Morgunblaðið - 26.05.1987, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. MAÍ 1987
47
Þetta spil nefnist Einmenning'-
urinn og er spil fyrir alla
aldurshópa.
Vörubílarnir sem Leikfangasmiðjan framleiðir eru með sturtu og
fjaðrabúnaði og hveijum bíl fylgir skoðunarvottorð þar sem eigandi
er tilgreindur og bílnúmer.
Þetta kúluspil er keppnisspil. Spilið er með kúlum sem beint
er eftir mismunandi brautum og þannig má safna stigum.
Leikfangasmiðjan framleiðir brúðu-
vagna með gamla laginu fyrir yngstu
börnin.
Leikfangasmiðjan Alda á Þingeyri:
Rauði kross íslands með
leikf öngin í umboðssölu
Þingeyri.
LEIKFANGASMIÐJAN Alda á
Þingeyri færir út kvíarnar smátt
og smátt. Það er nú ekkert út i
loftið Iengur að styðja dyggilega
við bak þessa einkaframtaks
bjartsýnismannanna i leikfanga-
smiðjunni, því nú hefur Rauði
kross íslands tekið leikföngin í
umboðssölu.
í viðtali við Ólaf Oddsson for-
stöðumann Rauða kross-hússins, en
það hús er hjálparstöð fyrir böm
og unglinga sem hvergi eiga höfði
sínu að halla, kom fram að þeir
hafa verið að þróa þessa starfsemi
síðan um áramót. Fyrsta skrefíð var
þátttaka í sýningunni Sumarið ’87
og útgáfa bæklings sem verið er
að dreifa. Ólafur kvaðst vænta góðs
af þessu samstarfí, það væri mjög
gott og virðingarvert að þeim hefði
verið boðin umboðssala þessara
leikfanga og þroskaspila. Rauði
krossinn gerði sér góðar vonir um
tekjuöflun fyrir starfsemina um leið
og það gæti komið Öldunni til góða.
Leikfangasmiðjan er nú að
smíða, auk leikfanganna, húsnæði
fyrir Þingeyrarhrepp sem nefnt er
„Kofi Tómasar frænda“ og ber nafn
höfundar síns Tómasar Jónssonar
en hann gerði frumteikningar að
smíði þessari. „Kofínn" er fyrst og
fremst hreinlætisaðstaða á væntan-
legu tjaldstæði á Þingeyrarodda en
einnig geymsla fyrir íþróttatæki
fyrir íþróttafélagið Höfrung. „Kof-
anum“ er ætlaður staður á íþrótta-
svæðinu við fótboltavöllinn.
Hjá Leikfangasmiðjunni vinna
nú fjórir menn.
- Hulda
Astra ínýtthúsnæði
FYRIRTÆKIÐ Astra hefur flutt I nýtt húsnæði bilskúrshurðaopnurum, hliðum fyrir bílastæði,
í tilefni 10 ára afmælis síns. Nýja húsnæðið er iðnaðarplasthengjum og iðnaðarryksugum
á Austurströnd 8 á Seltjarnarnesi. Astra sér- ásamt fleiru. Myndin er tekin af starfsfólki fyr-
hæfir sig í iðnaðarhurðum, fjarstýrðum irtækisins í nýja húsnæðinu.
Lögmenn — Dómarar
Málþing Lögmannafélags íslands og Dómara-
félags íslands verður haldið laugardaginn 30.
maí nk. að Hótel Valhöll á Þingvöllum. Brott-
för frá Umferðamiðstöðinni kl. 8.30.
Pjallað verður um gæsluvarðhald, sbr. áður
send dreifíbréf.
Þátttaka tilkynnist skrifstofu Lögmannafé-
lagsins í síðasta lagi á morgun miðvikudaginn
27. maí.
Stjórnirnar.
LANDSSAMBAND
IÐNAÐARMANNA
SAMTÖK ATVINNUREKENDA I LÖGGILTUM IÐNGREINUM
Fræðslufundur
um gerð
verkáætlana
í tengslum við fyrirhugað átak í gerð verk- og
verkefnaáætlana efnir Landssamband iðnaðar-
manna til fraeðslufundar.
Dagskrá:
Kl. 13.00 Setning.
Kl. 13.15 Gerð verk- og verkefnaáætlana: Kolbeinn Arin-
bjarnarson, verkfræðingur.
Kl. 14.00 Kaffihlé
Kl. 14.20 Notkun verk- og verkefnaáætlana: Sveinbjörn
Jónsson verkfræöingur, greinirfrá reynslu
íslenskra aöalverktaka af gerð verkáætlana. Sýn-
ing á tölvukerfi fyrir áætlanagerð.
Kl. 15.15 Fyrirspurnir og umræður.
Kl. 16.00 Framhaldsfundur þeirra, sem hafa áhuga á þátt-
töku í átaki í gerð verk- og verkefnaáætlana.
Fundarstaður og Veitingahúsiö Gaukur á Stöng, miövikudaginn
stund: 27. maí, kl. 13.00.
Fundargjald: Kr. 700,- Kaffiveitingar innifaldar.
Skráning: Á skrifstofu Landssambands iðnaðarmanna, sími
621590.
Fundurinn er öllum opinn, en á sérstaklega eríndi til skipasmíðastööva,
stærri vélsmiðja, bygginga- og jarðvegsverktaka, verkfræöinga, tækni-
manna sveitarfélaga o.fl. er hafa verkeftirliti og verkefnastjórn með
höndum.
Kolbeinn Arinbjarnarson er starfsmaöur þróunarsviðs Flugleiöa. Hann
lauk prófi í verkfræði frá Háskóla islands, hóf siöan framhaldsnám í
áætlanagerð og aögerðagreiningu við Stanford háskóla í Kaliforniu og
lauk mastersprófi þaðan.
Sveinbjörn Jónsson er forstööumaöur áltlanadeildar islenskra aöalverk-
taka. Hann hefur próf í verkfræði frá Háskóla islands og M.S. próf frá
University of Michigan, með áherslu á áætlanagerö.
KOSTAKAUP
FULLKOMIN ELEKTR0NISK
SKRIFSTOFURITVÉL
AÐEINS KR. 24.500.00
Til þess að rýma fyrir nýjum gerðum, seljum við nokkrar CE-60
á aðeins kr. 24.500.00 (fyrra verð kr. 37.000.00).
CE-60 hefur flesta kosti fullkomnustu skrifstofuritvéla, svo sem
leiðréttingaminni, síbylju, sjálfvirka endurstaðsetningu, miðju-
stillingu, undirstrikun og pappírsísetningu, ennfremur tuga-
dálkastilli, gleiðritun og þéttritun.
CE-60 hefur reynst fádæma vel. Bilanir nær óþekktar eftir 5
ára sölu. Þetta er vinnuhestur sem þolir mikið álag árum sam-
an. Skynsamleg fjárfesting.
B0RGARFELL, Skólavörðustíg 23, s. 11372.