Morgunblaðið - 05.06.1987, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. JÚNÍ 1987
49
Gamalt
kvæði
- hver er
höfundurinn?
Margrét Helgadóttir í Botni
lærði þessar vísur af gömlum
manni þegar hún var 79 ára.
Hún dó 1910. Kvæðið var svo
skrifað upp eftir dóttur hennar,
Guðrúnu í Hlöðutúni, af Ragn-
heiði Brynjólfsdóttur.
Ragnheiður leitaði til Velvak-
anda og langar hana að vita hvort
einhver kannast við kvæðið og
viti hver sé höfundur þess.
Vænt er að kunna vel að slá
veiða fisk og róa á sjá,
smíða tré og líka ljá
lesa á bók og rita skrá.
Vænt er að vera valmenni
viljugur með iðninni,
þolgóður í þrautinni
þýðlyndur í umgengni.
Sómi er að siðprúðum
sæla fylgir dyggðugum,
best er vit í bóknámum,
búsæld eykst af hagleikum.
Fallegt er að lesa lðg
og læra fógur nótnadrög,
byggja hús og beita sög,
blessuð stýrir mundin hög.
Gott er að eignast gæðin flest,
góða jörð og sauðfé mest,
góða konu, góðan prest,
góða kú og vakran hest.
Gott er hóf í gleðinni,
geðugt þol í rauninni,
sífelld bæn í sorginni
og sönn guðhræðsla í meðlæti.
Gott er að hafa hyggið þel,
hugamæmi gott ég tel,
en fátt er betra en fara vel
og finna guð með ísrael.
Ofullkomin neyðarþjónusta
jafnframt hjartabilaður. Þegar á
slysadeildina kom fékk hann skjótt
lyfjameðferð í æð og leið honum
mun betur eftir nokkrar mínútur.
Að sögn heimilislæknis míns er það
skaðlegt fyrir hjartasjúklinga að
bíða lengi eftir fyrstu meðferð er
léttir álaginu af hjartanu. Hann
benti einnig á að neyðarbíllinn er
einungis í gangi, þ.e.a.s. mannaður
lækni, virka daga til miðnættis og
þannig veruleg brotalöm í neyðar-
þjónustu borgarbúa. Hann sagði
það yfirlýstan vilja bæjarvaktar-
lækna að neyðarbíllinn verði til taks
allan sólarhringinn eins og önnur
neyðarþjónusta.
Mér skilst að borgarráð hafí ný-
lega tekið afstöðu gegn því að
lengja rekstrartíma neyðarbílsins á
þeirri forsendu að það yrði mikill
viðbótarkostnaður fyrir slökkviliðið.
Slíkt skil ég engan veginn því varlr.
fjölgar sjúkraflutningum við það,
og fyrst hægt er að senda þijá
sjúkraflutningamenn í vitjanir þeg-
ar neyðarbíllinn er ekki í gangi þá
hlýtur að sparast einn maður ef
lækni er bætt við eins og á daginn.
Á sama hátt á ég bágt með að
skilja röksemdafærslu sem að baki
slíkri ákvörðun liggur. Þetta er hið
sama og segja að einungis skuli
reka slysadeild í dagvinnu. Eftir að
hafa lent í þessu ævintýri skynjaði
ég mikla óöryggistilfinningu föður
míns, manns á besta aldri, enda er
svo að það hlýtur að vera óskemmti-
leg reynsla að liggja við köfnun í
um klukkustund. Nú er svo að ég
dvelst mikið úti á landi og þar er
neyðarþjónusta betri að þessu leyti
þannig að ávallt er hægt að fá lækni
heim ef mikið liggur við. í raun
held ég að hér sé verið að horfa í
aurana en kasta krónunni að
íslenskum sið.
Kæri Velvakandi.
Ég á föður á sextugsaldri sem í
vetur leið greindist með kransæða-
sjúkdóm. Fram að þessu höfðum
við ekki þurft á mikilli þjónustu
heilbrigðiskerfisins að halda. Ný-
lega fékk hann þó slæma kransæða-
stíflu. Þetta var að kvöldi frídags.
Ég hringdi á bæjarvaktina en
reyndist læknirinn þá staddur í vitj-
un í hinum enda borgarinnar. Var
mér ráðlagt að hringja á neyðar-
bílinn. Og viti menn, nokkru síðar
kom sjúkrabíll og með honum þrír
sjúkraflutningamenn en enginn
læknir! Sögðu þeir að það yrði að
fara með hann upp á slysadeild til
fyrstu meðferðar og skoðunar. Fað-
ir minn býr ofarlega í gömlu fjölbýl-
ishúsi með þröngum stigagangi og
því fór eðlilega mjög langur tími í
að koma honum út í bíl og upp á
slysadeild. Allan þann tíma var
hann illa haldinn af verkjum og
HEILRÆÐI
Ferðamenn:
Klæðist hlýjum fatn-
aði og hafíð meðferðis
létt hlífðarföt í áberandi
lit.
Foreldrar:
Leiðbeinið bömum
ykkar um klæðnað og
allan nauðsynlegan
búnað til ferðalaga og
útivistar.
. . . og fer voöur V
versnandi með rigningu
og hvassviðri... ^ ’P'w*
Skjótt
skipast
veður í lofti
Þessir hringdu . .
Sýningin á
Yermu
er mikið lista-
verk
Svanur Karlsson hringdi:
„Það er stórkostlegt það sem er
að gerast í Þjóðleikhúsinu núna.
Sýningin á Yermu er mikið lista-
verk þar sem leikur Tinnu rís
hátt yfir allt en enginn fellur í
skuggann. Sviðið í sínum tignar-
lega einfaldleika í töfrabirtu
ljósameistarans. Konumar við ána
köldu, mágkonurnar, María,
kamevalinn, söngkonan, tónlistin
— allt jafn heilsteypt og fágað,
hvergi brotalöm. Maður situr
bergnuminn allan tímann. Magn-
þrungin er spenna orðanna milli
Yremu og Victors. Það má næst-
um sjá neistana hrökkva.
Það er gott að eiga leikstjóra
eins og Þórhildi Þorleifsdóttir sem
gerir hvert stórvirkið af öðru.
Kannski hún komi einhveiju lagi
á leikarana við Austurvöll.“
Veiðitaska
Veiðitaska var tekin við Hlíðar-
vatn í Selvogi fyrir skömmu.
Tapið er tilfínnanlegt í upphafi
veiðitímans. Síminn er 10191.
Kettlingur
Fallegan og stálpaðan kettling
vantar gott heimili. Upplýsingar
í síma 75692.
Armband
Armband tapaðist í mars í Þjóð-
leikhúskjallaranum eða þar í
grennd. Armbandið er mjög breitt,
það er gyllt og með upphleyptu
mynstri af nauti. Finnandi vin-
samlegast hringi í síma 35103.
Fundarlaun.
Rangt að fækka
ferðum
strætisvagna
H.M. hringdi: „Ég vil taka und-
ir grein Ágústu Ragnars sem
birtist í Velvakanda hinn 3. júní
og bar fyrirsögnina Afturför að
fækka ferðum strætisvagna. Ég
tel að full ástæða hefði verið að
fjölga ferðum. Kvartað hefur ver-
ið undan auknum umferðarþunga
í Reykjavík og mun umferð einka-
bíla sjálfsagt aukast enn þegar
dregið er úr úr ferðum strætis-
vagnanna. Það væri nær að fjölga
ferðum og hvetja fólk til að nota
fremur strætisvagninn en einka-
bílinn.“
Afturföraðfækka
líerðumstrætsvagl
2ju„ SUwV*r*g<» W
IsSSVSSSiítf:
I ótngg. » Z.
Tfert. A* Ak. .* h-r a
fynnlittur.
Raf lagnaefni í úrvali!
Dósir — rör — vír — tenglar - rofar —
og allt sem þarf í töfluna.
Lampar — heimilistæki!
Loftljós — kastarar — fluorisent lampar.
Ryksugur—kaffivélar — brauðristar o.fl.
Rafvélar — Handverkfæri!
Mótorla alternatorar — Fam ryksugur. Hobart
rafsuðuvélar og vír - borvélar - slípirokkar -
jpilá bíla og ýmis handverkfæri í úrvali.
HaukurogÓlafurhf.,
Ármúla32,
108 Reykjavík,
sími 37700.
Málmiðnaður
Námskeið í
tilboðsgerð
Félag málmiðnaðarfyrirtækja efnir til nám-
skeiðs um tilboð í málmiðnaðarverk dagana
11. og 12. júní í aðsetri félagsins á Hverfis-
götu 105, Reykjavík. Námskeiðið hefst kl.
13.00 fyrri daginn og lýkur kl. 16.00 þann
síðari.
Fjallað verður í fyrirlestrum og með verklegum
æfingum m.a. um útboðslýsingar, undirbún-
ing og söfnun gagna, tilboðgerðina sjálfa,
gerð verk- og greiðslusamninga, framkvæmd
verksins og eftirlit með niðurstöðum og
hvernig þær eru nýttar til söfnunar kennitalna.
Námskeiðsgjald er kr. 5.200.- fyrir hvern
þátttakanda frá aðildarfyrirtækjum FMF|/en
kr. 5.800.- fyrir aðra. Innifalin eru ítarleg nám-
skeiðsgögn og kaffi.
Þátttöku ber að tilkynna eigi síðar en 9.
júní á skrifstofu félagsins ísíma 91-621755.
frábœrir í fríitf!
H E I L DS A L A :
sportvöruþjónustan
EIKJUVOGUR 29 -104 REYKJAVÍK - SÍMI 687084
Aðstandandi