Morgunblaðið - 05.06.1987, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 05.06.1987, Blaðsíða 1
88 SÍÐUR B STOFNAÐ 19ia 125. tbl. 75. árg. FÖSTUDAGUR 5. JÚNÍ 1987 Prentsmiðja Morgunblaðsins Sri Lanka: Tamílum ber- ast hjálpargögn Varpað úr indverskum flugvél- um yfir Jaffna-skaga Nýju Delhí, Colombo, Reuter. INDVERSKA ríkisstjórnin sendi í gær flugvélar, í fylgd orustu- véla, með vistir og lyf sem varpað var niður yfir Jaffna-skaga á Sri Lanka. Gefið var til kynna að framhald gæti orðið á þessum aðgerðum. Yfirvöld á Sri Lanka, sem snúið höfðu indverskri skipalest frá eyjunni í fyrradag, mótmæltu tiltækinu harðlega og sögðu það íhlutun í innanríkismál sem rætt yrði á vettvangi Sam- einuðu þjóðanna. Indversk stjómvöld sendu skila- boð til ríkisstjómar Sri Lanka rúmlega hálfri klukkustund áður en flugvélamar lögðu af stað. Þar sagði að 25 tonnum af matvælum og lyfjum yrði varpað niður á svæði sem byggt er tamílum og væri þetta gert af mannúðarástæðum. Parið var fram á að her Sri Lanka skyti ekki á vélamar, þar sem flugmenn þeirra hefðu skipanir um að svara í sömu mynt ef á þá yrði ráðist. 35 erlendum og indverskum fréttamönnum var boðið að skoða farangur vélanna og fylgjast með þegar birgðunum var varpað niður. Talsmaður stjómar Sri Lanka, sagði í gær að Junius Jayewardene, forseti eyjarinnar, hefði seint í fyrrakvöld sent Rajiv Gandhi, for- sætisráðherra Indlands, boð um viðræður til þess að finna leiðir, er báðir aðilar gætu sætt sig við, til þess að koma bágstöddum tamílum til hjálpar. Ekki hefði borist neitt svar við þessu boði. Talsmaðurinn gaf ekki skýringu á því hvers vegna her eyjarinnar lét ekki á sér kræla á meðan aðgerðir Indverjanna stóðu yfir. Indverska sendiráðið í Colombo fyrirskipaði í gær öllum Indveijum sem búsettir em í borginni að leita hælis á hótelum í eign Indveija, þar sem búast mætti við hefndarað- gerðum eyjarskeggja. Var því hlýtt, en ekki hefur frést um nein átök. í Nýju Delhí, höfuðborg Ind- lands, vom reistar hindranir umhverfís sendiráð Sri Lanka, þar sem boðað hefur verið til mótmæla- fundar við sendiráðið í dag, en ekki hefur heldur frést um nein átök þar. Sjá „Hvergi hillir undir lausn“ á bls 27. Reuter. Pyntuð afBarbie Réttarhöldunum yfir Klaus Barbie, sem sakaður er um glæpi gegn mannkyninu í síðari heimsstyrjöld, er hann var Gestapoforingi í Lyon í Frakklandi, er haldið áJfram að honum fjarstöddum. í gær kom konan er sést á þessari mynd, Francine Gud- efin, fyrir réttinn og sagði að Barbie hefði sjáifur veitt henni fyrsta höggið er hún var beitt ofbeldi við yfir- heyrslur Gestapo. Gudefin var misþyrmt hrottalega og neydd til að horfa á er bróð- ir hennar fékk svipaða meðferð. Veijandi Barbie, Jacques Verges, hélt því fram í gær að Gudefin hefði orðið tvisaga því hún hefði áður haldið því fram að Þjóð- veijar hefðu ekki yfirheyrt hana á stríðsárunum. Sambandsþingið í Bonn: Uppræting Evrópu- flauganna samþykkt 72 Pershing-flaugar í Vestur- Þýskalandi verði undanskildar Bonn, Feneyjum, Moskvu, Reuter. VESTUR-þýskir þingmenn hafa lagt blessun sína yfir þá afstöðu ríkisstjórnarinnar að undanskilja beri 72 skammdrægar kjarn- orkuflaugar af gerðinni Persh- ing 1A frá hugsanlegu Japanir með í að- gerðum á Persaflóa? Tókýó, Feneyjar. Reuler. YASUHIRO Nakasone, forsætis- ráðherra Japan, útilokaði i gær ekki þann möguleika að stjórn sín myndi leggja til fjármuni til aðgerða er miðuðu að því að tryggja öryggi skipa á Persaflóa. Hann sagðist vilja biða eftir nið- urstöðum leiðtogafundaríns i Feneyjum sem haldinn verður 8.-10. júni nk. áður en hann tjáði sig frekar um málið. í síðustu viku sagði Nakasone að Japanir myndu hvorki leggja til fé né mannafla til að halda siglinga- leiðum á Persaflóa opnum. En í stjómarskrá Japan eru ákvæði er banna landsmönnum að veita öðr- um hemaðaraðstoð. Hefur hann sætt harðri gagnrýni fyrir þessa yfirlýsingu, sérstaklega í Banda- ríkjunum, en Japanir fá um 60% af þeirri olíu sem þeir nota frá Persaflóaríkjum. Ronald Reagan, Bandaríkjafor- seti hefur lýst því yfir að hann muni fara fram á það á fundinum í Feneyjum að fleiri ríki taki þátt í því að veija fijálsar siglingar um Persaflóa. Bretar og Frakkar eru með herskip á flóanum og Sovét- menn hafa aukið flotastyrk sinn þar. samkomulagi risaveldanna um upprætingu kjarnorkuflauga í Evrópu. Tillaga Helmuts Kohl kanslara þessa efnis var sam- þykkt í neðrí deild sambands- þingsins í gær eftir rúmlega fjögurra klukkustunda umræð- ur. Ronald Reagan Bandaríkja- forseti fagnaði þessum málalokum, en sovéska frétta- stofan Tass sagði Kohl kanslara ríghalda i úrelta hugmyndafræði um fælingarmátt kjarnorku- vopna. Flaugar þessar eru í eigu vestur- þýska flughersins, en þær er unnt að búa bandarískum kjamaoddum. Eftir harðar deilur hefur vestur- þýska ríkisstjórnin náð samkomu- lagi um að kreíjast þess að þær verði undanskildar í hugsanlegu afvopnunarsamkomulagi stórveld- Flugvél Rust á Rauða torginu. Réð pólitík ferð Rust? Bonn, Reuter. V-þýska dagblaðið Die Welt sendi í gær frá sér orðsendingu þess efnis, að það hefði áreiðanlegar heimildir fyrir því, að flugmaður- inn Mathias Rust, sem lenti á Rauða torginu í Moskvu á fimmtu- dag, hafi flogið til Sovétríkjanna af pólitískum ástæðum. Sagðist blaðið birta frétt um málið í dag. Sjá „Sovésk hermálayfir- völd...“ bls. 23. anna. Kohl kanslari bar upp form- lega tillögu þessa efnis og var hún samþykkt með 232 atkvæðum gegn 189. Tillaga jafnaðarmanna, stærsta stjómarandstöðuflokksins, um hið gagnstæða var felld með 239 atkvæðum gegn 163. Helmut Kohl kvað ríkisstjómina fylgjandi útrýmingu annarra skammdrægra flauga í Evrópu og hinna meðaldrægu svo framarlega sem stórveldin gengju að þessu skilyrði Vestur-Þjóðveija. íhalds- menn innan flokks Kohls em ekki alls kostar ánægðir með þessi mála- lok. Telja þeir að stjóminni hafi verið þröngvað til að samþykkja samkomulagsdrög fulltrúa risaveld- anna, sem þeir segja að ógni öryggishagsmunum Vestur-Þýska- lands. Jafnaðarmenn gagnrýndu stjómina einnig fyrir að vilja undan- skilja Pershing-flaugamar. Willy Brandt, fyirum kanslari, sagði Pershing-flaugarnar heyra undir Bandaríkjastjóm og sakaði Kohl um að vilja „bjarga andlitinu" með því að leggja slíka áherslu á áfram- haldandi vem þeirra í Vestur- Þýskalandi. Ronald Reagan Bandaríkjafor- seti fagnaði samþykkt þingsins og sagði að með henni hefði verið stig- ið mikilvægt skref í átt til sameigin- legrar afstöðu aðildarríkja Atlantshafsbandalagsins. Sovét- stjómin hefur áður lýst yfir því að hún vilji að samkomulag um Evrópuflaugarnar taki einnig til Pershing lA-flauganna og sagði fréttastofan Tass að afstaða Kohls sýndi greinilega að hann væri mót- fallinn því að kjamorkuvopn yrðu upprætt í Evrópu. Erich Honecker, leiðtogi austur-þýska kommúnista- breitt er WiIIy Brandt gagnrýndi afstöðu hans á þingi í gær. flokksins, kvaðst geta fallist á að flaugamar yrðu áfram í Vestur- Þýskalandi, en kjamaoddana yrði á hinn bóginn að fjarlægja. London: Drukku vín fyrir 3,6 millj. London. Reuter. FJÓRIR starfsmenn vínverslun- ar i London gerðu sér lítið fyrír nýlega og drukku kampavín og léttvín fyrir 60.000 sterlingspund (3,6 millj.isl.kr.). Upp komst um drykkjuna þegar vömtalning leiddi í ljós að birgðir Fortnum og Mason-verslunarinnar vom minni en þær áttu að vera. Lögreglunni var þá tilkynnt um málið og var það upplýst í gær. Talsmaður lögreglunnar sagði að mennimir hefðu valið dýmstu teg- undimar og dmkkið veigamar úr pappaboxum. Þeir hefðu greinilega ekki verið að hugsa um peninga því hægt hefði verið að selja vínið og hafa gott upp úr krafsinu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.