Morgunblaðið - 05.06.1987, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 05.06.1987, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. JÚNÍ 1987 15 til í Verðlagsráði að sett verði hám- arksverð á rakvélar og filmur og skuli það reiknað út frá því inn- kaupsverði sem tíðkast erlendis. Ef þetta væri gert, mætti lækka rakvélina sem í desemberkönnun- inni kostaði kr. 6.150 í um 4 þúsund og filmuna sem kostaði kr. 533 í um 400 krónur. Frelsið hefur skilað dýrari vöru en ekki ódýrari. Það eru því lág- marksviðbrögð að setja því stífan ramma á þeim sviðum þar sem ósvífnin sker mest í augun. Ef til vill láta þeir félagar Kodak og Philips sér segjast, skammast sín og lækka verðið sjálfir. Ef ekki á að ákveða hámarksverð og láta innflytjandann og framleiðandann bítast um það hvað hvor um sig gefur eftir af sínum bita. Það er hins vegar ekki nóg að ganga til aðgerða gagnvart ósvífn- ustu okrurunum þó það sé eðlileg byijun, það þarf að neyða innflytj- endur til eðlilegra viðskiptahátta. Almennur vöruinnflutningur að olíu frátalinni er ætlaður nærri 40 milljarðar á þessu ári. Hvort sem verðuppbót innflytjenda til erlendu aðilanna er að meðaltali 5%, 10% eða 20% er hún þjóðfélaginu dýr og við hljótum að krefjast þess að innflytjendur geri hreint fyrir sínum dyrum. Höfundur er forseti ASÍ. Náttúruverndarf élag Suðvesturlands; Garðabæjarganga Gengið verður á morgun, laugardaginn 6. júní um Garðabæ í annarri „Umhverfís- gönguferðinni" sem NVSV stendur fyrir til að vekja at- hygli á og tengja saman útivist- arsvæði og byggðakjama sveitarfélaga á Suðvesturlandi. Gangan hefst vð Garðaskóla kl. 9.00 f.h. Gengið verður yfír að hraunjaðrinum og honum fylgt upp undir Vífílsstaði, síðan haldið sunnan Vatnsmýr- arinnar og farið upp í Vífíls- staðahlíðina við Kolanef að skotbyrgi sem þar er frá stríðsárunum. Þaðan verður gengið niður Svínahlíðina að Vífilsstaðavatni. Áfram liggur leiðin upp í Smalaholt fyrir enda Leirdalarins yfír Hnoðraholt sunnan í Nónhæð og niður í Amames. Þaðan með sjónum neðan mógrafanna að Garða- skóla og þar lokast hringurinn. Þátttökugjald er ekkert. Allir hafa tækifæri til að taka þátt í þessari göngu ýmist með því að ganga alla leiðina sem er um 12 km eða koma í hana hvar sem er og vera með í henni lengri eða skemmri tíma. Land- leiðir bjóða upp á að flytja fólk í gönguna kl. 10.10 frá Garða- skóla að Vífiisstöðum og til baka þaðan kl. 10.20 að Garða- skóla. Við fáum marga góða gesti með okkur og til okkar á leið- inni sem munu fræða okkur um náttúmfar svæðisins, sögu, ömefni og fyrirhugað skipulag þess. Þeim sem ekki hafa geng- ið þessa leið áður mun koma skemmtiiega á óvart að hægt skuli vera að ganga í lítt rösk- uðu umhverfi fast við aðal- byggðina. Við hvetjum Garðbæinga að taka þátt í þessari gönguferð til þess að kynna sér skemmti- legar gönguleiðir, fara þær og stuðla að því að þær verði gerð- ar aðgengilegri og snyrtilegri. Munum að við drögum dám af öllu umhverfí okkar, heimilinu, garðinum, vinnustaðnum, göt- unni, hverfínu og sveitarfélag- inu. (Frá NVSV.) SKEIFUNA! OG GIÆSILJEGASTA ns EgUss°nalf . ^ nnun séíSt^^ bíV0f?ð biörtum augum bílakaupeuda. OPIÐ1000. ieð opnun nys ^amtíðannnm ;r viðstóptavmi b j rúmgóðum •rða tú sýms og , SVJZUKi búrmðm par verður emmg , u í biíreiðú, auk Vratntíðar °| unarmiðstoö SÝNINGARSALUR SÍMAR: FIAT 688850, FORD 689633, SUZUKI 689622 essemm sIa

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.