Morgunblaðið - 26.05.1987, Side 57
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. MAÍ 1987
57
Nokkur orð um bruna
Lystadúnshússins
Lífsreynsla mín
frá 12. maí 1987
Eg átti erindi þennan morgun
á Laufásveg 64 til kunningja
míns, fór að heiman frá mér kl.
10.15, en hafði stutta viðdvöl.
Þegar ég sný að bifreið minni
aftur vestan hússins, stendur vin-
ur minn og velgjörðarmaður,
Hafsteinn Björnsson miðill, á
gangstéttarbrúninni, heilsar mér
alúðlega að vanda, en ég sé þó
að honum er þungt niðri fyrir.
Aður en ég sest í bílinn minn
er klappað á vinstri öxl mína,
þéttingsfast, og ég beðinn um að
hjálpa til, hjálpa Knúti sínum, það
sé áríðandi og ekkert megi hika.
Maðurinn segist heita Lúðvíg E.
Kaaber, fyrrverandi bankastjóri,
og sé ég andlit hans greinilega —
fallega eygður, brúnamikill og
hefur misst hárið verulega en það
sem það er, er það grátt, yfirvar-
arskegg, svipurinn allur hinn
fyrirmannlegasti.
Eg ek og þeir með, Kaaber í
framsætinu og Hafsteinn í aftur-
sætinu. Kaaber vísar leiðina inn
í Barðavog. Þar biðja þeir mig
að bíða, þeir þurfi jarðsamband,
kraft og orku frá mér.
Klukkan er 10.50 — þeir stíga
út úr bílnum og inn í eldhafið.
Reistur er mikill stigi og vímets-
girðing. Kaaber er efst í stiganum
og gerir krossmark yfir húsið
sunnanvert við hið brennandi Ly-
stadúnshús og í gegnum svart
reykský, sé ég eftir krossmarkið
lýsandi eldstólpa. í girðingunni á
milli húsanna er heil herdeild
ósýnilegra hjálpenda, sem veija
af alefli undir stjóm þeirra Haf-
steins og Kaabers.
Þarna var ég bundinn í bílnum,
ósýnilegum, leyndardómsfullum
böndum. Birtist ekki þama máttur
Helgi Vigfússon
hugans yfir efninu. Þama starfaði
hugur góðvina öfluglega að
slökkvistarfi.
Hús það sem þeir Kaaber og
Hafsteinn voru að veija var hús-
næði Sigurplast sem stendur
sunnan við Lystadúnshúsið. Vind-
ur stóð í norður þennan morgun
án þess að hús Sigurplasts
skemmdist nokkuð. Hinsvegar
sást nokkuð á því húsi sem stend-
ur norðan við Lystadúnshúsið
þrátt fyrir að vindur hafi verið
því húsi hagstæður á meðan á
þessum mikla bmna stóð.
Aðaleigandi Sigurplasts er
Knud Kaaber, sonur Lúðvíks Kaa-
ber.
Þessi orð eru skrifuð eftir at-
burðinn, eins og hann kom mér
fyrir sjónir, og vottast hér með
að viðlögðum drengskap.
Helgj Vigfússon,
Bólstaðarhlíð 50.
Reykjavík.
ÞARFT ÞU AÐ
SELJA BÍLINN
ÞINN STRAX?
Blaðið BÍLASALINN kemur út á fimmtudaginn.
Þá mun bíllinn þinn birtast þúsundum áhugasamra
kaupenda um allt suð-vesturland.
VIÐ KOMUM TIL ÞÍN OG TÖKUM MYND AF
BÍLNUM ÞÍNUM OG ÞÚ AFHENDIR OKKUR
TEXTANN EF ÞÚ ÓSKAR.
SKRÁNING í FYRSTA TÖLUBLAÐ STENDUR YFIR
TIL KL. 19:00 Á ÞRIÐJUDAGSKVÖLD.
Hríngdu strax í síma 689990 eða komdu við
á Suðurlandsbraut 22 (sjá kort).
- BLAÐIÐ SEM SELUR BÍLINN ÞINN
Suöurlandsbraut 22 108 Reykjavik
simar 689990 og 687053_______
íf
URVALS ABURÐUR
í hentugum neytendapakkningum.
KALKORN:
Tilbúinn áburður fyrir mat-
jurtagarða. Bætir upp það
næringargildi sem á
vantar. Einnig tilvalinn fyrir
sumarblóm. Fáanlegur í 5
og 10 kg. pokum.
TRJAKORN:
Tilbúinn áburður sérstak-
lega hentugur fyrir tré og
runna. Stuðlar að góðum
vexti og bætir útlit. Fáan-
legur í 5 kg. pokum.
GRASKORN:
Sérstaklega blandaður
áburður fyrir grasflatir.
Heldur jarðveginum nær-
ingarríkum. Fáanlegur í 5
og 10 kg. pokum.
SKELJAKALK:
Áburður fyrir allan
garðinn. Sérlega kalkríkur
og hentar vel íslenskum
jarðvegi. Fáanlegur í 5 kg.
pokum.
BLÓMANÆRING:
Tilbúin áburðarblanda,
sem hentar öllum stofu-
blómum og útiblómum.
Gefur kröftugan vöxt og
stuðlar að heilbrigði
plantnanna. Fáanleg í 'h
og 5 lítra brúsum.
GARÐANÆRING:
Fljótvirkur alhliða áburður
fyrir skrúðgarða. Hentar
vel fyrir blómabeð, skraut-
runna, tré og alla garð-
ávexti. Fáanlegur í 1 kg.
pökkum.
m
AuisinvMiv/mKGMHiiA nkKfilNíj