Morgunblaðið - 05.06.1987, Side 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. JÚNÍ 1987
Hallgrímskirkja:
efni af vígsluári
myndlist, leiklist og níu tónleikar
KIRKJULISTAHÁTÍÐ í tUefni af vígsluári Hallgrímskirkju er
hefst á morgunn, laugardaginn 6. júni. Framkvæmd hátíðarinn-
ar er í höndum Listvinafélags Hallgrímskirkju og Mótettukórs
Hallgrímskirkju. Að sögn Harðar Áskelssonar, organista, sljórn-
anda Mótettukórsins mun ætlunin vera að halda slíka hátíð á
tveggja ára fresti, eða þau ár sem ekki er haldin Listahátíð í
Reykjavík. Tildrögin að hátíðinni, sem stendur í átta daga,
sagði Hörður að væru stórauknir möguleikar til listastarfsemi
í kjölfar vígslu kirkjunnar. Aðaláherslan hefur verið lögð á
kirkjutónlist, en einnig verður boðið upp á myndlist og leiklist.
Alls verða haldnir níu tónleikar
á hátíðinni, fimm aðaltónleikar og
femir hádegistónleikar. f forkirkj-
unni verður sýning á verkum Snorra
Sveins Friðrikssonar. Eru það tíu
vatnslitamyndir sem Snorri málaði
við §óra Passíusálma, númer 32,
35, 44 og 45, en þeir sálmar §alla
um krossferð Krists og dauðann á
krossinum. Þá mun Leikhúsið í
kirkjunni verða með sérstaka auka-
sýningu á leikritinu um Kaj Munk,
föstudaginn 12. júní, klukkan
20.30. Helgihaldið verður með ijöl-
breyttu sniði, enda tengist hátíðin
einni af aðalhátíðum kirkjunnar,
hvítasunnunni.
Setning og opnunartón-
leikar
Hátíðin verður opnuð laugardag-
inn 6. júní, klukkan 17.00, með
flutningi óratóríunnar „Jesúpassía"
eftir Oskar Gottlief Blarr. Um 200
manns taka þátt í flutningi órato-
ríunnar, Kór Neanderkirkjunnar í
D“usseldorf, sem telur 80 manns,
60 manna Skólakór Kársness, Sin-
fóníuhljómsveit íslands, málmblás-
arar úr Lúðrasveitinni Svanurinn
og sex einsöngvarar. Tveir íslenskir
söngvarar taka þátt í óratoríunni,
þeir Viðar Gunnarsson, bassi, sem
fer með hlutverk Krists og Magnús
Þ Baldvinsson, bassi, sem syngur
hlutverk æðstaprestsins.
Höfundur óratoríunnar, Oskar
Gottlieb Blarr, stjómar flutningi
hennar. „Hann fæddist í Austur—
Prússlandi, en lærði kirkjutónlist
og slagverksleik í Hannover," sagði
Hörður. „Hann hefur leikið orgel-
verk inn á margar hljómplötur,
einkum eigin umskriftir á verkum
annarra höfunda og hlotið verðlaun
fyrir. Á síðustu árum hafa tónsmíð-
ar orðið fýrirferðarmeiri í störfum
hans og hann hlotið margs konar
viðurkenningar.
„Jesúpassían" var samin eftir
eins árs dvöl Blarrs í ísrael, þar sem
hann safnaði þjóðlegum stefjum og
varð fyrir miklum áhrifum f um-
hverfí landsins helga. Texti verks-
ins er bæði úr ritum Gamia
Testamentisins og Guðspjöllunum,
auk ljóða eftir núlifandi ljóðskáld
og er að mestu leyti á hebresku."
Vortónleikar Mótettu-
kórsins
Mótettukórinn verður með
tvenna tónleika, með tveimur ólík-
um efnisskrám. Kórinn er nú að
ljúka fimmta starfsári sínu. Hann
hefur til þessa haldið sína árlegu
vortónleika í Kristskirkju. Á fyrri
tónleikunum í Hallgrímskirkju, sem
verða haldnir mánudaginn 8. júní,
klukkan 17.00, syngur kórinn ein-
göngu kórtónlist án undirleiks, þar
Mótettukór Hallgrímskirkju. Stjómandi Hörður Áskelsson
á meðal nokkrar þeirra raddsetn-
inga við sálma Hallgríms, sem
kórinn hefur sungið frá upphafi.
Auk þess verða sungnar motettur
eftir rómantísku tónskáldin Brahms
og Mendelssohn og fjórar mótettur
eftir Aaron Copland. Þá flytur kór-
inn Ave Maria eftir Hjálmar H
Ragnarsson og að síðustu verður
frumflutt nýtt verk eftir Gunnar
Reyni Sveinsson, „Fyrir þitt friðar-
orð,“ en það verk samdi Gunnar
Reynir í tilefni vígslu Hallgríms-
kirkju yfir sálminn „Jesú, mín
morgunstijama."
Seinni tónleikar Mótettukórsins
eru Bach—tónleikar, laugardaginn
13. júní. Þar verða fluttar tvær
mótettur fyrir tvo kóra og einsöng-
skantötu, emð undirleik kammer-
sveitar. Einsönginn syngur Margrét
Bóasdóttir. Mótettumar sem
sungnar verða em, „Der Geist hilft
unsrer Schwachheit auf“ og „Singet
dem Herm ein neues Lied.“ í þess-
um verkum er Mótettukómum skipt
Björn Steinar Sólbergsson, orgelleikari
Úr sýningu Leikhússins í kirkjunni á Kaj Munk
Listahátíð í til-
íslandsvinur hlaut
Pulitzerverðlaun
Reuter
Richard Eder við ritvél sína á skrifstofunni í JBoston.
BANDARÍSKI blaðamaður-
inn og bókmenntagagnrýn-
andinn Richard Eder, sem nú
starfar sem aðalbókmennta-
gagnrýandi Los Angeles
Times hlaut nýverið Pulitzer-
verðlaunin fyrir störf sin á
liðnu ári. Eder er sérstakur
íslandsvinur og hefur skrifað
af einskærum skilningi og
næmleik um ísland, íslenska
menningu og tungu, eins og
Matthías Johannessen rit-
stjóri Morgunblaðsins benti á
í grein sinni, Bréf til vinar:
Af list og peningum, sem birt-
ist í Morgunblaðinu 6. mars
sl. Þar segir Matthías m.a.
um Eder: „Hann hefur nýlega
skrifað einhvetja innlifuð-
ustu grein um ísland sem ég
hef lesið eftir erlendan blaða-
mann. Það eru fáir útlendir
blaðamenn sem hafa þetta
land í fingurgómunum."
Richard Eder var um margra
ára skeið fréttamaður The New
York Times víðs vegar um heim-
inn. Hann skrifaði um valdatöku
Kastro á Kúbu frá Kúbu, og
átti við Kastro löng einkaviðtöl.
Hann var einnig í Tékkósló-
vakíu 1968 og víðar hefur hann
verið á staðnum, einmitt á þeim
tíma sem nútímasagan var að
gerast.
Eder var yfírmaður fréttasot-
fu New York Times í París frá
1978 til 1982, en snéri þá aftur
til Bandaríkjanna, eftir margra
ára fjarveru.
„Ég snéri mér að bók-
mennta-, leikhús- og kvik-
myndagagnrýni eftir að ég snéri
aftur til Bandaríkjanna og starf-
aði sem slíkur hjá The New
York Times, en áður hafði ég
sinnt slflcum störfum, í hluta-
starfi. Ég gerði mér fljótlega
grein fyrir því að ég vildi ein-
ungis starfa á þessu sviði,
þannig að fyrir Qórum árum
síðan þá flutti ég mig um set
og hóf störf hjá Los Angeles
Times," sagði Eder í stuttu sam-
tali við Morgunblaðið. Hann
fluttist þá til New York, en
þaðan til Boston, þar sem hann
er nú búsettur.
Hann er nú aðalbókmennta-
gagnrýnandi Los Angeles
Times, og ritar gagnrýni um
tvær bækur á viku, sem hann
velur sjálfur úr mörgum tuga
bóka sem honum berast i viku
hverri. Hann ritar einungis um
alvarlegar bókmenntir og ljóð-
list. Eder var spurður hvort það
hefði komið honum á óvart að
honum hlotnaðist þessi mesti
heiður sem blaðamaður eða
gagnrýnandi getur fengið í
Bandaríkjunum: „Nei, ég get
nú ekki sagt að þetta hafí kom-
ið algjörlega flatt upp á mig,“
segir Eder og hlær við. Valið
fer þannig fram að það er fjöl-
miðillinn sjálfur sem maður
starfar hjá, sem velur til tilnefn-
ingar ákveðinn starfsmann og
sendir síðan 12 sýnishom af
verkum þeim sem unnin hafa
verið á árinu á undan. Það sem
gerðist hjá mér var að Los
Angeles Times útnefndi mig
annað árið í röð til þess að keppa
um þessi verðlaun. Síðastliðið
ár þá vladi Pulitzemefndin mig
í hóp þeirra þriggja sem lokava-
lið stendur um og nú varð ég
hlutskarpastur. Auðvitað er ég
ósköp ánægður með þessa við-
urkenningu, en það er nú ekki
eins og líf mitt taki stórkostleg-
um stakkaskiptum við þetta,"
segir Eder og er hinn rólegasti,
þrátt fyrir þá viðurkenningu
sem honum hefur hlotnast.
Eins og kemur fram hér að
ofan í tilvitnun í grein Matthías-
ar Johannessen birtist í vetur í
L.A. Times grein um ísland eft-
ir Eder. Hann var staddur hér
á landi í efnisöflun á sl. sumri
og hefur ritað tvær greinar um
land og þjóð síðan. Hin síðari
mun birtast í bandaríska tíma-
ritinu Signature innan skamms,
skreytt fjölda fagurra litmynda
héðan.