Morgunblaðið - 26.05.1987, Side 68

Morgunblaðið - 26.05.1987, Side 68
o» 68 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. MAÍ 1987 Kaupir ríkið og Hafnarfjarðarbær St. Jósefspítala ? RAGNHILDUR Helgadóttir heil- brigðisráðherra hefur lagt til að ríkið og Hafnarfjarðarbær kaupi St. Jósefspítala i Hafnarfirði. Að sögn Guðmundar Arna Stefáns- sonar bæjarstjóra er gert ráð fyrir að eignarhluti bæjarins verði 15% en ríkið hefur boðið 130 milljónir króna i sjúkrahúsið. Bæjarstjóm Hafnarfjarðar hefur ekki tekið afstöðu til erindis heil- brigðisráðherra um að spítalinn verði gerður að bæjarsjúkrahúsi að sögn Guðmundar Arna, enda hefur það ekki legið fyrir fyrr en síðustu daga. „Kostnaðarskiptingin miðar að því að spítalinn verði gerður að bæjarsjúkrahúsi og að bærinn beri ábirgð á rekstrinum en spítalinn verður settur inn á fjárlög eins og önnur bæjarsjúkrahús. Aðalatriðið af hálfu bæjayfirvalda er að tryggt sé að spítalinn verði áfram rekinn sem alhliða sjúkrahús en ekki breytt í langlegudeil eða elliheimili en Hafnarfjarðarbær stendur all sæmi- lega að vígi hvað þær stofnanir varðar. Ég á því frekar von á að gengið verði að þessum samningi," sagði Guðmundur. Morg^unblaðið/EG Framkvæmdir eru komnar lengst í Brekkugötu. Þar er búið að grafa rafmagn í jörð, ný götulýsing og byijað á gangstéttum. Á myndinni eru starfsmenn frá Margeiri Elentínussyni að vinna við gangstéttir. Vogar: Kjalarneshreppur: Ottast niengun vegna urðunar á sorpi „ÞAÐ er fyrst og fremst vegna hræðslu við mengun af rusli sem Leiðrétting í grein Halldórs Þorsteinssonar í Morgunblaðinu miðvikudaginn 20. maí sl. var meinleg prentvilla. Þar sagði m.a.: „Ef þið talið eins og þið skrifíð sumir hvetjir, þá held ég, að ég yrði að taka að mér túlk, jafnvel þótt ég kunni nú talsvert í tungumálum." :Þessi setning átti að vera svohljóðandi: „Ef þið talið eins og þið skrifið sumir hveijir, þá held ég, að ég yrði að taka meðmér túlk, jafnvel þótt ég kunni nú talsvert í tungumálum." Morgunblaðið biðst velvirðingar á þessum mistökum. við erum á móti urðun í landi Álfsnes og Saltvíkur," sagði Pet- ur Þórðarson sveitastjóri Kjalar- neshrepps en í lokaskýrslu um sorpeyðingu á höfuðborgarsvæð- inu eru þessir staðir taldir vænlegastir til sorpurðunar í framtíðinni. Pétur sagði að við Saltvík væri kjúklingabú og sláturhús og óttast menn að urðun á sorpi gæti spillt fyrir þeirri starfsemi. „Fyrir nú utan það að þarna er um ákjósanlegt byggingarland að ræða,“ sagði Pét- ur. „Staðurinn er skemmtilegur og alls ekki fýsilegur til að urða þar sorp þó ekki sé nema frá náttúvern- ar sjónarmiði. Hvað Álfsnesið varðar eru íbúar hræddir við meng- un og er mikil andstaða meðal þeirra við urðun á sorpi þar.“ Vegna misviðris á Kjalarnesi sagðist Pétur óttast að ruslið kæmi til með að fjúka um allt áður en næðist að urða það. Hann bendir einnig á að stutt sé á milli fjalls og íjöru og hætta á að mengun komist í grunn- vatnið af þeim sökum. „Það hefur alltaf verið rætt um þessa tvo staði í Kjalarneshreppi, sem hugsanlega urðunarstaði án þess að skoða aðra möguleika en við erum landsárir og viljum ekki spilla landi. Engar formlegar við- ræður hafa farið fram við hreppinn og verður trúlega ekki gert þvi herppsnefndin hefur lýst sig mót- fallna urðun í hreppnum," sagði Pétur. Kjalameshreppur er í sam- starfi við Reykjavíkurborg, sem sér um að urða þeirra rusl á sorphaug- unum í Gufunesi. Stórátak í um- hverfismálum Vogum. í VOGUM stendur yfir stórátak í umhverfismálum. Er þar fyrst að nefna að svo til allt gatna- kerfi byggðarlagsins verður lagt varanlegu slitlagi, gangstéttir lagðar, götulýsing endurnýjuð og rafmagn grafið í jörð. Þá hefur Vilhjálmur Grímsson sveit- arsijóri ritað hreppsbúum bréf og tilkynnt síðustu vikuna í maí sem hreinsunarviku að tillögu fegrunarnefndar. Á síðastliðnu sumri hófust fram- kvæmdir við lagningu bundins slitlags á götur byggðarlagsins, en þar sem ekki tókst að ljúka þeim framkvæmdum á því ári vegna veð- urs verður þeim haldið áfram í sumar. Nýlega hófust framkvæmdir við lagningu gangstétta og verða fyrstu gangstéttir steyptar í þessari viku. Alls verða lagðir 6000 fermetrar af gangstéttum. Verktaki við gang- stéttir er Margeir Elentínusson Keflavik, en verktaki við gatna- gerðina er Loftorka hf. Á vegum Hitaveitu Suðurnesja er unnið að því að leggja rafmagn í jörð, og að setja upp nýja götulýs- ingu. Jafnframt eru gömlu raf- magnsstauramir og loftlínurnar rifnar niður. - EG 1NNLENTV Skorið úr skrúfu á „Hanipiðjutorg-i“ SKIPVERJAR á varðskipinu Óðni voru fengnir til að skera net út skrúfu skuttogarans Hegraness í síðustu viku þar sem skipið var statt um 80 sjómílur vestur af landi á Víkurál. Þar sem skipið var er kallað Hampiðjutorg og dregur svæðið nafn sitt af því að sjávarbotninn er svo ósléttur að veiðarfærin vilja rifna og netabútarnir lenda síðan í skrúfum skipanna. Samkvæmt upplýsingum frá stjómstöð Landhelgisgæslunnar er ekki mikið um að svona hjálpar- beiðnir berist þótt það komi fyrir. Landhelgisgæslumennirnir Benedikt Svavarsson 2. vélstjóri, Halldór Nellet 2. stýrimaður og Haf- steinn Jensson háseti náðu netinu úr skrúfi Hegranessins. Kafari af Óðni kemur upp með netadræsu úr skrúfu Hegranessins. Sjórinn va» spegilsléttur á Hampiðjutorginu. í baksýn sést varð- skipið Óðinn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.