Morgunblaðið - 05.06.1987, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 05.06.1987, Qupperneq 13
veor twt'ti p <T>ir'í!'TTTrr’5>r>'a mrrt Trn/n'»9(o*/ Sf MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. JÚNÍ 1987 13 Frá æfingn Sinfóníuhyómsveitar íslands á Jesúpassíu, undir stjóm Oskars Gottlieb Blarr Margrét Bóasdóttir, söngkona Manuela Wiesler, flautuleikari Hörður Áskelsson, orgelleikari og Inga Rós Ingólf sdóttir, sellóleikari í tvo kóra og eru þetta lokatónleik- ar hátíðarinnar. Orgeltónleikar Bjöm Steinar Sólbergsson, org- anisti Akureyrarkirkju, heldur orgeltónleika þriðjjudaginn 9. júní, klukkan 20.30. Bjöm stundaði org- elnám í Tónskóla þjóðkirkjunnar. Hann var síðan við orgelnám í eitt ár í Róm og ijögur ár í París og lauk þaðan einieikaraprófí á síðasta ári. Á tónleikunum í Hallgríms- kirkju leikur hann verk eftir barokkhöfundana Dietrieh Buxte- hude, Pierre du Mage og Johann Sebastian Bach á tíu radda Frobe- nius—orgel kirkjunnar. Einleikstónleikar Manuelu Wiesler Flautuleikarinn Manuela Wiesler verður með tónleika fímmtudaginn 11. júní, klukkan 20.30. „Þetta er perlan á hátíðinni," sagði Hörður, „því það er alltaf mikill viðburður þegar Manuela,_ sem er búsett í Svíþjóð, spilar á íslandi. Hún kemur sérstaklga til íslands, frá Salzburg, vegna þessarar hátíðar." Á tónleik- unum leikur Manuela eingöngu einleiksverk, þar á meðal 32 til- brigði eftir barokktónskáldið Marin Marais og verk eftir Vagn Holmboe. Hádegistónleikar Alla virka daga hátíðarvikunnar verða hádegistónleikar klukkan 12.30, í kirkjunni. Þriðjudaginn 9. júní leika Ásgeir Steingrímsson á trompet og Marteinn H Friðriksson á orgel. Miðvikudaginn 10. júní leika þau Hörður Áskelsson á orgel og Inga Rós Ingólfsdóttir á selló. Fimmtudaginn 11. júní verða tón- leikar Ann Toril Lindstad, orgelleik- ara, og föstudaginn 12. júní spila fímm málmblástursleikarar sem kalla sig Hljómskálakvintettinn. Aðgangur að hádegistónleikum er ókeypis. Helgihald hátíðarinnar Helgihald í Hallgrímskirkju verð- ur með fjölbreyttasta móti meðan á hátíðinni stendur. Á Hvítasunnu- dag verða tvær hátíðarmessur. í fyrri messunni, klukkan 11, syngja Mótettukór Hallgrímskirkju og Kór Neanderkirkjunnar í D“usseldorf mótettuna „Der Geist hilft unsrer Schwachheit auf“ og í síðari mes- sunni klukkan 14.00 sjmgja Sólrún Bragadóttir, sópran og Bergþór Pálsson, barítón, einsöng. Á annan í hvítasunnu syngur þýski kórinn meðal annars kórverk eftir Mend- elssohn og Oskar Gottlieb Blarr leikur á orgel. Daglegt helgihald, eða tíðasöng- ur, verður virka daga. Tíðasöngur er fluttur á ákveðnum tíðum dags- ins, eða sólarhringsins. Er þá sungin bænagjörð með ritningalest- ir. Uppistaðan í tíðasöngvum eru Davíðssálmar og söngurinn, eða lagið, er gregorssöngur. Sem fyrr segir, verður tíðasöngurinn alla virka daga klukkan 18.00 og á miðvikudagskvöldið, klukkan 20.00 verður sunginn náttsöngur. „Mig langar að koma þakklæti á framfæri til þeirra fjölmörgu aðila sem koma fram á hátíðinni," sagði Hörður að lokum. „Þetta hefði aldr- ei verið hægt, nema vegna þess að fjöldi manns vinnur að hátíðinni í sjálfboðavinnu. Kostnaðurinn við þessa Kirkjulistahátíð í Hallgríms- kirkju er mjög mikill. Aðaltekju- stofti okkar er aðgangseyrir á aðaltonleikana, en auk þess hefur verið leitað til fyrirtækja um að- stoð, sérstaklega vegna þeirra atriða sem hafa ókeyis aðgang. Það er óhætt að segja að framlag Sin- fóníuhljómsveitar íslands vegur þungt á metunum. Við sóttum um lán til hljómsveitarinnar, en síðan tóku meðlimir hennar þá ákvörðun að gefa allar þær æfíngar sem eru á venjulegum æfíngatíma hennar. Þannig tekur Sinfóníuhljómsveitin á sig meginkostnaðinn við æfíngar vegna Jesúpassíunnar. Höfundurinn og stjómandinn, Oskar Blarr, hefur komið þrjár ferð- ir til íslands til að æfa hljómsveit- ina, allt á eigin kostnað og kór Neanderkirkjunnar kemur sömu- leiðis á eigin kostnað. Einnig fékk Listvinafélag Hallgrímskirkju styrk frá Menntamálaráðuneytinu vegna tóniistarflutnings á vígsluárinu og Kristnisjóður styrkti prógramm— og veggspjaldagerð. En þrátt fyrir allt þetta, væri hátíðin ekki möguleg, ef ekki kæmi til sjálfboðavinna flölda fólks, eink- um félaga í Mótettukómum, sem bera þungann af allri skipulagning- unni." Sem fyrr segir hefst Kirkjulista- hátíð Hallgrímskirkju á morgunn og fer miðasala fram í Hallgríms- kirkju og í Bókaverslun Sigfúsar Eymundssonar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.