Morgunblaðið - 05.06.1987, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 05.06.1987, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. JÚNÍ 1987 Morgunblaðið/Ól. K. M. Sigurður Helgason stjórnarformaður Flugleiða virðir fyrir sér málverkið sem Gunnar Ragnars afhenti félaginu fyrir hönd Akureyrarbæjar. Akureyrarbær færði Flug- leiðum málverk að gjöf Brekkuhlaupið haldið á morgun HIÐ árlega Brekkuhlaup, sem er fastur liður í lífi Akureyringa, fer fram næstkomandi laugardag, 6. júní og hefst það kl. 13. Það er verslunin Garðshorn sem stendur fyrir hlaupinu og hefur einnig gert það síðastliðin tvö ár. Auðunn Þorsteinsson verslunar- eigandi sagðist búast við allt að 500 þátttakendum eins og í fyrra. Skráning er í versluninni Garðshomi og verða allir sem ætla að vera með að láta skrá sig fyrir kl. 12 á laugardag. Þá strax verða rásnúmer afhent. Númerin eru líka happdrættismiðar og verður hjól, sem Skíðaþjónustan gefur, í vinning. Sem fyrr verða átján bikarar í verðlaun handa þremur efstu í hverjum flokki. Flokkar verða þrír, 0 til 8 ára, 9 til 11 ára og 12 til 14 ára, skipt í drengja- og stúlknaflokka. Allir keppendur fá svo gos frá Sana og sælgæti frá Lindu að loknu hlaupi. A meðan á hlaupinu stendur mun Jóhann Hjartarson stór- meistari tefla fjöltefli við alla þá sem áhuga hafa. Taflið hefst kl. 13 og verður telft á túninu við Garðshom. Skráning fer fram á staðnum. Einnig munu fallhlífa- stökkvarar dreifa karamellum yfir túnið og skemmtidagskrá verður fyrir yngsta fólkið sem María Axfjörð frá Leikfélagi Húsavíkur mun sjá um. í KVÖLDVERÐARBOÐI Flug- leiða á Hótel KEA í fyrrakvöld, Norræn heimilis- iðnaðar- sýning í Amtsbóka- safninu NORRÆN heimilisiðnaðar- sýning verður haldin í Amtsbókasafninu á Akur- eyri dagana 6.-15. júni. Þetta er farandsýning norrænu heimilisiðnaðar- samtakanna, sem fyrst var sett upp í Kuopio í Finn- landi I júlí á síðasta ári og hefur síðan farið um öll Norðurlöndin. Sýningin kemur til Akur- eyrar frá Reykjavík. Yfírskrift hennar er vöruþróun í heimilis- iðnaði frá hugmynd til fullmót- aðs hlutar. Sýningin verður opnuð kl. 17,00 á morgun, laug- ardag, og er það félagið Nytjalist sem hefur tekið að sér að sjá um sýninguna á Akur- eyri. Hún verður opin alla virka rídaga frá kl. 14.00 til 20.00 og kl. 14.00 til 22.00 um helgar. þar sem minnst var fimmtíu ára afmælis atvinnuflugs á íslandi færði Gunnar Ragnars forseti bæjarstjómar Akureyrar félag- inu málverk að gjöf. Sýnir það Waco-sjóflugvél Flugfélags Ak- ureyrar, TF-ÖRN, á Pollinum með þá Agnar Koefoed Hansen flugmann og Gunnar Jónasson flugvirkja innanborðs. Þeir flugu vélinni til Akureyrar 15. maí 1938, ári eftir að flugfélagið var stofnað. Öm Ingi málaði myndina og hafði til hliðsjónar ljósmynd af atburðin- um. Þá em húsin í baksýn máluð í þeim litum sem þau em talin hafa borið á þessum tíma eftir bestu vit- und manna. „Það eina sem við vomm ekki vissir um var himininn, en eins og sjá má er hann á mik- illi hrejrfingu. Ég leit út um gluggann áðan og sá að það var að birta til eftir heldur þungbúinn morgun. Má það heita táknrænt að strax þegar afmælisgestimir vom komnir til Akureyrar fór að létta til,“ sagði Gunnar þegar hann af- henti Sigurði Helgasyni stjómar- formanni málverkið. Sveinn Ævar Stefánsson, Elín Kjartansdóttir og Baldvin Hreinn Eiðsson í hlutverkum sínum í leikriti Jónasar og Jóns Múla Árna- sona, Allra meina bót. Starf smannaf élag sambands verksmiðjanna: Sýnir „Allra meina bót“ í Félagsborg - eftir þá bræöur Jónas og Jón Múla Árnasyni Starfsmannafélag verksmiðja Sambandsins á Akureyri hefur að undanförnu æft leikritið „AUra meina bót“ eftir þá bræð- ur Jónas og Jón Múla Arnasyni og frumsýnir það annað kvöld, laugardagskvöld, i Félagsborg. Leikstjóri er Skúli Gautason. Sjö leikarar taka þátt í sýningunni. Það má telja næsta sjaldgæft að starfsmannafélög fyrirtækja setji upp leikþætti, hvað þá Ieiksýningar í fullri lengd. Þetta var tíðkað áður fyrr hjá sambandsverksmiðjunum á Akureyri en lagðist af fyrir nær fjörutíu ámm. Starfsmannafélag verksmiðja Sambandsins ákvað í vetur að efna til leiklistarnámskeiðs fyrir félags- menn. Þetta gafst vel og var ákveðið í framhaldi af því að setja upp leiksýningu. Fyrir valinu varð gamanleikritið „Allra meina bót“. Leikurinn gerist á ríkisspítalan- um hjá konungi íslenskra skurð- lækna, dr. Svendsen, sem lætur engan mann óskorinn frá sér fara. Inn á sjúkrastofuna berst meðal annars eltingaleikur rannsóknar- lögreglunnar við forhertan fjár- glæframann og ástin er aldrei langt undan. Fjöldi söngva er í verkinu og em margir þeirra landsmönnum að góðu kunnir, svo sem „Augun þfn blá“ og „Það er meðal annars það sem ekki má“. Ámi Ingimund- arson leikur undir á píanó. Skúli útskrifáðist úr Leiklistar- skóla íslands vorið 1986 og hefur verið fastráðinn hjá Leikfélagi Ak- ureyrar síðan. Auk þess setti hann upp leikritið „Pæld’í’ðí" sem leik- klúbburinn Saga sýndi í Dynheim- Akureyri's Museum Minjasaínið á Akurcyri Minjasafnið á Akureyri, Aðalstræti 58, hóf sumarstarfsemi sína 1. júní. Opið daglega frá kl. 13.30. - 17.00. Ljósmyndasýning í tilefni af 25 ára af- mæli safnins, opnar laugardaginn 6. júní kl. 15.00. og er opin í sumar. Forstöðumaður. Tónleikar í tónlistarskól- anum í kvöld PÍANÓNÁMSKEIÐI Martins Berkofsky við tónlistarskólann á Akureyri lýkur með þvi að sjö þátttakendur á námskeiðinu leika á tónleikum i sal tónlistar- skólans í kvöld. Tónleikamir hefjast kl. 20.00 Þetta er Qórða námskeiðið þar sem Martin Berkofsky leiðbeinir og hafa nemendur komið víða að, með- al annars erlendis frá. Allt bendir til þess að hlé geti orðið á þessum árlegu námskeiðum um sinn þar sem þau Martin Berkofsky og Anna Málfríður Sigurðardóttir, píanóleik- ari og eiginkona hans, eru að flytjast til útlanda. Martin Berkofsky. um í vetur. Hann sagði í samtali við Morgunblaðið að það gerði fólki gott að taka þátt í slíkum sýning- um. Það bæði þroskaði málkennd manna og færði þeim aukna trú á sjálfa sig. Þá hefðu verkstjórar ver- ið afar liðlegir við leikarana vegna æfíngatíma og eins væri til allt af öllu í verksmiðjum Sambandsins, hvort sem það væri skófatnaður, leikmynd eða búningar. Skúli sagð- ist ganga með þann draum í maganum að endurvekja áhugaleik- • listarstarf starfsmannafélagsins. „Slík starfsemi er aðeins af hinu góða og lyftir atvinnumennskunni heilmikið upp á við. Því meiri sem áhuginn er á leiklist, því traustari verður uppbygging atvinnuleikhúsa í landinu." Persónur og leikendur í verkinu eru: Dr. Svenson: Sveinn Ævar Stefánsson, Andrés ofskomi: Amar Pétursson, Halla hjúkrunarkona: Elín Kjartansdóttir, Stórólfur rann- sóknarlögreglumaður: Eiður Stef- ánsson, Pétur: Baldvin Hreinn Eiðsson, hjúkranarkonur: Sigríður Þórðardóttir og Hólmfríður Mar- grét Hauksdóttir. Sýningar verða flórar nú í Félagsborg, en hug- myndin er að taka leikritið aftur til sýninga að hausti. Frumsýningin á laugardagskvöld hefst kl. 20.30. Onnur sýning verður þriðjudaginn 9. júní kl. 20.30, þriðja sýning laug- ardaginn 13. júní kl. 20.30 og fjórða sýning sunnudaginn 14. júní kl. 15.00.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.