Morgunblaðið - 05.06.1987, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 05.06.1987, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. JÚNÍ 1987 37 Stjörnii- speki Umsjón: Gunnlaugur Guðmundsson Eins og áður hefur verið getið varpa stjörnukortið og stjörnumerkin aðallega ljósi á upplag okkar. Umhverfí, upp- eldi og tíðarandi hefur síðan áhrif á líf okkar, stundum góð og stundum slæm. Það má því segja að stjömuspeki sé nokkurs konar tæki til að læra að þekkja upplag okkar og ef upplagið hefur ekki fengið að njóta sin, tæki til að hjálpa okkur að fínna sjálf- ið aftur. Upplag Til að koma í veg fyrir að umhverfí eða uppeldi bijóti gegn upplagi okkar þurfíim við að þekkja upplagið og lifa með því. Eg vil taka hér dæmi og nefna atriði sem við þurf- um að gera okkur grein fýrir. Foreldrar Það að foreldrar horfí á þarf- ir bama sinna og þess merkis sem það hefur í höndunum er ekki síður mikilvægt, því þeir hafa afgerandi áhrif á mótun bamsins. Það að viður- kenna hinar ólíku þarfír ólíkra merkja getur hins vegar verið erfítt. Astæðan er sú að hver maður hefur sitt gildismat, sem getur stangast á við gild- ismat og þarfír annars merkis. Það getur verið erfítt að við- urkenna það rétt í fari annarrar manneskju sem er rangt fyrir okkur sjálf. Hvem- ig á Steingeit sem hefur lært að agi og reglusemi dugi vel, að samþykkja frelsisþörf og agaleysi lítilla Bogmanna og Hrúta? Slíkt er erfitt og krefst víðsýni og umburðarlyndis í ríku mæli. Hrútur Við getum Iitið á Hrútinn. Hann þarf að þroska einstakl- ingshyggju sína og ég-vitund. Hann hefur gaman af því að takast á við ný verkefni og þarf stöðugt að hafa spenn- andi markmið framundan. Hrútnum er illa við utanað- komandi aga því oft fínnst honum slfkt stríða gegn sjálf- stæðisþörf sinni. Hann þarf sjálfur að fínna sinn eigin aga innra með sér. Foreldri sem tekur frumkvæði af Hrútnum og lætur hann ekki taka ákvarðanir fyrir sjálfan sig 'bælir upplag hans niður. Hrútur sem þarf að lifa við iangvarandi vanabindingu verður einnig leiður og dauf- ur. A vissan hátt þarf þvi að nvetja hann til að breyta til og fara sínu fram, jafnframt því sem hann er að sjálfsögðu hvattur til að ljúka hverju verki fyrir sig og sýna kurt- eisi. Naut Nautið er jarðbundið merki sem þráir öryggi. Það öðlast oft öryggi ( gegnum það að eiga, að hlaða í kringum sig bókum, bílum, eða öðrum ver- aldlegum hlutum. Þetta er leið Nautsins til að byggja upp sjálfstætt egó og innra ör- yggi. Nú gæti öðrum merkjum fundist slfkt kjánalegt, að safna að sér eignum. Foreldri gæti t.d. talið það meðal æðri dyggða að deila öllu jafnt meðal annarra og það að vilja eiga hluti útaf fyrir sig til eig- ingirni og vanþroska. Þetta foreldri gæti t.d. tekið upp á þv( að ganga að litla Nautinu sitíu, taka af því leikföngin og segja því að gefa yngri bróðir eða bömum í næsta húsi. Með því að setja sitt gildismat ofar þörfum bams- ins á þennan hátt getur foreldrið verið að bijóta niður mikilvæga leið bamsins til þroska og þar með að bijóta gegn upplagi þess. Það er því mikilvægt að hugsa sig um og hugleiða hvort eigin gildis- mat og þarfír séu þær sömu og þeirra sem við eigum sam- neyti við. GARPUR GRETTIR UÓSKA SMÁFÓLK I TH0U6HT HE WAS TALKIN6 ABOUT ME ANP MV 5UPPER PISH.. a . ---- — i ■— Er árin liða verður sam- band margra nánara ... Við lærum að meta hvern annan. Satt er það. Mér finnst að samband okkar hafi aldrei verið nánara__ Ég hélt að hann væri að tala um mig og matardoll- una mína. Umsjón: Guðm. Páll Arnarson Þrátt fyrir slæma tromplegu og óþægilegt útspil er engin- ástæða að gefast upp fyrr en í fulla hnefana: Suður gefur: AV á hættu. Norður ♦ D762 ¥ ÁD1074 ♦ 63 ♦ K8 Suður ♦ ÁK843 ¥K6 ♦ Á1095 ♦ Á4 Vestur Norður Austur Suður — — — 1 spaði Pass 2 työrtu Pass 3 tíglar Pass 4 spaðar Pass 4 grönd Pass 5 tíglar Pass ögrönd Pass 6 tíglar Pass 6spaðar Pass Pass Pass Mjög góð slemma, sem ætti að vinnast á öllum venjulegum dögum. En svo virðist sem þetta sé slæmur dagur. Vestur kemur út með tígulkóng, drepið á ás, og trompásinn lagður niður. Og viti menn, austur fleygir laufí. Hvað er nú til ráða? Þetta spil er skólabókardæmi um jákvætt hugarfar". Þótt skiptingin sé svona slæm í trompinu þarf það ekki endilega að gilda um hina litina. Eina; vonin er sú að hægt sé að spila öllum hjörtunum og fleygja tíglum heima áður en vestur getur trompað. En til þess að það sé hægt verður hann að eiga flögur hjörtu. Og þá er að spila upp á það. Hjartakóngur tekinn og tiunni svínaðl! Auðvitað! Hjartað verður að vera 4-2 og það er helmingi líklegra að gosinn sé með Qór- litnum en tvílitnum. Vestur ♦ G1095 ¥9832 ♦ KDG ♦ D5 Norður ♦ D762 ¥ ÁD1074 ♦ 63 A gR Austur ♦ - ¥ G5 ♦ 8742 Suður ♦G1097632 ♦ ÁK843 ¥K6 ♦ Á1095 ♦ Á4 Þetta er víst greinilega einn af slæmu dögunum. Umsjón Margeir Pétursson Á hinu óopinbera neimsmeist- aramóti í hraðskák sem fram fór í Brussel í Belgíu í síðasta mán- uði, kom þessi staða upp í skák Gary Kasparovs, heimsmeist- ara, og Ljubomirs Ljubojevic, Júgóslavíu. Heimsmeistarinn hafði hvítt og átti leik i stöðunni: 37. Dg6!! og svartur gafst upp, því eftir þennan stórglæsilega leik Kasparovs getur hann ekki varist máti. Skemmtilegasta út- gáfan er auðvitað 37. — fxg6, 38. Rxg6 mát. Kasparov sigraði örugglega á þessu hraðskák- móti. Hann hlaut 17 vinninga af 22 mögulegum. Úrslitin urðu annars þessi: 2. Timman 15 v. 3.-4. Karpov og Ljubojevic 12V2 v. 5. Hubner 12 v. 6.-7. Korchnoi og Short 11 v. 8. Tal IOV2 v. 9.—10. Larsen og Sosonko 8 v. 11. Van der Wiel 7j/2 v. 12. Torre 7 v.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.