Morgunblaðið - 26.05.1987, Blaðsíða 73
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. MAI 1987
73
í Reykjavík, þar sem hann var fast-
ráðinn kennari 1944, en hafði þá
kennt við skólann frá 1927. Auk
þess kenndi hann við ýmsa aðra
skóla og var skólastjóri Kvöldskóla
KFUM í um það bil 25 ár. Sigurður
var mjög góður kennari, látlaus,
skemmtilegur og alúðlegur í allri
framkomu. Sigurður var afkasta-
mikill við ýms ritstörf, svo eftir
hann liggja fjöldi rita og tímarits-
greina. Nokkra bæklinga skrifaði
hann 1933. Ljóðabókin, Til móður
minnar, kom út eftir hann og Ragn-
ar Jóhannesson 1945. Einnig þýddi
Sigurður Qölda bóka og greinar úr
erlendum blöðum og tímaritum.
Ritstori tímaritsins Samtíðarinnar
var Sigurður í fjölda ára.
Kynni okkar Sigurðar eru orðin
nokkuð löng, eða allt frá því að ég
var nemandi hans í Iðnskólanum
1930—1932. Síðan lágu leiðir okkar
aftur saman 1940, er ég hóf
kennslu við sama skóla. Þar vorum
við svo samkennarar í rúm 40 ár,
eða þar til Sigurður lét af störfum
við skólann fyrir aldurs sakir eftir
55 ára starf þar. En mér er kunn-
ugt um það að margir leituðu til
hans eftir kennslu í einkatímum,
með góðum árangri, allt fram á
hans síðustu daga.
Minningamar frá þessum langa
samstarfsferli okkar Sigurðar em
allar á einn veg, eða þannig, að ég
er þakklátur fyrir að hafa átt slíkan
heiðursmann að samstarfsmanni
svo lengi, og hafði margt af honum
að læra, þó að kennslugreinar okk-
ar væm mjög óskyldar. Nákvæmari
eða reglusamari mann í starfí hef
ég ekki þekkt. Ef hann vantaði í
tíma, sem var mjög sjaldan, þá var
Sigurður ömgglega talsvert veikur.
Prófverkefni frá hans hendi lágu
alltaf fyrir með góðum fyrirvara og
vel frá gengin. Við vomm í mörg
ár saman í stjóm Kennarafélags
Iðnskólans og hann lengst af rit-
ari. Ég minnist með aðdáun hins
snyrtilega frágangs fundargerð-
anna, sem hann skrifaði ávallt eftir
framvindu fundarins og las upp í
fundarlok. Þannig vom öll hans
störf unnin, af alúð, án alls fums,
en af sérstakri snyrtimennsku í
hvívetna. Sigurður var glaðlyndur
maður og orðheppinn og átti oft
sérstaklega létt með að koma auga
á hið skoplega er fyrir bar í dagsins
önn. Við starfsfélagar hans nutum
því oft góðrar skemmtunar við að
hlýða á hann segja frá skemmtileg-
um atvikum með sínum sérstaka
framsagnarmáta. Áður fyrr var
samvinnu verkmenntaskólanna á
Norðurlöndum þannig háttað, að á
fimm ára fresti vom svonefnd Yrk-
isskólaþing haldin til skiptis í hverju
landi, til að samræma kennsluna
og að auka kynnin. Þessi þing vom
mjög gagnleg á ýmsan hátt, en sem
því miður lögðust þau niður. Hið
síðasta var haldið hér á landi 1969.
Oft vomm við Sigurður þátttakend-
ur þessara þinga, ásamt eiginkon-
um okkar. Við hjónin eigum því
margra ánægjustunda að minnast
frá þessum tímum, með þessum
ágætu hjónum, því skemmtilegri
ferðafélaga getur maður varla
hugsað sér. Sigurður var afburða
góður upplesari. Hljómaði því hans
ágæta rödd oft í útvarpinu, sérstak-
lega á fyrri ámm. Vildi fólk því
ógjaman gleyma að opna útvarpið,
ef nafn Sigurðar var á dagskránni.
Sigurður kvæntist 1932, Þórdísi
Daníelsdóttur, Þorsteinssonar
skipsmíðameistara og konu hans,
Guðrúnar Egilsdóttur. Hjónaband
þeirra var með afbrigðum farsælt.
Þau vom mjög samhent og bám
gagnkvæma virðingu hvort fyrir
öðm. Þau bjuggu lengst af á Hrann-
arstíg 3 hér í borginni. Þar vom
þeir bræður, Sigurður og Ámi, í
sambýli, þar til Ámi lést. Heimili
þeirra bar vott um að þar bjó fóik
með fágaðan smekk og með þekk-
ingu á innanstoksmunum. Hver
hlutur auðsjáanlega valinn af yfir-
vegun og alls samræmis gætt. Til
að undirstrika það hve hjónin vom
samhent fínnst mér við hæfí að
geta þess hér, að sumarið 1954
hófu þau nám í frönsku á sumar-
námskeiði við Sorbonne-háskólann
í París og stunduðu þau þessi nám-
skeið samfleytt til sumarsins 1960.
Eftir þessi námskeið hafði Sigurður
prófgráðu, sem veitti honum rétt
til að kenna frönsku við hvaða há-
skóla sem var. Frakkland náði
þannig tökum á þeim hjónum, að
þau hafa dvalið þar suður við Mið-
jarðarhafið flest sumur síðan. Og
enn höfðu þau ákveðið að halda á
hinar suðlægu slóðir og sennilega
allt til reiðu þeirri ferð viðvíkjandi,
ef að líkum lætur, er forlögin gripu
svo hastarlega inn í.
Fyrir störf sín hefur Sigurður
hlotið margvíslegar þakkir og heið-
ur. M.a. var hann sæmdur hinni
íslensku fálkaorðu. Einnig hlaut
hann heiðursmerki Iðnaðarmanna-
félagsins í Reykjavík og heiðurs-
félagi í Kennarafélagi Iðnskólans í
Reykjavík var hann búinn að vera
í mörg ár.
Frá samkennurum og öðm
starfsfólki við Iðnskólann í
Reykjavík leyfí ég mér að flytja
Sigurði kveðju og þakklæti fyrir
mjög gott samstarf og ljúfmennsku
á liðnum ámm.
Kæra Þórdís, við hjónin vottum
þér og fjölskyldu þinni okkar inni-
legustu samúð.
Megi minningin um góðan dreng
lengi lifa.
Helgi Hallgrímsson
Við kveðjum nú hinstu kveðju
Sigurð Skúlason magister, Hrann-
arstíg 3 hér í borg. Sigurður var
fæddur í Skálholti 2. febrúar 1903
og var því 84 ára er hann lést hinn
16. maí síðastliðinn. Að stúdents-
námi loknu 1922 lagði hann stund
á íslensk fræði við Háskóla íslands
og lauk þaðan meistaranámi 1927.
Ævistarf Sigurðar varð kennsla
þótt mikið liggi eftir hann í rituðu
máli því hann gaf út tímritið Sam-
tíðina og skrifaði greinar um íslensk
fræði bæði í sitt tímarit og önnur.
í dagblöðum hafa birst ljóð eftir
hann og vitað er að í handraðanum
átti hann talsvert safn fmmsam-
inna kvæða.
Sigurður var einstakur kennari,
ljúfur og nærgætinn og er það lán
hverrar skólastofnunar að hafa
menn á borð við Sigurð í sinni þjón-
ustu. Minni Sigurðar á nöfn og
andlit var með slíkum ágætum að
er hann var búinn að lesa „kladd-
ann“ tvisvar mundi hann öll nöfn í
bekknum og heilsaði hverjum nem-
anda með nafni jafnvel mörgum
áram síðar. Sú saga gekk meðal
nema að Sigurður gæti heilsað tug
þúsunda manna með nafni. Þegar
Sigurður hætti kennslu við Iðnskól-
ann í Reykjavík hafði hann kennt
þar í 52 ár og em því margar kyn-
slóðir iðnaðarmanna sem áttu því
láni að fagna að nema hjá Sigurði.
Á hinum síðari ámm Sigurðar sem
kennara við Iðnskólann kom það
oft fyrir að er hann las upp úr bekkj-
arskrá í fyrsta skipti á námsönn,
nafn manna, spurði hann um nafn
föður og móður og sagði síðan:
„Jú, ég kenndi honum afa þínum.“
Sigurður var einn af stofnendum
Kennarafélags Iðnskólans í
Reykjavík og var ritari þess um
árabil. Sigurður hélt aldrei fram
eigin ágæti og vildi helst vera laus
við allt hrós og viðurkenningar sér
til handa. Þrátt fyrir það var honum
veitt fálkaorðan fyrir embættisstörf
og hann hlaut einnig margvíslega
viðurkenningu frá iðnaðarmönnum
og samkennumm.
Þegar Sigurður hætti kennslu við
Iðnskólann vegna aldursmarka,
sem ríkisstarfsmönnum era sett,
var andleg og líkamleg heilsa hans
enn með ágætum og starfsþrekið
hvergi bugað. Tók hann sér þá fyr-
ir hendur að aðstoða framhalds-
skólanema sem stuðningskennslu
þurftu og varð hann einnig mjög
vinsæll kennari á þessu sviði og
stundaði hann þessa starfsemi fram
til hins síðasta.
Sigurður var kvæntur Þórdísi
Daníelsdóttur og lifír hún mann
sinn. Við kennarar við Iðnskólann
í Reykjavík þökkum Sigurði sam-
fylgdina og vottum eiginkonu hans
okkar dýpstu samúð. Megi minning
hans lifa.
Stjóm KFIR.
t
Faöir okkar,
LEIFUR JÓHANNESSON
frá Þingeyrí,
veröur jarðsunginn frá Fossvogskirkju miövikudaginn 27. maí kl.
15.00.
Ragna Leifsdóttir,
Helga Leifsdóttir.
t
Útför bróöur míns,
SIGURBERGS E. GUÐJÓNSSONAR,
Hátúni 12,
fer fram frá Fossvogskapellu þriöjudaginn 26. maí kl. 15.00.
Blóm vinsamlega afþökkuö, en þeim sem vildu minnast hins látna
er bent á Sjálfsbjörg, félag fatlaöra.
Fyrir hönd vandamanna,
Ragnheiöur Guðjónsdóttir.
t
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug viö andlát og jaröarför
BRYNJÓLFS ODDSSONAR
fyrrverandi bónda á Þykkvabæjarklaustri,
Álftaveri.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Sjúkrahúss Suðurlands, Selfossi.
Guömunda Oddsdóttir,
Gísli Brynjólfsson, Þóranna Brynjólfsdóttir,
Halldóra Brynjólfsdóttir,
Hilmar Jón Brynjólfsson,
Katrfn Brynjólfsdóttir,
Bárður Brynjólfsson,
Oddur Brynjólfsson,
Þurfður Báröardóttlr,
Guðjón Báröarson,
Þórhlldur Bárðardóttlr,
Guðrfður Jónsdóttir,
Jón Hannesson,
Brynja Bjarnadóttir,
Guðgelr Guðmundsson,
Rósa Magnúsdóttir,
Elfn Jakobsdóttlr,
Stefán Nikulásson,
BJÖrg Krlstjánsdóttir,
Jón Ragnar Sœvarsson,
Engilbert Sigurðsson,
Helga Magnúsdóttlr,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Þakkir flyt óg ættingjum og vinum á fslandi sem sýnt hafa mór
samúö og kærleika vegna andlóts eiginmanns mfns,
CARTERS BUNDY,
9. mars sl.
Krfstfn Þór Bundy.
Eiginmaður minn, +
SIGURÐUR SKÚLASON
magister,
Hrannarstfg 3,
veröur jarösunginn frá Dómkirkjunni þriöjudaginn 26. maí kl.
15.00.
Blóm og kransar vinsamlega afþökkuö.
Þórdfs Danfelsdóttir.
+
Eiginkona mín, móöir okkar, tengdamóöir mfn og amma okkar,
SÚSANNA MARÍA GRÍMSDÓTTIR,
Hávallagötu 35, Reykjavfk,
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 26. maí kl. 13.30.
Sveinbjörn K. Árnason,
Stefanfa Sveinbjörnsdóttir, Karólfna B. Sveinbjörnsdóttir,
Erna S. Mathiesen, Einar Þ. Mathlesen,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Alúðar þakkir fyrir auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og
útför eiginmanns míns, fööur okkar, tengdafööur, afa, langafa,
bróður og mágs,
SR. GfSLA BRYNJÓLFSSONAR,
fyrrv. prófasts.
Viljum einnig þakka góða hjúkrun og hlýtt viömót síöustu daga
hans á Landakotssptíala.
Ásta Valdimarsdóttlr,
synir, tengdadætur, börn
og barnabörn,
Katrfn Brynjólfsdóttir,
Guðrún Guömundsdóttir,
Ásta Jóhannesdóttir.
+
Þökkum innilega sýnda samúö og hlýhug viö andlát og útför son-
ar okkar og bróður,
INGVA STEINS.
Sérstakar þakkir til starfsfólks barnadeildar Landakotsspítala fyrir
góða umönnun og vinsemd á liönum ámm.
Ólafur Bjömsson,
Lilja Gunnarsdóttlr,
Snjólaug Ólafsdóttir.
+
Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúð og hlýhug við andlát og
útför eiginmanns míns, fööur okkar, tengdaföður og afa,
RÓSANTS SKÚLASONAR,
Faxabraut 7,
Keflavfk.
Sérstakar þakkir sendum viö læknum og öðru starfsfólki á hjarta-
deild Landspítalans.
Sofffa Gunnlaugsdóttir,
Guðrún Rósantsdóttir, Per Kærsgaard,
Skúll Rósantsson, Guðrún Lára Brynjarsdóttir
og barnabörn.
V.
+
Þökkum hjartanlega öllum þeim sem sýndu okkur samúö og vinar-
hug við andlát og útför fööur okkar,
VÍGLUNDAR MÖLLER,
Kleppsvegi 26.
Guð blessi ykkur öll.
Anna Hersklnd,
Marfa Möller Sfvertsen,
Ragna Möller.
+
Þökkum innilega auðsýnda samúö og hlýhug vegna andláts og
útfarar mannsins míns, fööur og tengdaföður,
ZOPHONIAS AR ZOPHONf ASSONAR,
Aðalgötu 3, Blönduósi.
Guðrún Einarsdóttir,
Zophonfas Zophonfasson, Gróta Arelfusdóttir,
Sigrfður Zophonfasdóttir, Einar Þ. Þorstelnsson,
Kolbrún Zophonfasdóttir, Guðjón Ragnarsson.
Lokað
Lokað eftir hádegi í dag vegna jarðarfarar SÚSÖNNU
M. GRÍMSDÓTTUR.
E. Th. Mathiesen hf.