Morgunblaðið - 26.05.1987, Side 44
Morgunblaðið/Benedikt
Verkamenn standa á stefni hálfkaraðs bátsins. Hallgrímur Skapta-
son er í miðið.
Smíða 9,9 tonna trébát
Skipasmíðastöðin Vör hefur
nú í smiðum tæplega 10 tonna
trébát með ályfirbyggingu. Þetta
er fyrsti trébáturinn sem smíðað-
ur er í Vör síðan árið 1983.
Hallgrímur Skaptason fram-
kvæmdastjóri sagði að eftirspurn
eftir bátum þessarar stærðar
væri mikil og margir hefðu auga-
stað á tré sem smíðaefni.
„Þetta er kaupandanum síst
ódýrara en stál. Frágangur er sá
sami en að baki liggur mun meiri
vinna," sagði Hallgrímur. „Stálið
er því er mun algengara efni en
tréð. Ég er þeirri þróun mótfallinn.
Stálið gefur tvímælalaust verri sjó-
hæfni, það þarf ákveðna stærð af
öskju úr svo eðlisþungu efni til þess
að hún fari vel í vatni."
Kaupandi bátsins er Armann
Herbertsson á Neskaupstað. Hallg-
rímur sagði að ekki væri búið að
semja um smíði fleiri trébáta, en
margir hefðu kynnt sér málið.
Aðalfundur Slysavarnafélags íslands:
Landhelgisgæslan hafi úr-
slitavald komi upp ágrein-
ingur við björgunarstörf
Slysavarnafélag íslands telur
r.ð tillögur þær sem komnar eru
fram um að sameiginleg yfir-
stjórn sjóbjörgunarstjórnstöðvar
skuli vera í höndum SVFÍ, Land-
helgisgæslunnar og Pósts og
síma. Á aðalfundi SVFÍ, sem
haldinn var í Hrafnagili í Eyja-
firði um helgina, var stjórninni
falið að vinna áfram að sameigin-
legri stjórnstöð þessara aðila.
Þriggja manna nefnd, sem dóms-
málaráðherra skipaði í febrúar sl.,
hefur skilað af sér tillögum. í þeim
er að mati stjómar SVFÍ byggt á
þeim grundvallarsjónarmiðum, sem
félagið hefur lagt áherslu á í við-
ræðum um þessi mál, að hér eigi
hin frjálsu félagasamtök og þeir
opinberu aðilar, sem hlut eiga að
máli, að vinna saman á jafnréttis-
grundvelli.
Mikið var rætt um Slysavama-
skóla sjómanna og útgerð Sæbjarg-
ar. Stjóm félagsins var falið að
kanna hvernig hægt yrði að tryggja
Haraldur Henrýsson, formaöur
Slysavarnarfélags íslands.
tekjuöflun svo hægt væri að halda
áfram því starfi, sem nú er hafið
um borð í skipinu. Stjórnin mun
ræða við stjómvöld og hagsmuna-
aðila sjávarútvegsins um hugsan-
legan stuðning, en til þessa hefur
útgerð skipsins verið rekin með
fijálsum framlögum. Námskeiða-
haldið hefur hinsvegar fengið styrk
frá ríkinu.
Fundurinn lýsti yfir þungum
áhyggjum af öryggismálum smá-
báta, sérstaklega nú með aukinni
útgerð þeirra. Samþykkt var að
fela stjóminni að skipa nefnd til
að huga að þeim málum. Þá var
farið fram á að tækjakostur Land-
helgisgæslunnar yrði tekinn til
gagngerrar endurskoðunar.
Ánægja ríkti með þyrlu Landhelgis-
gæslunnar og þátt hennar í hinum
ýmsu björgunarstörfum. Rætt var
um kaup á fleiri og stærri þyrlum
auk þess sem rætt var um hvort
tímabært væri að huga að endumýj-
un sumra varðskipanna. Til álita
komu kaup á smærri varðskipum,
sem gættu öryggis á grunnmiðum,
sérstaklega með tilliti til aukinnar
smábátaútgerðar. Fundurinn lýsti
áhyggjum yfir því að loftskeyta-
Tveir nýir ritsljórar á Degi
Hermann Sveinbjörnsson verður blaðafulltrúi SÍS
Morgunblaðið/Benedikt Stefánsson
Volkswagen-bifreiðin þar sem hún stendur fyrir utan heimili
Hallgríms.
Fjögur egg í hreiðri
á þaki bifreiðar
Áskell Þórisson og Bragi
Bergmann hafa verið ráðnir
ritstjórar dagblaðsins Dags á
Fiskmarkaður
Norðurlands hf:
Framkvæmda-
sljóri ráðinn
SIGURÐUR P. Sigmundsson,
hagfræðingur, hefur verið ráð-
inn framkvæmdastjóri Fisk-
markaðar Norðurlands hf.
Ákvörðun um ráðninguna var
tekin á stjórnarfundi nýja fyrir-
tækisins í gær og tekur Sigurður
til starfa 10. júlí. Fram að þeim
tíma mun stjómin vinna áfram að
undirbúningi. Sigurður er 30 ára
gamall og hefur starfað sem deild-
arstjóri í sjávarútvegsráðuneytinu
undanfarin ár. Hann er ókvæntur.
Fiskmarkaður Norðurlands
verður til húsa þar sem BSA-
verkstæðið var lengi vel.
DRÖFN Fríðfinnsdóttir opnaði
sýningu á verkum sinum í Dyn-
heimum síðastliðinn laugardag.
Á sýningunni eru 25 klippi-
myndir og átta málverk sem
Dröfn hefur unnið á þessu ári
og síðasta.
Dröfn stundaði nám í einn vetur
í Myndlista- og handíðaskólanum
auk þess sem hún var í fjögur ár
í Myndlistarskólanum á Akureyri.
Akureyri. Hermann Svein-
björnsson, sem verið hefur
ritstjóri Dags síðan 1980, lætur
af störfum í byrjun júní og flyt-
ur suður til að taka við starfi
blaðafulltrúa SÍS, sem Helgi
Pétursson gegndi áður.
í kjölfar ritstjóraskiptanna
munu stöður fréttastjóra og rit-
stjómarfulltrúa verða felldar
niður, en ritstjórar munu skipta
með sér verkum þannig að Bragi
mun hafa umsjón með pólitískum
skrifum blaðsins og Áskell hefur
NÁMSSTEFNA um sorg og
sorgarviðbrögð verður haldin á
fimmtudag, uppstigningardag,
í Glerárkirkju og hefst hún
klukkan 19.00. Þar flytja erindi
Páll Eiríksson geðlæknir, séra
Sigfinnur Þorleifsson sjúkra-
húsprestur, Sigrún Proppé
listmeðferðarfræðingur og
Hún tók þátt í samsýningum norð-
lenskra kvenna árin 1983 og 1985.
Einnig tók Dröfn þátt í samsýn-
ingu í tengslum við M-daga í fyrra
og samsýningu á vegum Lions-
manna á þessu ári.
Sýningin er opin alla virka daga
frá kl. 17.00 til 20.00. Um næstu
helgi verður hún opin frá kl. 14.00
til 22.00 og lýkur henni á sunnu-
dagskvöld.
umsjón með öðmm skrifum blaðs-
ins.
Áskell hefur undanfarið verið
blaðafulltrúi hjá KEA á Akureyri,
en áður var hann blaðamaður á
Degi og á Tímanum. Bragi hefur
undanfarið ár verið ritstjórnarfull-
trúi á Degi. Áður var hann kennari
og síðar blaðamaður á Degi.
Fréttastjóri Dags var Gylfi Kristj-
ánsson, en hann mun taka við
Akureyrardeild DV af Jóni G.
Haukssyni, sem flytur sig suður.
Þóra Karlsdóttir hjúkrunar-
fræðingur.
Eftir erindi þeirra verða pall-
borðsumræður þar sem fyrirspum-
um verður svarað. Námsstefna
þessi er öllum opin og eru Norð-
lendingar hvattir til þess að sækja
hana. Námsskeiðsgjald er 500
krónur og einnig verða seldar veit-
ingar á 100 krónur. Námsstefna
lík þessari var fyrir skömmu hald-
in í Reykjavík.
í fréttatilkynningu frá undir-
búningsnefndinni segir að sorg
þurfi ekki að vera bundin ástvina-
missi eingöngu. Hún geti verið
vegna skilnaðar, vonbrigða eða
sjúkdóma. Þá geta fósturlát,
fóstureyðing eða sjálfsvíg vakið
djúpa sorg, segir ennfremur. í
framhaldi af námsstefnunni er í
ráði að koma á umræðuhópum þar
sem fólk getur komið saman,
skipst á skoðunum og deilt reynslu
sinni með öðrum.
FLJÓTLEGA eftir að Hallgrím-
ur Hallgrímsson á Akureyri tók
Volkswagen-bifreið sína út úr
skúr eftir vetrargeymslu nú í
vor gerði þröstur hreiður á þaki
bifreiðarinnar. Hallgrímur
veitti því þó enga eftirtekt fyrst
um sinn. „Það var ekki fyrr en
frænka mín hríngdi og sagði:
þú ert góður, keyrír um allan
bæ með hreiður á þakinu! Þá
fór ég út og tók eftir þessu,“
sagði Hallgrímur í samtali við
Morgunblaðið.
Hallgrímur á einnig jeppa, sem
hann notar alla jafna aðeins á
vetrum, og þegar hann tók sumar-
bílinn út lagði hann númeraplöt-
urnar af jeppanum inn til geymslu.
„En um leið og ég tók eftir hreiðr-
inu lagði ég fólksbílnum, náði
aftur í númeraplöturnar og keyri
því um á jeppanum nú,“ sagði
hann. Nú eru komin fjögur egg í
hreiðrið og Hallgrímur reiknar
með ungar komi úr eggjunum
fljótlega.
Til að vemda hreiðrið setti
Hallgrímur kassa utan um það og
þrösturinn sér ekkert athugavert
við það. Hann liggur á og er nokk-
uð gæfur að sögn Hallgríms.
Dröfn Friðfinnsdóttir sýn-
ir verk sín í Dynheimum
Námsstefna um sorg
og sorgarviðbrögð