Morgunblaðið - 26.05.1987, Side 46
T*
46
V8CI IAM as HTjnAOUUíIÍM moA.iavujono»/
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. MAÍ 1987
Jarðskjálftarnir á Suðurlandi
Einar Viðar Viðarsson í Ásólfsskála hugar að brotinni styttu og
öðrum hlutum sem féllu niður á gólf í jaðrskjálftanum.
Undir Eyjafjöllum:
Kýrnar bauluðu
hátt í fjósi
Dynur frá fjöllum vegna skriðufalla
Holti undir Eyjafjöllum.
MIKILL gnýr fylgdi jarðskjálft-
anum sem gekk hérna yfir um
hádegi í gær. Gijót hrundi úr
fjöllum, styttur, myndir og blóm
féllu úr liillum og dæmi eru um
vatnsleiðslur sem fóru úr sam-
bandi.
Jóna Guðmundsdóttir, húsmóðir
í Ásólfsskála, sagðist hafa orðið
verulega hrædd því þetta hafi verið
mesti skjálfti sem hún hafi upplif-
að. Það hafi hrunið úr hillum og
þegar hún hljóp út hafi mikill gnýr
fyllt loftið sem virtist eins og koma
úr suðaustri og fara til norðvest-
urs. Kýmar bauluðu hátt í fjósi, fé
hljóp hrætt um og dynur var frá
íjöllum vegna skriðufalla.
Guðjón Ólafsson, oddviti í
Syðstu-Mörk, sagði þetta vera
snarpasta jarðskjálfta sem hann
hefði lifað. Það hefði hrunið úr hill-
um, myndir dottið niður, gömul,
hlaðin útihús, sem ekki væru lengur
notuð, hefðu fallið saman og hita-
vatnskútur færst úr stað og vatns-
lögn úr honum spmngið. Með
fjöllunum hefði verið mikið grjót-
hrun og rykmökkur staðið upp frá
Hrafnagili sem benti til verulegs
gijóthruns þar.
— Fréttaritari
Greinilega mikil hreyf-
ing á jarðskorpunni
- segir Sveinn ísleifsson, sem fór í
eftirlitsflug yfir svæðið við Heklu
„VIÐ sáum að það höfðu fallið
snjóskriður og greinilegt var að
mikil hreyfing hefur verið á jarð-
skorpunni," sagði Sveinn ísleifs-
son, varðstjóri í lögreglunni á
Hvolsvelli, en hann fór í þyrlu
Landhelgisgæslunnar yfir svæð-
ið þar sem jarðskjálftinn átti
upptök sín í gær.
Almannavamir ríkisins ákváðu
að þyrlan, TF-SIF, skyldi send í
eftirlitsflug yfir svæðið, svo auð-
veldara væri að sjá afleiðingar
jarðskjálftans. „Við flugum yfir
svæðið í kringum Heklu og í hlíðum
§allsins höfðu fallið margar snjó-
skriður," sagði Sveinn. „Þá var
einnig greinilegt að hreyfing hafði
verið á snjónum í Vatnafjöllum og
víðar. Þó sáum við hvergi skriðu-
föll eða aurskriður, en við Heklu-
rætur, nærri Trippaflöllum, sáum
við spmngur og vom það einu
merkjanlegu jarðföllin á svæðinu.
Það rýkur alltaf upp úr toppnum á
Heklu en það var ekki sjáanlegt að
hún hefði brætt af sér snjó. Því
þykir mér ósennilegt að fjallið sé
að láta á sér kræla, en um það
verða aðrir að dæma.“
Eftir að þyrlan hafði hringsólað
yfir Heklu var flogið austur með
Jarðskjálftinn fannst mjög
greinilega í Vestmannaeyjum, en
sjaldgæft mun að skjálftar, sem
eiga upptök á Suðurlandi, finnist
greinilega i Eyjum.
Ekki urðu umtalsverðar skemmdir
Eyjafjöllum. „íbúar þar höfðu til-
kynnt að skriður hefðu fallið, en
þær reyndust smáar," sagði Sveinn.
„Þama er jörðin þun- og því hafa
fallandi steinar þyrlað upp þurri
jörð, svo í fjarska hefur fólki virst
sem um stærri skriður hafí verið
að ræða. Það er ekki vitað til þess
að þetta gijóthmn hafi neinu tjóni
valdið, svo þetta fór betur en á
horfðist," sagði Sveinn ísleifsson,
varðstjóri.
í skjálftanum. Steinar hmndu úr
Klifínu og urðu smávægilegar
skemmdir á girðingu af þeim sök-
um. Gert var við skemmdimar
strax. Vamingur féll úr hillum
verzlana.
Vestmannaeyjar:
Hrundi úr Klifinu
Gijóthnullungar sem féllu úr Eyjafjöllum í jarðskjálftanum í gærmorgun. Mori?unbiaðið/Haiidór Gunnarsson
o Upptök jarðskjálfta að styrkleika 6,0
eða stærri á Richterkvarða frá árinu 1700
Heimild: 1981: Þ.E. &G.Ó.I, JARÐSKJÁLFTASVÆÐI (kort).
Fyrir hádegi mánudaginn
25. maí hófst jarðskjálfta-
hrina sem gekk yfir suðurland.
/ Upptök skjálftanna var um
/10-15 km suður af Heklu. Stærsti
skjálftinn mældist 5,8 stig á Ricterkvarða.
Fljótshlíð:
Vatn gusaðist úr
pottum og skepn-
ur tóku á rás
Kirkjulæk, Fljótshlíð.
VATN gusaðist upp úr pottum
og skepnur urðu óttaslegnar og
tóku á rás í jarðskjálftunum sem
komu hér fyrir hádegið i gær.
Gnýr var í lofti og hús nötruðu,
en ekki er vitað til þess að
skemmdir hafi orðið.
Aðalkippurinn kom klukkan rúm-
lega 12.30 í gær. Stóð hann yfír í
tæpa mínútu og var harðastur um
miðbikið. Fréttaritari var staddur í
fjárhúsunum þegar hræringarnar
gengu yfir. Þar lék allt á reiði-
skjálfi, sérstaklega þak húsanna.
Féð var úti en órói kom að því og
fór það strax inn. Á næsta bæ tóku
hross á rás heim að bæ. Svipaða
sögu er frá öðrum bæjum að segja.
I íbúðarhúsinu var verið að elda
mat. Húsið nötraði allt og gusaðist
vatn upp úr pottum sem stóðu á
eldavélinni.
Eggert