Morgunblaðið - 05.06.1987, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 05.06.1987, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. JÚNÍ 1987 31 Fulltrúar Man- ville heimsækja Kísiliðjuna hf. ÆÐSTU stjómendur Manville Corporation ásamt stjómendum Evrópudeildar fyrirtækisins eru væntanlegir til landsins í tílefni aðalfundar Kisiliðjunnar hf., sem haldinn verður í dag. Kísiliðjan er sameign íslenska ríkisins og nokkurra sveitarfélaga á norðausturlandi og bandaríska Skógardagnr í Hafnar- firði og Garðabæ: Jón í Skuld gefur 120 birkiplöntur SKÓGARDAGURINN í Hafnar- firði er á morgun, laugardaginn 6. júní, og um þessar mundir em einnig 40 ár liðin, frá þvi að Skógræktarfélag Hafnarfjarðar gróðursetti sínar fyrsta plöntur. Af þessu tilefni hefur Jón Magn- ússon í Skuld, sá kunni skógræktar- maður í Hafnarfírði, gefið 120 birkiplöntur og verður þeim valið framtíðarheimili á Blábeijahæð fyr- ir ofan Hafnarfjörð. Verður lagt upp frá íþróttahúsinu við Strandgötu kl. 9.30 á laugardagsmorgni, og hvetur Skógræktarfélag Hafnar- fjarðar og Garðabæjar alla félaga sína og áhugafólk til að slást með í för. (Fréttatilkynning) stórfyrirtækisins Manville Corpor- ation. Meðal fulltrúa fyrirtækisins sem koma til landsins eru G.C. Dill- on stjómarformaður, W.F. Step- hens forstjóri, A.B. Gogh deildar- forstjóri og J.P. Guibert yfírmaður Evrópudeildar fyrirtækisins ásamt fylgdarliði. Þeir munu eiga viðræð- ur við Þorstein Pálsson iðnaðarráð- herra og embættismenn í ráðuneytinu á meðan á dvöl þeirra stendur. Þá er á dagskrá heimsókn í Mývatnssveit og Húsavík þar sem starfsemi Kísiliðjunnar hf. verður kynnt. í frétt frá Kísiliðjunni segir að samstarf hluthafa hafi verið með miklum ágætum. Þrátt fyrir tækni- lega örðugleika í upphafi reksturs, og baráttu við óblíð náttúruöfl, hef- ur fyrirtækið verið byggt upp með góðu samstarfi hluthafa og góðu starfsfólki. Mynd sem tekin var á sjóstangaveiðimótinu í fyrra. Morgunbiaðið/Sigurg. Jónasson Vestmannaeyjar: Fjölmenni á hvítasunnu- mót sjóstangaveiðimanna Veatmannaeyjum. MJÖG mildl þátttaka er í hinu árlega hvitasunnumóti Sjó- stangaveiðifélags Vestmanna- eyja. 108 keppendur víðsvegar að af landinu höfðu tilkynnt þátt- töku, frá Akureyri, ísafirði, Fríkirkjan í Reykjavík: Utimark- aður í dag KVENFÉLAG Fríkirkjunnar í Reykjavik heldur sinn árlega útimarkað í dag, föstudaginn 5. júní, fyrir utan kirkjuna. Allur ágóði af útimarkaðinum verður notaður til framkvæmda fyr- ir kirkjuna. Reykjavík, Sauðárkróki og Vest- mannaeyjum. Mót þetta verður því fjölmennasta sjóstangaveiði- mót sem haldið hefur verið á íslandi. Þetta verður sérstakt afmælismót, en SJÓVE er 25 ára á þessu ári og verður sérlega vandað til mótsins af þessu til- efni. Magnús Magnússon mótsstjóri var inntur eftir undirbúningi móts- ins. „Við erum komin með 108 skráða keppendur og því má sjá að báta- nefndin hefur ekki verið öfundsverð af því að útvega báta fyrir allan þennan fjölda. Við létum konumar um að ræða málin við skipstjóra Eyjaflotans og tókst þeim að leysa þetta verkefni farsællega því allir sem leitað var til voru tilbúnir að veita okkur lið í þessu máli — eins og raunar ævinlega. Hvítasunnumót SJÓVE er orðið landsþekkt og mönnum finnst það orðið að föstum pósti í tilverunni hér í Eyjum. Vegna afmælisins höfum við ákveðið að vanda sérlega til verðlauna á mótinu og fengið til þess góðan stuðning frá mörgum fyrirtækjum í bænum. Félagið hefur látið slá nýja verðlaunapeninga úr gulli og silfri og völundarsmiðurinn Amar Ingólfsson hefur smíðað fyr- ir okkur stórglæsilega verðlauna- gripi. Þessir gripir Amars em hreinustu listmunir og munu vafa- laust vekja mikla athygli,“ sagði Magnús mótsstjóri. Magnús sagði ennfremur að mót- inu lyki með veglegri veislu og balli. Þá sagðist hann hafa fyrir því góð orð Veðurstofunnar að gott veður verði í Eyjum mótsdagana. Annars er það þjóðsaga í Eyjum að sjóstangaveiðimótinu fylgi ávallt slæmt veður, en stangaveiðimenn þræta harðlega fyrir þetta og kenna gjaman golfmönnum um veðrið, en þeir em einmitt með stórmót þessa sömu helgi. Vonandi aflast vel. — hkj. BORGARSKRÁIN í NÝJUM BÚNINGI í ÁR KYNNUM VIÐ EFTIRTALDAR NÝJUNGAR! Götukort og fyrirtæki á Suðurnesjum, Selfossi, Hveragerði, Akranesi, Akureyri og nágrenni. Öll fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu og á ofantöldum þéttbýlisstöðum verða skráð. Fyrirtæki skráð í götu- og númeraskrá. Götunúmer sett inn á kort. Auknar millivísanir. Betri upplýsingar til ferðamanna. Notandinn sparar tíma, fé og fyrirhöfn vegna þess að í GULU BÓKINNI er hann fljótari að finna fyrirtæki og þá þjón- ustu sem hann þarf á að halda. Fyrirtæki fá hér einstakt tækifæri til að kynna betur starfsemi sína og um leið auka þjónustuna við notendur. Eintaki af GULU BÓKINNI verður dreift ókeypis á hvert heimili í landinu, af Pósti og síma fljótt og vel. Aukaeintök verða seld. VVví ' , v nlé' V41 ^ ,M\0 "’.V v>-‘" BE HUN ER el!Li LieLvLL 5\wt á ínátu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.