Morgunblaðið - 05.06.1987, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. JÚNÍ 1987
Fjórða frjálsa útvarpsstöðin:
Sljarnan sækir hug-
myndir til hlustenda
ÚTVARPSSTÖÐIN Sfjarnan hóf
útsendingar kl. 14.00 í gær. Stöð-
in er í eigu Þorgeirs Astvaldsson-
ar, Jons Axels Ólafssonar og
Gunnlaugs Helgasonar sem
mynda dagskrárstjórn, auk Ólafs
Laufdal og auglýsingastofunnar
Ljósra Punkta. Stjaman sendir
út allan sólarhringinn á FM-
bylgju 102,2. Nást útsendingar
hennar um allt Faxaflóasvæðið,
á Suðurnesjum og Snæfelsnesi
að hluta.
„Stöð sem sendir út allan sólar-
hringinn hlýtur að byggja dag-
skrána á tónlist að miklum hluta,"
sagði Hafsteinn Vilhelmsson fram-
kvæmdastjóri aðspurður um
dagskrárstefnu Stjömunnar. „Við
gerum okkur grein fyrir því að þessi
útvarpsstöð nýtur ekki þess með-
byrs sem Bylgjan hafði í upphafí.
Við leggjum þvi allt kapp á að
brydda upp á nýjungum, jafnt í
fréttatímum og þáttargerð.
Á næstunni opnum við símsvara
þar sem hlustendur geta lesið inn
skoðanir sínar á stöðinni og tillög-
ur. Það verður mikið kapp lagt á
að ná til hlustenda með öllum ráðum
og sækja hugmyndir um dagskrána
frá þeim.“
Aðstandendur stöðvarinnar, full-
trúar annarra fjölmiðla og þáttak-
endur í Fegurðarsamkeppni Islands
voru meðal þeirra sem safnast
höfðu saman í húsakynnum stöðv-
arinnar við Sigtún í gær til að vera
vitni að þessum tímamótum. Jón
Axel Ólafsson sem stjómaði fyrstu
útsendingunni hafði vaðið fyrir neð-
an sig, fyrstu mínútur dagskrárinn-
ar höfðu verið festar kirfilega á
segulband kvöldið áður. Hans beið
því ekki annað en að_ ýta á hnapp
til að ræsa tækin. Á meðan gaf
Þorgeir Ástvaldsson sér tíma til að
líta yfir handrit fyrsta dagskrárliðs-
Morgunblaðið/Júlíus
Aðstandendur Stjörnunnar: Helgi Rúnar Óskarsson dagskrárgerð-
armaður, Þorgeir Ástvaldsson, Hallur Leópoldsson markaðsstjóri,
Jón Axel Ólafsson, Gunnlaugur Helgason og Hafsteinn Vilhelms-
son framkvæmdasljóri sem situr. Jón, Þorgeir og Gunnlaugur
eru hluthafar í Sljömunni og mynda dagskrárstjóra.
ins, þætti þar sem útvarpsmenn
Stjömunar voru kynntir hlustend-
um.
Þegar fímm mínútur lifðu af
fjórtándu klukkustund dagsins beið
stór áhorfendahópur við glugga
talstofunnar. Einhver spurði
áhyggjufullur hvort klukkan á
veggnum væri ekki örugglega rétt.
Ýmsir vildu staðfesta að svo væri,
„Það tókst...“, Sljaraan er
kviknuð. Jón Axel og Gunn-
laugur fallast í faðma en Helgi
Rúnar fyglist með.
en spyrill talldi þó öruggara að inna
„Frú klukku" eftir þessu. Klukkan
reyndist hárrétt.
Á slaginu tvö stöðvaði útsending-
arstjórinn síbylju sem hljómað hafði
á útvarsbylgjunni síðan í morgunsá-
rið og kveikti á segulbandinu.
Kynningarstef stöðvarinnar fór út
á öldur ljósvakans og að því búnu
söng Ríó-tríóið lag Jóns Múla Áma-
sonar um fröken Reylqavík.
Fimmta útvarpsrásin sunnan heiða
var tekin til starfa og fjórða
„fijálsa" útvarpsstöðin.
VEÐURHORFUR í DAG, 05.06.87:
YFIRLIT á hádegi í gær: Meðfram austurströnd Grænlands er
hæðarhryggur sem þokast austur. Yfir Skandinavíu er 1000 milli-
bara nærri kyrrstætt lægðarsvæði.
SPÁ: Fremur hæg noröaustanátt um mest allt land. Smáskúrir á
suður- og suövesturlandi en þokubakkar á annesjum noröanlands.
Annars staðar skýjað en þurrt. Hiti á bilinu 10 til 15 stig sunnan-
lands en 6 til 11 stig fyrir norðan.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
LAUGARDAGUR og HVÍTASUNNUDAGUR: Hæg breytileg átt og
hlýtt yfir daginn inn til landsins en svalara við ströndina. Víöast
bjart veður og þurrt um allt land.
TÁKN:
Heiðskírt
Léttskýjað
Hálfskýjað
Alskýjað
/, Norðan, 4 vindstig:
' Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
r r r r Rigning
r r r
10 Hitastig:
10 gráður á Celsíus
\J Skúrir
V Él
— Þoka
= Þokumóða
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
’, ’ Súld
OO Mistur
—j- Skafrenningur
Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að fsl. tíma
Akureyrl hlti 10 veöur alskýjað
Reykjavfk 10 skúr
Bergen 15 léttskýjað
Helsinki 11 rignlng
Jan Mayen 3 rignlng
Kaupmannah. 12 þokumóða
Narssarssuaq 7 alskýjað
Nuuk 4 alskýjað
Osló 16 léttskýjað
Stokkhólmur 16 skýjað
Þórshöfn 9 skýjað
Algarve 28 helðskfrt
Amsterdam 18 skýjað
Aþena Barcelona 21 vantar þokumóða
Berlín 15 súld
Chicago 13 léttskýjað
Feneyjar 20 rigning
Frankfurt 16 skúr
Hamborg 16 skúr
Las Palmas 28 helðskfrt
London 16 skúr
LosAngeles 16 léttskýjað
Lúxemborg 15 alskýjað
Madrfd 26 léttskýjað
Malaga 33 helðskfrt
Mallorca 29 léttskýjað
Miami 27 skýjað
Montreal 18 skýjað
NewYork 16 rigning
Parfs 18 skúr
Róm 12 skýjað
Vín 21 úrkomafgr.
Washington 21 þokumóða
Winnipeg 12 skúr
Utanríkisráðuneytið:
Vonbrigðum lýst
við þýsk sljómvöld
vegna hvalamálsins
SENDIRÁÐ íslands í Bonn hefur
afhent þýska utanríkisráðuneyt-
inu orðsendingu, þar sem
ráðuneytinu er þakkað fyrir af-
skipti þess af því, að nýlega var
aflétt kyrrsetningu hvalkjöts-
farmsins í Hamborg. Jafnframt
er lýst vonbrigðum ríkisstjórnar
íslands yfir því málamiðlunar-
samkomulagi milli þýskra
ráðuneyta, sem lagt var til
grandvallar við afhendingu
farmsins til Eimskipafélags ís-
lands.
í orðsendingunni er á það bent,
að lagt hafi verið fram vottorð
íslenskra stjómvalda, sem ríkis-
stjóm íslands hljóti að ætlast til
að vinveittar ríkisstjómir virði.
Valdi það miklum vonbrigðum að
slíkt hafi ekki verið gert.
Þessu næst er bent á, að hvorki
hafí umrædd sending átt að fara á
markað í Þýskalandi, né hafi átt
að flytja hana yfír þýskt land-
svæði. Eingöngu hafí átt að
umskipa henni í japanskt skip í
fríhöfn. Um slíka höfn hljóti, að
áliti íslendinga, að gilda sú regla
að svæðið sé, í lagalegum skiln-
ingi, ekki innan landamæra hlutað-
eigandi ríkis og afskipti af
vömsendingum þar hljóti því að
takmarkast við að forða hættu-
ástandi. Nú hafi hins vegar komið
í ljós, að þýsk stjórnvöld telji sig
geta beitt öllum þýskum lögum og
reglugerðum um vörusendingar í
fríhöfnum og jafnframt geti ein-
stakir hópar framkvæmt þar sínar
„rannsóknir". Þessar staðreyndir
hljóti óhjámkvæmilega að vekja
vissa athygli skipafélaga.
Loks segir í orðsendingunni, sem
afhent var í Bonn, að með hliðsjón
af því, sem þar hafi verið rakið, sé
það skoðun ríkisstjómar íslands,
að hvorki sé réttmætt að íslenska
skipaféíagið né eigandi farmsins
þurfi að bera geymslukostnað í
Hamborg eða aukakostnað vegna
viðbótarflutnigns.
Skarfur seldi
fyrir 4,6
milljónir.
SKARFUR GK seldi 93 tonn í
Grímsby í gærmorgun.
Uppistaða aflans var þorskur, en
einnig eitthvað af ýsu og ufsa.
Meðalverðið var 49,06 krónur og
fengust samtals 4,6 milljónir króna
fyrir aflann.
Borgaraflokkurinn:
Helena hætt sem
framkvæmdastjóri
Landsfundur fyrirhugaðar í haust
HELENA Albertsdóttir hefur
hætt störfum sem framkvæmda-
stjóri Borgaraflokksins að eigin
ósk og hefur nýr framkvæmda-
stjóri ekki verið ráðinn, sam-
kvæmt upplýsingum sem
Morgunblaðið fékk á skrifstofu
flokksins í gær.
Fyrsta kjördæmafélag flokksins
var stofnað formlega í gærkvöldi í
Hafnarfirði. Verið er að undirbúa
stofnun slíkra ráða um allt land og
er fyrirhugað að halda landsfund
Borgaraflokksins í september í
haust, þar sem formaður og vara-
formaður flokksins verða kjömir.
Flokkurinn hefur flutt aðalskrif-
stofu sína í Reykjavík frá Sigtúni
7, þar sem kosningaskrifstofa
flokksins var, að Hverfisgötu 82,
3. hæð.