Morgunblaðið - 05.06.1987, Síða 22

Morgunblaðið - 05.06.1987, Síða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. JÚNÍ 1987 Bretland: Forskot íhalds- flokksins minnkar St. Andrews. Frá Guðmundi Heiðari Frímannssyni, fréttaritara Morg^mblaðsins. Morgunblaðið/PPJ Beechcraft-flugvélin á Reykjavíkurflugvelli í fyrrakvöld, þar sem hún hafði skamma viðdvöld á leið- inni yfir Atlantshaf. Flugmennirnir, sem voru svissneskir, tóCu hér eldsneyti áður en þeir héldu fiuginu áfram. Flugvélin fórst skammt frá Glasgow og biðu Svisslendingarnir báðir bana. Fórst við Glasgow í flugi frá Reykjavík VIKU fyrir kosningar hefur for- ysta Ihaldsflokksins minnkað verulega samkvæmt skoðana- könnunum. í fyrsta skipti er farið að tala í alvöru um, að eng- inn flokkur fái meirihluta í neðri málstofu breska þingsins. í Daily Telegraph í gær, fimmtu- dag, birti Gallup viðamestu skoð- anakönnun, sem gerð hefur verið í þessari viku. 2500 manns voru spurðir um afstöðu þeirra til flokk- anna síðastliðinn þriðjudag og miðvikudag. Niðurstaðan varð: íhaldsflokkurinn 40,5%, Verka- mannaflokkurinn 36,5% og Banda- lagið 21,5%. í síðastliðinni viku hafði íhaldsflokkurinn í Gallup- könnun 44,5%, Verkamannaflokk- urinn 36% og Bandalagið 18%. íhaldsflokkurinn hefur því hrapað um 4%, Verkamannaflokkurinn hef- ur ekki bætt nema hálfu prósenti við sig, en staða Bandalagsins er tekin að batna, eftir að fylgi þess hafði stöðugt minnkað í fyrrihluta kosningabaráttunnar. Kosið er í einmenningskjördæm- um hér í Bretlandi. í kosningabar- áttunni er fyrst og fremst tekist á um þau kjördæmi, þar sem mjóst er á mununum á milli flokkanna. Þau ráða úrslitum um fjölda þing- manna. í þeim hafa verið gerðar skoðanakannanir, sem hafa verið að birtast síðastliðna daga. Þær veita engar einhlítar upplýsingar um skoðanir kjósenda í þessum kjördæmum. En þó er ljóst, að Verkamannaflokkurinn hefur sótt þar verulega á. Það kemur einnig í ljós í könnun- unum, að 39% aðspurðra telja Kinnock hafa staðið sig best í kosn- ingabaráttunni, 23% nefna Thatc- her, 9% Owen og 8% Steel. Þetta þarf ekki að koma neinum á óvart, sem fylgst hefur með kosningabar- áttunni, eins og hún hefur verið háð í fjölmiðlum hér í landi. Það er áberandi, hve vel Kinnock hefur tekist upp. Þessar niðurstöður sýna í fyrsta skipti, að forskot íhaldsflokksins virðist ekki óbrúanlegt fyrir Verka- mannaflokkinn. Það er ekkert, sem enn bendir til, að hann verði stærsti flokkurinn, en það gæti vel farið svo, að enginn flokkur hefði hreinan meirihluta í neðri málstofu breska þingsins eftir kosningar. Þetta er líkleg niðurstaða, ef fylgi íhalds- flokksins heldur áfram að minnka, en fyrir fjórum árum fékk flokkur- inn 4% minna fylgi á kjördag en hann fékk í skoðanakönnunum viku fyrr. Síðustu dagana fyrir kosningar er búist við átökum um stefnu Verkamannaflokksins í verkalýðs- málum, en flokkurinn hefur skuld- bundið sig til að afnema alla löggjöf íhaldsflokksins í þeim málaflokki. Verkamannaflokkurinn mun reyna að beina athyglinni að heilbrigðis- málum og Kinnock hefur leitast við að skapa ágreining á milli Owen og Steel, leiðtoga Bandalagsins, og sagst vera til viðræðna við Steel, en aldrei Owen. Bandalagið mun reyna að fylgja eftir þessum bata í skoðanakönnunum og freista þess að endurtaka leikinn frá 1983, þar sem það jók fylgi sitt verulega síðustu viku kosningabaráttunnar. Glasgow, Reuter. TVEIR menn að minnsta kosti fórust þegar fjögurra sæta eins- hreyfils flugvél brotlenti er hún átti skammt ófarið til Glasgow i Skotlandi í fyrrinótt, samkvæmt frétt Reuters-fréttastofunnar. Sagði fréttastofan að flugvélin hefði verið að koma frá Reykjavík og horfið af ratsjám skammt frá Glasgow. Samkvæmt upplýsingum Sveins Bjömsson hjá Flugþjónustunni á Reykjavíkurflugvelli var flugvélin af gerðinni Beechcraft Bonanza, BE-33. Kom hún til Reykjavíkur frá Gæsaflóa á Labrador klukkan 18.30 í fyrrakvöld og hélt áleiðis til Glas- gow eftir skamma viðdvöl. Voru tveir Svisslendingar á flugvélinni og voru þeir að feija hana frá Bandaríkjunum til heimalands síns. „Ég var vakin upp klukkan þijú í nótt og spurður um ferðir flugvél- arinnar hér og sagt að hún hefði farist skammt frá Glasgow. Meira hef ég ekki heyrt og veit ekki hvað hugsanlega hefur gerst," sagði Sveinn Bjömsson í gær. VÖRN GEGN VEÐRUN Það er misskilningur að járn þurfi að veðrast. Alltof lengi hafa menn trúað því að galvaníserað járn eigi að veðrast áður en það er málað. Þannig hafa menn látið bestu ryðvörn, sem völ er á skemmast og afleiðingin er ótímabær ryðmyndun. Með réttum HEMPELS grunni má mála strax og lengja þannig lífdaga bárujárns verulega. HEMPELS þakmálning er sérhæfð á bárujárn og hefur frábært veðrunarþol. íslenskt veðurfar gerir meiri kröfur til utanhússefna en veðurfar flestra annara landa. Ef steinn er óvarinn við þessar aðstæður grotnar hann niður á skömmum tíma, aðallega vegna frostþíðuskemmda og áhrifa slagveðurs við útskolun fylliefna steinsteypunnar. Steinsílan gefur virka vörn gegn þess konar áhrifum. Opin veggjamálning, grunnur jafnt og yfirefni á stein, múr- stein og eldri málningu. Hefur afbragðs þekju og mikið veðr- unarþol. Fjöldi lita sem halda skerpu sinni lengi án þess að dofna. SIIPPFEIAGIÐ Dugguvogi 4 104 Reykjavík 91*8 42 55 ÞAKMÁi MiMfi 5187

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.