Morgunblaðið - 26.05.1987, Page 69
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. MAÍ 1987
69
Minning:
Fjóla Jónsdóttir
Fædd 20. ágúst 1910
Dáin 16. maí 1987
Laugardaginn 16. maí lést í
Landspítalanum Fjóla Jónsdóttir,
en hún var fædd 20. ágúst 1910 á
Einarsstöðum í Reykjarhreppi.
Okkur langar til að minnast hennar
með fáeinum kveðjuorðum. Hennar
lífsins gangur var erfiður og strang-
ur, vegna sjúkdóma sem hana
hijáðu, sérstaklega hin síðari ár.
En aldrei var æðrast; kjarkurinn
var svo miki'.l og lífsviljinn sterkur.
Eg og börnin mín eigum Fjólu
mikið að þakka sem ekki verður
gert með orðum. Hún bar hag þeirra
fyrir btjósti, kom alltaf færandi
hendi, með sitthvað í plastpoka.
Engan þekki ég sem unni föður-
landi sínu meir en Fjóla og bar allt
sem íslenskt er fyrir bijósti, það
var best og ekki hægt að hnika því.
Fjóla giftist ekki, en ástúð henn-
ar og umhyggja snerust um
bróðursyni hennar og þeirra fjöl-
skyldur, en hún og bróðir hennar,
Jón, voru alla tíð mjög samrýnd,
en hann lést á aðfangadag jóla árið
'81. Það var mikill missir fyrir Fjólu
þótt hún æðraðist ekki, heldur bar
sorg sína með æðruleysi og kjarki.
Hafi elsku Fjóla þökk fyrir allt sem
hún gerði fyrir mig og fjölskyldu
mína.
Hvíl í friði og friður guðs þig
blessi.
„Legg ég nú bæði líf og önd.
Ljúfi Jesú, í þína hönd.
Síðast þegar sofna fer.
Sitji guðs englar yfir mér.“
(H. Pétursson)
Elfa Björns, Heiða Maddý, Björn
Birgir.
í dag er til moldar borin frænka
okkar Fjóla Jónsdóttir Fannborg 1.
Okkur bræðrum hér á Álfhóls-
Björn Brynjar
Gíslason - Kveðja
Fæddur 14. apríl 1968
Dáinn 14. maí 1987
Hann Bubbi, eða Bjöm Brynjar
Gíslason, var kátur og hress er ég
hitti hann á Reykjavíkurflugvelli
nú um páska. Tíminn var ekki lang-
ur til samræðna, en samt tókst
honum að segja mér frá því helsta
er hafði drifið á daga hans síðastlið-
ið ár og því sem framundan var.
Hann var hamingjusamur og bjart
var yfir framtíðaráformum hans. í
júnímánuði ætlaði hann að útskrif-
ast sem stúdent frá norskum
skíðamenntaskóla, en þar hafði
hann verið í þijú ár. Hugur hans
stefndi á áframhaldandi nám. En
skyndilega er hann hrifínn á brott
í blóma lífsins.
Eg kynntist Bubba er ég starfaði
sem skíðaþjálfari hans um tíma.
Hvar sem hann fór var tekið eftir
honum. Hann var mjög áhugasam-
ur, samviskusamur og duglegur
drengur. Aðaláhugamál hans var
skíðaíþróttin, og vann hann þar til
margra verðlauna og titla. Hann
skipaði sæti í unglingalandsliði og
skíðalandsliði Islands.
Tal okkar á Reykjavíkurflugvelli
lauk. Hann fór til ísafjarðar til að
keppa á Skíðalandsmóti Islands sem
einn af keppendum Skíðaráðs Akur-
eyrar, ég fór til Akureyrar. Þetta
var í síðasta skipti er við hittumst.
Bubba vil ég þakka fyrir allt sem
hann kenndi mér, og að ég fékk
tækifæri að kynnast honum, þau
kynni voru gefandi.
Ragga, systkini og aðstandend-
ur: Það er mikil gæfa að hafa átt
jafn góðan dreng og Bjöm Brynjar.
Magga
t
Faöir okkar,
HELGI HÓLM HALLDÓRSSON
múrarameistari
frá ísafirði,
Skipholti 47, Reykjavfk,
lést í Landakotsspítala föstudaginn 22. maí.
Börn hins látna.
t
Konan mín
KRISTÍN HALLDÓRSDÓTTIR,
Böðvarsgötu 10,
Borgarnesi,
lést í spítalanum á Akranesi sunnudaginn 24. maí sl.
Haukur Kristinsson.
t
Eiginmaöur minn, faðir okkar, tengdafaöir og afi,
ÓSKAR GUÐMUNDSSON
frá Vestra-Fíflholti,
Hvolsvegi 27, Hvolsvalli,
andaöist í Sjúkrahúsi Suðurlands laugardaginn 23. maí.
Ingibjörg Jónsdóttlr,
börn, tengdabörn og barnabörn.
vegi 43 langar til að senda henni
nokkur kveðjuorð. Alltaf var hún
svo góð við okkur, vildi í rauninni
allt fyrir okkur gera, þrátt fyrir
heilsuleysi sitt. Stundum þegar hún
kom í heimsókn til okkar gat hún
varla haldið á kaffibollanum fyrir
handóstyrk. En þessi óstyrka hönd
hennar var samt alltaf reiðubúin til
að gefa okkur ýmist góðgæti eða
þá eitthvað sem okkur vanhagaði
um. Alltaf fengum við jólagjafir og
afmælisgjafir frá henni. En það,
sem ég vil allra mest þakka er bar-
átta hennar ásamt fleirum fyrir
lyftunni í skólann minn. Hvorki
sparaði hún tíma né fyrirhöfn til
að þetta mál skyldi vinnast. Og nú
er lyftan komin og ég þarf ekki að
kvíða komandi vetri.
Oft talaði hún um Norðurland
og hvað þar væri fallegt. Hún var
alltaf Norðlendingur þó hún íleng-
dist hér syðra en það var vegna
bróður hennar, sem hún unni svo
mjög. Þessi bróðir hennar var afi
minn og vorum við mjög samrýmd-
ir, ég ber nafn hans og er ég mjög
stoltur af því.
Og nú er Fjóla frænka horfin,
og við Mummi bróðir minn erum
enn svo ungir, við fáum aldrei tæki-
færi til að sýna henni þakklæti
okkar í verki. Við getum aðeins
sent henni hlýjar hugsanir og látið
fjólur á lága leiðið hennar hvert
sumar.
Jón Heiðar Jónsson,
Guðmundur Einar Jónsson.
t
Eiginmaður minn, faöir okkar, fósturfaðir, tengdafaðir og afi,
EGGERT KLEMENZSON,
Skógtjörn,
Álftanesi,
andaöist i Borgarspítalanum sunnudaglnn 24. maí.
Lilja Óskarsdóttir,
Auðbjörg Eggertsdóttir, Bragi Halldórsson,
Klemenz Eggertsson, Ingibjörg Jónasdóttir,
Sigurður Eggertsson, Helga Sigurðardóttir,
Erla Stringer, Gerald F. Stringer
og barnabörn.
t
Móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma,
VIGDÍS JÓSEFSDÓTTIR,
Bárugötu 4, Reykjavík,
lést 23. maí í Landakotsspitala.
Magnús V. Ágústsson,
Edda Jóhannsdóttir,
barnabörn og barnabarnabarn.
t
Móðir min,
ÞÓRDÍS EINARSDÓTTIR STRAND,
Stigahlið 22,
lést 22. maí i Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund.
Einar Strand.
Legsteinar
ýmsar gerðir
Marmorex
Steinefnaverksmiðjan
Helluhrauni 14, sími 54034,
222 Hafnarfjörður
Blömastofa
Fnöfinns
Suðuriandsbraut 10
108 Reykjavík. Sími 31099
Opið öll kvöld
tll kl. 22,- eínnig um helgar.
Skreytingar við öll tilefni.
Gjafavörur.
Laugavegi 61
Blóma- og gjafavöruverslun
Kransar, kistuskreytingar, hvers
konar skreytingar og gjafir.
Gæfan fylgir blómum og gjöfum
úr Stráinu. Opið um helgar.
Sími
16650.
Viljirðu eitthvaö
vandlegafest
veriu & f'ösiu mect
Thorsmans þan-múrboltinn:
Festing fyrir þunga hluti í
steypu. Örugg festing.
3111
. . ’ í - ' |
—
Thorsmans naglatappinn: Plast-
tappi meö skrúfunagla. (Þaö
nýjasta í dag...) örugg festing
í vikurplötur og steinsteypu.
"• < ''Y' «
Thorsmans sjökrækjan. Upp-
hengja fyrir lampa, rör o.fl. í
stein og plötur. Þægilegt —
hentugt.
Thorsmans múrtappinn meö
þanvængjum. Betra toggildi. Til
festingar fyrir þunga hluti
Örugg festing.
Thorsmans-monomax: Festing
fyrir plötur 3-26 mm. Ath. aðrar
gerðirfyrir þykkri plötur.
Jtf RÖNNING
SUNDABORG 15/104 REYKJAVÍK/
SÍMI (91)84000
Lokað
Lokað í dag vegna jarðarfarar SÚSÖNNU M. GRÍMS-
DÓTTUR.
Fatabúðin hf.