Morgunblaðið - 05.06.1987, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. JÚNÍ 1987
17
nafnið „Graphica Islandica". Sýnd
verða verk eftir listamenn frá
Norður-Ameríku og Evrópu í öllum
sýningarsölum Kjarvalsstaða. Gef-
in verður út sýningarskrá með
mynd frá hveijum listamanni og
verða veitt verðlaun af alþjóðlegri
dómnefnd að upphæð 200.000 kr.
Ráðstefnan verður einnig haldin
að Kjarvalsstöðum dagan 6. og 7.
júní og á Kirkjubæjarklaustri 8.
til ll.júní.
100 listamenn frá 24 löndum
sýna á sýningunni og var við val
listamanna leitað tilnefningar
ólíkra aðila innan lands og utan,
þannig að gæfí sem best yfírlit af
grafíklist beggja vegna Atlants-
hafsins. íslensku listamennimir
voru þannig valdir, að félagar í
íslenskri Grafík og fleiri sendu inn
myndir og valdi valnefnd síðan úr
þeim.
Að sögn sýningarhaldara, var
reynt að fyrirbyggja allan mismun
á milli landa, en um leið að velja
gott yfírlit af verkum vestrænna
grafíklistámanna. Þrátt fyrir þetta
hafí undirtektir listamanna, sam-
taka þeirra og listaverkamiðlara
verið misgóðar. „En hingað til
lands eru komnar um 400 myndir
frá 25 þjóðlöndum, sem munu gefa
þó nokkuð góða mynd af vest-
rænni grafíklist í dag,“ eins og
segir í kynningu sýningamefndar.
Fyririesarar á ráðstefnunni voru
valdir með það í huga, að þeir
gætu nálgst umræðuefni Graphica
Atlantica frá sem víðustum gmnd-
velli. Meðal fyrirlesara má nefna
Leslie Leubbers og Kenneth Tyler
frá Bandaríkjunum, Roger Boulet
frá Kanada, Outi Heiskanen frá
Finnlandi, Jordi Arko frá Svíþjóð,
Isabellu Gustowsku frá Póllandi,
Franc Bordas frá Frakklandi, Ro-
semary Simmons frá Bretlandi og
Svenrobert Lundquist frá Svíþjóð,
sem er stjómandi umræðnanna.
Allflestir fyrirlesrar munu sýna
litskyggnur með fyrirlestrum
sínum. Umræðuhópar munu síðan
ræða ályktanir fyrirlesara um
stöðu grafíklistar í dag, svo og þá
hugmynd hvort unnt sé að styrkja
vestræn sambönd milli listamanna.
A Kirkjubæjarklaustri mun ráð-
stefnan halda áfram og er ætlunin
að ræða þar sérstaklega málefni
er varða Norðurlöndin.
Slitlag milli
Núpsstaðar
og Kálfafells
Hnausum í Meðallandi.
FOKIÐ hefur mjög úr veginum
milli Langholts og Eldvatns sem
gijót var keyrt í í fyrra. Er nú
ekið þar nær eingöngu á hraun-
gijóti. Fljótt verður þó úr þessu
bætt, þvi samkvæmt ákvörðun yfir-
stjómar vegamála á Suðurlandi er
það forgangsverkefni.
Nú eru hafnar framkvæmdir við
að leggja slitlag á kafla af hringvegin-
um milli Núpsstaðar og Kálfafells.
Sauðburði mun nú nær lokið hér
en þó getur sums staðar eitthvað ver-
ið eftir óborið. Það er misjafnt eftir
bæjum. Mun sauðburður hafa gengið
óvenju vel. Hefur gott veðurfar átt
mikinn þátt í því þar sem seinni hluti
maímánaðar var óvenju heitur. Fór
hiti i 21 gráðu og jafnvel aðeins meira.
— Vilhjálmur.
Siglufjörður;
Sigluvík og Stál-
vík með á Qórða
hundrað lestir
Siglufirði.
Stálvíkurtogaramir lönduðu
afla á Siglufirði i byijun vikunnn-
ar. Sigluvík kom inn með 193 tonn
af þorski og ufsa. Stálvík var að
landa í gær hátt í 180 tonnum eft-
ir viku útivist.
Stapavík landaði 30-40 tonnum af
frystri rækju á miðvikudag. Heldur
hefur dregið úr rækjuveiðinni að und-
anfomu, eins og eðlilegt er á þessum
árstíma.
Hér blæs nú hreint loft norðan úr
íshafi og blessuð rigningin leikur við
Siglfirðinga. Er það vel því allur gróð-
ur var orðinn þurr og veitti ekki af
smá raka. Matthías
NÚ FER AD
HITNA í KOLUNUM
Það er tilhlökkunarefni að byrja
grillveislurnar aftur. Góður matur, fjör
og útivera. Þig vantar kannski hitt og þetta
í grillið: kol, vökva, áhöld, bakka eða jafnvel
sjálft grillið. Leitaöu ekki langt yfir skammt.
Á næstu Essostöð finnur þú allt sem
þarf . . . nema grillmatinn!
Grillkol 2,3 kg
Grillkol 4,5 kg
Grillvökvi 0,51
Grillvökvi 1,01
Grill
225 kr.
434 kr.
75 kr.
120 kr.
frá 2076 kr.
Gríllahöld og gríllbakkar
í urvali.
E=
3
Qlíufélagið hf
AEG RYKSUGAN A FUUAJ...
VAMPYR 406 ryksugan frá AEG er 1000 W og þuí
sérlega kraftmikil, hún er með stillanlegum sogkrafti,
inndreginni snúru og snúningsbarka, svo fátteitt
sé nefnt.
\Þetta er slíkt gœðatœki að við leyfum okkur að full-
lyrða að þú fáir hvergi jafn fjölhœfa ryksugu á svo frá-
bœmverðt Kr.8.392.-
(STAÐGREITT)
Vestur-þýsk gœði á þessu verði. - Engin spurning!
.ÁFRÁBÆRU
VERÐI!
AEG
A E G heimilistœki
- því þú hleypir ekki hverju sem er í húsverkin!
ALVEG
i EINSTOK
I GÆDI
BRÆÐURNIR
ORMSSON HF
Lágmúla 9, sími: 38820