Morgunblaðið - 05.06.1987, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 05.06.1987, Blaðsíða 42
42 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. JÚNÍ 1987 fclk í fréttum Morgunblaðið/Árni Eldri Hólmarar vitja átthaganna að er alltaf gaman og setur sinn svip á tilver- una þegar gamlir og góðir Hólmarar birtast í bænum. Sumir eru þannig gerðir að þeim fínnst ekkert sumar ef þeir skoða ekki gamlar slóðir og fylgjast með framförum þar. Þá er nú hótelið eftir- sóknarvert. Vinsamlega og vel rekið og mikil stoð í bæjarlífínu. Fréttaritari hitti þessa gömlu og góðu Hólmara fyrir utan hótelið um daginn og fannst ekk; koma til mála annað en að taka mynd með kaupstaðinn að baki. Margar minningar vöknuðu og það birti í lofti. Gamlar glæður, það lifír lengi í þeim og atvik liðinna tíma eru lífseig. Hér í Hólminum var manndómstímanum eytt og æskuárin stigin. Þau tóku þátt í því að gera Hólminn að góðum bæ. Það er mikils virði að eiga góða samferðamenn. ^ — Arni Joey Tempest sektaður J oey Tempest, söngvari sænsku hljómsveitarinnar Éurope var á þriðjudag sektaður af sænskum yfírvöldum fyrir að hafa skotið sér undan her- skyldu. Sektarupphæðin er af hærra taginu, eða sem nemur 640.000 íslenskra króna. Ofangreindur úrskurður var kveðinn upp í héraði, en vana- lega eru menn dæmdir í tveggja vikna varðhald fyrir að gegna ekki herkvaðningu. Fallið var frá þeirri refsingu þar sem hann ótti eiga sér nokkrar máls- ætur. Thomas Erdtman, umboðsmaður hljómsveitarinn- ar, bar fyrir réttinum í Strangn- as, skammt austur af Stokkhólmi, að læknir nokkur hefði gefíð í skyn við Tempest að hann væri undanþeginn her- skyldu vegna ofnæmis. Auk þess benti hann á að Tempest hefði verið á hljómleikaferðalagi þegar hann var kvaddur til hinn- ar sjö mánaða löngu herskyldu, en með því væri hann að afla Svíþjóð gjaldeyristekna. Þá benti Erdtman á að Tempest greiddi hærri skatta en flestir Svíar á herskyldualdri og vænt- anlega rynni eitthvað af þeim til varnarmála. Því taldi hann að rétturinn ætti að taka tillit til hinnar sérstöku aðstæðna Tempest og gefa honum færi á gegna herþjónustu síðar, teldu herlæknar hann færan um það. Á þetta blés dómarinn. Sektin þykir mjög há miðað það sem gengur og gerist í Svíþjóð, en var miðuð við himin- háar tekjur Tempests. Þá kom fram í dómsorðinu að hann skyldi gegna herþjónustu síðar Joey Tempest, söngvari Europe. þó ekki væri kveðið nánar á um hvenær það yrði. Hljómsveitin Europe skaust upp á stjömuhimininn í fyrra með laginu „The Final Count- down“ og hefur verið á hljóm- leikaferðalagi um heiminn síðan. Þá má þess geta að hljómsveitin er væntanleg hing- að til lands í sumar. . . .W\ \ ol Engu er líkara en að stúlkan sé með lífstykki um sig miðja, en svo er ekki — aðeins undrafint silki. Baðföt eða nærföt? að er ekk seinna vænna að fara pæla í baðfatatískunni, en þá þarf að meta hversu mikið af holdi eigi að sýna, hvaða líkams- hluta og hvaða ekki. Velta þarf vöngum yfír því hvað skuli verða brúnt og hvað ekki og síðast en ekki síst þarf að hugsa um línumar — hvort þær þarfnist ef til vill ein- hverrar lagfæringar. í Danmörku er kona sem heitir Anne Lise Ravn og hefur að undanf- ömu getið sér gott orð sem hönnuður kvennærfata. Hún saum- ar aðeins úr silki og öðm fíneríi, enda verðið á fatnaðinum eftir því. Fyrir nokkm datt henni í hug að munurinn milli baðfata og nærfata væri ekki ýkja mikill og tók sér það þá fyrir hendur að gera hann enn minni. Útkomuna má sjá hér á síðunni, en fötin — hvort heldur em nærföt eða baðföt em eingöngu úr silki. Það mun vera helsta aðal fa- tanna. Þau em fullkomlega nothæf sem nærföt, en em einnig öldungis stórkostleg baðstrandaklæði. Til þess að auka á hin æsandi áhrif fatanna vom meðfylgjandi myndir teknar við kodda og sængurver. Þetta bikini má hæglega nota sem nærföt, en myndi ekki vekja minni aðdáun á ströndinni en í baðherberginu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.