæðin og
úrvalið og lækkað verðið.
3. Jákvæðar aðgerðir stjórn-
valda. Ekki má gleyma aðgerðum
stjórnvalda í þessu máli. Ragnar
Arnalds, fyrrverandi menntamála-
ráðherra, felldi niður vörugjald af
tölvum, Albert Guðmundsson, eftir-
maður Ragnars í embættinu, felldi
niður bæði söluskatt og toll af þess-
um tækjum. Þessar aðgerðir hafa
flýtt mikið fyrir tölvuvæðingu fyrir-
tækja hér á landi. PC-tölvuvæðing
á skrifstofum er komin lengra á veg
hér en í öðrum löndum. Einnig er
viðurkennt að Steingrímur Her-
mannsson, forsætisráðherra, hefur
lagt þessum málum gott lið.
4. Kostir smæðarinnar. Vegna
smæðar landsins er upplýsinga-
streymi mun greiðara og áhrifa-
máttur ijölmiðla meiri en almennt
er meðal stærri þjóða. Notkun tölva
og kunnátta í að nota þær hefur
orðið að nokkurs konar þjóðarvakn-
ingu og árangurinn er stórkostleg-
ur.
5. Vel menntuð þjóð. Síðast en
ekki síst: Þjóðin er vel menntuð og
stórhuga og þorir að fara nýjar leið-
ir.
Skólakerfið sefur djúp-
um þyrnirósarsvefni
Hin mikla gróska sem á sér stað
í notkun tölva hjá almenningi og í
fyrirtækjum landsins nær ekki inn
í opinbera skólakerfið. Þar hefur
verið ákveðið að sofa sem fastast,
ekki þó í heila öld, en að minnsta
kosti tvö næstu ár til að byija með.
Þar á bæ ríkir stöðnun, úreltur
gamaldagshugsunarháttur og
framkvæmdaleysi. í grunnskólun-
um, mikilvægustu menntastofnun-
um landsins, eru aðeins til örfáar
úreltar heimilistölvur til kennslu.
Gamlar leikfangatölvur, sem venju-
legt fólk hefur lagt til hliðar fyrir
löngu. Þjálfun kennara og námsefn-
ið til kennslunnar er í miklum
ólestri.
Þessi sorgarsaga á þó ekki við
um Verzlunarskólann, en þar ger-
ast nú margir góðir hlutir.
Hinn málglaði og vígfimi mennta-
málaráðherra landsins, Sverrir
Hermannsson, skipaði sl. haust fjöl-
menna nefnd opinberra starfs-
manna til að gera úttekt á
tölvufræðslu í grunnskólum lands-
ins. Eftir margra mánaða starf og
miklar vangaveltur skilaði nefndin
áliti og komst að þeirri stónnerki-
legu niðurstöðu, að nú sé tímabært
að kaupa tölvur á kennarastofurn-
ar! Þessa víðsýnu ákvörðun á síðan
að athuga og endurskoða. eftir tvö
ár og tvö ár er löng stund á bylting-
artímum.
Þó vita allir skólamenn að börn
eiga afar auðvelt með að tileinka
sér þessa tækni og skáka þeim full-
orðnu algerlega á þessu sviði.
Skólakerfið —
hornsteinn vei-
f erðarþj óðf élags
Flestir geta verið sammála um
að íslensk menning standi traustum
fótum. Hin sterka menningararf-
leifð þjóðarinnar verkar eins og
brynvöm á móti þeirri andlegu lág-
kúru og eymd sem berst hingað frá
bandaríska kvikmynda- og
skemmtanaiðnaðinum. Þessi and-
lausa sykurleðja, klædd í smóking
og krydduð með fríðleiksfólki,
skammbyssum og framhjáhaldi, er
almennt álitin algjört rusl í augum
íslenskrar alþýðu.
Flestir Islendingar eru sennilega
tiltölulega ánægðir með skólakerfið
hér á landi þótt skoðanir um ein-
stök atriði séu nokkuð skiptar.
Sá sem þessar línur krotar á blað
hefur áreiðanlega efast meira um
ágæti skólakerfisins og þjáðst
meira af leiðindum í skóla en al-
mennt gerist. Ekki er þó sanngjarnt
að kenna skólakerfinu um þennan
kvilla heldur virðist skýringin frek-
ar vera óvenjulegur veikleiki
undirritaðs fyrir fölleitum og döpr-
um kennurum, en af þeim er enginn
skortur í ríkisgeiranum.
A langri skólagöngu eru mér lang
eftirminnilegastir tveir skólamenn
og hafa þeir gert mér meira gott
en staglið í tugum skólabóka. Ann-
ar þessara heiðursmanna var séra
Eiríkur J. Eiríksson, skólastjóri á
Núpi og síðar þjóðgarðsvörður á
Þingvöllum, en hann gerði Núps-
skóla að miklu menningarsetri með
lýðháskólahugsjón Grundtvigs að
leiðarljósi. A sunnudögum las Eirík-
ur húslestra, sem voru áminningar
og hvatningarorð til nemenda
blönduð með upplestri úr sígildum,
íslenskum bókum. Svo var andagift-
in og innblásturinn mikill að engu
var líkara en að sjálfur Jón Vídalín
væri kominn í pontuna.
Hinn öndvegismaðurinn í skóla-
kerfinu var Þórarinn Bjömsson,
skólameistari Menntaskólans á Ak-
ureyri. Þórarinn var stórkostleg
persóna, fullur af lífi og fyöri, geisl-
andi gáfum og hafði þann stórkost-
léga hæfileika að þora að vera hann
sjálfur hvernig sem á stóð. Hann
hafði undravert næma tilfinningu
fyrir íslensku máli og tungutak
hans var svo blæbrigðaríkt og
glæsilegt að eftir var tekið. Þýðing-
ar hans á frönsku skáldsögunni um
Jóhann Kristófer eftir Romain Rol-
land er skínandi dæmi um afburða-
fæmi hans á þessu sviði. Þórarinn
kenndi undirrituðum latínu og af
hverri kcnnslustund, sem stóð yfir
í 45 mínútur, fóru aldrei meira en
10 mínútur í kennsluna, obbinn af
tímanum fór í frásagnir úr menn-
ingarsögu og bókmenntum heims-
ins. Karlinn var kraftaverkamaður
og gat komið því til leiðar að sá
sem þetta ritar og aldrei hafði get-
að lært tungumál að neinu gagni,
rétt klórað sig upp í þriðju einkunn
með mikill yfirlegu og hóflegu
svindli, hætti að geispa og fór að
taka eftir í tímum. Nú bregður svo
við að málfræði verður allt í einu
opin bók og einkunnirnar tóku stór-
an fjörkipp og urðu síst verri en
hjá öðmm.
Nú eru báðir þessir heiðursmenn
horfnir til feðra sinna, en þeir lifa
áfram í verkum sínum. Skólakerfíð
í dag vantar sárlega menn af þess-
ari stærð. I kennarastéttinni virðist
vanta meira af kraftmiklu fólki með
hugsjónir og dirfsku, sjálfstæðu
fólki sem samþykkir ekki orðalaust
alla vitleysuna sem þeim er rétt
ofan.
Ljós er það
sem koma skal
Stærstu tölvu- og símafyrirtæki
heims eyða nú þúsundum milljarða
íslenskra króna á ári við að þróa
betri tækni við framleiðslu á raf-
eindabúnaði. Framfarirnar á þessu
sviði eru nú ævintýri líkastar. Stór-
merkilegar upgötvanir hafa verið
gerðar í notkun ljóss í staðinn fyrir
rafstraum. Hugmyndin er að fótón-
an komi í stað elektrónunnar og
verði þar með þarfasti þjónninn á
tölvusviðinu. Fótónan verður notuð
til þess að tengja saman rásir, flytja
boð og geyma upplýsingar. Nú þeg-
ar hafa ljósleiðarar verið teknir í
notkun í símakerfum og valda þeir
mikilli byltingu þar. Ameríska stór-
fyrirtækið AT&T hefur þegar
framleitt fyrsta ljóssmárann og eytt
í þetta verkefni rúmlega 20 mill-
jörðum íslenskra króna. Þegar
ljósleiðararnir komast inn í tölvurn-
ar verða þær hundrað til þúsund
sinnum hraðvirkari, eyða nánst
engri orku, eru ekki viðkvæmar
fyrir truflunum af rafsviði og hægt
er að flytja tölvutæk gögn langar
leiðir með litlum tilkostnaði. Nú
þegar eru geisladiskar komnir á
markaðinn. Einn lítill diskur getur
geymt innihaldið úr 250 þúsund
blaðsíðum og bandarísku alfræði-
orðabækurnar eru þegar komnar á
slíka diska. Þessi tækni veldur gjör-
byltingu við geymslu ogríeit gagna.
Miklar framfarir hafa átt sér stað
við framleiðslu á fullkcmnari hálf-
leiðurum en kísil, sem nú er
notaður. A þessu ári munu koma á
markaðinn allmargar 32 bita örtölv-
ur. Byltingarkenndar framfarir eiga
sér nú stað í hönnun á öflugum
hugbúnaðarkerfum, t.d. teiknifor-
ritum og reynslukerfum (Expert
Systems).
Líftími framleiðsluvara verður
stöðugt styttri og samkeppnin er
meiri en nokkru sinni fyrr, t.d. má
nefna að 90% af framleiðsluvörum
tölvufyrirtækisins Digital í Banda-
ríkjunum hafa verið settar á
markaðinn á síðastliðnum 36 mán-
uðum. Þetta sýnir og sannar að
menn verða að hafa augun opin og
fylgjast vel með á þessu sviði.
Tölvutæknin er orðin stór hluti af
umhverfi nútímafólks og þessi nýja
tækni mun eflaust auka framfarir
og velmegun í heiminum á næstu
árum.
Lokaorð
Framundan eru skemmtilegir
tímar, miklar framfarir eiga sér nú
stað í sjávanítvegi, ferðaþjónustu
og fískeldi. Ómengað land, hreint
loft og vatn eru dýrmætar auðlind-
ir í dag.
íslendingar eiga stórkostlega
möguleika á því að hagnst vel á
hinni miklu þekkingu í notkun ör-
tölva sem hér er til staðar. Ef
stjórnvöld og aðilar á vinnumark-
aðnum vinna vel saman er þama
um stórkostlega spennandi verkefni
að ræða. Þjóðin er vel menntuð og
nú loksins fer bókvitið beint í
askana. I þeirri stórsókn til bættra
kjara og framfara sem framundan
er mun tölvutæknin og þekking í
notkun þessara tækja skipta miklu
máli.
Höfundur er forstjóri Tölvu-
fræðslunnar í Reykjavík.
Reykjanes:
Upplyfting í prófunum
Revlganesi.
DJUPBÁTURINN hf. bauð á nemend-
um og starfsfólki Héraðsskólans í
Reykjanesi í skemmtisiglingu um Djúp-
ið á MS Fagranesi og var það vel þegin
tilbreyting í miðjum prófönnunum.
Fyrst var siglt í Vigur. Þar var farið í
land og gengið um eyjuna, myllan skoðuð
ásamt fleiru markverðu og kýr og hænsni
heimsótt. Þá var hópnum boðið í kaffi og
heitar kleinur og voru veitingunum gerð
góð skil. Frá Vigur var farið í Æðey. Var
þá komin rigning og kuldanæðingur svo
lítið varð úr landkönnun þar. Síðan var
haldið heimleiðis. Ferð þessi var hin
ánægjulegasta og mjög fróðleg, sérstak-
lega fyrir þá sem aldrei hafa komið í
Reykjanes nema fljúgandi. Áttu þeir nú
mun betra með að átta sig á hvemig
landið liggur. Vilja allir þeir er fóru þessa
ferð flytja Djúpbátnum hf. bestu þakkir
fyrir höfðinglegt boð og sömuleiðis bænd-
um í Vigur og Æðey fyrír móttökurnar.
— Björg
fáisiii
:iT|íp
iLjtel