Morgunblaðið - 05.06.1987, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 05.06.1987, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. JÚNÍ1987 5 Morgunblaðið/Ámi Sæberg Á þessari mynd er verið að hlaða áburðarvélina Pál Sveinsson með áburði á Reykjavíkurflugvelli, en vélin tekur um 4 tonn af áburði. Áburðarflug á Reykjanesskaga ÁBURÐARFLUGIÐ með flugvélinni Páli Sveinssyni hófst síðastliðinn þriðjudag og hefur dreifingin undanfarna daga verið á landgræðslu- svæðinu á Reykjanesskaganum. „Við dreifum þama samtals um 100 tonnum af áburði og grasfræi og er þetta landgræðslustarf hluti af landgræðslu- og landvemdará- ætlun, sem samþykkt var á Alþingi í byijun þessa árs, og er miðuð við fimm ára tímabil, til ársins 1991," sagði Sveinn Runólfsson, land- græðslustjóri, í samtali við Morgun- blaðið. „Sveitarfélögin á Suðumesj- um taka virkan þátt í kostnaði við þessa framkvæmd auk þess sem verktakar í Keflavík hafa lagt mál- inu lið,“ sagði hann ennfremur. Landgræðsulstjóri sagði að áburðarvélin Páll Sveinsson hefði dreift á þetta landgræðslusvæði frá Reykjavík síðan árið 1979 og væri þessi landgræðslustarfsemi í sam- ræmi við þá meginstefnu að dreifa sem mest í nágrenni við þéttbýlis- svæði á landinu. Hann gat þess einnig að þetta svæði væri alfriðað fyrir búfjárbeit. „Við teljum að þetta starf á Suðumesjum hafi ver- ið mjög árangursríkt, enda veitti ekki af þar sem gróðurfarslega séð hefur Reykjanesskagi verið í slæmu ástandi um langt skeið," sagði Sveinn Runólfsson, landgræðslu- stjóri. 0 Fegurðarsamkeppni Islands hefst í kvöld: Keppendur leystir út með góðum gjöfum FEGURÐARSAMKEPPNI Is- lands 1987 hefst í kvöld í veit- ingaliúsinu Broadway með kynningu á keppendunum tiu. Auk þess verður valin vinsælasta stúlkan, sem þáttakendur velja sjálfar úr sínum hópi og blaða- ljósmyndarar útnefna ^ bestu ljósmyndafyrirsætuna. Úrslita- keppnin fer svo fram á mánu- dagskvöld og verða þá krýndar Fegurðardrottning Islands og Fegurðardrottning Reykjavíkur. Undirbúningur fyrir keppnina hefur staðið í um það bil tvo mán- uði og hafa keppendur stundað þjálfun í líkams- og heilsurækt, framkomu og tjáningu enda er til mikils að vinna. Fyrir utan þá veg- semd sem titlunum fylgja gefst sigurvegurum kostur á þáttöku í fegurðarsamkeppnum á alþjóða- vettvangi og með því geta opnast möguleikar fyrir sýningarstörf úti í heimi. Fegurðardísimar verða auk þess leystar út með góðum gjöfum og má nefna að sigurvegari keppninn- ar fær að gjöf frá fyrirtækinu Gull og silfur á Laugavegi, hring úr hvítagfulli, skreyttan átján demönt- um sem hver um sig er eitt karat. Þetta er módelgripur að verðmæti um 150 þúsund krónur. Þá mun Eggert Jóhannsson feldskeri gefa fegurstu stúlkunni blárefsjakka, Seiko-umboðið gefur fegurðar- drottningum íslands og Reykjavík- ur gull- og silfurúr, Markus Tískuhús gefur fegurðardrottningu íslands samkvæmiskjól frá þýska fyrirtækinu Amarotico og Ferða- skrifstofan Útsýn gefur öllum stúlkunum tíu sólarlandaferð að verðmæti 35 þúsund krónur hver. Að auki fá þáttakendur gjafir frá 15 öðrum fyrirtækjum. Sjá nánar um undirbúning stúlknanna fyrir keppnina á bls. 20 og 21. Morgunblaðið/Bjami Mikill undirbúningur Hggur að baki þáttöku í Fegurðarsamkeppni íslands. Hér eru tvær stúlknanna í talkennslu hjá Gunnari Eyjóifs- syni leikara.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.